Alþýðublaðið - 30.11.1976, Síða 11
Þriðjudagur 30. nóvember 1976 ÚTLÚI\ID 11
...."""""""
Innra ósamkomulag grefur undan sam-
steypustjórn hægri manna í Frakklandi
- margir telja vinstri sigur fyrirsjáanlegan í kosningunum 1978
Nokkur kreppa
virðist nú rikjandi á
hægri væng franskra
stjórnmála og ekki er
útlit fyrir að lausn
finnist á þeim
ágreiningi, sem stað-
festur er milli stjórnar-
flokkanna. Þetta veikir
stjórnina, bæði gagn-
vart stjórnarand-
stöðunni og kjósendun-
um.
Hafa tapað f ylgi i
aukakosningum
NU nýlega fóru fram auka-
kosningar i sjö kjördæmum, til
franska þingsins. Þingsæti þessi
voru öll skipuð þingmönnum
stjórnarflokkana, en við
kosningarnar unnu stjórnar-
andstæðingar tvö. Þessi úrslit
eru persónulegur ósigur forset-
ans Valeri Giscard d’Estaing
þar sem þeir tveir þingmenn
sem féilu i umræddum kosning-
um voru úr hans flokki, og litlu
munaði að þriðji þingmaðurinn
úr flokki forsetans hlyti sömu
örlög.
Annar stjórnarflokkur Gaul-
listar, kom mun betur út úr
kosningunum. Fyrrverandi for-
s æ ti s r á ð he r r a landsins,
Jacques Cirac og Jean Tiberi
hlutu yfirgnæfandi meirihluta
atkvæða i sinum kjördæmum og
voru kosnir i fyrstu umferð.
Jacques Cirac og D’Esting
forseti hafa undanfarið deilt
ákaflega, og sem kunnugt er
leiddu þær deilur til afsagnar
Ciracus. úrslit auka-
kosninganna koma þvi óþægi-
lega við kaunin á forsetanum,
en Cirac túlkar þau sem dóm
Valeri Giscard D’Estaing var
kampakátur eftir sigur sinn i
frönsku forsetakosningunum
árið 1974...
þjóðarinnar yfir stjórnsemi
forsetans.
Þrátt fyrir að gaullistar hafi
sloppið betur frá kosningunum
en f lokkur forsetans skyldu þeir
þógæta hófsf gleði sinni. Valeri
Giscard D’Estaing var kosinn
forseti til 7 ára og kjörtimabili
hans lýkur ekki fyrr en árið
1981. Þrátt fyrir að f lokkur hans
hafi orðið fyrir nokkru áfalli i
nefndum aukakosningum er
hann eftir sem áður leiðtogi
hægri stjórnarinnar og Gaullist-
ar geta trauðla deilt harkalega
á stjórnarstefnuna án þess að
auka möguleika á sigri vinstri
flokkanna i þingkosningunum,
sem haldnar verða árið 1978.
Ekki leikur nokkur vafi á
þvi að óeining innan rikis-
stjórnarinnar, fyrir auka-
kosningarnar fyrrnefndu, átti
mestan þátt i ósigri hægri-
flokkanna. En þrátt fyrir ósigur
sinn virðast stjórnarflokkarnir
eiga i erfiðleikum með að setja
niður deilir sinar, og viröast litö
hafa lært af lexiu þeirri sem
kjósendur veittu þeim.
Deilur harðna
Stöðugt koma upp ný
■ágreiningsefni milli stjórnar-
flokkana. Það sem veldur hvað
mestum ágreiningi i augnablik-
inu er borgarstjórastaðan i
höfuðborginni Paris. Þessi
mikilvæga staða er nú laus og
bæði Gaullistar og flokksmenn
Giscard D’Estaing hafa hug á
henni. Forsetinn. hefur sjálfur
mælt með iðnaðarmálaráðherra
sinum Michel D’Ornano. Gaul-
listar, sem stýrt hafa Parisar-
borg siðustu 12 árin, telja þessa
afstöðu forsetans hreina ögrun.
Orslit forkosninganna, sem
áður er um getið hafa orðið þess
valdandi að Gaullistar telja sig
nú geta gengið i berhögg við
vilja forsetans.
En það eru fleiri stjórnar-
flokkar, en Gaullistar sem á
undan förnum vikum hafa
gagnrýnt forsetann opinber-
lega. 1 þeim hópi eru liðsmenn
borgaralega miðflokksins, sem
einnig kom betur út úr for-
kosningunum, en flokkur
D’Estaings.
Af samstarfsmönnum sinum i
rikisstjórn er forsetinn mest
gagnrýndur fyrir „aðgerðar-
leysi” og það sem kallað hefur
verið vettlingatök á vinstri
mönnum, sem sækja stöðugt á i
frönsku stjórnmálalifi.
Er sigur vinstriaflanna
fyrirsjáanlegur?
Sá álitshnekkir sem
D’Estaing varð fyrir i auka-
kosningunum getur oröið
...en nú tveim árum siðar hefur
hann gildar ástæður til þess að
vera áhyggjufullur. Það er
margt sem bendir til þess að i
þingkosningunum árið 1978
muni vinstri flokkarnir komast
til valda i Frakklandi.
stjórnarflokkunum þungur djöf-
ull að draga i kosningabarátt-
unni. fyrir þingkosningarnar
árið 1978. Leiðtogi gaullista,
Jacques Cirac reynir að hag-
nýta sér fylgistap flokks forset-
ans til þess að styrkja stöðu sina
innan samsteypustjórnar hægri
flokkanna en ýmsir fréttaskýr-
endur telja að ef gaullistar
halda þessum leik áfram geti
það orðið banabiti stjórn-
arinnar.
Ástandið á hægri væng
franskra stjórnmála auk úrslit-
anna i aukajíosningunum gerir
það að vejátum að margir telja
að fyrirsjáanlegur sé sigur
vinstri flokkana i þingkosning-
unum árið 197lÞ''^,
Hið virtaJálað"^Le Quotidien
de Paris^^Tíeldur þvi fram að i
bandariska utanrikisráðuneyt-
inu séu menn fullvissir um að ef
fer sem nú horfir muni vinstri
menn sitja við stjórnvölinn i
Frakklandi næsta kjörtimabil.
Að sögn blaðsins eru banda-
rikjamenn áhyggjufullir vegna
sundrungar hægri-aflanna i
Frakklandi, og eru um það bil
að missa þolinmæðina vegna
þess hve litið D’Estaing aðhefst
vegna sóknar vinstri-manna i
frönskum stjórnmálum.
Vinstri menn
lita málið
raunsæjum augum
Þrátt fyrir að vinstrimenn
eigi nú meiri fylgi að fagna en
oftast áður og margir spái þvi
að stjórnarskipti verði við
kosningarnar árið 1978 líta leið-
togar vinstri aflanna málið
raunsæjum augum.
Þeirhafa bent á að sigursá er
hér vannst var einungis i auka-
kosningum, og kommúnista-
grýluáróður hægri-aflanna
kunni að hafa meiri áhrif, þegar
nær dregur sjálfum aðal-
kosningunum.
En þrátt fyrir að reynt sé að
lita á stöðuna af fyllsta raunsæi
er þvi ekkiað neyta að bjartsýni
vinstri manna eykst stööugt.
I aukakosningunum kom i ljós
að ef kjósa þurfti i tveim um-
ferðum og i þeirri seinni um
frambjóðanda kommúnista
annars vegar, og frambjóðanda
einhvers af hægri flokkunum
hins vegar, flykktu kjósendur
vinstri flokkanna sér um fram-
bjóðanda kommúnista, en
dreifðust ekki á flokkana eins
og svo oft áður. Með öðrum orð-
um samstaða vinstrimanna
virðist hafa aukist. Hinir hæg-
fara vinstrimenn leggja atkvæði
sitt frekar á frambjóðanda
kommúnista heldur en hægri
flokkana.
—ES
Þing norrænna jafnaðarmannaflokka:
Banna skal allar
Suðu r-Afríku
Ráðstefna sósialdemókrata á
Norðurlöndum i Helsingfors
ályktaði að taka yrði algerlega
fyrir norrænar fjárfestingar i
Suður-Afriku. A ráðstefnunni, þar
sem voru saman komnir 160 full-
trúar, voru einnig samþykkt drög
að starfsáætlun fyrir verkalýðs-
hreyfinguna og fyrir sósialdemó-
kratisku fiokkana.
A það var bent að samvinna
faglegs og pólitisks arms verka-
lýðshreyfingar hefur haft afger-
andi áhrif á þróunina i verkalýðs-
málum undanfarið. Þessi sam-
vinna yrði að halda áfram, þar
sem markmiðið væri að þróa
þjóðfélag byggt á samstöðu og
frelsi einstaklingsins. Samkvæmt
stefnuskrárdrögunum sem sam-
þykkt voru, verður að leggja þró-
un þessari ákveðnar höfuðlinur til
að fylgja.
Markmiðið verður að vera það
að byggja fleiri vinnustaði og að
skapa öllum atvinnu sem viija.
Staðsetning vinnustaða verður að
stýra þvi hvar fólk býr. Skipu-
leggja verður byggðaþróun i
auknum mæli.
Norðurlöndin bera sérstaka
ábyrgð hvað varðar skipulagða
og ábyrga stefnu i umhverfis- og
auðlindamálefnum.
Stefna verður að launajafnrétti.
Faghreyfíngin verður sjálf að
byggja upp samstöðu i launamál-
norrænar fjárfestingar í
um. Samfélagið verður sjálft að
gera tekjuáætlun sem tryggi fag-
hreyfingunni jafna og örugga
tekjuþróun og sem minnsta
hækkun á verðlagi.
Lýðræði á vinnustað er eitt af
höfuðmálunum. Það er álit allra
að þátttaka i atvinnulifinu skuli
veita rétt til áhrifa og að þessi
áhrif skuli vera nýtt til þess að
breyta og bæta vinnuaðstæður og
umhverfi á vinnustað.
Jöfnuður i efnahagslifinu úti-
lokar að menn nái yfirráðum yfir
auðmagni sem i dag er notað i
þágu einstaklinga.Launafólk á
kröfu á þvi að fá sinn hluta af
arðinum.
TRANSVAALi
' «Pretoria i ”
JÓHANNESA180RG. SWAZ|lAND
iy/Æ'; *. **». j
*<"'//■ORANGE *;*—■
vt FREE STATE ; /jfö
: ..--'r."-ZULULANO
Bloemfontein# v, * Y' .jfa
’. LES0TH0 . NATAL
lurban
SUÐUR AFRÍKA
TRANSKEI
CAPE PROVINCE
Porl Elizabeth
INDLANOSHAF
IÖFÐABORG
\....,RHODESIAt.-’
. SUÐVESTUR AFRÍKA
BOTSWANA
MlLUR
KOSTABOÐ
á kjarapöllum
KJÖT & FISKUR
Breiðholti
Sillli 7 1211(1 — 7 12(11
g'N?
POSTSENDUM
TRULOFUNARHRINGA
Jioliailnrs Uciisson
lUng.iUrfli 30
é'imi 10 200
I hull
I II—
DÚflfl
Síðumúla 23
/ími 84900
.... «■. =
Heimiliseldavélar.
6 litir - 5 gerðir
Yfir 40 ára reynsla
Rafha við Oðmstoig
Simar 25322 og 10322
Birgir Thorberg
málarameistari
simi 11463
onnumst alla
málningarvinnu
— úti og inni —
gerum upp gömul husgögn