Alþýðublaðið - 10.10.1976, Page 3

Alþýðublaðið - 10.10.1976, Page 3
8 RÍKISSPÍTALARNIR lausar stöður VÍFILSSTAÐ ASPÍ TALINN: HJtJKRUNARFRÆÐINGAR óskast nú þegar á ýmsar deildir spitalans. Vinna hluta úr fullu starfi kemur til greina. Upplýsingar veitir forstöðukonan, simi 42800. SJÚKRALIÐAR óskast til starfa á ýms- um deildum spitalans nú þegar eða eftir samkomulagi. Upplýsingar veitir for- stöðukonan simi 24160. MEINATÆKNIR óskast til starfa á spi- talanum frá 1. desember n.k. eða eftir samkomulagi. Upplýsingar veitir deild- armeinatæknir, simi 42800. KÓPAVOGSHÆLIÐ DEILDARÞROSKAÞJÁLFI Óskast til starfa nú þegar eða eftir samkomulagi. Upplýsingar veitir forstöðumaðurinn simi 41500. ÞROSKAÞJÁLFAR óskast til starfa á ýmsum deildum, nú þegar og eftir sam- komulagi. Upplýsingar veitir forstöðu- maðurinn simi 41500. LANDSPÍTALINN. LÆKNARITARI óskast til starfa á lyf- lækningadeild spitalans frá 1. nóv. n.k. eða eftir samkomulagi. Laun samkvæmt flokki B-7 i launakerfi rikisstarfsmanna. Umsóknir, ber að senda skrifstofu rikis- spitalanna fyrir 25. okt. n.k. Umsóknar- eyðublöð fást i sama stað. STARFSMAÐUR óskast til starfanúþeg- ar sem aðstoðarmaður við hjúkrun sjúk- linga. Nánari upplýsingar veitir yfir- hjúkrunarkonan, simi 84611. KLEPPSSPÍTALINN. FÉLAGSRÁÐGJAFI óskast til starfa frá 1. janúar n.k. Umsóknir er greini aldur menntun og fyrri störf ber að senda skrifstofu rikisspitalanna fyrir 1. des. n.k. MEINATÆKNIR óskast til starfa frá 1. janúar n.k. Umsóknir ber að senda deild- armeinatækni spitalans fyrir 15. nóv. n.k. Reykjavik 8. okt. 1976. SKRIFSTOFA RÍKISSPÍTALANNA EIRÍKSGÖTU 5, SÍMI 11765 alþýóu1* J Sunnudagur 10. október 1976 ;biaöíð 1 Sunnudagur 10. október 1976 VETTtfAWGUB 9 Alþýðublaðið ræðir við reykvískt iðnverkafólk Blaðamaður og Ijós- myndari Alþýðublaðsins litu inn i Hampiðjuna nú i vikunni. Hektor Sigurðsson, verksmiðju- stjóri, var þar fyrir og kynnti helstu starfsemi fyrirtækisins, en Hamp- iðjan hefur starfað frá þvi 1934. Þar vinna nú um 130 manns við hin ýmsu störf, allt frá þvi að framleiða finasta bindi- garn upp i sverustu kaðla. Þarna eru vélar sem riða net, vefstóll sem framleiðir poka- hlifar fyrir troll, vélar sem framleiða öngul- tauma úr perloni, og þannig mætti lengi halda áfram. Verksmiðjufólk ó íslandi hefur aldrei verið hótekjufólk Vélvæðingin hefur óhrif ó störf fólksins Áður með spaða en nú með lykkju Það er ekki langt siðan notaðar voru nautshúðir fyrir pokahlifar, en nú er þetta breytt. öngultaum- arnir lita að visu svipað út og var fyrir nokkrum árum, en efnið er annað og mun meöfærilegra. ,,Þú veizt að önglarnir eru öðruvisi en áður? sagðiHektor. Nei, það vissi blaðamaður alls ekki. Þeir voru nefnilega áður með spaöa, en nú eruþeir með lykkju. öngultaum- arnir koma i 100 stykkja búntum, alveg eins og áður og enn er fjöldinn allur af fólki, sem vinnur við að hnyta á öngla. T.d. á Hrafnistu eru margir sem vinna við það. Sumir þeirra kannast ef- laust vel við það frá gamalli tið. Það er því ljóst að vélvæðingin hefur ekki yfirtekið allt, þótt hún hafi breytt miklu. Þarna voru netagerðarmenn að vinna við flottroll. Hávaðinn var mun minni þar en sumstaðar annars staðar i þessari stóru verksmiðju. Þeir gátu meira að segja talað saman við vinnuna og þurftu ekki að nota eyrnahlifar. Þessisalur gengur almennt undir nafninu „Fixing”, enda er þarna einmitt gengið endanlega frá ýmsu við netin, sem vélarnar nenna ekki að fúska við. Úr lifandi hampi í dautt polyethelene Aður fyrr var hampur aðalhrá- efnið, sem notað var i þessari verksmiðju, enda ber hún nafn sitt af þvi. En nú er hampur litið notaður, og það litla sem notað er, er flutt unnið að miklu leyti. Aðal efnið sem Hampiðjan vinnur úr núna er Polyethelene, sem notað er i netin og Poly- propelene, sem mikið er notað i kaðla og bindingar, vörpugarn og linu. „Það urðu stórkostlegar breyt- ingar i þessum iðnaði eftir að farið varaðnota þessi gerviefni,” sagði Hektor, en þaö mun hafa verið um 1966, sem verksmiðjan fór að mestu yfir I gerviefnin. Að visu hafði verksmiðjan flutt inn þræði frá þvi um 1962 og siðan kom breytingin mjög fljótt. Netahnýtingavélin er mjög full- komin, eins og reyndar flestar vélar verksmiðjunnar, sem nú eru notaðar. En það er alls ekki svo langt siðan netagerðarmenn hnýttu öll netin i höndunum i Hampiðjunni. Fyrir 1966 voru öll net hnýtt i höndunum. Aukin vélvæðing en verri afkoma iðnverkafólks Það er þvi augljóst að vél- væðingin i Hampiðjunni hefur haft margvisleg áhrif á störf fólksins, sem þarna vinnur. Hraðinn hefur aukist, hávaðinn hefur aukist, framleiðslumagnið hefur aukist og afraksturinn hefur aukizt. Hinsvegar bar flestum, sem þarna vinna, saman um, að aldrei hefðu launin hrokkið jafn skammt og nú, og hefði það farið versn- andi með hverju ári. Að visu er hérekkivið Hampiðjuna sérstak- lega að sakast. Þetta er vanda- mál, sem þjóðin verður að horfast i augu við og stafar fyrst og fremst af þvi að á Islandi er dug- laus rikisstjórn,Ihaldsstjórn, sem ekki hefur neinn sérstakan áhuga á að bæta kjör þeirra, sem lægst hafa launin. Fleiri vélar - meiri hávaði Inni i vélasalnum ræddum við við Stefán Steingrimsson, sem unnið hefur i' Hampiðjunni i 14 ár. „Auðvitað hefur hávaðinn aukist eftir þvi sem fleiri vélar hafa bætzt við og þeim hefur fjölgað mjög mikið,” sagði Stefán. Hann sagði aö sennilega væri loftræstingin það versta, sérstak- lega á sumrin, þá gæti hitinn orðið alveg óþolandi. Stefán sagðist telja að öryggisbúnaður væri nokkuð sæmilegur hjá þeim. Að visu gætu alltaf komið fyrir óhöpp ef menn færu ekki gætilega að við vinnuna. Hann sagðist ekki muna eftir neinum meiri- háttar slysum i Hampiðjunni þessi 14 ár, sem hann hafði unnið þar. — Hvernig eru samskiptin við Iðju? „Jú, þau eru bara nokkuð góð, annars er það nú misjafnt hvað menn hafa mikinn áhuga fyrir verkalýðsmálunum, eins og gengur og gerist.” — Hvernig finnst þér að lifa af laununum núna? ,,Það er ekki auðvelt og það er miklu verra en var svona fyrir tveim árum. Það fer ekki á milli mála,” sagði Stefán Steingrims- son að lokum. Engar aukapásur Hildur Simonardóttir sagðist aðeins vera búin að vinna i Hampiðjunni i þrjár vikur. „Nei við fáum engar pásur nema kaffi og matarhlé,” sagði Hildur. Hún sagðist kunna vel við sig i Hampiðjunni og þarna væri mikið af skemmtilegu og ágætis fólki. „Þetta er að visu tilbreytingar- laust, en ég hugsa mér nú ekki að verða hérna um alla eilifð,” sagði hún að lokum. Pétur Andrésson hafði þó enn minni reynslu i Hampiðjunni en Hildur. Hann var aðeins búinn að vinna þarna i eina og hálfa viku. „Þetta er stórfint og tilbreyting frá þvi sem ég hef áður gert,” sagði Pétur. — Og hvað gerðirðu áður? „Ég vann við garðyrkju og svo hef ég verið i háfjallaferðum.” Það fór þvi ekki á milli mála að Pétur Andrésson hafði gert nokkuð til að skapa ákveðna breidd i lifsreynsluna. — Hvað um kaupið? „Það er náttúrulega ekki mikið og afkoma almennings er auðvitað miklu verri en hún hefur verið áður.” Með bitakassa upp á gamla móðinn Nú var komið matarhlé og flest fólkið farið upp i matsal. Þó voru nokkrir hér og hvar, sem höfðu tekið með sér bita, upp á gamla móðinn. Haraldur Guðnason sat þarna með nestið sitt. Hann virtist nokkuð ánægður með lifið og ekkert stressaður eins og ýmsir eru nú til dags. Haraldur, sem er að verða sextugur, sagðist vera búinn að vinna þarna i fimm ár. Hann hefði verið togara- sjómaður i 40 ár. Nú vinnur hann hér I Hampiðjunni, sem neta- Meðal hinna lægst launuðu á mesta láglaunasvæði Evrópu — Er þetta erfið vinna hérna i Hampiðjunni? „Hún getur verið það. Þetta getur verið erfiðisvinna, en það er nokkuð misjafnt. Maður venst hávaðanum og öllu öðru. Mér finnst annars mjög gott að vinna hérna.” Þannig mátti heyra hin ýmsu sjónarmið hjá fólki á öllum aldri. En verksmiðjufólká Islandi hefur aldrei verið hátekjufólk fremur en verksmiðjufólk annarra landa. Og ef við litum á þá staðreynd, að Island er láglaunasvæði, eitt það mesta i Vesturálfu, þá er ekki að undra þótt iðnverkafólk verði fyrir barðinu á þvi verðbólgu- og kreppuástandi, sem núverandi stjórnarlið hefur viðhaldið á tslandi siðustu tvö árin. —BJ Áður var það hampur nú er það polyethelene Þeir voru að vinna við flottroll Vé wmí Góð tilbreyting, sagði Haraldur var ó Hildur Símonar togara í 40 ór Menn leggja ekki peninga í banka þessa dagana, sagði Þóra Þú veizt að önglarnir eru öðruvísi en óður? sagði Hektor ^ Pétur Andrésson kom af fjöllum JAFNVEL ( HAMPIÐJUNNI EIGA MENN ERFITT MEÐ AÐ lAta „ENDANA NÁ SAMAN” gerðarmaður og félagi i NÓT. — Hvað finnst þér um launin? „Það er afar erfitt að láta enda ná saman i þeim skilningi.” Hann sagði að þau hjónin ynnu bæði úti enda veitti ekki af þvi, ástandið færi stöðugt vernsandi. Þóra Kolbeinsdóttir var greini- lega búin að koma sér vel fyrir með bitakassann sinn. Hún er búin að vinna i Hampiöjunni i 14 ár. „Það hafa orðið afskaplega miklar breytingarhérna á þessum árum og það er miklu betra að vinna hérna núna en áður fyrr. Hins vegar sagði hún að það væri hreinasta hörmung að lifa af laununum, sem færu versnandi með hverju árinu sem liði. Hún sagði eins og Haraldur, að þau hjónin ynnu bæði úti. „Menn leggja ekki peninga i banka þessa dagana,” sagði Þóra Kolbeins- dóttir.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.