Alþýðublaðið - 12.11.1975, Side 3

Alþýðublaðið - 12.11.1975, Side 3
Stefnuljés Helgi Skúli Kjartansson skrifar LlFEYRIS- MISRÉTTIÐ Já, margt er misréttið, og það sem hvað oftast er bent á þessa dagana, er hinn gagnslitli Iíf- eyrisréttur venjulegra launþega sem eiga aðild að almennum líf- eyrissjóðum, saman borið við opinbera starfsmenn með sinn verðtryggða Íífeyrissjóð. Vissu- lega er þetta átakanlegt misrétti, en ég get ekki að því gert að mér f innst það að nokkru leyti liggja í því að lifeyriskjör opinberra starfsmanna séu of góð og ekki hægt að krefjast sömu kjara fyrir alla launþega. Þetta er staðhæf ing sem veitir víst ekki af að skýra nánar. Launþegar hafa yfirleitt samið um það að leggja 1/10 hluta launa sinna i lifeyris- sjóð. Það heitir svo að hluti þessa fjár sé dreginn af launum og hluti sé framlag launagreiðanda, en það er auðvitað bara orðaleikurj öll upphæðin er i raun hluti af umsömdum launakjörum sem ætti að skoðast eign launþega einna, og i rauninni á það ekki að koma launagreiðendum viö hve mikið af kaupi sinu launþegar kjósa að taka i beinni greiðslu og hve mikið gegnum lifeyrissjóði. Lifeyrissjóðir eru ávaxtaðir i útlánum, að mestu leyti óverðtryggðum veðlánum sem eru, verðbólgunnar vegna, aðeins greidd til baka aö nokkru leyti, mikill hluti lánanna er raunverulega gjöf sem lánþegi fær i mynd verðbólgugróða. Sumir lifeyrissjóðir lána talsvert, og jafn- vel meirihluta fjár sins, til atvinnurek- enda, en auðvitað er óeðlilegt að sjóðirnir styrki þá, þannig að slikar lánveitingar eru ekki veriandi (nema heimild væri til að visit.binda lánin svo þau væru engin gjöf). Þá er til i dæminu að rikið ráðstafi hluta af lifeyrissjóðunum, en það á auð- vitað ekki heldur að eiga sér stað án visi- tölubótaj ef fé lifeyrissjóðanna er látið rýrna, á það að gera það I höndum sjóðfé- laga sjálfra, og það gerir það lika i flest- um tilvikum. Sem sagt, ef rétt er að farið njóta félag- ar almennu lifeyrissjóðanna að fullu þess hluta launa sinna sem til sjóðanna rennur. Þeir taka verðmæti þessa launahluta að miklu leyti út sem verðbóigugróða af byggingarlánum, og þá er auðvitað aðeins litið eftir handa þeim að taka út í eiginleg- um lifeyrisgreiðslum eftir að þeir hættu störfum. Kannski vilja þeir hafa þetta svona, vilja kannski njóta þessara pen- inga strax og geyma áhyggjurnar af ell- inni þangað til seinna, finnst kannski verðmæt húseign eins góð ellitrygging og mikil lifeyrisréttindi. Mér fyndist nú samt sanngjarnara að lifeyririnn sjálfur væri meira virði og minna af honum tekið fyrirfram i hagstæðum lánum. Meðal annars vegna þess að það er ekki eins auðvelt að úthluta lánunum af fullkominni óhlutdrægni þannig að hver njóti sins rétt- ar. Að nokkru leyti er þetta hagsmuna- árekstur hinna gömlu og ungu i hverjum lifeyrissjóði, og min samúð er með þeim gömlu, þeir ungu verða lika gamlir á sin- um tima og þá kemur röðin að þeim. En hvernig er hægt að bæta hlut lif- eyrisþeganna? Með þrennu móti, sýnist mér. Fyrsta aðferðin er sú sem opinberir starfsmenn njóta, að verðtryggja llfeyris- greiðslurnar en ekki útlán sjóðsins sem sagt að verðtryggja sjóðinn aðeins i ann- an endann. Þar eð sjóðurinn rýrnar i verðbólgunni (sjóðfélögum til hagsbóta, þeim sem lánin hafa fengið), hefur hann ekki efni á að greiða verðbæturnar á lif- eyrinn, heldur gerir rikissjóður það. Með þessu móti fá opinberir starfsmenn hluta af verðgildi launa sinna tvisvar greiddan, fyrst sem verðbólgugróða af lánum sin- um, siðan sem verðbætur á lifeyri. Um þetta var ekki samið af neinum asnaskap. Það er alltaf reynt að halda beinum launum rikisstarfsmanna sem lægstum og bæta þeim það upp með frið- indum og hlunnindum, og er verðtrygging lifeyrisins af þvi tagi. I annan stað er fjármálastjórn rikisins ævinlega skamm- sýn (það er eitt af lögmálum stjórnmál- anna), og verðtryggingarbyrðin leggst ekki tafarlaust á rikissjóð með fullum þunga (vegna þess hve opinberum starfs- mönnum hefur fjölgað ört i seinni tið og þvi tiltölulega fáir að komast á eftirlauna- aldur nú) eins og launahækkun hefði gert. En allt um það er lifeyrisskipan opinberra starfsmanna ekki góð fyrirmynd fyrir aðra lifeyrissjóði. Hún er til dæmis var- hugaverð að þvi leyti að hún gerir alla opinbera starfsmenn að verðbólgubrösk- urum: þvi örar sem verðlag hækkar, þvi meira af launum sinum fá þeir tvigreitt. önnur leið til þess að bæta hag lifeyrisþega er að hætta að safna fé i sjóðina, heldur greiða féð út jafnharðan og. það kemur inn. A þessari leið er sá annmarki að hún dregur úr sparnaði i þjóðfélaginu, og það einmitt þeim sparn- aði sem gæti orðið verulegt afl i höndum almannasamtaka ef rétt væri á haldið. Engu að siður kemur þessi leið til álita. Þriðja leiðin er að verðtryggja lifeyris- sjóðina sem mest i báðá enda.bæði útlán og lifeyrisgreiðslur. Þá er hagurinn af sjóðunum færður frá lánþiggjendum til lifeyrisþega, án þess að sama verðmætið sé tvigreitt. Þetta væri sjálfsagt að gera ef almenn verðtrygging lána væri tekin upp (sem ég tel rétt að gera en er svart- sýnn á að það gangi fram), en örðugt meðan svo er ekki. Þó er unnt að fara nokkuð i þá átt, auka verðtryggða ávöxt- un lifeyrissjóðanna, meðal annars i hús- næðislánakerfinu, og lika með þvi aö veita lifeyrissjóðunum forkaupsrétt að verö- tryggðum skuldabréfum rikissjóðs, þau myndu þá minni skaða gera með þvi að draga sparifé frá bönkunum og torvelda skatteftirlit, og um leið væri hagur aldr- aðra tryggður betur en nú er. • f ré tt abráðu Dagsími til kl. 20: 81866 f] |-1 Kvöldsími 81976 Nautasteikin á öllum borðum Er þetta jafn- rétti í reynd? Urgur er i kvenfólki, sem vill nema i Hótel- og veitingaskóla tslands. Er talið nauðsyn- legt að matreiðslu- og þjóns- nemar hafi komizt á samning áður en námið hefst, en hjá stúlk- um hefur það gengið mjög treg- lega. Eru veitingamenn almennt þvi mjög andsnúnir að hleypa stúlkum i þessar starfsgreinar. I Hótel- og veitingaskólanum eru nú um-20 nemendur og af þeim aðeins 2 stúlkur. Alþýðublaðið hafði samband við matreiðslunema á fjórða ári i Hótel- og veitingaskólanum og spurði um ástæður þess að stúlk- ur væru ekki jafn velkomnar til þessara starfa og drengir. Kvað neminn erfitt að svara þvi, en það væri fullljóst, að flestir veit- ingamenn vildu ekki taka stúlkur á samning og þar með væri lokað fyrir möguleika stúlkna til þessa náms. Ástæðurnar væru vand- séðar en veitingamenn bæru þvi fyrir sig að likamlegt þrek væri nauðsynlegt við þjóna- og mat- reiðslustörfin, og væru karlmenn þar sterkari á svellinu. Viðmæl- andi Alþýðublaðsins vildi þó taka fram, að hann persónulega teldi kvenfólk jafnfært karlmönnum að sinna þessum störfum, eins og reyndar reynslan hefði þegar skorið úr um. Er augljóst af þessum upplýs- ingum að einhverjar úreltar gamlar venjur hljóta að vera til grundvallar þessari harðneskju- legu afstöðu veitingamanna, þvi að á veitingahúsunum úir og grúir af stúlkum, sem vinna nær nákvæmlega sömu störf og þjónar, en á minni launum. Og svo er sagt að hér riki jafn- rétti kynja. Er nokkur trygg- ing fyrir trygg- ingarfénu? Margir hinna smærri verktaka sem bjóða i verk, sem boðin eru út á frjálsum markaði, eru óánægðir með þær reglur sem um tilboðin gilda. Verktakar, a.m.k. hinir smærri þurfa oft að leggja i mikla vinnu við að útbúa tilboðs- gögn og auk þess að kaupa dýra þjónustu i þvi sambandi af verk- fræðisskrifstofum og fleiri aðilum sem slika vinnu inna af hendi. Þá er einnig óánægja með það að bjóðendur þurfa oft á tiðum að greiða af hendi tryggingu þess að þeir annist verkið ef þeirra tilboði er tekið af verkkaupanda. Þetta fé liggur oft á tiðum vaxtalaust fyrir eiganda tryggingarinnar langa hrið og dæmi eru þess að þeir aðilar sem trygginguna heimta, noti hana i eigin þágu. Megin óánægjan er i þvi fólgin að bjóðendur hafa enga tryggingu þess að þó þeir eigi lægsta tilboð, að þvi sé tekið, vegna þess að I staðli þeim sem farið er eftir er áskilinn réttur verkkaupa til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Þeir sem bjóða i verkin fá engar greiðslur fyrir útlagðan kostnað vegna tilbúnaðar til- boösgagna, og eiga samkvæmt staðli enga heimtingu á að slikur kostnaður sé greiddur, þó svo að hann sé eingöngu tilkominn vegna þess að ákveðinn aðili hyggist ráðast i framkvæmdir og lætur gera tilboð i verkið. Þó mun vera um það að ræða að ef tilboðið er lokað sem kallað er, þ.e. að einungis útvaldir aðilar eru kallaðir til að gera tilboð i ákveðin verk, þá geta þeir fengið þennan sannanlega skotnað greiddan, en þó þvi aðeins að þess sé getið i útboðslýsingunni. Verktakar verða siðan að ná inn þessum kostnaði i þeim til- boðum sem þeir gera, og þvi getur verkkaupandi raunveru- lega verið að greiða fyrir vinnu að tilboði sem er honum allsendis óviðkomandi. Þess skal getið að kostnaður þeirra verktaka sem sjaldan gera tilboð eða hafa aldrei gert þau, er eðlilega mun meiri en þeirra sem annast samfelldar verklegar framkvæmdir og þurfa i fæstum tilfellum að kaupa jafnmikla vinnu á hvert tilboð og hinir smærri verktakar. Aukning á nautakjötssölu varð nokkur i gær, vegna verðlækk- unarinnar á kjötinu, en þó mun ekki vera um neina stórbreytingu að ræða, þar sem fólk gerði mest ,af þvi að kanna, hve hagstæð þessi lækkun er. Alþýðublaðið hringdi i nokkra kaupmenn bæjarins, og spurði þá um við- viðbrögð fólks á þessari lækk- un, og hvort þessi lækkun myndi koma niður á sölu á dilkakjöti. Fengum við þau svör hjá flestum, að mjög mikil eftirspurn var á nautakjötinu, en aukning á söl- unni væri ekki áberandi mikil strax, en hún ætti eftir að aukast til muna er fram liða stundir. Að sama skapi var enginn samdrátt- ur á sölu dilkakjötsins, en það er Dýrt atvinnutæki Sokkabuxnaverksmiðja Samverks hf. á Sauðárkróki hefur litið sem ekkert verið starfrækt siðan árið 1973. Fyrirtækið lenti i erfiðleikum vegna breytinga á sölumarkaði og vegna þess að það varð fyrir skakkaföllum vegna milliliða i sölu framleiðslunnar. Nokkrum sinnum hefur verið komið að þvi að halda uppboð á liklegt að svogæti orðið, ef aukn- ing á nautakjötssölunni yrði veru- leg, þvi að sú aukning kemur niður á annarri kjötsölu, nema þá að Islendingar færu að auka kjötát sitt. Kaupmenn sögðust vonast til þess að aukning yrði á sölu nautakjötsins, þar sem mikið betra væri að vinna það heldur en dilkakjöt, vegna þess hve fitu- magn þess er mikið minna, og einnig er það mun hollara, Hins vegar voru kaupmenn mjög óánægðir með hinar sifelldu verðbreytingar sem á kjötvörum hafa orðið siðustu arin, og fannst þeim það mjög verðbólgu- hvetjandi þegar verið er að leika sér að kjötverðinu 3 til 4 sinnum á ári. látið ónotað eignum fyrirtækisins, en þvi hef- ur jafnan verið frestað m.a. að óskum Sauðárkróksbæjar, þar sem vitað er að ef til uppboðs kemur þá myndu margir einstak- lingar biða tjón af, þ.e. Sauðárkróksbúar og aðrir sem eiga kröfu á fyrirtækið, þar sem kröfur opinberra sjóða og fyrir- greiðslustofnanna eiga jafnan forgang þegar til uppboðs kemur. Verksmiðjan, sem framleiddi á sinum tima sokkabuxur undir vörumerkinu Gleymérei, mun geta framleitt vöru sem er fylli- lega samkeppnisfær við slika vöru sem flutt er til landsins með tilheyrandi gjaldeyrisútlátum fyrir þjóðina. Auk sokkabuxna getur verksmiðjan framleitt sokka fyrir bæði kynin og einnig allskonar prjónavörur. Þegar tekið er tillit til hækkandi verðlags á þessari vöru erlendis, og þess að nýútgefnar tölur benda til þess að vofa atvinnuleysisins sé á næsta leiti, þá er sorglegt til þess að vita, að 30 milljón króna atvinnutæki sem þetta, standi ónotað. Þarna er um að ræða léttan iðnað sem hentað getur hvar á landinu sem er og myndi veita milli 20 og 30 manns atvinnu, og tilsvarandi fleirum ef um hálfsdags fólk væri að ræða. Þvi má bæta við að sé horft til þeirra atriða sem að ofan eru nefnd og þess að gjaldeyrisstaðan versnar stöðugt samfara mirthk- andi innflutningi, þá hefur liklega aldrei verið jafngóður grundvöll- ur til rekstrar verksmiðjunnar. Sólnes fór upp á eigin spýtur — Ég vil sérstaklega taka það fram, að nýleg för min til Japan kostaði Kröflunefnd ekkert fé, sagði Jón Sólnes, alþm., i ræðu utan dagskrár á Alþingi i gær, en Jón Sólnes kvaddi sér hljóðs til þess að gera grein fyrir beinum greiðslum til Kröflunefndar. Samkvæmt frásögn Jóns hafa Kröflunefndarmenn fengið eftir- greindar upphæðir i þóknun fyrir nefndarstörf sin: Jón G. Sólnes, formaður, kr.: 182.160. Páll Lúðviksson, fyrrv. formaður, kr.: 155.602. Bragi Þorsteinsson, verkfr., kr.: 136.632. Ingvar Gislason, alþm., kr.: 136.632. Ragnar Arnalds, alþm., kr.: 136.632. Þóknanir þessar eru miðaðar við stjórnar- laun i Laxárvirkjunarstjórn. Auk þess.sem að framan er tal- ið, fékk Jón. G. Sólnes 200 þúsund krónur greiddar upp i skrifstofu- kostnað. AAiðvikudagur 12. nóvember 1975. Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.