Alþýðublaðið - 08.03.1978, Qupperneq 1

Alþýðublaðið - 08.03.1978, Qupperneq 1
MIÐVIKUDAGUR 7. MARZ Ritstjórn bladsins er til húsa í Sídumúla 11 — Sími (91)81866 — Kvöldsími frétta- vaktar (91) 81976 Vantar lodnu í verksmiðjurnar í Reykjavík: „Hættur að trúa því að við fáum nokkuð f ár” — SEGIR JÓNAS JÓNSSON AÐ KLETTI — Ég er eiginlega hættur aö trúa þvi að við fáum nokkra loðnu á þessari vertið og er þvi ekki sérlega bjart- sýnn um þessar mund- ir, sagði Jónas Jóns- son, framkvæmda- stjóri fiskmjölsverk- smiðjunnar að Kletti og i örfirisey i gær. Fiskmjölsverksmiðj- urnar að Kletti og i Örfirisey hafa staðið klárar fyrir loðnumót- töku vikum saman og margt verkafólk beðið loðnunnar, en loðnan hefur látið biða eftir sér og ekki útlit fyrir að unnið verði úr neinu sem nemur af loðnu á vertiðinni. Hefur lo&nugangan fyrir Austurlandi hegðaö sér all-ein- kennilega, gengið annaö hvort mjög hægt eða jafnvel staðið i stað. Er það þveröfugt við það sem áður hefur gerzt meö loðnugöngur. Jónas Jónsson sagði að þaö væri auðvitað ekki á sinu færi að segja livað ylli breytingum á loðnugöngunni nú, en mönnum dytti þó tvennt i hug. Annars vegar það að ef til vill væri hreinlega búið að ofveiða loön- una og mætti t.d. i þvi sambandi benda á reynslu sjómanna við Noreg. A loðnuvertiðini i ár þar við land hefur aðeins veiðst inn- an við helmingur af þeim afla sem áður veiddist að meðaltali. t annan stað gæti ieikmanni dottið i hug að loðnuveiðarnar fyrir Norðurlandi i fyrra hafi hafteinhver áhrif á loðnugengd- ina nú. Jónas Jónsson kvað dæmi um það að verksmiðjurnar á Kletti og i örfirisey hafi tekið á móti loðnu i byrjun febrúar, en vinnslugeta þeirra, miðað við 2 1/2 mánuð, væri yfir 50 þús. tonn. Kauptaxtar atvinnurekenda: kjara Brjóta í bága við skerðingarlögin! Alþýðusamband islands sendi í gær út yfirlýsingu í tilefni frétta frá atvinnu- rekendum um að kauptaxt- ar þeir sem verkalýðs- félögin hafa nú gefið út séu ógildir. Segir ASiþaðkröfu launafólks að farið verði eftir kjarasamningunum frá 22. júní 1977. Þeir taxt- ar sem gefnir haf i verið út séu í samræmi við ákvæði þess samnings/ auk þess sem tekið sé tillit til breyt- inga sem felast í tilkynn- ingu Kauplagsnefndar frá 20. febrúar. I þessari til- kynningu segir orðrétt: „Verðbótavisitala reiknuð eftir framfærzluvisitölu 1. febrúar 1978 samkvæmt ákvæðum 1. og 2. lið 3. gr. i kjarasamningi ASl og sam- taka vinnureitenda frá 22. júni 1977, er 123.4 stig (grunntala 100 hinn 1. mai 1977). Verðbótaauki samkvæmt ákvæðum i 3. og 4. lið 3. gr. i fyrrnefndum samningi er sem svarar. 2.91 stigi i verðbóta- visitölu. Verðbótavisitala að við- bættum verðbótaauka er þannig 126.15 stig, og er þar um að ræöa 12.13 stiga hækkun á þeirri visi- tölu, sem verðbætur eru greiddar eftir á yfirstandandi 3ja mána&a tlmabili. Hækkun þessi er 10.64% en vegna breytts launagrunns 1. desember 1977 felst i þessu, að viðkomandi kjaraákvæðum óröskuðum, 12.33% hækkun á nú- gildandi mánaðarlaunum, eftir að þau hafa veriö lækkuö sem svarar fjárhæð ver&bótaauka 1. desember 1977, sem er 1.590 kr.” Alþýðusamband Islands hefur og bent á, að taxtar þeir sem at- innurekendur og fjármálaráðu- neytiö senda nú frá sér eru reikn- aöirmiðaö viö hálfar visitölubæt- ur. Þetta gildir einnig um lægstu taxtana, og brýtur þar með þar af leiðandi ótvirætt i bága við þau „ólög sem þessir aðilar leggja nú megináherzlu á aö virða skuli. Hvergi sést örla á þeim láglauna- bótum sem 2. grein ólaganna er ætlað að tryggja láglaunafólki. Lftil saga frá launadeild Reykjavíkurborgar: HENTI KAUPTÖXTUM SÓKNAR í RUSLIÐ! Þaö voru kaldar kveöjur sem starfsmaður á skrif- stofu Starfsmannafélags- ins Sóknar fékk hjá full- trúa á launadeild Reykja- vikurborgar í gærdag. Sóknarmaöurinn kom á launadeildina í þvi skyni að afhenda kauptaxta Sókn- ar, sem er í gildi frá og með 1. marzs.l. Fulltrúinn, Geir Guðmundsson að nafní,var í simanum þegar starfsmann bar þar að og lagði starf smaðurinn kauptaxtann á skrifborðið fyrir framan hann og hugðist síðan fara. En fulltrúinn geröi sér litið fyr- ir, tók kauptaxtann og fleygöi honum i ruslakörfuna án þess aö lita á hann! Benti hann starfs- manni Sóknar að doka við, þar til simtalinu væri lokið, og urðu sið- an nokkur orðaskipti milli þeirra. Engar skýringar gaf fulltrúinn á geröum sinum aðrar en þær að kauptaxtarnir væru „lögbrot”, en staöreyndir málsins eru hins veg- ar þær, að kauptaxtar þeir sem atvinnurekendur hafa gefið út eru bæði brot á löglegum kjarasamn- ingum og einnig á kjaraskeröing- arlögum rikisstjórnarinnar!

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.