Alþýðublaðið - 08.03.1978, Side 5

Alþýðublaðið - 08.03.1978, Side 5
Miðvikudagur 8. marz 1978 ...en hefurðu heyrt þennan um.? Menn og hestar Það var i morgunnepj- unni á miðvikudaginn, að blaðamenn skröltu í biltik- inni að hesthúsum Fáks við Elliðaár. Við vorum sann- kallaðir brautryðjendur, því þess voru engin merki, að annar bill hefði ekið þennan veg um morguninn og þvi var stöðug hætta á að bíllinn festist. En þó svo hitastigið sé öfugu megin við frost- markið og norðan strekk- ingur bætist við ófærðína, þá verður að sinna hestun- um í hesthúsum Fáks. Þær aðfarir ætluðum við að skoða. Það var búið að hleypa nokkrum hestum út, svo þeir gætu hreyft sig. Þeir voru kátir og ólmir, fegnir þvi að geta hreyft sig. Ljósmyndarinn brá sér i leikinn með þeim og mynd- aði í gríð og erg. Það kom þó í Ijós, að klárarnir voru betur undir kuldann búnir en venjulegir blaðamenn og við vorum því fegnir að geta þíttokkar frostbólgnu andlit og köldu tær í ylnum i hesthúsinu. í hesthúsinu var ungur maður að brynna hestun- um. Við röbbuðum lítillega við hann meðan við vorum að fá lif í tærnar aftur. Hann sagði okkur, að Fákshúsin þarna upp frá Nei, heyrðu, bara einn I einu væru 8 talsins og hestarnir hátt á þriðja hundrað. Fastir starfsmenn eru 5, tveir i tamningum og þrír í hirðingum. Starf hirð- ingarmannsins felst aðal- lega í að þrifa hestana og umhverfi þeirra og gefa þeim. Eigendur hestanna koma flestir reglulega og líta eftir þeim og ríða þeim. Von var á mörgum eigend- um þennan dag, þar sem flestir voru i verkfalli til að mótmæla kjaraskerð- ingarlögum ríkisstjórnar- innar. I þann mund að blaða- menn voru farnir að geta brosað þjáningarlaust voru nokkrir hestaeigendur komnir. Og er við börð- umst gegn stórhrið og kulda í pislargöngu vorri að bíltíkinni, sáum við að einn var kominn á bak og reið í gegnum snjókófið á hesti sínum eins og um há- sumar væri. f . ^ Myndir: Gunnar E. Kvaran Texti: Axel Ammendrup Aldrei get ég lært að ganga i hálku. Hann reið hesti sínum og lét nepjuna ekki á sig fá

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.