Alþýðublaðið - 21.07.1977, Page 5
2ssr Fimmtudagur 21. júlí 1977
Hluti „hráefnis” til vitageröarinnar tekinn f Vestmannaeyjum.
Vitabygging í Surtsey:
MIKILL HITI ENN I
HRAUNINU I SURTSEY
Syðsti og jafnframt
hæsti viti á landinu er
nú i byggingu. Hefur
hann verið steyptur
upp, en á hann vantar
enn ljóskerið og verður
það væntanlega sett á
Buröarþol þyrlunnar er mjög takmarkaö og þvl ekki mikiö steypumagn sem hægt er aö flytja f hverri
ferð.
jafnframt þvi að slegið
verður utan af steyp-
unni. Þessi nýi viti er
auðvitað á nýjustu
eyjunni við ísland,
Surtsey. Hæð hans
mun vera nálægt 150
metrar. Áhöfn varð-
skipsins Ægis, ásamt
fimm starfsmönnum
frá Vita- og hafnar-
málaskrifstofunni, og
með ómetanlegri
aðstoð TF GRÓ og
flugmanna hennar,
unnu við verkið i
vikunni. Þoka og slæmt
skyggni. tafði verkið
nokkuð og það var þvi
ekki fyrr en 18. júli að
verkinu lauk. Steypu-
mótin voru að tölu-
verðu leyti tilbúin
hleramót. sem boltuð
voru saman. Steypan
var öll hrærð um borð
og var þiyrlupalli
skipsins þvi breytt i
eins konar steypustöð.
Þar voru smiðaðir
kassar fyrir sand, og
steypuhrærivélar
festar á dekkið.
Siðan fluttu þyrlur allan
mannskap, svo og steypumót og
steypu, upp á hæstu bungu
Surtseyjar, þar sem vitanum
hafði verið valinn staður. Mjög
kom það mönnum á óvart hve
mikill hiti er enn i eynni. Sums
staðar var hilinn tæpar 80
gráður á celsius á aðeins 10 m
dýpi og viða rauk úr sporum
manna.
Hér sannaðist enn einu sinni
að þyrla á borð við TF GRÓ er
mikið þarfaþing þó að lyftigeta
hennar mætti vera nokkru
meiri, auk þess sem slíkt tæki
þyrfti að geta borið sjúkrabörur
með góðu móti. Sjúkrabörur og
önnur hjálpartæki þyrftu að
vera i sem flestum skipum
Landhelgisgæzlunnar.
Notkunargildi þyrlu, likt og
þeirrar sem Gæzlan hefur yfir
að ráða, byggist á þvi að
traustir menn séu við stjórn-
völinn. Svo er vissulega i þessu
tilfelli.
Hluti úr steypumótunum festur I þyrluna...
Hér, er steypustööin á dekki ÆGIS. Frumstæö er hún en gerir sitt gagn.
-
...og hún á loft meö flekann hangandi niöur úr ser.
Myndir og texti: Ingó
Og þarna er áfangastaöurinn, vitastæöiö sjálft. Vitinn I Surtsey veröur sá hæstiá tslandi um 150 metrar.