Alþýðublaðið - 25.06.1975, Side 7
AFMÆLI SKÁKSAMBANDS ISLANDS
•ns-
örn
>ór-
íon,
:ák árið
allt til
ráðu-
' unnið
7 sinn-
Bstir að
iur Ás-
Friðrik
m hvor,
56-63) 4
lafsson
mdsson
Sigur-
tn hver.
þennan
og átta
rn Þor-
íinn að
;r skák-
ni, nú á
endinga
stofnun
r Péturs
Cggerts
. Siðan
ialvett-
endinga
). Skák-
lið á 3.
haldið
ksveitin
t Gilfer,
Einar
imunds-
iar Þor-
nd hafn-
átttöku-
68 skák-
'innland
sigruðu
r tekið
að við-
36, sem
manna,
slfk mót
ár eftir
)50. Eru
tölu, og
aðeins
miklu
mbands
r forseti
í fyrradag, 23. júní, voru liðin 50 ár frá stofnun Skáksambands íslands - það var stofnað á Blönduósi árið
1925. í meðfylgjandi grein, sem Baldur Pálmason hefur tekið saman, er stiklað á stóru í sögu sambandsins
þjóðakeppni, sem flestum er
metnaðarmál að rækja. Siðan
1952 höfum við viðhaldið okkar
hlekk í keðjunni. Að visu hefur
frammistaðan verið nokkuð mis-
jöfn, vegna forfalla, sem stundum
hafa hamlað för bestu skák-
manna okkar, Lengst náði is-
lenska sveitin 1966 á Kúbu, er hún
tefldi i A-flokki úrslitakeppninnar
og varð i 11. sæti meðal 52 þjóða.
Einu sinni áður tókst Islendingum
að komast i A-flokk, hlaut 12. sæti
meðal 26 þjóða i Amsterdam 1954.
1 Buenos Aires 1939 sigruðu Is-
lendingar i B-flokki (16. sæti af
26) og i Tel-Aviv 1964 vannst sigur
I C-flokki (29. sæti af 50 þátttöku-
þjóðum, en flokkarnir voru þá
fjórir). Er þess vert að geta, að
aldrei fyrr né siðar hefur islenska
sveitin verið skipuð jafn ungum
mönnum : aldursforsetinn 25 ára!
Skákmót Norðurlanda er nú
haldin annað hvert ár á móti
ólympiumótum. Þar hafa Islend-
ingar margoft tekið meiri eða
minni þátt i keppni, fyrst 1928, er
Pétur Zóphóniasson og Eggert
Gilfer fóru til óslóar, eins og fyrr
greinir. Þrisvar hafa þessi mót
verið haldin i Reykjavik, 1950,
1961 og 1971. Fjórir menn hafa
orðið Norðurlandameistarar i
skák: Baldur Möller 1948 og 1950.
Friðrik Ólafsson 1953 og 1971, Ingi
R. Jóhannsson 1961 og Frey-
steinn Þorbergsson 1965. Alls
hafa þvi tslendingar haldið Norð-
urlandatitlinum i 13 ár, eða sem
næst jafnlengi og aðrar Norður-
landaþjóðir til samans siðan 1948.
Stúdentar hafa haldið heims-
meistaramót árlega i meira en
tvo áratugi. Margir okkar beztu
skákmanna hafa verið i þeim hóp
ogoft myndað sveitir á þeim vett-
vangi. Fjórða mótið af þessu tagi
fór fram i Reykjavik sumarið
1957. Framan af kom Skáksam-
band Islands aðallega fram sem
styrktaraðili með samtökum
stúdenta hér, en siðari árin hef-
ur sambandið átt beina aðild að
myndun stúdentaskáksveita fyrir
þessi mót.
Ýmis mót með þátttöku er-
lendra gesta hafa verið haldin á
liðnum áratugum, og hefur skák-
sambandið oftast haft þar hönd i
bagga, oft forgöngu. Aðalsam-
starfsaðili að sikum mótum hefur
að sjálfsögðu verið Taflfélag
Reykjavikur. Ekki verða talin
hér önnur mót en þau, sem sett
hafa mestan svip á siðasta ára-
tuginn, Reykjavikurmótin svo-
nefndu, sem haldin hafa verið
annað hvert ár siðan 1964, alls sex
sinnum. Tillögumaður og frum-
kvöðull að þessum mótum var
fyrrv. forseti sambandsins, As-
geirÞór Asgeirsson verkfr., en að
mótshaldinu stóðu stjórnir skák-
sambands og Taflfélags Reykja-
vlkur. Hefur súsamvinna haldist i
stórum dráttum. Margir stór-
frægra skákmeistara hafa verið
gestir á þessum mótum t.d. Tal
og Smysloff fyrrum heimsmeist-
arar. Þeir tveir unnu lika hvor á
sinu móti, hinu fyrsta og sið-
asta, á þriðja mótinu unnu land-
ar þeirra tveir, Tajmanoff og
Vasjúkoff, en á hinum mótunum
þremur sigruðu landar okkar,
Friðrik Ólafsson 1966 og 1972 (I
seinna sinnið jafn tveimur erl.
meisturum), en 1970 bar Guð-
mundur Sigurjónsson sigur úr
býtum, hlaut vinningshlutfallið
80%, sem er frækilegur árangur
rúml. tvltugs manns.
Arið 1960 gekkst skák-
sambandsstjórn fyrir þvf nýmæli
aö efna til sveitarkeppni i skák
milli fyrirtækja og stofnana i
Reykjavik. Tillaga þar um kom
frá Taflfélagi Hreyfils og talaði
Guðlaugur Guðmundsson fyrir
henni á aðalfundi 1957. Einn
stjórnarmanna skáksambands-
ins, Gisli R. Isleifsson, stjórnði
þessari keppni mörg fyrstu árin.
Skákkeppni stofnana hlaut strax
miklar vinsældir og hefur siðan
verið langstærsta skákmót hér-
lendis á ári hverju. Á fyrsta ári
urðu þátttökusveitir 42 (4
manna), og á 3. ári urðu þær 49.
Munu þær aldrei hafa orðið fleiri.
A siðari árum hefur Taflfélag
Reykjavikur verið mótaðili skák-
sambandsins að mótum þessum.
Samvinna þessara tveggja
aðila náði hvað lengst árið 1967,
er þau gerðust sameignaraðilar
að félagsheimili skákmanna við
Grensásveg i Reykjavik. Er
skáksambandið eignaraðili að 1/3
hluta en taflfélagið að 2/3 hlutum,
og hafði síðarnefndi aðilinn for-
göngu um þessi húsakaup, eink-
um þáv. formaður félagsins.
Hólmsteinn Steingrímsson. Fyrst
var keypt efri hæð hússins nr. 46
en siðar bætt við efri hæð á við-
byggðu húsi nr. 44. Er þarna
komin langþráð bækistöð fyrir
skáklif i höfuðborginni, og á að-
staðan þar enn eftir að batna.
Láta mun nærri að á 50 ára ferli
Skáksambands Islands hafi jafn-
mörg skáfélög i landinu átt aðild
aðþvilangan tima eða skamman.
Arið 1937 var fjölgað i skáksam-
bandsstjórn úr þremur mönnum
i fimm og siðan i sjö i fyrra. Nú-
verandi forseti er Gunnar Gunn-
arsson, kjörinn 1974. Tólf manns
hafa gegnt forsetastörfum fyrir
sambandið frá byrjun, lengst As-
geir Þór Ásgeirsson (9 ár sam-
fleytt, 1957-66), siðan Elis Ó. Guð-
mundsson (7 ár og önnur 11 ár I
aðalstjórn, lengst allra), Ari Guð-
mundsson (6 ár) Pétur
Zóphóniasson (6 ár) og Árni
Snævarr (6 ár). Auk Elisar og
Péturs er látinn Sigurður Jónsson
endurskoðandi sem var forseti
1955-57. Aðrir, sem lengsta stjórn-
arsetu eiga að baki, eru Garðar
Þorsteinsson alþm. (11 ár) Guð-
mundur Arnlaugsson rektor (11
ár), Aðalsteinn Halldórsson
tollv. 29 ár, þar af forseti i 2
ár), Gisli R. ísleifsson (9 ár),
Baldur Pálmason útvarpsfltr. (8
ár), Baldur Möller ráðuneytisstj.
(6 ár), Guðmundur G. Þórarins-
son verkfr. (6 ár, þar af 5 ár for-
seti), og Guðbjartur Guðmunds-
son bifrsth. (6 ár). Stjórnin réði
fyrst framkvæmdastjóra til sam-
bandsins á miðju ári 1968 og ekki i
fulltstarf. Þaðvar Þórir Ólafsson,
en árið 1971 var ráðinn Guðjón
Ingi Stefánsson. Einnig störfuðu
Trausti Björnsson og Magnús
Sigurðsson sem slikir stuttantima
og ennfremur Freysteinn Jó-
hannsson sem sérstakur blaða-
fulltrúi meðan einvigi Spasskys
og Fischers stóð sumarið 1972.
Heimsmeistaraeinvigið ber
hæst allra skákviðburða á landi
hér, og hvildi það fyrst og fremst
á herðum Skáksambands íslands.
Fylgdi þvi óhemju mikil vinna og
geysileg auglýsing út á við fyrir
land og þjóð. Til marks um það er
t..d. allur sá grúi bóka, sem hefur
verið skrifaður um þennan við-
burð, að ónefndum fjölda greina i
öllum heimsblöðum.
Auk Fishcers og Spasskys hafa
5heimsmeistarar i skák komið til
tslands ogteflt. Aður eru nefndir
Tal og Smysloff (1964 og 1974), en
hinir voru dr. Aljehin (1931) og
dr. Euwe (1948). Einnig heims-
meistari kvenna, Nona
Gaprindashvili (1964). Tal og
Spasský voru hér áður á ferð 1957,
er þeir tefldu á heimsmeistara-
móti stúdenta, og Fischer tefldi á
Fischers-móti 1960.
Þrir Islenskir skákmenn hafa
hlotið alþjóðlegan meistaratitil:
Friðrik Ólafsson (1956), Ingi R.
Jóhannsson (1963) og Guðmundur
Sigurjónsson (1970). Friðrik
ávann sér siðan fljótlega stór-
meistaranafnbót (1958), og nú
hefur Guðmundur einnig unnið til
hennar, þótt ekki sé formlega frá
þvi gengið ennþá. Verður það
væntanlega gert á aðalfundi Al-
þjóðasambands skákmanna i
sumar.
Skáksambandsstjórn hefur
hingað til heiðrað þrjá menn með
þvi að kjósa þá heiðursfélaga
sambandsins: Pétur Zóphónia-
sson (1933), Ara Guðmundsson og
Jón Sigurðsson (1965).
Skáksamband Islands hefur
lengst af verið félagi i Skáksam-
bandi Norðurlanda og Alþjóða-
sambandi skákmanna, en það er
aðeins ári eldra en samband okk-
ar. Fyrir fimm árum var einnig
gengið i Alþjóðlega bréfskáka-
sambandið, og er keppni þegar
hafin á þeim vettvangi, en hún
tekur allajafna nokkur ár.
Siðasti vaxtarbroddurinn á
meiði Skáksambands íslands er
keppni meðal kvenna um sérstak-
an íslandsmeistaratitil, en hún
fór fram á siðasta skákþingi. Hef-
ur þetta lengi verið kappsmál
skákáhugamanna, þótt ekki hafi
komist á rekspöl fyrr en nú.
Fyrsti Islandsmeistari kvenna i
skák er ung námsmey, Guðlaug
Þorsteinsdóttir i Kópavogi.
Þannig heldur sagan áfram að
gerast. Á hausti koníanda er full-
ráðið að Skáksamband Islands
gangist fyrir svæðismóti I skák,
en slik mót hafa ekki fyrr verið
haldin hérlendis.
Eigið þér tóm
gashylki? t
Viö vekjum athygli viöskipta-
manna okkar á aö tilfinnanlega
skortir á aö tæmd gashylki berist
okkur til baka að notkun lokinni.
Félagiö hvetur viðskiptamenn
sína til aö skila inn ónotuðum
hylkjum, en þau eru endurkeypt
hæsta verði.
SKILAGJALD GASHYLKJA
11 kg. hylki kr. 4.500.OO
47 kg. hylki kr. 7.500
eru móttekin á
ollum bensínstöövum
félagsins, hjá umboös-
mönnum um land allt, í
kynditækjaverzluninni aö
Suöurlandsbraut 4 og Olíustöð
félagsins í Skerjafiröi.
Olíufélagið Skeljungur hf
Suöurlandsbraut 4 - Reykjavík Sími 38100
Shell
angarnir
DRAWN BY DENNIS COLLINS WRITIEN BY MAURICE DODD
© frTi's
3276
Miðvikudagur 25. júní 1975.