Alþýðublaðið - 12.11.1975, Side 4

Alþýðublaðið - 12.11.1975, Side 4
SJÁLFSTÆTT ANGÓLA @ Fyrrverandi portúgölsk nýlenda i Afriku, Angóla, hefur fengið sjálfstæði. Enda þótt landið hafi verið undir stjórn PortUgala i fimm aldir er vart hægt að segja að sjálfstæðis- barátta landsmanna hafi hafizt fyrr en eftir lok heimstyrjaldar- innar siðari. Undanfarna mánuði hafa átökin verið mjög hörð i landinu og erlendra áhrifa gætt mikið. Átökin hafa fyrst og fremst staðið á milli þriggja hópa, þ.e. MPLA, UNITA og FNLA. Foringi hins fyrstnefnda hefur verið dr. Antonio Agostinho Aeto. Leiðtogi UNITA hefur verið Jonas Savimbi og Holden Roberto hefur verið i forsvari fyrir FNLA. Áhrifamenn innan OAU (Einingarsambanda Afriku) hafa lagt á það mikla áherzlu að samstaða takist milli þessara striðandi afla. Það tókst reyndar ekki fyrir hinn tilsetta dag er landið fékk formlega sjálfstæði. Nú hafa verið settar á laggirnar tvær rikisstjórnir, önnur i Luanda, höfuðborg landsins og hin i borginni Nýju Lissabon, sem nú hefur verið nefnd Huambo. Rikisstjórnin er studd af MPLA, sem ræður yfir norðurhluta landsins, eða um það bil þriðjungi landsmanna. Foreseti þeirrar stjórnar hefur verið kjörinn Antonio Neto leiðtogi hreyfingarinnar. Hin rikisstjórnin, sem situr i Huambo er studd af samsteypu- stjórn hinna hreyfinganna er sögð ráða yfir landssvæði þar sem tveir þriðju hlutar landsins búa. En þó að nú sé búið að veita Angólu sjálfstæði gerist það með nokkuð óvenjulegum hætti. Landsstjóri PortUgals i Angólu Leonel Cardoso, las i gær upp yfirlýsingu frá portúgölsku Að ofan: Dr. Antonio Agostinho Neto leiðtogi MPLA og hinn nýútnefndi forseti nýju stjórnarinnar i Luanda. Til hliðar: Holden Roberto, leiðtogi FNLA, og Jónas Savimbi, leiðtogi UNITA, á fundi, sem haldinn var snemma á þessu ári, þar sem rætt var um framtíð Angólu. stjórninni þar sem greint er frá þvi að nýlendan sé sjálfstæð. Á hinn bóginn er hvergi greint frá þvi hvernig staðið skuli að stjórnarskiptum. Það virðist sem stjórnin i Portúgal hafi ekki treyst sér til að hafa frumkvæði um tiltekin formsatriði enda hafa þeir vist nóg vandamál á heimastöðvum eins og nú stend- ur. Stjórnin i PortUgal er án efa búin að fá nóg af átökunum i þessari siðustu nýlendu sinni. Þeir virðast þvi hafa tekið það ráð að láta þá sjálfa leysa úr vandanum. Spurningin sem nú blasir við, er sú, hvort takast muni að koma á friði i landinu og lægja þær pólitisku og hernaðarlegu öldur sem riðið hafa yfir landið undanfarna mánuði. Þvi fer þó viðs f jarri að átökin i Angólu séu einkamál fólksins, sem þar býr. Stórþjóðirnar hafa ekki setið hjá aðgerðarlausar og heimspólitikin er þarna inni á gafli, ef svo má segja. Rússar og kommúnistarikin hafa ljóst og leynt stutt MPLA og beitt mikilli hörku i þessum átökum. Þá hafa Kinverjar stutt hinar hreyfingarnar að einhverju leyti og sama er að segja um ná- grannarikin Zaire og Zambiu og reyndar OAU. A hinn bóginn hefur Kongó stutt MPLA. Þannig má vera ljóst að átök- in hafa verið mjög hörð, enda Reykjavik: Nesvegur Melahverf i Gerðin Skjólin , Alþýðublaðið! Blaðburðarfólk óskast til að bera blaðið út í eftirtaldar götur Seltjarnarnes: Bakkavör Skólabraut Melabraut Sævargarðar Miðbraut Vallarbraut Hafið samband við afgreiðslu blaðsins - Sími 14900 Tilkynning til söluskattsgreiðenda Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á þvi, að gjalddagi söluskatts fyrir október- mánuð er 15. nóvember. Ber þá að skila skattinum til innheimtumanna rikissjóðs ásamt söluskattsskýrslu i þririti. Fjármálaráðuneytið 10. nóvember 1975. virðist sem gnægð hafi ávallt verið af vopnum og vistum til þess að halda áfram hernaðar- legum átökum. t gær þegar fulltrUar portúgölsku stjórnarinnar hurfu á brott var fjarri þvi að frið- samlegt væri i landinu. Barizt var þá á ýmsum stöðum um allt landið og er ljóst að hvor stjórn- in um sig ætlar sér að ná fullum yfirráðum yfir öllu landinu. Fréttaskýrendur telja hins vegar óliklegt að svo muni fara, enda er styrkur beggja fylk- inga mjög mikill. A hinn bóginn virðist sem ýmsir telji enn mögulegt, að samkomulag geti tekizt, ef ekki um eina stjórn, þá ef til vill um formlega skiptingu landsins i tvö yfirráðasvæði. Talið er vist að Einingarsam- band Afrikurikjanna muni taka þetta mál fyrir á næstunni og reyna að koma á friði i landinu. SKEYTI Tékkóslóvakia og Indland Utanrikisráðherra Tékkóslóva- kiu er nú i opinberri heimsókn i Indlandi, þar sem hann mun m.a. ræða við utanrikisráðherra landsins. Sovétmenn viðurkenna — Bandarikin ekki Sovétrikin hafa viðurkennt opinberlega stjórn MPLA i Angólu. Á hinn bóginn hafa Bandarikjamenn ekki viðurkennt hina stjórnina i Huambo, enda þótt þeir hafi stutt FNLA. í fréttaskeyti frá Washington i gær segir, að Bandarikin muni ekki viðurkenna neina stjórn i landinu fyrr en ljóst sé að hún geti stjórn- að landinu og njóti stuðnings ibúanna. Prestur handtekinn á Spáni. Lögreglan i Barcelona á Spáni handtók i gær kaþólskan prest, Juan Soler, sem ákærður er fyrir að hafa skotið skjólshúsi yfir strokufanga, sem ákværður hafði verið fyrir að myrða lögreglu- þjón. Sadat ekki til Marokkó Reutersfréttastofan i Kairo bar til baka þá frétt að nokkuð væri hæft i þvi að Sadat hyggðist fara til Marokkó til þess að reyna að mila málum i deilunni um Spænsku Sahara. Noregur græðir á oliu Fjármálaráðherra Noregs, Per Kleppe, greindi frá þvi i gær, að vegna áætlaðra tekna landsins af oliuvinnslu i Norðursjó mundi rekstrarafgengur rikisins 1980 nema um 20.000 milljónum norskra króna. Nóbelsverðlaun gefin I sjóð. Erfingjar fyrrverandi forsætis- ráðherra Japans, Eisaku Sato, hafa gefið Nobelverðlaunin, að upphæð 62.000 dollara, til þess að stofna sjóð til að styrkja fyrirhug- aða stofnun Háskóla Sameinuðu þjóðanna. Sato hlaut verðlaunin i fyrra. Ahmed Osman til Spánar. Forsætisráðherra Marokkó Ahmed Osman, fór til Spánar gær til þess að ræða lausn deil unnar um Spænsku Sahara vif stjórnina þar. GUNNAR FLÓVENZ: 0PIÐBRÉF SÍLDARSALA RÍKJANNA 0 INGUR Á SÍL Herra ritstjóri Sighvatur Björgvinsson SíðumUla 11 Reykjavík Þegar ég las aðal forsiðufrétt Alþýðublaðsins, þriðjudaginn 7. október sl., kom mér einkum tvennt I hug: Annarsvegar siða- reglur biaðamanna og hins vegar vanþekking eða misskiln- ingur Alþýðublaðsins á þeim málum, sem „frétt” blaðsins fjallar um. Fimm dálka yfirfyrirsögn blaðsins hljóðar þannig: „Selj- um Rússum síldina heilsaltaða og þeir fullvinna hana”. Siðan kemur fimm dálka aðalfyrir- sögn með striðsletri: ,,A SÍLDARHNE YKSLIÐ AÐ ENDURTAKA SIG?” Loks kemur tveggja dálka undir- fyrirsögn: „Innfluttar tunnur meðan atvinnuleysið biður við bæjardyrnar.” Þeir, sem lita yfir þessar fyr- irsagnír hijóta að álykta að sild- arsalan til Sovétrikjanna eða innflutningur á tunnum til sildarsöltunar hljóti að vera hneyksli það, sem aðalfyrir- sögnin gefur til kynna. Strax i upphafi frásagnar kemur pvi i ljós aðsvo er ekki, heldur telur blaðið „hið nýja sildarhneyksli” vera reglur þær, sem sjávarút- vegsráðuneytið setti um sild- veiðar i herpinót i byrjun yfir- standandi sildarvertiðar. Fyrir- sagnirnar eru þvi annað hvort tilraun til biekkingar eða hreinn misskilningur þess blaðamanns sem samdi þær. Ég held að ég hljóti að hallast að siðarnefndu skýringunni. Þrátt fyrir það, að mér gremjist þær rangfærslur, sem felast i fyrirsögnunum varðandi samning Sildarút- vegsnefndar við Sovétrikin og innflutning á tunnum til sildar- söltunar, fellur mér þó enn verr sú mistúlkun á ummælum Jóns Armanns Héðinssonar, alþing- ismanns, sem augljóslega kem- ur fram i umræddri frétt. Jón Ármann þekkir það vel til þeirra mála, sem fjallað er um, að ég fullyrði að óhugsandi sé, að blaðið túlki ummæli hans rétt. Mun ég hér á eftir vikja fyrst að þeirri hlið málsins, en siðar að þeirri hliðinni, sem varðar siðareglur blaðamanna. 1. Slldarsamningurinn við So- vétrikin er mjög hagstæður. Svo sem kunnugt er, hefir is- lenzka Suðurlandssildin ætið verið mjög misjöfn að stærð og fitumagni. Þegar um söltun er að ræða, er stærsta sildin venju- lega hausskorin og slógdregin og látin „verkast” I 1 1/2 — 3 mánuði og siðan seld sem fuli- unnin neyzluvara eða tekin til frekari vinnslu, t.d. kryddsildin (gaffalbitar o.fl.). Þá slld, sem er of smá til hausskurðar, hefir venjulega orðið að setja i bræðslu. Sem stendur er ekki markaður fyrir þessa smáu sild til beitu og möguleikar á frystingu til út- flutnings eru ekki fyrir hendi, enda væri sildin þá seld sem al- gjört hráefni. Einasta og bezta leiðin til þess að nýta þessa sild til manneldis og um leið að forða okkur frá þvi hneyksli að hefja sildveiðar á ný tii bræðslu eftir þriggja ára friðun, var þvi sú, að freista þess að ná samn- ingum um sölu á henni heilsalt aðri á þeim mörkuðum, þar'sem venja er að selja sildina heil- saltaða til neytenda, þ.á.m. smáa sild. Þetta tókst með samningi þeim, sem gerður var við Sovétrikin 25. september sl. Um samning þennan segir svo i fréttatilkynningu frá Sildarút- vegsnefnd 7. þ.m.: „Sá misskilningur hefir kom- ið fram i fjölmiðlum, að með samningi þeim, sem nýlega var gerður um sölu á heilsaltaðri sild til Sovétrikjanna, sé verið að selja úr landi hráefni, sem Sovétmenn taki til frekari vinnslu. Hér er um fullkominn misskilning að ræða. Hið rétta er, að sild þessi er seld i verzl- unum i Sovétrikjunum, eins og hún kemur upp úr tunnunum, sem fullunnin neyzluvara. Samningurinn við Sovétrikin hefir gifurlega mikla þýðingu fyrir islenzka saltsildarfram- leiðslu og er þjóðhagslega mjög hagstæður, þar sem með honum er unnt að taka til manneldis- vinnslu alla þá sild, sem ekki er nægilega stór til framleiðslu á hausskorinni sfld, enda sækjast allar framleiðsluþjóðir saltaðr- ar sildar eftir þvi að geta selt smæstu sildina til þeirra landa i Austur-Evrópu, sem selja sfld- ina heilsaltaða i verzlunum. Bjóða aðrar framleiðsiuþjóðir sild þessa á langtum lægra verði en Sildarútvegsnefnd hefir sam- ið um.” í þessu sambandi er rétt að geta þess, að Sfodarútvegsnefnd er skipuð fulltrúum frá Alþingi, félögum siidarsaltenda, Lands- sambandi islenzkra útvegs- manna og Alþýðusambandi Is- lands og eru allir þessíj; aðilar sammála um þýðingu sovézka samningsins fyrir islenzka iS^Jt- sildarframleiðslu. Félag sildarsaltenda á Suð- vesturlandi gerði eftirfarandi !ályktun um sama sölusamning á fjölmennum fundi 9. þ.m.: „Fundurinn lýsir yfir ánægju «inni vegna samnings þess um heilsalt^ða sild, sem Sildarút- vegsnefndhefir nýlega gert við Sovétrikin, og telur að með hon- um sé tryggð mun betri nýting á sildinni til manneldis en ella.” Mér er kunnugt um að ályktun þessi var send öllum dagbiöðum i Reykjavik. Alþýðublaðið hefir hvorki birt fréttatilkynningu Sildarútvegs- nefndar né sfldarsaltenda um málið. Ég er ekki i neinum vafa um það, að Jón Ármann Héðinsson, alþm., telur margnefndan samning við Sovétrikin mjög hagstæðan og að blaðamaður Alþýðublaðsins hafi misskilið ummælihans. Mér þykir trúlegt að Jón Ármann hafi talið „frá- ieitt”,, að taka svo til alla sfld- ina, sem söltuð var um borð i veiðiskipunum i byrjun ver- tiðar, til heilsöltunar án tillits til stærðar, enda deilir hann rétti- lega á þau vinnubrögð að setja sjósöltuðu sildina óflokkaða i tunnurnar eins og kom fyrir áður en sjávarútvegsráðuneytið breytti reglugerðinni. Sé sú til- gáta min rétt, sem ég raunar geng út frá, er ég honum algjör- lega sammála. Tilgangurinn með þvi að leyfa W Alþýöublaðið Miðvikudagur 12. nóvember 1975.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.