Alþýðublaðið - 25.06.1975, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 25.06.1975, Blaðsíða 9
REKSTUR RfKISÚTVARPSINS: AFNOTAGJOLD HUODVARPS OG SJONVARPS aB ræöa, ef valið yrði t.d. aldur- biliö 16—67 ára, en þetta eru þeir aldursflokkar, er standa að mestu undir kostnaði við opin- bera þjónustu hér á landi. Með þessu móti gætu þjónustugjöld orðið tiltölulega lág. Hins vegar yrði innheimtan mjög umfangs- mikil og ylli mikilli fjölgun gjaldenda, sem innheimtumenn rikisins yrðu að fást við. Ekkert tillit myndi með þessu móti tek- ið til greiðslugetu gjaldenda. Eitt gjald, sóknargjald, er nú lagt á ákveðna aldursflokka, en það er lagt á af einstökum sókn- arnefndum og ýmist innheimt af sóknum, sveitarfélögum eða innheimtumönnum rikisins, og er augljóst, að slikt álagningar- og innheimtukerfi væri illa til þess fallið að hafa með höndum þjónustugjald útvarps. Auk þess hafa verið gerðar tillögur af opinberum aðilum um gjör- breytingu þessarar skipunar til einföldunar á framkvæmd. Tel- ur nefndin af þessum sökum ekki unnt að leggja aldur til grundvallar gjaldskyldu. Gjald- stofn, sem byggist á útsvars- greiðendum, hefur þann kost fram yfir aldursgrundvöllinn, að þar er um að ræða greiðslu- getu, þótt hún geti i vissum til- vikum verið harla litil. En meg- inókosturinn frá framkvæmda- sjónarmiði er sá, að það eru inn- heimtumenn sveitarfélaga, sem annast framkvæmdina, og telur nefndin óeðlilegt og sjálfsagt kostnaðarsamt, að þessir aðilar innheimti gjöld fyrir rikisstofn- un. Til greina kæmi einnig að leggja þjónustugjald útvarps á simnotendur. Eflaust yrðu inn- heimtuaðgerðir auðveldar og árangursrikar með þessum hætti, en nefndin telur þó óæski- legt að blanda saman Utvarps- og simnotendum að þessu leyti, þvi að til þess er mismunur þjónustusviðs þessara tveggja rikisfyrirtækja of augljós. Til- laga nefndarinnar er, að þjón- ustugjald útvarps sé lagt á alla tekju- og eignarskattsgreiðend- ur. Meginkosturinn er fólginn i auðveldri og ódýrri fram- kvæmd, og einnig er þar tekið tillit til efnahags, en tilhneiging hefur verið i þessa átt að undan- fömu. Við útskrift álagningar- og innheimtuseðla þyrfti ein- ungis að bæta við einni tölu fyrir þá skattgreiðendur, sem greiddu tekju- og eignarskatt á siðasta ári, og upphæð gjaldsins yrði ákveðin i fjárlögum hverju sinni. Innheimtan yrði einungis I höndum innheimtumanna rikissjóðs. Hér er um greiðslu fyriralmenna þjónustu að ræða, þar sem gjaldskyldan tekur þó mið af efnahag manna. Með þessu móti yrðu ýmsir tekjulág- ir aðilar, svo sem námsmenn og aldrað fólk, sjálfkrafa undan- þegnir gjaldskyldu. Ætti á þenn- an hátt að vera unnt að útrýma öllum sérstökum undanþágu- ákvæðum, sem reynst hafa erfið og kostnaðarsöm i framkvæmd. Nefndin leggur auk þess til, að gildandi aðgreining afnota- gjalds hljóðvarps og sjónvarps verði afnumin og eitt þjónustu- gjald komi i stað hvoru tveggja. Éru til þess tvær meginástæður. I fyrsta lagi er sjónvarpsþjón- usta sifellt að verða almennari, en árið 1974 eru gjaldendur af- notagjalda sjónvarps áætlaðir um 46 þúsund og gjaldendur hljóðvarpsgjalda á sama tima 64 þúsund. Til samanburðar skal þess getið, að greiðendur tekju- og eignarskatts eru áætl- aðir 55 þúsund. Er talið, að sjón- varpið nái nú til 95% lands- manna. Til greina kæmi að á- kvarða þjónustugjald lægra á svæðum, þar sem sjónvarps verður ekki notið, meðan slikar aðstæður vara. 1 öðru lagi yrði spamaður af nýrri skipan inn- heimtu takmarkaður, ef við- halda ætti sjónvarpsgjöldum, enda þótt afnotagjöld bæði sjón- varps og hljóðvarps yrðu inn- heimt á þann hátt, sem hér er lagt til, vegna þess að ekki yrði hjá þvi komist að halda skrán- ingu sjónvarpstækja áfram. Komið hafa fram vissar efa- semdir af hálfu rikisútvarpsins um öryggi innheimtunnar, ef innheimtumenn rikissjóðs önn- uðust innheimtu þjónustu- gjaldsins. Þar sem gjaldið yrði innheimt á sama hátt og tekju- og eignarskattar má fara nokk- uð nærri um árleg innheimtu- hlutföll, og ætti ekkert að mæla á móti þvi, að rikissjóður á- byrgðist rikisútvarpinu skil gjaldsins i samræmi við það. Það yrði mikill kostur fyrir rikisútvarpið, að þjónustugjald ið yrði innheimt á tiu gjalddög- um á ári, en það leiddi til mun jafnari inngreiðslu tekna en nú, þar sem gjalddagar eru tveir. Þessi nýskipan innheimtu- málanna yrði til þess, að unnt væri að leggja innheimtudeild rikisútvarpsins niður. Auglýs- ingadeild hljóðvarps myndi eft- ir sem áður annast innheimtu vegna auglýsinga bæði fyrir hljóðvarp og sjónvarp. Núver- andi innheimtukerfi afnota- gjalda leiðir óhjákvæmilega til umfangsmikils og kostnaðar- sams rekstrar. Starfsfólk inn- heimtudeildar var 1. janúar 1975 21 að tölu og kostnaður við reksturinn var 25,3 m. kr. árið 1972 og 12,1% af allri einn- heimtu. Miðað við óbreyttan starfsmannafjölda og verðlag i mai 1975 má áætla kostnaðinn á þessu ári um 40 m. kr. Þetta er sá árlegi sparnaður, sem leitt gæti af þvi, að tillögu nefndar- innar yrði hrundið i fram- kvæmd. Er þá ekki gert ráð fyrir sérstakri greiðslu útvarps- ins fyrir innheimtuna, enda kostnaðarauki óverulegur, þar sem þessi nýskipan félli mjög vel að þvi kerfi sem fyrir er. Útvarpsstjóri viðurkennir ýmsa annmarka á núverandi innheimtukerfi, einkum undan- þáguákvæði, sem valda erfið- leikum, en örlagarikt gæti það orðið að hans mati að hætta KASTLJÓS Á BÍLANOTKUN Kostnaður vegna bifreiðanotkunar rikisútvarpsins á árinu 1974 reyndist 9.203 þús. kr., og skiptist hann þannig I þús. kr.: Greiðsla Aðkeypt Bila- Rekstur Samtals skv. akst akstur leigu- eigin urssamn. bilar bifr. Hljóðvarp 100 2.050 22 152 2.324 Sjónvarp 46 3.235 1.151 1.146 5.578 Innh.d. — 1.301 — — 1.301 Samtals 146 6.586 1.173 1.298 9.203 Áberandi er, hverstu aðkeyptur akstur er hátt hlutfall af heildar- kostnaði við bifreiðanotkun. Þá er upplýst, að á þessu ári var veruleg- ur hluti af þessum aðkeypta akstri greiddur starfsmönnum rikisút- varpsins, án þess að aksturssamningar hefðu verið gerðir við þá, en slikt fer að sjálfsögðu i bága við gildandi reglur um þessi mál. Af þess- um orsökum leggur nefndin til, að bila- og vélanefnd verði fengið það hlutverk að gera rannsókn á bifreiðamálum rikisútvarpsins og gera til- lögur til aukinnar hagkvæmni og annarra úrbóta. GUM SJÓNVARPS á framfæri nema fimm daga vikunnar i stað sex áður, myndu að einhverju leyti auka aug- lýsingarmagnið þá daga, sem útsendingar fara fram. Verður þvi að ætla, að tekjutap vegna auglýsinga yrði minna en sem svarar hlutfallslegri fækkun út- sendingardaga, en erfitt er hins vegar að.meta það i tölum. Nefndin gerir ekki tillögu um fækkun útsendingardaga, en telur rétt, að niðurstöður þess arar athugunar komi fram. Hins vegar telur nefndin sjálf- sagt, að hætt sé útsendingu stillimyndar á laugardögum og sunnudögum, þar sem tilgangur sliks er ekki augljós og kostnaður nálgast 1 millj. kr. á ári. Unnið er að styttingu vakta- tima i sjónvarpi i 10 stundir úr 12 I samræmi við vinnuvöku- ákvæði siðasta kjarasamningi opinberra starfsmanna. Er af þessari breytingu að vænta um- talsverðs sparnaðar, ef þess er gætt, að vinnustundir, sem við þetta sparast, verði ekki greidd- ar i formi ónauðsynlegrar vinnu, lengri útsendingartima eða aukinnar framleiðslu þátta og mynda. skráningu tækja. Hann bendir á, að grannþjóðir hafa sérskattað eigendur litasjónvarpstækja til að standa undir aukakostnaði, sem sú starfsemi hefur i för með sér, en slikt verður ekki gert án sérstakrar skráningar.Jafn- framt lætur hann i ljósi ugg um að tekjugrundvöllur, byggður á tekju- og eignarskattsgreiðend- um geti orðið mjög ótryggur. Þó að hlutfall greiðenda sé i svipinn hagstætt, er þaðþó breytilegt og gæti hæglega tekið stökkbreyt- ingu með nýrri skattalöggjöf, sem fækkaði gjaldendum eða algerri niðurfellingu beinna skatta. Loks telur hann óheppi- legt aðbyrja á slikri innheimtu með undanþáguákvæðum, sem varla yrði komist hjá, meðan nokkur þúsund landsmanna hafa engin not af sjónvarpi. Aðrir nefndarmenn eru þeirr- ar skoðunar, að þessi atriði verði að vega á móti þeim spamaði, sem leiddi af upptöku þess álagningar- og innheimtu- kerfis, sem hér er gerð tillaga um. Enda þótt grannþjóðirnar skrái eigendur litsjónvarps- tækja og sérskatti þá, mætti allt einshugsa sér að innheimta sér- gjald,ef nauðsynlegt þætti, i eitt skipti við sölu tækjanna, og losna þannig við umfangsmikið og kostnaðarsamt skráningar- kerfi. Þetta kæmi til álita, þegar ákvörðun um litsjónvarp hér á landi yrði tekin. Ljóst er, að tekjugrundvöllur byggður á tekju- og eignarskattsgreiðend- um getur verið ótryggur, ef hætta er á stórfelldum breyting- um þessara skatta, er áhrif hafa á fjölda gjaldenda. Hins vegar er ekkert, sem nú liggur fyrir um sllkar breytingar i framtið- inni og þvi hæpið að hafna á þeim grundvelli þvi kerfi, sem hér er lagt til að innleitt verði og þar með milljónatuga sparnaði á ári hverju. Enda verður að treysta þvi, að yrðu breytingar af þessu tagi framkvæmdar, myndu stjórnvöld ekki láta það leiða til gjaldþrots rlkisútvarps- ins, heldur leita annarrar úr- lausnar. Varðandi siðasta atrið- ið, að óheppilegt sé að byrja inn- heimtuna með undanþágu- ákvæðum, má benda á, að sú skipan, sem hér er höfð i huga, yröi mjög auðveld i fram- kvæmd. Landssiminn, sem hef- ur umsjón með dreifikerfinu, myndi fyrir lok hvers árs gefa upp þau svæði, sem ekki geta notiö sjónvarps. Þjónustugjald útvarpsins lagt á tekju- og eign- arskattsgreiðendur á þessum svæðum yrði fyrir næsta ár ein- ungis lægra en annars staðar. Þá má ekki gleyma frá hvers konar kerfi verið er að hverfa, þegar rætt er um undanþágur. ENGAN AF- SLÁTT Að lokum er svo hér birt athyglisverð klausa úr skýrslu nefndarinnar, en hún er rökstuðningur nefndar- innar fyrir þvi að afnuminn verði afsláttur auglýsinga- deildar sjónvarpsins: Frá upphafi hefur aug- lýsingadeild sjónvarpsins veitt tilteknum auglýsinga- stofum 10% afslátt auk gjaldfrests fram yfir aðra. Þegar sjónvarpið var að hefja göngu sina var mikil ásókn frá ýmsum aðilum i það, að sjónvarpið sjálft annaðist gerð auglýsinga, en aðstaða var af skornum skammti annars staðar. Mun 'þessi veiting afsláttar i upp- hafi að einhverju leyti hafa haft þann tilgang að hvetja aðra til að koma á fót að- stöðu til gerðar sjónvarps- auglýsinga. Nú eru þessir byrjunarerfiðleikar yfirunn- ir og hlutverki afsláttarins að þvi leyti lokið. Ollu alvar- legra er það, að afsláttur þessi og gjaldfrestur er bundinn við tiltekna aðila, en öðrum er haldið utan við. Þegar af þessum sökum er vart verjandi, að þessari fyrirgreiðslu af hálfu opin- bers aðila sé haldið áfram. Þessi afsláttur nam um 3 m. kr. á árinu 1974. Oliklegt verður að telja, að afnám af- sláttarins hafi greinanleg áhrif á auglýsingamagn, þvi að vart er um nána keppi- nauta að ræða. Af þessum sökum leggur nefndin til, að sjónvarpið hætti að veita af- slátt á auglýsingum og einnig verði afnumin mis- munun varðandi gjaldfresti. ENGAR GREÐSLUR TIL RÁÐAMANNA Það hefur tiðkast um alllangt skeið, að rikisútvarpið greiði öllum utanað komandi aðilum sérstaklega fyrir að koma fram i hljóðvarpi og sjónvarpi, ef um aðra þætti en fréttir og frétta- auka er að ræða. Oft má þetta teljast eðlileg meðferð mála, en nefndin vill þó gera athuga- semdir við greiðslur af þessu tagi tilákveðinna starfshópa, og er hér um að ræða ráðherra, stjórnmálamenn og opinbera starfsmenn, þegar þessir aðilar koma fram sem slikir. Hvað tvo fyrr nefndu hópana varðar, er framkoma i hljóðvarpi eða sjónvarpi jafnan i þeirra eigin þágu og þess málsstaðar, sem þeir túlka. Að þvi er opinbera starfsmenn varðar er þvi oft svo háttað, að upptaka á viðtölum eða umræðum fer fram á tíma, er þeir i raun eiga að gegna öðr- um störfum, og fá þeir greitt tvöfalt þegar þannig stendur á. Nefndarmönnum er kunnugt, bæði af eigin raun og annarra, að menn úr þessum starfshóp- um eiga almennt ekki von á sér- stakri umbun fyrir þjónustu sem þessa. Nefndin leggur til, að reglum um þessar greiðslur veröi breytt á þann hátt, að framangreindum aðilum verði ekki greitt fyrir að koma fram i hljóðvarpi eða sjónvarpi, sér- staklega þegar upptaka fer fram á tima, sem þeir fá hvort sem er greitt fyrir frá þvi opin- bera. Miðvikudagur 25. júní 1975. o

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.