Alþýðublaðið - 30.11.1976, Síða 7
FÉLAGSMAL 7
Þriðjudagur
30. nóvember 1976
Skólaleik vellir
Fyrir skömmu fórum við i
skoðunarferð um Reykjavik og
nágrannabæina. Það sem við ætl-
uðum að skoða voru skólarnir
og hvaða möguleika börnin.
þar hefðu til leikja.l Reykjavik,
Kópavogi, Garðabæ og Hafnar-
firði eru margir skólar, sumir
stórir.aðrir litlir, sumir hafa stór
leiksvæði.aðrir litil. Flestir leik-
vellir skólanna eru lagðir mal-
biki, sem gerir umhverfið mjög
snyrtilegtog auðvelt i þrifum. Við
suma skólana eru grasblettir,
sem venjulega eru afgirtir. A
malbikuðu völlunum eru yfirleitt
ekki um önnur leiktæki að ræða
en mörk fyrir hand- og fótbolta
svo og körfur.
Af þessari ferð mætti draga þá
ályktun að eftirað börn komast á
skólaaldur leiki þau sér ekki að
öðru en boltum.
Það er alkunna að á gæsluvöll-
um, sem eru ætlaðir börnum upp
að skólaaldri eru alls kyns leik-
tæki, s.s. rólur, klifurgrindur,
sandkassar o.fl. Þegar barn
kemst á skólaaldur á það allt i
einu að hætta að leika sér eins og
„barn” og byrja að sparka eða
henda bolta. Annað er ekki boðið
upp á. Þaö er augljóst mál að sá
hópur barna er stór, sem hefur af
þvi ánægju að eltast við bolta, en
er hann svo stór að hann eigi rétt
á að fá afnot af öllum skólavell-
inum?
Skólabörn verja stórum hluta
dagsins á skólavellinum. Sá hluti
er mjög mikilvægur fyrir þroska
þess.
Fer fram uppeldi á
skólavellinum?
Einn vinsælasti uppeldisfræð-
ingur i dag, svisslendingurinn
Jean Piaget, heldur þvi fram að
stór hluli af félagslegu uppeldi
fari fram á skólavellinum. Hann
leggur mikla áherslu á félagslega
samvinnu og telur að ekki megi
láta neitt tækifæri ónotað til að
stuðla að henni. Hann segir að
samvinna i leik þroski barnið,
ekki aðeins félagslega og sið-
ferðislega, heldur einnig og ekki
siður hafi mikilvæga þýðingu
fyrir þróun málsins. Samvinna
leiðir barnið út úr eigin hugar-
heimi þvi barnið verður að taka
tillit til annarra og lærir að meta
skoðanir annarra.
A siðustu árum hafa fleiri og
fleiri kennarar, fóstrur og aðrir
er við uppeldi fást, séð j)að betur
og betur hve mikilvægur leikur-
inner.t gegnum leikinn eiga börn
betra með að læra ýmsar reglur
og tileinka sér hefðir, er gilda i
samfélaginu. Einnig er leikurinn
sé honum beitt af skilningi, eitt
besta kennslutæki, sem völ er á.
Við verðum að útbúa leikvellina
þannig að þeir veiti börnum tæki-
færi til fjölbreittra leikja, leikja
sem fullnægja þörfum þeirra.
Ilvaða kröfur eigum við
að gera til leikvalla.
Til skólaleikvalla verður að
gera þær kröfur að þeir fullnægi
þörfum skólabarna, á hvaða aldri
sem þau kunna að vera. Þarfirn-
ar eru margar, en þær mikilvæg-
ustu eru leikþörfin, hreyfiþörfin,
sköpunarþörfin, þörfin fyrir
félagsskap, þörfin fyrir öryggi,
þörfin fyrir að fá að vera einn og
siðast en ekki sist þörfin fyrir
skjól fyrir veðri og vindum.
Allir vita að það er erfitt fyrir
sjö ára gamalt barn að sitja lengi
hreyfingarlaust. Barnið vex og
hlutföllin i þvi breytast. Það
verður næstum stöðugt að vera að
hreyfa sig til að læra á og þjálfa
hina „nýju” vöðva.
Eins og áður er sagt eru flestir
leikvellir malbikaðir og ef til vill
með grasblettum, sem yfirleitt
má ekki nota, þá er ekki völ fjöl-
breyttra leikja.
Hvar er hægt að klifra, hanga,
sveifla sér, hjóla eða æfa jafn-
vægið? Hvar eru staðir þar sem
hægt er að byggja, sigla eða vera
út af fyrir sig?
Mjög mikilvægt er að hreyfi-
þörfinni sé fullnægt. Við verðum
að geta boðið börnunum upp á að-
stöðu til þess.
öryggi á skólavellinum.
Skólaleikvöllurinn er
fyrir óframfærin og hrædd börn,
hörð og miskunnarlaus veröld.
Þau finna fyrir öryggisleysi.
Öryggi gætu þau fundið með þvi
að fá að leika sér með leikföng,
sem þau þurfa ekki að slást um að
fá, eða leita á náðir annarra með.
Ef framboð leiktækifæranna er
slikt að allir geti fundið sér eitt-
hvað til að fást við, ætti öryggis-
leysið að hverfa úr sögunni.
Börn eru misdjörf að upplagi.
Þetta þýðir að þau sem hlédræg-
ari eru fá færri tækifæri til að
nota þau leiktækifæri sem skóla-
völlurinn býður upp á.
Hvað ætti að vera hægt
að gera á skólaleikvell-
inum?
Sköpunarþörfin er mjög rik hjá
börnum og unglingum. Við sjáum
þessa miklu þörf ef við litum i
kringum okkur. Horfið á litlu
börnin i sandkössunum. Horfið á
börnin eftir mikla fannkomu. Alls
staðar finna þau efni til að skapa
úr, ef þau aðeins gætu gengið
frjáls i úrval góðra efna. Það er
okkar, fullorðna fólksins, að
skapa börnunum aðstöðu og út-
vega þeim efnivið til að skapa úr.
Opinber embættismaður sagði i
viðtali við okkur: „Það þýðir ekk-
ert að vera að útbúa leikvelli,
unglingarnir skemma allt.”
Við teljum að skortur á verk-
efnum fyrir börn og unglinga or-
saki það að þar brýst fram
skemmdarfýsn. Skemmdarverk
eru að okkar dómi ekkert annað
en sköpunarþörfin, sem fær útrás
á þennan neikvæða hátt. Þess
vegna eru * '■ skemmdarverk
unglinganna ekkert annað en
vanræksla fullorðna fólksins á
þörfúm barnanna.
Vfða erlendis eru starfræktir
starfsvellir við skólana. Hérlend-
is þekkjum við starfsvelli svo til
eingöngu af afspurn, þó munu
þeir starfa á nokkrum stöðum á
landinu yfir sumarmánuðina
eingöngu. A starfsvöllum er hægt
að fullnægja mörgum i þvi að
skapa eitthvaö, það má ekki vera
eingöngu smiðar heldur hvers
konar föndur annað.
Ef til vill mætti nýta þessa
sköpunarþörf til að fá börninsjálf
til að búa til leiktæki á skólavöll-
inn.
Mörg börn, sérstaklega i þétt-
býli, vaxa úr grasi án þess að fá
tækifæri til að fást viö ýmsa nátt-
LESENDTJR
Sendlð Horninu
línur eða hringið
og segið skoðun
ykkar á málefnum
líðandi stundar*
- Ykkar rödd á
líka að heyrastr
úrulega hluti s.s. jurtir og dýr. Or
þessu væri hægt að bæta. Við
hvern skóla ættu að vera gróður-
reitir, þar sem skólabörnin gætu
sett niður jurtir s.s. haustlauka.
Við hvern skóla væri hægt að
planta út trjám og koma þannig
upp trjálundi. Við erum þess
fullviss að ef börnum er á þennan
hátt kennt að umgangast
viðkvæman gróður fái þau næm-
ari tilfinningu fyrir gróðri.
Hvernig á að nota skóla-
völlinn þegar veður eru
slæm?
t islenskum skólum er hvergi
aðstaða fyrir börnin til að verja
sinum friminútum innandyra
lenn sem komið er). Börnin eru
látin fara út svo til i hvaða veðri
sem er. Ef veðrið er afleitt er
þeim leyft að vera inni i kennslu-
stofunum. Þaö segir sig sjálft að
það þýðir ekkert að vera að láta
börnin út ef þau geta ekki farið i
fótbolta.
Mörg börn hafa af þvi mikla á-
nægju að vera úti i hvaða veðri
sem er. Við þurfum samt að hafa
skýli við skólana. Skýli, sem veita
skjól fyrir vindi og regni. Börnin
sem mæta snemma i skólann og
þurfa að biða ættu að geta leitað i
skjól. Börn, sem mæta of seint og
komast ekki strax inn ættu aö
geta leitað i skjól. Veður eru fljót
að skipast i lofti hér á þessu landi
og ekki er alltaf vist að bömin séu
búin til að mæta hvaða veðri sem
kann að skella á, þvi er nauðsyn
að á skólavellinum sé skýli, sem
hægt er að leita skjóls undir. Skýli
korna sér vel fyrir þá sem ekki
vilja fara út en verða vegna
skólareglnanna.
1 slíkum veðurskýlum verða að
vera einhver leiktæki. „Geld”
veðurskýli bjóða ekki upp á annað
en hangs og slagsmál.
N iðurlag.
Skólaleikvöllurinn er mikilvæg-
ur staður á mikilvægu skeiði i lifi
hvers einstaklings. Skipulag vall-
arins má ekki vera handahófs-
kennt eða vanhugsað eða byggja
á atriðum, sem ekkert hafa með
þroska eða þörf barnsins að gera.
Við skulum vona að i framtið-
inni verði skólaleikvellir staðir
þar sem börn og unglingar fá örv-
andi og þroskandi viðfangsefni.
Starfshópur uni leikvallarmál.
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS
Tónleikar
i Háskólabiói fimmtudaginn 2. desember kl. 20.30.
Stjórnandi PALL P. PALSSON
Einleikari HAFLIÐI HALLGRÍMSSON.
Efnisskrá *
Hafliði Hallgrimsson — HÓA — HAKA — NANA — IA
Einl. Gunnar Egilsson.
Saint-Saens — Sellókonsert
Bruckner — Sinfónia nr, 4.
Aðgöngumiðar i Bókabúð Lárusar Blöndal, Skólavöröu-
stig og Sigfúsar Eymundssonar, Austurstræti.
Sl\K)M l’HLf( ).MS\ í J í ISLANDS
III! KÍKISF I \ XRÍ’ID
L
Skólatannlæknir
Reykjavikurborgar munu annast tann-
viðgerðir barnaskóiabarna i Reykjavik
i vetur.
Flestbörn I Breiöholtsskóla og Fellaskóla auk 11 og 12
ára barna I Arbæjarskóia verða þó aö leita til annarra
tannlækna þar til annaö verður ákveöiö og veröa reikn-
ingar fyrir tannviögeröir þeirra endurgreiddir hjá
Sjúkrasamlagi Reykjavikur.
Onnur börn eiga aö fá tannviögerðir hjá skólatannlækn
um. Leiti þau annarra tannlækna verða reikningar
fyrir tannviðgerðir þeirra ekki endurgreiddir nema
með leyfi yfirtannlækna.
Skólatannlækningar
Reykjavikurborgar