Alþýðublaðið - 20.03.1977, Blaðsíða 6
6 ; LISTÍIfltltWyiWG
Sunnudagur 20. marz 1977 Maðkí'
Ekki lengur hræddir við
að fara eigin leiðir
Það eru nú liðin þrjú
ár frá þvi Baltasar var
siðast með einkasýn-
ingu. Ýmsum finnst þvi
að timi sé kominn til, að
listamaðurinn fari að
troða upp.
Og það er einmitt i
dag sem Baltasar
opnar sýningu á
Kjarvalsstöðum. Þetta
er mikii sýning hjá
listamanninum og mun
það varla koma á óvart
neinum, sem fylgzt
hefur með listaferli
mannsins.
Baltasar sýnir þarna
um 50 oliumálverk. En
auk þess eru á sýning-
unni 40 teikningar, þar á
meðal myndir af öllum
bændum i Grimsnesi.
Teikningamar eru allar
i eigu tengdaföður
Baltasar, Guðna Guð-
bjartssonar stöðvar-
stjóra við Sogsvirkjun,
og má vera að tilkomu
safnsins megi rekja til
þess tima er Baltasar
var á biðilsbuxum aust-
ur i sveitum.
En þaö eru þó fyrst og fremst
ollumálverkin, sem mest ber á á
sýningunni. Þetta eru miklar
myndir og dýrar, og er engin
myndanna verölögö undir 150
þúsund krónum. Þær dýrustu
kosta um hálfa milljón og upp l
600 þúsund krónur.
Ef litiö er á veröbólguþróunina
I þessu landi okkar er ekki ósenni-
legt aö gera megi góö kaup á
þessari sýningu ef menn eiga ein-
hverja lausa aura.
Baltasar hefur breytt nokkuö
um stil frá siöustu sýningu! Lit-
irnir eru bjartari og ákveðnari en
áöur, og einnig hefur listamaöur-
inn breytt mikiö um val á mótiv-
um. Landslagiö er aö mestu eöa
öllu horfiö og í staöinn hafa komiö
lifandi mótiv af mönnum og
skepnum, raunverulegum og
huglægum.
Þegar blaöamaöur Alþýðu-
blaösins spuröi Baltasar aö þvi I
gær, hvaö honum finndist um is-
lenzka myndlistarmenn um þe-
ssar mundir, sagöi hann bros-
andi, að ástandiö væri þannig, aö
þaö væri jafnvel kominn galsi I
mannskapinn.
,,Þaö hefur orðiö breyting á
Framhald á bls. 8
Baltasar opnar sýningu á Kjarvalsstöðum í dag ★
_______________________________________________________________)
Þorsteinn Hannesson sextugur:
Hefur sungið stór
hlutverk í óperum
víða um lönd
TÓNLEIKAR
TIL HEIÐURS
AFMÆLISBARNINU
í DAG
Þorsteinn Hannesson
tónlistarstjóri tJtvarps á
sextiu ára afmæli i dag.
Hann er fæddur á Siglu-
firði 19. marz 1917, en
fluttist um tvitugt til
Reykjavikur.
Þorsteinn hóf söng-
nám hjá Sigurði Birkis
1940 og stundaði það i
þrjú ár. Haustið 1943
hélt hann utan og hóf
nám við Royal College
of Music i Ltmdon, þar
sem hann var um fjög-
urra ára skeið. Áður en
hann hélt utan vakti
hann geysimikla athygli
er hann söng
Guðspjallamanninn i
Jóhannesarpassíu, mjög
erfitt hlutverk, undir
stjórn dr. Urbancic.
Ariö 1947 var Þorsteinn ráöinn
aöaltenór viö Covent Garden
óperuna i Lundúnum, en leyfi til
aö syngja fékk hann ekki fyrr en
1948, og söng hann þá mörg
stærstu hlutverk i óperum og
óperettum sem færöar voru á sviö
i London, og þá á móti stór-
stjörnum, eins og Elisabetu
Schwarzkoff og fleirum.
Er samningstimi Þorsteins viö
Covent Garden var útrunninn
1954, og hann var aö þvl kominn
aö undirrita samning I Þýzka-
landi, bauðst honum að syngja
hlutverk Carrio i Pagliacci, sem
flutt var hér i Þjóðleikhúsinu
1954. Þorsteinn kom þá heim,
söng Carrio og geröist síöan aöal-
Þorsteinn Hannesson
kennari i söng viö Tónlistar-
skólann I Reykjavik, en sönglistin
var þá I örum vexti hér á landi
Tvö siðastliðin árhefur Þorsteinn
veriö tónlistarstjóri Otvarps. Hér
heima hefur hann sungiö mörg
stór hlutverk i óperum og óper-
ettum, svo sem Tosca, Töfra-
fiautunni, Kátu ekkjunniog fieiri,
auk þess sem hann hefur oftsinn
is sungið meö Sinfóniuhljómsveit
Islands, þar á meöal i Carmina
Burana eftir Car Orrf, sem Söng-
sveitin Fllharmónia flutti fyrir
um þaö bii ári.
1 tiiefni sextugsafmælis
Þorsteins efna nokkrir ein-
söngvarar og pianóleikarar til
tónleika i Austurbæjarbiói i dag
klukkan 14.30.
Þeir söngvarar sem fram koma
eru Sigurður Bjömsson,Kristinn
Hallsson, Guömundur Jónsson,
Halldór Vilhelmsson, Garðar
Cortez, Jón Sigurbjörnsson, Rut
L. Magnússon, Guörún
Tómasdóttir, Elin Sigurvins-
dóttir, Sólveig Björling, Svala
Nielsen,ElIsabet Erlingsdóttir og
undirleikararnir Carl Billich,
Guðrún A. Kristinsdóttir, Gústaf
Jóhannesson.Krystyna Cortez og
Ólafur Vignir Albertsson. Aö
lokum mun svo afmælisbarniö
syngia. _AB
Bak við allt skapandi
starf liggur fantasía
Sigriður Björnsdóttir
listmálari opnar sýn-
ingu á verkum sinum i
Norræna húsinu i dag,
laugardag. Sýningin
verður opin til mán-
aðarmóta.
Listakonan sýnir
þarna 61 mynd, sem
allflestar eru málaðar
síðustu tvö árin. Þó eru
nokkrar eldri myndir á
sýningunni. Myndimar
eru allar málaðar með
akrýl á striga.
Á fundi með blaða-
mönnum I gær sagði
Sigriður, að hún gæfi
myndum sinum ekki
nafn. Hins vegar gæti
hún gefið áhorfendum
sinum vissa innsýn i
myndirnar með þvi að
segja frá sjónarmiðum
sinum og hugmyndum,
bæði almennt um
myndlist og svo að því
er varðaði hverja ein-
staka mynd.
„Jú, að vissu leyti
má segja að myndirnar
minar séu abstrakt,
eða kannski heldur
„eonstructíve”. Það
eru form, dýpt og
hrynjandi, sem eru
aðal þættirnir i mynd-
unum minum ,” sagði
Sigriður.
Aö visu fer ekki framhjá
nokkrum manni sem litur inn á
sýninguna, aö listakonan er
einnig mjög iitaglöö. ,,Jú, þaö er
rétt,” sagöi Sigriöur. ,,Og litirn-
ir hafa oröiö bjartari og meiri i
seinni tiö.”
Sigriöur sagöi aö umhverfiö
orkaöi mjög sterkt á sig. ,,Ég er
á móti mengun og þess vegna
mála ég um mengun. Einnig hef
ég oröiö fyrir sterkum áhrifum i
mannlegum samskiptum, t.d.
viö kerfiö. Og þetta kemur fram
i sumum myndunum sem ég
mála.”
Um myndlistina almennt
sagöi Sigriöur: „Ég hallast aö
þvi veigamikla hlutverki mynd-
listarinnar aö höföa til hvers og
eins, þannig aö myndin virki
sem hvati á hugmyndaflug
hvers einstaklings, enda sjá
engir tveir menn sama hlutinn
eins þvi reynsla þeirra og sýn
erþeirra persónulega eign. Sem
sé. Ég hef ekki áhuga á aö segja
mönnum hvaö þeir eigi aö sjá,
heldur hef ég hug á aö virkja
hug þeirra og sýn.”
Sigriöur Björnsdóttir segir aö
myndmálið sé alþjóölegt og
mönnum meöfætt. „Út um hin
viöáttumiklu sviö mannsins
liggur margt bælt og vanrækt,
sem ég held aö myndlistin geti
vakiö, sé henni beitt virkjandi.
Ég held aö bak viö allt skapandi
starf liggi fantasia,” segir lista-
konan Sigriöur Björnsdóttir.
Þaö er auöséð á myndunum
hennar Sigriöar, og af rabbi
hennar um listaverkin, aö hún
er ekki neinn venjulegur sveita-
Framhald á bls. B.
C
☆ Sigríður Björnsdóttir opnar myndlistarsýningu í dag
----------------------------- . ___________________\______