Alþýðublaðið - 28.10.1977, Side 4

Alþýðublaðið - 28.10.1977, Side 4
4 Föstudagur 28. október 1977 S&T Otgefandi: Alþýðufiokkurinn. Hekstur: Reykjaprent hf. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Arni Gunnarsson. Aðsetur ritstjórnar er i Siðumúia 11, simi 81866. Augiýsingadeiid, Aiþýðuhúsinu Hverfisgötu 10 — sfmi 14906. Áskriftarsimi 14900. Prentun: Blaðaprent h.f. Askriftarverð 1500krónur á mánuði og 80 krónúr f lausasöiu. . Ýtt við stöðnuðu flokkakerfi Ekkert pólitískt mál hefur verið eins mikið til umræðu síðustu vikur og prófkjör Alþýðuf lokks- ins. Það hef ur ekki aðeins vakið athygli stjórnmála- flokkanna og málgagna þeirra, heldur alls al- mennings, sem hefur tek- ið þessari nýbreytni vel. Þúsundir manna hafa tekið þátt í þeim próf- kjörum, sem þegar hafa farið fram. í flestum til- vikum hafa þátttakendur verið fleiri en kusu Alþýðuflokkinn í síðustu kosningum. Þessi mikla þátttaka segir m.a. þá sögu, að kjósendur kunna því vel að fá að ráða meiru en verið hefur um val frambjóðenda. Prófkjör Alþýðuflokks- ins hefur einnig ýtt af stað prófkjörum og skoð- anakönnunum hjá öðrum flokkum, öllum nema Alþýðubandalaginu. Á sama tíma hefur sá flokkur harðast gagnrýnt prófkjör Alþýðuflokksins og reynt að gera lítið úr því. Hin lítt dulda ósk- hyggja Alþýðubandalags- ins um að Alþýðuf lokkur- inn hverfi af sjónarsvið- inu hefur gengið aftur á síðum Þjóðviljans að undanförnu. En Alþýðubandalagið er í erfiðri stöðu. Til að beina athygli manna frá eigin f lokksræði og kjark- leysi, sem kemur fram í því, að Alþýðubandalagið hefur ekki þorað að efna til prófkjörs, er spjótun- um beint að Alþýðu- flokknum. En það verður Alþýðubandalaginu ekki til framdráttar að gera lítið úr prófkjöri Alþýðu- flokksins. Það aðeins beinir sjónum manna að þeirri staðreynd, að Alþýðuf lokkurinn hefur fylgt eftir þeim lýðræðis- hugmyndum, sem hann boðar. Alþýðuf lokkurinn hef- ur fyrstur og einn allra íslenzkra stjórnmála- flokka opnað dyr sínar upp á gátt. Hann hefur birt reikninga sína í smá- atriðum, svo allir geti kynnst þeim. Flokkurinn hef ur ef nt til próf kjörs til að koma í veg fyrir, að aðeins örfáir menn ráði því hverjir skipi fram- boðslista og verði fulltrú- ar hans og kjósenda á Alþingi. Þetta hefur fólk- ið í landinu kunnað að meta, og þátttakan í próf- kjörinu er samkvæmt því. Alþýðuf lokkurinn gerði sér grein fyrir því, að fyrir svo lítinn flokk yrði það ýmsum annmörkum háð, að efna til opins prófkjörs. Kostirnir og gallarnir hafa komið f ram og flokkurinn er reynsl- unni ríkari. Hins vegar eru kostirnir svo yfir- gnæfandi, að engum blandast hugur um að slíkt prófkjör er fyllilega réttlætanlegt. Það fer heldur ekki framhjá neinum, að prófkjörið hefur haft áhrif inn í sali Alþingis, þar sem þingmenn hafa þegar rætt breytingar á kosningalögum, er gerðu kjósendum kleift að velja um einstaklinga á fram- boðslistum. Þótt þetta prófkjör hefði ekki haft önnur áhrif en þau, að ýta við stöðnuðu flokkakerfi og kalla fram breytingar á kosningalögunum, hef- ur það náð tilgangi sín- um. En prófkjörið mun einríig minna kjósendur á hvaða íslenzkur stjórn- málaflokkur það var, sem þorði að taka áhætt- una: stendur með henni og fellur. UR YMSUM ÁTTUM Nú er timi prófkjara, skoö- anakannana og annars þess er, i oröi kveönu aö minnsta kosti, gefur almenningi i landi voru færi á að hafa áhrif innan stjórnmálaflokkanna. Meira aö segja landsfeöurnir vitru innan hjálpræöis þjóöarinnar, Sjálf- stæöisflokksins, eru þar meö i leik, enda skýröi Morgunblaöiö frá þvf i frétt i gær aö nú væri liðinn frestur sá er veittur var til að skila framboöum i próf- kjör flokksins i Reykjavik, vegna alþingiskosninganna i vor. Tólf framboöum var skilaö i tima, með tilskildum meömæl- endum og voru þar aö verki eftirtaldir einstaklingar: Bergljót Halldórsdóttir, Björg Einarsdóttir, Elin Pálmadóttir, Erna Ragnarsdóttir, Friðrik Sófusson, Geir R. Andersen, Geirþrúöur H. Bernhöft, Har- aldur Blöndal, Jónas Bjarna- son, Kristján Guöbjartsson, Sig- fús J. Johnsen og Siguröur Angantýsson. Þarna er um að ræöa fólk, sem hefur unnið sér sitthvaö til ágætis. Sumt meö blaöaskrif- um, sumt meö störfum fyrir flokkinn á opinberum vetvangi, sumt með öðru móti. Auk þessara tóif aöila, sem bjóða sig fram, hver meö tilskil- dum stuðningi tuttugu og fimm flokksbundinna sjálfstæðis- manna, hefur svo kjörnefnd flokksins f hendi sér niðurröðun tuttugu aöila á framboðslistann, þannig aö á honum verði ekki færri en þrjátiu og tveir. .Samkvæmt frétt Moggans má búast viö aö framboð þeirra þingmanna flokksins i Reykja- vík, sem hyggjast leita eftir endurkjöri, komi fram á þann máta. Og enn eru jafnréttislögin brotin og brömluö. Islenzk-Ameriska félagiö auglýsti mí alveg nýverið eftir einum kvenmanni og einni stúiku, sem áuövitaö er voöa- legt mál, þvi það er jú bannað aö kyngreina fólk i auglýsing- um. I fyrsta lagi var auglýst eftir kvenmanni til aö hafa umsjón meö erlendum pöntunum, brefaskriftumo.fi. Nauösynlegt var taliö aö viökomandi heföi gott vald á ensku og töluveröa bókhalds þekkingu. 1 ööru lagi var auglýst eftir stúlku til aö annast vélritun og útskrift á nótum. Enskukunn- átta og góö vélritunarkunnátta nauösynleg. 1 lok auglýsingar var þess svo getiö aö þær sem kynnu aö hafa áhuga, ættu að hafa samband við Egil nokkurn Agústsson, og gott ef þar er ekki lika komiö enn eitt jafnréttisbrotiö, þvi Egill er jú karlmannsnafn og þar meö kyngreining i spilinu. Já, þetta eru ljótir menn og vondir, aö brjóta svona þessi lög, sem er búið aö hafa svona mikiö fyrir. Það vantar bara að þessir kallar fari aö heimta kvennaskólapróf i auglýsingum. Þá er blessaöur Landsbank- inn kominn á uppboð, eftir þvi sem segir i Lögbirtingi, en þar birtist eftirfarandi tilkynning þann 14. október: „Sæbraut 4, Seitjarnarnesi, með tilheyrandi lóð og mann- virkjum, þinglesin eign Lands- banka tslands. Uppboösbeiö- andier Gjaldheimta Seltjarnar- ness, samkvæmt heimild i lög- um númer 49/1951, til lúkningar fasteignagjaldi aö fjárhæö krónur 12.477.00 auk vaxta og kostnaöar.” 1 sama tölublaði lögbirtinga- blaösins var birt auglýsing um skrá yfir starfsmenn rikisins, sem eru félagar I Bandalagi starfsmanna rikis og bæja, og er óheimilt aö gera verkfall, sam- kvæmt ákvæðum laga númer 31/1976. Þetta var viöbót viö áö- ur birta skrá og fól viðbótin i sér aö AlfreöÞorsteinsson og Bene- dikt Guöbjartsson, báöir starfs- menn Sölu Varnarliöseigna, mættu alls ekki gera verkfall. Þaö er enda hverju barni ljóst, aö ef Alfreö ekki heldur áfram, ótruflað og á fullu hvern dag, aö höndla meö þær eignir Varnarliösins sem þaö vill ekki lengur eiga, og viö megum þvi kaupa, þá er stefnt i voöa hvoru tveggja öryggisgæzlu lands vors og heilsugæzlu. Hins vegar mun ekki aö fullu ljóst hverja þætti öryggis- og heilsugæzlu Alfreö fjallar um.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.