Alþýðublaðið - 24.07.1977, Blaðsíða 4
4
Sunnudagur 24. júlí 1977.
GUÐMUNDUR GEORGSSON UM LAXALÓNSMÁLIÐ:
Framlag mitt staðfesting á sjúkdóms-
greiningu erlends fisksjúkdómafræðings
— athugasemd vegna greinar Sveins Snorrasonar lögfræðings Skúla Pálssonar
Guðmundur Georgsson starfsmaður Tilraunastöðvar háskólans i meinafræði
að Keldum hefur beðið blaðið fyrir eftirfarandi grein til birtingar.
Er hún rituð vegna greinar er birtist hér í blaðinu nú fyrir skömmu eftir
lögfræðing Skúla Pálssonar, Svein Snorrason
Allhörð hrið hefur
verið gerð að sjúk-
dómsgreiningu, sem
undirritaður starfs-
maður Tilraunastöðvar
háskólans i meinafræði
að Keldum átti veru-
legan hlut að, þ.e.
greining smitandi
nýrnasjúkdóms
(bacterial kidney
disease) i fiskeldisstöð
Skúla Pálssonar i
Laxalóni. Stór orð hafa
ekki verið spöruð, m.a.
er haft eftir Skúla Páls-
syni i Visi þann 12.
þ.m., að hér sé um lygi
og fals að ræða. Ég er
sannfærður um að þeir
sem til þekkja munu
skilja af hverju ég leiði
það hjá mér að elta
ólar við þau gifuryrði.
Hins vegar ritar lög-
fræðingur Skúla langa
grein, sem birtist i
blaði yðar, þar sem
sjúkdómsgreiningin er
véfengd að þvi er
virðist á faglegum
grundvelli og vitnar
lögfræðingurinn m.a. i
bók um fisksjúkdóma.
Eins og fram hefur komiö var
framlag mitt ekki merkara en
svo, að þaö fólst einvörðungu i
þvi að staöfesta, að sjUkdóm,
sem dr. T. Hastein, erlendur
fisksjúkdómafræðingur, haföi
greint árið áöur, væri enn að
finna í fiskeldisstööinni i Laxa-
lóni.
Aö visu virðist lögfræðingnum
það ekki fullljóst að endanleg
niöurstaða dr. Hasteins var sú
að um smitandi nýrnasjúkdóm
væri að ræöa. Til þess að fylla
upp i fremur gloppóttar til-
vitnanir lögfræðingsins i bréfa-
skipti dr. Hastein skal tekið
fram, að þegar i fyrsta bréfi
sinu dags. 9/6 i fyrra nefnir dr.
Hastein fyrst þann möguleika
að um langvinnan smitsjúkdóm
kunni að vera að ræða. t öðru
bréfi 22/9 ’76 gerir dr. Hastein
itarlega grein fyrir ýmsum
umhverfis'þáttum, sem hafi
áhrif á gang sjúkdómsins. En
eins og flestum mun kunnugt
geta ýmsir ytri þættir haft veru-
leg áhrif á gang smitsjúkdóma
og nægir sennilega að minna
íslendinga á sjúkdóma eins og
berklaveiki. Hins vegar má
vera að þessar bollaleggingar
Hasteins hafi villt um fyrir lög-
fræðingnum en þvi ætti tæpast
aö vera til að dreifa um siðasta
bréf dr. Hasteins frá 11/1 1977,
sem lögfræðingurinn minnist
reyndar ekki á. Þar staidur
blátt áfram aö sjúkdóms-
grefningin hafi veriö smitandi
nýrnasjúkdómur eða orðrétt:
Vlrdiagnose pS den innsendt
fisk ble bakteriell nyresyke.
Eins og viö byggir dr. T.
Hastein sjúkdómsgreininguna á
þvi að hann fann sérkennandi
sýkla i dæmigerðum vefja-
skemmdum. Þaö er mis-
skilningur hjá lögfræðingnum
að dr. Hastein hafi ekki m^tt
greina sjúkdóminn án þess að
rækta sýkilinn. Það er alkunna
að erfitt er að rækta hann. Til
dæmis kveður Bullock svo að
orði i bók um sýklasjúkdóma i
fiskum, sem ritstýrt er af
Sniezzko og Axelrod, að vegna
smitandi nýrnaveiki sé sjúk-
dómsgreining byggð á smásjár-
skoðun á sýnum úr vefja-
skemmdum. Þess má geta að
þekkt eru fleiri dæmi um smit-
sjúkdóma bæði hjá mönnum og
skepnum erslfkt gildirum. Það
er mörg bókin.
Dr. Richards, erlendur fisk-
sj úkd óm a fr æöin gur , við
Háskólann i Stirling, samstarfs-
maður höfundar þeirrar bókar
er lögfræðingurinn vitnar til
staöfesti siöar greiningu okkar
áefnivið sem honum var sendur
og fannst raunar myndin það
dæmigerð að hann falaðist eftir
frekari sýnum til að nota við
kennslu.
Það kann að vera álitamál
hversu marga erlenda fisksjúk-
dómafræðinga þurfi aö kalla til,
svo að skjdlstæðingur Sveins
Snorrasonar sætti sig við niður-
stöðurnar. Eftir siðustu
fregnum virðist ekki þörf á
fleirum. A.m.k. fæ ég ekki lagt
annan skilning i þá staðreynd aö
hinir ágætu fisksjúkdóma-
fræðingar Dana skyldu allir
með tölu sniögengnir og þess i
stað boðið hingað hr. statsbiolog
Frank Bregnballe forstööu-
manni tilraunaeldisstöövar.
Það skal tekið fram að mér var
ekki kunnugt um veru hr.
Bregnballehér fyrr en ég heyröi
fregnir i útvarpi af blaöa-
mannafundi hans. Allar vanga-
veltur um það hversu ég kynni
aö hafa tekið honum eru þvi
dæmdar til að vera ófrjóar.
Eg skal fúslega viöurkenna,
aö ég er þakklátur Sveini
Snorrasyni og skjólstæðingi
hans fyrir að hlifa kurteisi
minni við þeirri þolraun að taka
á móti hr. Bregnballe eftir þá
sérkennilegu háttvfsi hans að
draga sjúkdómsgreiningu mina
I efa opinberlega án þess að
gera tilraun til aö bregða sér
yfir Vesturlandsveginn til að
kynna sér á hverju hún
byggðist. Þó verður framkoma
hans gagnvart mér, innfæddum
„sérfræðingi” að teljast
höfðingleg miðað viö þá hátt-
visi, sem hann sýndi erlendum
fisksjúkdómafræöingum, sem
ekki hafa einu sinni tök á þvi að
bera hönd fyrir höfuð sér.
Ekki vil ég díaga það I efa, aö
hr. Bregnballe hafi ekki tekizt
að finna smitandi nýrnaveiki i
þeim 13 laxaseiðum, sem hann
athugaði úr þeim aldurs-
flokki.sem sjúkdómurinn haföi
veriö greindur i. Sú niöurstaöa
kæmi vel heim við þá staðreynd
að bæði einkenni og seiðadauði i
þessum sjúkdómi er mjög mis-
munandi eftir ýmsum
aðstæðum.
1 þessum faraldri virðast
nokkuð greinilegar sveiflur I
sjúkdo'msganginum, ef treysta
má þeim upplýsingum sem
fengizt hafa. Þannig virðist
seiðadauðinn hafa verið mestur
I fyrravor er Skúli Pálsson varð
að sögn fyrst var viö sjúk-
dóminn. Þegar okkur barst
loksins staðfesting á þessari
sjúkdómsgreiningu í janúar-
mánuði s.l. voru tekin sýni og
fundust þá ekki merki um sjúk-
dóminn. Hins vegar fannst hann
við endurteknar sýnatökur i
byrjun og lok april. Vandinn er
hins vegar sá að meðan ekkert
er að gert er smitið áfram til
staöar og sjúkdómurinn getur
þvi blossað upp hvenær sem er.
Fiskar geta verið heilbrigðir
smitberar og ekki eru tiltækar
velþróaðar aðgeröir til að leita
þá uppi.
Lögfræðingur Skula gagn-
rýnir að ekki hafi veriö fylgzt
frekar með gangi sjúkdómsins i
stöðinni. Ástæöur fyrir þvi .eru
margþættar. Fyrst og fremst
skal nefna, að ég taldi eftir að
sjúkdómurinn hafði verið staö-
festur og Fisksjúkdómanefnd
gert tillögur til ráöuneytisins
um varnaraögerðir, að þær
aðgerðir drægjust ekki svo á
langinn. Enda verðurað telja að
allur dráttur auki á þá hættu
sem nærliggjandi eldisstöðvar
svo og ár og vötn eru f.
Varðandi athuganir á öðrum
stöðvum skal þess getið.aö seiði,
einkum laxaseiði, hafa verið
athuguð frá eldisstöðvunum i
Kollafirði, við Elliöaár, aö
Oxnalæk, Laxamýri, og við
Grafarlæk og Sauðárkrók og
ekkert fundizt er bendi til
smitandi nýrnaveiki. Einnig má
geta þess aðáhugasamir veiði-
menn hafa nú sem fyrr sent laxa
sem sýnt hafa einhver ytri sjúk-
dómseinkenni til rannsóknar.
Til þessa hafa ekki fundizt
merkium smitandi nýrnaveiki i
þeim. Þessi staðreynd ætti
væntanlega að verða lög-
fræðingnum og skjólstæðingi
hans til uppörvunar, þar eö
liklegt má nú telja að unnt verði
að útvega sótthreinsuð hrogn úr
stöð þar sem sjúkdómsins hefur
ekki orðið vart, svo að Skúli
Pálsson geti beint orku sinni i
annan og farsælli farveg en nú,
þegar sjúkdómnum hefur verið
útrýmt úr stöð hans.
Miklu moldviðri hefur verið
þyrlað upp vegna þessarar
sjúkdómsgreiningar og notar
Sveinn Snorrason hæstaréttar-
lögmaður þaö til þess að setja
fram þá skoðun, að þörf sé á
rannsókn á st jórn veiðimála hér
á landi og afskiptum veiðimala-
yfirvalda af málefnum Skúla i
Laxalóni. Þetta nefnist aö
hengja bakara fyrir smið. Mér
sýnist að lögfræðingnum ætti að
nægja að fara fram á opinbera
rannsókn á þvi sem um er deilt,
þ.e. hvernig staðið hefur verið
að athugun á þessum smitandi
nýrnasjúkdómi allt frá þvi að
hans varð fyrst vart i fyrra vor
til þessa dags. Kjósi lög-
fræðingurinn og skjólstæöingur
hans þá leið fremur en aö hlita
þeim ráöum aö reyna að útrýma
sjúkdómnum og hefja laxeldi að
nýju, skal ekki standa á mér aö
leggja fram þau gögn, sem ég
hefi undir höndum.
Reykjavik, 20. júli 1977
Guðmundur Georgsson
LITIHÁTÍÐ
að Úlfljótsvatni um verslunarmannahelgi
Föstudaginn 29. júli — mónudags 1. ógústs.
4. daga dagskrá
M.a.:
•Póker
• Eik
• Ríó
•Tívolí
•Randver
•Alfa Beta •Halli og Laddi
•Cobra og margir fleiri
• Jasskvartet •Bátaleiga
• Söngtríóið •Hestaleiga
Bónus •Tívolí
• íþróttir
• Fyrsta
svifdreka
keppnin
á íslandi
Stórkostlegasta útihátíð ársins
— HÁTÍÐ FYRIR ALLA —