Alþýðublaðið - 30.11.1976, Síða 14
14 LISTIR/MENNING
Þriöjudagur 30. nóvember 1976&b!attA°
Endurminningar sr. Gunnars Benediktssonar:
DÓMAR UM MENN 0G
MALEFNI HAFA MILDAZT
Hér er II. bindi af endur-
minningum sr. Gunnars
Benediktssonar fyrrum klerks I
Saurbæ i Eyjafirði. Þessar
minningar ná frá barnæsku og
allt til þess að hann kvaddi kjól
og kall, og er viða komið við.
Enn sem fyrr kveður að máli og
stíl sr. Gunnars, sem án efa má
telja i hópi beztu ritgerðasmiða
á islenzka tungu. Hitt er svo
annað, að hans hvassi still og
dómar um menn og málefni
hefur mildast við aidurinn, og er
það að vonum. Varla er hægt að
komast hjá þvi að finna, að
nokkurs „karlagrobbs” gæti i
frásögninni. En það er yfirieitt
ljúfmannlegt og engin ástæða tíl
að reka i það hornin, og þrátt
fyrir allt er sr. Gunnar engan
veginn langt kominn með að lifa
sjálfan sig.
Sem dæmi um þetta má auð-
veldlega nefna viðskiptihans og
Brynjólfs Sveinssonar forðum
vegna brottvikningar Ásgeirs
Blöndals Magnússonar úr M.A.
forðum.
Ókunnugur sem les þá frá-
sögn mun án efa krýna sr.
Gunnar sigursveig, en þvi fer
alls fjarri, að þaö hafi verið svo
óumdeilanlegt sem hann vill
vera láta. Enda var Brynjólfur
Sveinsson ekkert smábarn á rit-
velli.
Sá er þetta ritar hefur löngum
dáðst að sr. Gunnari fyrir rit-
gerðasmið hans, hvort sem
hann var sammála manninum
eða ekki, sem brugðizt hefur til
allra vona. En skáldsögur hans
hafa að sama skapi valdið von-
brigðum. Hafi þær nokkru
áorkað, er það helzt að bregða
fremur luntalegum skugga á
annars glæstan ritferil. Þar
hefur getan brugðizt, að minum
dómi, stundum hrapallega.
Verður það ekki rætt hér frek-
ar.
En allt um það er þessi bók
betur skrifuð en óskrifuð og
mun efalaust verða talsvert les-
in, sem vert er, enda þótt rétt sé
að hafa i huga, að aldur
höfundarins bregði honum
nokkurri glýju í augu, sem hann
og raunar reynir ekki að breiða
yfir.
öm og örlygur gefa bókina
út. °-s-
Nýjar bækur:
Frá Leiftri:
Bók eftir nýjan höfund
og fjöldi barnabóka
tvær nýjar bækur um þá félaga
Frank og Jóa. Þær heita
„Leynihöfnin” og „Dularfulla
merkið”. Þetta eru 16. og 17.
bækurnar i þessum bókaflokki.
Að lokum má geta barnabókar-
innar „Mummi og jólin” eftir
Ingebrigt Davik, en höfundur
hennar er þekktur norskur út-
varpsmaður, sem samið hefur
margar sögur og frásagnir fyrir
börn. 1 bókinni eru nokkrar
teiknimyndir eftir Ulf Aas en
Bjarni Jónsson teiknaði mynd á
kápu. Baldur Pálmason, útvarps-
maður, þýddi bókina, en saga eft-
ir sama höfund hefur áður verið
þýdd og lesin I útvarp. Það er
sagan „1 Mararþaraborg”, en
söngvar úr henni hafa verið gefn-
ir út á hljómplötu.
Örn og Örlygur:
Ef þessar sveiflur eru settar
úr skorðum, til dæmis meö
þotuferö til annars timabeltis
kemst likamsstarfsemin úr
jafnvægi um tima.
Hjá manninum gerast þessar
reglubundnu sveiflur á 4
klukkustunda „periódum”
sem eru háðar sólargangin-
um.
Margar lifverur hafa eins-
konar innbyggöa klukku, sem
stjórnar ýmsum reglubundn-
um athöfnum likamans, svo
sem hitastigsbreytingum,
nýrnastarfsemi og meltingu.
örn og Örlygur:
Dýrariki Islands teiknað af Bene-
dikt Gröndal. Gefið út i tilefni af
150 ára afmæli Gröndals 6. okt.
1976. Upplag 1.500 tölusett og árit-
uð eintök. Stærð bókarinnar er
51.5 sm x 35 sm. Myndasiðurnar
eru eru 100 en teikningarnar
skipta þúsundum. Eftirmála ritar
Steindór Steindórsson frá Hlöð-
um. Dýrasta bók sem gefin hefur
verið út á íslandi að frátalinni
fyrstu útgáfu Guöbrandarbibliu.
Hornstrendingabók eftir Þórleif
Bjarnason. Bókin var fyrst gefin
út áriö 1943 og var þá I einu bindi.
Þórleifur hefur endurskoðað og
aukiö efni bókarinnar verulega og
bætt hefur verið tugum mynda i
bókina eftir þá Finn Jónsson og
Hjálmar R. Bárðarson. Bókinni
hefir þvi verið skipt i þrjú bindi
sem gefin eru út I fagurlega
skreyttum kassa.
Prentsmiðjan Leiftur hefur
sent frá sér allmargar nýjar bæk-
ur, aðallega barnabækur. — Þá
hefur Leiftur gefið út bók eftir
nýjan islenzkan höfund, Bjarna
Eyjólfsson, og heitir hún „Cr
djúpi reis dagur”.
Um þessa bók segir á bókar-
kápu, aö hér sé á ferðinni sérstæð
og hrifandi bók. Söguhetjan heitir
Asgeir og segir bókin frá æsku
hans. Þá segir, að þetta sé fyrsta
og eina bók Bjarna Eyjólfssonar.
Þó sé sem æfður rithöfundur fari
höndum um viöfangsefnið. Bókin
sé samin af þekkingu og reynslu
sjálfmenntaðs gáfumanns, sem
um langt árabil hafi verið andleg-
ur leiötogi fjölda manns, orðið
kristniboðsfrömuður, ort ljóð og
sálma og reynzt hollráður ótal
einstaklingum, ekki sizt ungu
fólki, sem hafi leitað til hans með
dýpstu spurningar lifsins.
Þá hefur blaðinu borizt fjöldi
nýrra barnabóka frá Leiftri.
Tvær eru eftir Merri Vik og fjalla
um Löbbu. — Onnur heitir
„Labba, þaö er ég” og hin
„Labba, sjáiö hvaö hún getur.”
Leiftur hefur gefið út tvær
strákabækur, sem fjalla um
kappakstur. Þær eru báöar eftir
Erik Speed, og heita: „GT
kappaksturinn” og „Bikarkeppn-
in”.
Þá hefur Leiftur sent frá sér
tvær nýjar Nancy-bækur eftir
Carolyn Kenne. Þær heita
„Nancy og leyndarmál sirkus-
stjórans” og „Nancy og rauðu
bailettskórnir”. Sú síðarnefnda
er 21. Nancy-bókin.
Einnig hefur Leiftur gefið út
Þrautgóöir á raunastund, 8. bindi
björgunar- og sjóslysasögu Is-
lands eftir Steinar J. Lúðviksson.
Bókin fjallar um árin 1920-1924.
Björgunarsagan er rakin aftur á
bak frá stofnun Slysavarnafélags
tslands árið 1928 og nú er bókin að
koma inn á hiö merka timabil,
skútuöldina, sem setur óneitan-
lega mikinn svip á þessa bók.
Hammer of the North, Myths and
Heroes of the Viking Age eftir
Magnús Magnússon, eöa Hamar
Norðursins — goösagnir og hetj-
ur vikingaaldar. Bókin er gefin út
á ensku og er höfundur hennar
svo sem kunnugt er islendingur
að ætt, en búsettur i Bretlandi.
Þar i landi nýtur hann mikilla
vinsælda sem höfundur sjón-
varpsþátta, meðal annars um
þætti úr sagnfræði og fornleifa-
fræöi. Bókin er 128 bls. i stóru
broti. Aðalefni hennar er norræn
goðafræöi og goðsagnir og kemur
greinilega fram að höfundur hef-
ur kynnt sér það efni rækilega,
bæði út frá islenzkum fornritum
og nýjustu sögulegum fornfræði-
legum heimildum. Bókina prýða
yfir 120 litmyndir og er hún hin
tilvaldasta gjöf til vina og við-
skiptamanna erlendis.
Tækni/Vísindi
Árlegar sveiflur líffræðinnar 1.
I ljós hefur komið að slikar
„liffræðilegar klukkur” hjá
ýmsum dýrategundum eru
háðar árstiðasveiflum.
MARGAR MERKILEGAR BÆKUR