Alþýðublaðið - 12.08.1978, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 12.08.1978, Blaðsíða 2
2- Laugardagur 12. ágúst 1978 alþýðu- blaóió Útgefandi: Alþýöuflokkurinn. Ritstjóri og ábyrgöarmabur: Árni Gunnarsson. Aösetur ritstjórnar er i Siöu- múla 11. sfmi 81866. Prentun: Blaöaprent h.f. Askriftaverö 2000 krónur á mánuöi og 100 krónur f lausa- sölu. Nýafstaðin bílakaup ráðherr- anna, þeirra Gunnars Thorodd- sen, Halldórs E. Sigurðssonar og AAatthíasar A. Mathiesen, hafa verið mjög til umræðu meðal al- mennings nú að undanförnu. Fólki blöskrar bílakaupafríð- indi ráðherranna og þó kannski enn meira sú óskammfeilni fyrr- nefndra ráðherra að neyfa þess- ara fríðinda á sama tíma og þeir hafa farið hamförum við að hvetja þjóðina, og þá fyrst og fremst launþega, til að herða sultarólina, sýna ábyrgð, leggja eiginhagsmunasjónarmið til hlið- ar, sætta sig við að gerðir kjara- samningar séu brotnir á bak aft- ur með lagasetningu. Þetta er óþolandi Fólki ofbýður þetta siðleysi ráðherranna, þar sem ekki verður betur séð en að þeir ætli sér annað og minna siðgæði og á- byrgð en almenningi í landinu. Kunna þeir ekki einu sinni að skammast sín? spyrja menn. Um þetta sagði Eiður Guðna- son alþingismaður i grein í Al- þýðublaðinu nú fyrir skömmu: „Svolítið vekur það grun hjá manni að ráðherrarnir skammist sin kannski ofboðlitið fyrir þess- ar reglur, þegar Halldór E. Sig- urðsson lætur hafa það eftir sér í Þjóðviljanum í fyrri viku, að, jú, víst sé hann að kaupa sér bíl, en hann muni bara hvorki hvað hann eigi að kosta, né heldur hvaða tegund djásnið sé. Það er töluvert átak fyrir hvern venju- legan mann að skipta um bíl og kostar oft talsverðan skulda- bagga einhvern tíma. Ef marka má ummæli Halldórs, er þetta honum ekki meira mál, en að senda út í búð eftir einhverju smáræði í sunnudagsmatinn". Það vill svo til, að þeir Matthí- as Á. Mathiesen og Halldór E. Sigurðsson voru fulltrúar ríkis- stjórnarinnar við kjarasamninga BSRB. Þeir gengu frá þeim samningum og undirrituðu þá. Þremur mánuðum síðar beittu þeir sér fyrir lagasetningu sem ógilti undirskrift þeirra. Þeir sögðu þá, að samningarnir hefðu f rá upphaf i verið svo óraunhæf ir og vitlausir, að allir hlytu að sjá að þeir gætu ekki staðist, ef þjóð- arbúið ætti ekki að fara um koll. Þeir félagar BSRB sem mest hefðu fengið út úr þessum samn- ingum hefðu samt sem áður haft minna í árslaun en það sem fyrr- nefndir ráðherrar taka sér nú frjálsri hendi með bílakaupafríð- indum sínum. Það eru svona við- horf og vinnubrögð sem eru að gera út af við f járhagslegt sjálf- stæði islensku þjóðarinnar. Það er upplýst, að eftirgjöf á tollum og sköttum í þessum bíla- kaupum ráðherranna nemur 4 til *5 milljónum króna á hverja bifreið. Það eru því 12 til 15 milljóna króna kaupbætur sem þessir þrír kaupránsráðherrar taka sér svona á einu bretti. I augum þessara ráðherra er ekki sama Jón og séra Jón. Sömu sjónarmið gilda ekki fyrir al- mennan launþega og ráðherra að mati ráðherranna sjálfra. Alþýðuflokkurinn hefur tekið skýra afstöðu í þessum málúm. Hann vill afnema fríðindi ráð- herranna. Hann vill virða gerða kjarasamninga og láta þá taka gildi 1. september næstkomandi. Hann hef ur sagt spillingu og sið- lausu samtryggingarkerf i stríð á hendur. Hann líður það ekki að annað siðgæðismat gildi fyrir ráðherra og aðra forráðamenn í þjóðfélaginu en fyrir almenning i landinu. Þetta mættu þeir stjórn- málaflokkar sem nú hafa boðið Alþýðuflokknum með sér að samningaborði hugleiða ræki- lega. H. Staða fulltrúa Staða fulltrúa á Skattstofu Suðurlandsum- dæmis, Hellu, er laus til umsóknar. Æskilegt er að umsækjandi hafi lokið prófi i viðskipta- eða lögfræði eða hafi langa starfsreynslu við skatta- eða bókhalds- mál. Sé þess óskað eru möguleikar á að útvega • góða leiguibúð. Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf sendist skattstjóra Suðurlandsumdæmis fyrir 5. september n.k. Fjármálaráðuneytið, 3. ágúst 1978. lÍTBOO 5 óskast I efnii stálþil, um 1150 tonn, til hafnargeröar i Sundahöfn. Útboösgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frikirkjuvegi 3, Reykjavik. Tilboöin veröa opnuö á sama staö, þriöjudaginn 19. sept- ember 1978, kl. 11,00 f.h. INNKAUPASTOFNUN REYKMVIKURBORGAR Frikiricjuvegi 3 — Sími 25800 Skrifstofumaður óskast til starfa við útgáfu Lögbirtinga- blaðs og Stjórnartiðinda. Góð vélritunar- og islenzkukunnátta nauðsynleg. Umsóknir sendist ráðuneytinu fyrir 15. þ.m. Dóms- og kirkjumálaráðuneytið, 9. ágúst 1978. Kennarar Nokkra kennara vantar við Grunnskóla Grindavikur, þar á meðal islenskukenn- ara fyrir eldri bekki, handavinnukennara stúlkna og kennara 6 ára barna. —• Upplýsingar gefnar i simum 92-8119 og 92- 8250. Skólanefndin. Hvaða erindi 2 hitasvæöa á aö vera eign þjóö- arinnar allrar og sama máli á aö gegna um þau landssvæði, semskýlausar eignarheimildir einstaklinga liggja ekki fyrir um. Heillandi viðfangsefni Þetta eru meginatriöin i stefnu Alþýðuflokksins, sem hlaut stuðning 22% kjósenda i siöustu kosningum og færði flokknum mesta kosningasigur, sem um getur i sögu islenskra stjórnmaála frá þvi núverandi flokkakerfi var myndað. Ef Alþýðuflokkurinn fer i rikis- stjórn þá fer hann til þess að koma þessum atriöum til fram- kvæmdar. Að öðrum kosti eig- um við ekkert erindi i stjórn. Margir Alþýðuflokksmenn, þ.á m. undirritaður, töldu að mörg af þessum stefnumálum myndu eiga auðvelt uppdráttar i nýrri vinstri stjórn. Að stjórn meö aðild beggja verkalýös- flokkanna væri likleg til þess aö hafa áhuga á að koma slikum málefnum áleiðis. Að hér væri um aö ræða freistandi og heill- andi viðfangsefni vinstri stjórn- ar. En Alþýöubandalagiö var á öðru máli. Þau mál, sem að framan voru talin, eru engin stórmál i þess augum. Þá skipti meira máli að taka upp slaginn um hin óhjákvæmilegu bráða- birgðaúrræði i efnahagsmálun- um meö sama gamla og útjask- aða slagorðatungutakinu en að ræða og takast á við það heill- andi viðfangsefni aö breyta gerð þjóðfélagsins i átt til aukins lýö- ræðis, siðgæðis og vinstri stefnu með kerfisbreytingum og um- bótum, sem svo lengi hefur skort. Magnús Kjartansson segir i grein i Þjóðviljanum á dögun- um, að sig skorti greind til þess að fá botn i efnahagstillögur Alþýðubandalagsins. Vertiðar- dæmi Lúðviks Jósefssonar, Ragnars Arnalds og- „mööruhvellsins” Ólafs Ragn- ars gekk ekki upp fyrir Magnúsi Kjartanssyni frekar en okkur Alþýðuflokksmönnum. En á þessum tillögum, sem Magnús Kjartansson brast greind til þess að skilja, komu Alþýðu- bandalagsmenn i veg fyrir framgang vinstri stefnu á is- landi. t vinstri stjórnar viðræöunum lagði Alþýðuflokkurinn fram þau mál, sem að framan voru rakin. Þau voru grundvöllur fyrir stjórnarþátttöku hans þá. Þau eru það enn. Það eina, sem breytst hefur er, aö Alþýöu- flokkurinn nýtur ekki atbeina Alþýðubandalagsins til þess að framfylgja þeim. Alþýðubanda-. lagið skarst úr leik. Sjálfsagt brestur Magnús Kjartansson lika greind til að skilja það. Tilkynning til söluskattsgreiðenda Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á þvi, að gjalddagi söluskatts fyrir júli mán- uð er 15. ágúst. Ber þá að skila skattinum til innheimtumanna rikissjóðs ásamt sölu- skattsskýrslu i þririti. Fjármálaráðuneytið lO.ágúst 1978 Lögtaksúrskurður Hér meö úrskurðast lögtak fyrir gjaldföllnum og ógreidd- um þinggjöldum ársins 1978 álögðum i Kópavogskaup- stað, en þau eru: tekjuskattur, eignarskattur, kirkjugjaid, slysatryggingagjald v/heimilisstarfa, iðnaðargjaid, slysatryggingagjald atvinnurekenda skv. 36. gr. laga nr. 67/1971, Ilfeyristryggingagjald skv. 9. gr. laga nr. 11/1975, atvinnuleysistryggingargjald, almennur og sérstakur iaunaskattur, kirkjugarðsgjald, iðnlánasjóðsgjald og sjúkratryggingagjald. Ennfremur fyrir skipaskoðunar- gjaldi, lestargjaldi og vitagjaldi.bifreiðaskatti, skoðunar- gjaldi bifreiða og slysatryggingagjaldi ökumanna 1978, vélaeftirlitsgjaldi, áföllnum og ógreiddum skemmtana- skatti og miðagjaldi, söluskatti af skemmtunum, vöru- gjaidi af innl. framl. sbr. 1. 65/1975, gjöldum af inniendum tollvörutegundum, matvælaeftirlitsgjaldi og gjaldi til styrktarsjóðs fatlaðra, skipulagsgjaldi af nýbyggingum, söluskatti, sem I eindaga er faliinn, svo og fyrir viðbótar og aukaáiagningum söluskatts vegna fyrri timabila. Veröa lögtök látin fara fram án frekari fyrirvara á kostn- að gjaldenda en ábyrgð rikissjóðs, að 8 dögum liðnum frá birtingu úrskurðar þessa, ef full skil hafa ekki verið gerð. Bæjarfógetinn i Kópavogi 10. ágúst 1978. Menningarsjóður Norðurlanda Verkefni Menningarsjóðs Norðurlanda er að stuðla að norrænni samvinnu á sviði menningarmála. 1 þessum til- gangi veitir sjóðurinn styrki til norrænna samstarfsverk- efna á sviði visinda, fræðslumála og almennrar menn- ingarstarfsemi. A árinu 1979 mun sjóðurinn hafa til ráðstöfunar 8 milljónir danskra króna. Af þessu fé er hægt að sækja um styrki til norrænna samstarfsverkefna sem unnin eru f eitt skipti fyriröll. Einnig má sækja um styrki til verkefna sem taka lengri tima og þá fyrir ákveðið reynsiutlmabil. Umsóknir ber að rita á umsóknareyðublöð sjóðsins og er umsóknum veitt viötaka allt árið. Umsóknirverða af- greiddar eins fljótt og unnt er, væntanlega á fyrsta eöa öörum stjórnarfundi eftir að þær berast. Frekari upplýsingar um starfsemi sjóðsins veitir Nor- ræna menningarmálaskrifstofan. Snaregade 10, DK-1205 Kaupmannahöfn, simi (01) 11 47 11. Umsóknareyöublöö fást á sama stað og einnig i mennta- málaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavlk, simi 25000. Stjórn Menningarsjóðs Norðurlanda.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.