Alþýðublaðið - 06.04.1978, Qupperneq 6
Fimmtudagur 6. apríl 1978.
btaS^ Fimmtudagur 6. apríl 1978.
1
Jdn Björnsson gjaldkeri skýrir Kristján Guömnndsson bemti á Ragnar Tómasson lýsti ánægju GIsli B. Björnsson vildi aukinn á- Bergur Magnásson var stórhuga
reikningana. mikilvægi æskulýösstarfs. sinni meö þátttöku I félagsstarfii huga á Eiðfaxa. um vinningslikur á Landsmótinu.
MVNÐIR OG TEXTI
Fáksmenn stórhuga á aðalfundi
Ætla sér helming vinn-
á Landsmótinu
GUÐLAUGUR
TRYGGVI KARLSSON
Aðalfundur hesta-
mannafélagsins Fáks var
haldinn á fimmtudaginn
var. Mikil gróska hefur
verið í félaginu og gengu
um fimmtiu nýir félags-
menn í félagið á f undinum.
i ræðu formanns/
Guðmundar ólafssonar/
kom fram að starfsemin
hafi verið með bezta móti
og félagsstarfið i blóma.
Sérstaklega voru mann-
fagnaðrir fræðslunefndar
og skemmtinefndar fjöl-
sóttir og þóttu takast vel. i
skýrslu g jaldkera/
Jóns Björnssonar, kom
fram að tekjuafgangur
félagsins hafi verið á
fimmtu milljón og kom
það sér einkum vel vegna
kostnaðarsamrar upp-
byggingar við svæði
félagsins að Víðivöllum.
Aöstandendur hestablaösins
Eiöfaxa geröu haröa hríö aö
stjórn og framkvæmdastjóra
vegna þess, að þeir heföu ekki
fengið aðgang að félagatali Fáks
vegna útbreiðslu Eiöfaxa. Stjórn-
in svaraöi þvi til, að þar sem
Fákur ætti i rauninni fimmtung af
blaðinu Hesturinn okkar, væri
óeðlilegt aö Fákur veitti sam-
keppnisaöila þess blaös séraö-
stöðu við útbreiðsluna.
Þá þótti iþróttadeild Fáks
naumt skoriö meö fé til sin og var
þvi til svarað að illa gengi meö
rukkun á félögum iþróttadeildar-
innar.
Annars var hljóðiö i mönnum
hið brattasta og meðal annars
kom það fram i ræðu fram-
kvæmdastjóra Fáks, Bergs
Magnússonar, að honum þætti
illa rekin trippin á Landsmótinu,
ef Fáksmenn kæmu ekki meö
helming verðlauna fyrir gæöinga
af mótinu.
Stjórnarkjör fór þannig aö
Guömundur Ólafsson var endur-
kjörinn formaður með lófataki.
Varaformaöur hafði veriö Einar
G. Kvaran en hann gaf ekki kost á
sér nú til stjórnarþátttöku. Einar
hefur setið i stjórn félagsins um
áratuga skeiö, m.a. lengi sem
gjaldkeri. Var honum þökkuð sér-
staklega farsæl störf i þágu
félagsins. Ritari var kjörinn
Valdimar Jónsson og gjaldkeri
Jón Björnsson. Meöstjórnendur
Ingi Lövdai og Hjördis Björns-
dóttir og i varastjórn Gunnar
Steinsson og Ólafur Magnússon
I fræöslunefnd voru kosnir:
Haraldur Sveinsson, örn Ingólfs-
son, Kristján Guðmundsson og
borvaldur Þorvaldsson.
t skemmtinefnd voru allir
endurkosnir: Finnbogi Eyjólfs-
son, Sigursteinn Guöbjartsson og
Aðalsteinn Þorgeirsson.
Hér á eftir fara nokkur atriöi úr
skýrslu stjórnarinnar.
„Kvennnadeiid:
Hin nýstofnaöa kvennadeild
hefurhaldið nokkra fundi á árinu.
Einnig var farið i sameiginlega
útreiöatúra siðastliöinn vetur.
Konurnar stóðu fyrir hinum vin-
sælu hlaðboröum eins og undan-
farin ár. Ekki má gleyma happ-
drættinu sem einnig hefur veriö i
höndum Fákskvenna. Með þess-
ari starfsemi hafa konurnar lagt
fram drjúgan skerf fjár viö upp-
byggingu fjélagsins, fyrir utan
þann félagslega þátt sem þær
hafa stuölað að meö hlaöboröun-
um.
Fjáröflunarnefnd karla.
Aöalstarf nefndarinnar var aö
Egiil Sigurgeirsson fundarstjóri og Guömundur ólafsson, formaöur
Fáks.
sjá um hina árlegu firmakeppni
félagsins sem fór fram á Skeið-
vellinum þ. 8. mai.
Þessi fjáröflunarstarfsemi
karla sem og kvennanna hefur
veriö ómetanlegur styrkur viö
uppbyggingu félagsins öll þau ár
sem nefndin hefur starfað.
Fræösluncfnd
Fræðslunefnd skipuöu þeir:
Tryggvi Gunnarsson, örn
Ingólfsson og Haraldur Sveins-
son.
Fræöslunefnd stofnaöi til mjög
vinsælla námskeiöa i vetur.
Návnsvið tók 5 kvöld og voru
valdir sérmenntaöir og færir
menn til aö annast kennslu. Voru
námskeið þessi mjög vel sótt og
komust færri að bn vildu.
Skemmtinefnd
Skipuðu: Finnbogi Eyjólfsson,
Sigursteinn Guðbjartsson og
Aðalsteinn Þorgeirsson. Nefndin
sá um allar þær skemmtanir sem
haldnar voru i félagsheimilinu, og
þóttu þær takast meö ágætum.
Árshátið félagsins var haldin að
Hótel Borg þ. 4. febr. sl. Veislu-
stjóri var Bergur Magnússon, en
aðalræðumaður kvöldsins var
Sveinbjörn Dagfinnsson. Auk
þess komu fram bræðurnir Halli
og Laddí með skemmtiþátt. Að
lokum var stiginn dans fram eftir
nóttu. Var hátiðin vel sótt og hin
ánægjulegasta.
Reiðskólinn
Reiðskólanefnd skipuðu þeir
Arni Þóröarson, Kristján
Guðmundsson, Kolbrún Krist-
jánsdóttir og Kjartan Jóhanns-
son.
Reiðskólinn starfaði frá 1.2.
til mailoka meðan hestar voru i
húsum. Frá 1. júni til 15. ágúst
var skólinn i Saltvik og var þá
starfsræktur i samvinnu við
æskulýðsráð Reykjavikurborgar.
Kennarar við skólann voru þær
Guðrún Fjeldsted og Kolbrún
Kristjánsdóttir.
1 vor var efnt til námskeiða i al-
mennri hestamennsku undir
stjórn Reynis Aðalsteinssonar.
Slik námskeið hafa nú verið hald-
in um árabil og njóta mikilla vin-
sælda.
Ungiinganefnd
t nefndinni voru: Kolbrún
Kristjánsdóttir, Ragnar Tómas-
son, Kjartan Jóhannsson og Viðar
Halldórsson.
Nefndin sá um færðslu og þjálf-
un fyrir unglinga á aldrinum
10—15 ára.
í framhaldi af þvi var efnt til
keppni unglinga á Hvitasunnu-
kappreiðunum i vor undir stjórn
Kolbrúnar Kristjánsdóttur, en
það atriöi setti skemmtilegan
svip á mótið.
Ferðalög
Farin var tveggja daga Jóns-
messuferö að Kolviðarhóli og i
Hengladali. Auk þess var farið i
nokkrar dagsferðir, en engar
lengri feröir voru farnar á vegum
félagsins.
iþróttadeild
Fyrsti aðalfundur D.F. var
haldinn i félagsheimili Fáks þann
20/11 ’76. Sú stjórn sem á stofn-
fundi var kosin hélt áfram starfi
óbreytt.
Akveðið var á aðalfundinum að
efla hestaiþróttir á Fákssvæðinu
með námskeiðum og fræðslu-
fundum. 1 beinu framhaldi af þvi
fékk deildin til liös við sig þau
Herdisi Seingrimsdóttur og
Eyjólf Isólfsson. Herdis Stein-
grimsdóttir tók að sér kennslu i
hindrunarstökki. Eyjólfur Jóns-
son var með kennslu i gangteg-
undum. Bæði námskeiðin voru
vel heppnuð og fjölsótt. 1 april
mánuði fékk deildin Halldór
Jónsson tamningamann til þess
að halda fyrirlestur sem hann
nefndi „skap og skynjun hests-
ins.” Fyrirlesturinn var mjög vel
sóttur. A fræðslufundi Fáks
haustið 1976 kom fram áskorun á
Landssamband hestamanna,
Félag tamningamanna og
iþróttadeild Fáks um að halda al-
mennt kynningarmót i keppn-
innisgreinum F.E.I.F. Var þeirri
áskorun tekið og stóðu þessir þrir
fyrrnefndu aðilar að kynningar-
móti á Viðivöllum dagana 30/4 og
1/5 1977.
Hlutur Iþróttadeildar Fáks var
að sjá um undirbúning móts-
svæðisins. Framkvæmd mótsins
þótti takast mjög vel þar sem
timasetning stóðst að heita má
upp á minútu, þótt fjöldi kepp-
enda væri mjög mikill og hver
keppnisgrein timasett. Skráðir
hestar voru i allt 77, þar af voru 43
keppendur i töltkeppni, 32 i fjór-
um gangtegundum, 26 i fimm
gangtegundum, 14 i skeiði og 8 i
hlýðniþjálfun. Keppendur komu
viða að.
Dagana 14. og 15. mai 1977 var
haldin deildarkeppni á svæði
Fáks að Viðivöllum. Keppt var i
tölti, fjórum gangtegundum,
fimm gangtegundum hlýðni-
þjálfun, gæðingaskeiði og
hindrunarstökki. Skráðir kepp-
endur i tölti voru 15, i fjórum
gangtegundum 18, I fimm gang-
tegundum 5, i hlýðniþjálfun 5 og
gæðingaskeiði 8.
Deildin kynnti nýja keppnis-
grein gæðingaskeið, sem byggist
meira upp á fegurð skeiðsins og
samæfingu knapa og hests, en
hraða.
Stjórn I.D.F.: Viðar Halldórs-
son form., Gisli M. Björnsson
galdkeri, Arni Pálmarsson
áhaldavörður, Margrét Július-
dóttir ritari, Fjóla Ingþórsdóttir
spjaldskrárritari, Svanbjörg
Magnúsdóttir og Ragnar Tómas-
son meðstjórnendur.
Minnisvaröasjóður
í mai s.l. mætti Þorlákur Otte-
sen á fundi hjá stjórn Fáks.
Skýrði hann frá þvi, að árið 1942
hefði kona nokkur, Asta Þor-
steinsdóttir frá Eyrarba kka, af-
hent Fáki peningagjöf að upphæð
kr. 300.000 til minningar um hest,
sem hún haföi átt. Voru þessir
peningar lagðir i bankabók, og
varð þessi gjöf upphaf
minningarsjósins.
Þann 10. mai 1977 lagði Þorlák-
ur inn á bókina kr. 100.000. — eitt-
hundrað þúsund til minningar um
hesta sina, en hann hefur átt
Fjölmenni var á fundinum.
hesta frá árinu 1900. Þorlákur
kvað það vera hugmynd sina, að
reistur verði „varði” til minn-
ingar um isl. hestinn frá stofnun
alþingis fram á þennan dag, og
skuli minnisvarðinn standa á
Þingvöllum. Formaður Fáks
skuli ætið vera formaður sjóösins
og félagskona meðstjórnandi, þar
sem sjóðurinn var stofnaður af
konu, einnig skuli form. L.H. sitja
i stjórn sjóðsins.
Dýraspitali
Fákur er aðili að dýraspitalan-
um og á formaður Fáks sæti i
stjórn hans. 1 ráði er að koma upp
aðstöðu til að annast sjúka hesta,
en þar sem spitalinn er mjög f jár-
vana verður þetta tæplega
framkvæmanlegt á næstunniÞar
eð það er orðið aðkallandi að hafa
góða aðstöðu til hrossalækninga
sökum hins mikla fjölda hesta
sem eru nú á Stór-Reykjavikur-
svæðinu, viljum við biðja menn
að gefa málinu nokkurn gaum og
styrkja þessa viðleitni.
Framkvæmdir
A siðastliðnu ári hefur félagið
ekki staðið að nýjum hesthús-
byggingum. Þess i stað hefur
verið lögð áhersla á að bæta og
halda við þeim húsum og mann-
virkjum sem fyrir eru, og efni
hafa leyft. Jafnframt hefur tekist
að hrinda i framkvæmd fram-
tiðaráætlun viðvikjandi skipulag
og uppbyggingu svæðisins fram-
an við hesthúsin að Viðivöllum,
og áhorfendabrekkunni. Feikn
miklu af jarðvegi hefur verið ekið
i brekkuna, sem siðan var jöfnuð
og byggð upp með hæfilegum
Guðmundur Tómasson og Olafur Þorbjörnsson fylgjast með af áhuga.
Jén Agustsson og Guðmundur bjornsson i góðum félagsskap.
siðu
Frh. a
10.
— uppreisn eda gódlátlegt gjamm
Ofdekruð auðmannabörn stinga nælum í nefið
Hann stingur öryggisnælum f gegn um nefn og eyrnasnepia og hefur
pappfrsklemmu I nefinu. Um hálsinn hefur hann kippu af blóöugum
tampax-stautum og þetta túlka menn sem uppreisn — eöa þá bæn
um aö vera viöurkenndur af samfélaginu.
Hávaðinn frá magnara-
kerfinu er þvílíkur að
trommuslátturinn heyrist
sem óreglulegar drunur.
Menn fá nærri þvi ekki
greint orðin: ,/Láttu mig
drepast, ég vil ekki lifa,
láttu mig drepast", sem
ungur maður að nafni
Johnny Blood öskrar í
hljóðnemann. Hann er
söngvari hljómsveitarinn-
ar „Dead dogs" (Dauðir
hundar) og umræddir
tónleikar fara fram í
„Roxy" nálægt Covent
Garden í London.
Þeir sem dansa eru iklæddir
rifnum skyrtubolum. Rytjulegt
hárið er málaö grænt, rósrautt,
fjólublátt og uppsett með vaselini
eða talkúmpúðri. Margir hafa
stungið öryggisnælu gejgn um
kinnar, varir, nef eða eyrna-'
snepla.
Nokkrir ungir menn, á aldrin-
um 15—20 ára, halda hvor öðrum
með hálstaki svo liggur viö köfn-
un. Menn komast ekki hjá þvi að
fá i sig spark héðan og þaðan. Það
rennur blóð úr nokkrum nösum,
en mönnum virðist lika það bæri-
lega.
Og blóðið rennur....
Unglingur i leðurjakka snýr sér
við og stendur andspænis
áhorfendum. Hann brýtur öl-
flösku. 1 eyranu sér á öryggis-
nælu, og hann tekur til við að ógna
nærstöddum með brotnum
flöskuhálsi. Einn nærstaddur
þrýfur til öryggisnælunnar og
rifur hana úr — og með fylgir
hálfur eyrnasnepillinn. Blóðið
rennur, en enginn veitir þvi
athygli.
Þetta atvik er á engan hátt
einsdæmi. Svona gengur það á
hverri nóttu, ekki aöeins i Lond-
on, heldur á mörgum stöðum i
Manchester og Liverpool. Tötra-
skrillinn og ofdekruö auðmanna-
börn fá þannig útrás fyrir
vonbrigði sin og uppreisnaranda.
Rakvélablað
í vasanum
„Ræfildómurinn” — Punk-ið —
hefur hrundið af stað nýrri hreyf-
ingu meðal unglinga og hún
breiðist hratt til borga i
vesturheimi, New York, Boston,
Hollywood, Parisar og Berlinar.
Jhonny Zeek úr bandarisku
ræflarokkshljómsveitinni
„Shirts” segir: „Við veröum allt-
af að lita þannig út sem við séum
til i slag og að við ætiö höfum hnif
eða rakvélablað i vasanum..”
En hættan sem virðist starfa af
„ræflunum” er fyrst og fremst
yfirborðsleg, þar sem flest uppá-
tæki þeirra eru tilburðir til að
breiða yfir vanmáttarkennd.
Valdsmennska
og hroki
Næstum allir tileinka sér
valdsmennsku og hroka i
framkomu og syngja um
uppreisnir og dauða. Slagsmálin
sem brjótast út i röðum
unglinganna sýna aöeins árásar-
hneigðina sem alið hefur verið á
hjá þeim. Fyrir nokkru hirti lög-
reglan i London upp 23 drengi og 8
stúlkur i unglingaslagsmálum á
götum þar.
Ræfildómurinn er ekki á neinn
hátt forskot á ómannlega framtið
mannkyns, likt og þá sem
Kubrick lýsir i visinda kvikmynd
sinni „A Clockwork Orange”,
heldur viðbrögö gegn óþolanlegri
nútið.
Urra bara dálítið
Anthony Burges, sem skrifaði
söguna „A Clockwork Orange”
segir:
— Ræfildómurinn er tákn um
eitthvað umbyltingarkennt, likt
og mótmæli verkalýðshreyf-
ingarinnar i Englandi fyrir 100
árum. Markmið ræflanna er ekki
að steypa þjóðfélaginu og byggja
nýtt i staðinn — þeir urra bara
dálitið út af þvi sem er! Og urrið
þýðir aðeins ómeðvitaða ósk um
að samfélagið viðurkenni þá.
Þannig hefur það verið i áratugi.
John Osborne skrifaði bókina
„Look back in Anger”, sem æpti
gegn rikjandi ástandi, en
samfélagið tók verkiö þegjandi til
sin og menn geta meira að segja
séð drottninguna fyrir sér sjá
hana og segja: „En hrifandi!”
Atvinnuleysi
Meðlimur brezku ræflahljóm-
sveitarinnar „Sex Pistols”, sem
er meira eða minna uppleyst,
gátu sér m.a. frægðar fyrir að
miga á mynd af Betu drottningu
og gubba i viðurvist fréttaljós-
myndara. Framkvæmdastjóri
hljómsveitarinnar, McLaren,
segir:
„Atvinnulaus æskulýður, sem
gengur um götur stórborganna,
hefur I hendi sér vald”.
Bassaleikai Sex Pistols, Sid
Vicious að nafni, er sagður
upphafsmaður að þvi að nota
öryggisnælur sem einkennis-
merki ræfildómsins. Hann eyddi
heilu ári ævi sinnar i rölt á milli
atvinnumiðlunarskrifstofa. Að
lokum reyndi hann sjálfsvig með
glerbroti: „Það er góð aðferö til
að vekja athygli. Ég mun
einhvern tima gera þetta aftur”.
Sjónvarpskynslóðin
Jimi Hendrix, Janic Joplin og
Jim Morrison voru „ræflar”. öll
eru þau dauð — dauðinn var gjald
þeirra fyrir að lifa hátt með dópi
og brennivini. Boðskapurinn sem
lifnaður þeirra bar með sér var
sjálfseyðilegging.
Ramones, heitir „villtasta”
ræflahljómsveit amrikana, en
hún tekur — meðvitað eöa ómeð-
vitað — afstöðu gegn poppurum
siðasta áratugsins. Aðdáendur
Joey Romanos eru ánægðir með
að hann liti út eins og apaköttur i
furðulegum búningi, málið er
gróft og litt skiljanlegt. Svona vill
kynslóðin sem ólst upp með sjón-
varpinu hafa það.
Yndislegar öryggisnælur
Auðvitað hafa tizkukóngar
heimsins löngu hrifist með i ræfil-
dómsæðið. Einn af þekktustu
næturklúbbagreifum Parisar,
Régine, bauð 1000 manns til sin
s.l. vor i fyrsta ræflapartiið i álf-
unni. Aður en paritiö hófst liðu
milljónadrossiur flugriks fólks
upp að hýbýlum greifans og út
stigu figúrur iklæddar rifnum
skyrtubolum, með nálar i kinnum
og hundabönd um háls. Par eitt
var fjarlægt af lögreglunni. Það
voru unglingar sem voru „ekta
ræflar”, en þau tilheyrðu ekki
þessum hópi.
Tákn fátækar er orðið fint og
eftirsótt, en i raun er meö þessu
gert gróft gys að raunverulegri
fátækt. Það er svo sem ekkert
nýtt. 1 mörg ár hefur ungt fólk af
auðugu foreldri sóst eftir að
YNrstétUr-reflatizka frá tizkulelðtoganum Zandra Rhodes.Hún
gerir druslukjóla úr silki og öryggisnælur úr gulli!
klæðast t.d. snjáöum kúrekabux-
um. Nú er öryggisnálin orðin að
„yndislegum” skartgrip!
I búðunum Schmutz og Boy’s
við Kings’s Road i London er hægt
Frh. á 10. siðu