Alþýðublaðið - 25.10.1978, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 25.10.1978, Blaðsíða 4
alþýöu- blaðió utgefandi Alþýðuflokkurinn Ritstjórn og auglýsingadeild Alþýðublaðsins er að Síðu- múla 11, sími 81866. Miðvikudagur 25. október 1978 Sambúðarvanda- málið fyrir hálfri öld síðan — í sviðsetningu Leikfélags Akureyrar á leikriti Guðmundar Kambans, „Þess vegna skiljum við” Siöastliöinn föstudag frumsýndi Leikfélag Akureyrar leikrit Guð- mundar Kambans / // Þess vegna skiljum við" — fyrsta verkefni nýhafins leikárs. Fullt hús gesta var í Samkómuhúsinu á Akureyri á frumsýningu og leikurum, leikstjóra og starfsfólki vel fagnað í leikslok. önnur og þriðja sýning voru laugardags- og sunnudagskvöld og leikritið verður sýnt áfram næstu helgar. Haukur J. Gunnarsson leik- stýröi fyrsta verkefni ársins hjá LA, en hann hefur einnig veriö ráöinn til aö leikstýra siöasta verkefninu af fimm ráögeröum leikritum vetrarins. Aöstoöar- leikstjóri er Viöar Eggertsson. Leikritiö „Þess vegna skiljum viö,”sem Guömundur Kamban, einn af brautryöjendum is- lenskrar leikritunar skrifaöi á þriöja áratug þessarar aldar og frumsýnt var I Kaupmannahöfn undir nafni „Arabisku tjöldin”, hefur I þessari uppsetningu veriö dagsett áriö 1928. Frá þvl ári hefur leikstjóri sótt um- hverfi og svið leiksins, sem og leikmyndasmiður, Jón Þóris- son, og andblæ allan. Þótt leikritiö gerist á þessum árum er efniviöur þess mun si- gildari; þaö fjallar fyrst og fremst um smbúöarvandamál nokkurra hjóna innan sömu fjöl- skyldu, en ekki siöur hvernig fólk bregst hvert viö annars vanda og um þaö tvöfalda siö- gæöi, sem rikir þar sem ar.naö skal sjást á yfirboröinu en þaö sem undir fáguöu og felldu yfir- boröi borgarfjölskyldunnar býr. Leikendur eru allmargir, 12 talsins, og veröur ekki annaö sagt, en að leikurinn beri meö sér svip þess hve Leikfélag Akureyrar stendur á mörkum þess að vera áhugaleikfélag og atvinnuleikhús. Og veröur svo hver um sig aö meta hvort þaö telst eftirsóknarvert eða ekki, en vissulega væri ýmsum eftir- sjá ef leikstarf áhugamanna hyrfi meö öllu úr leikhúslifi Akureyrar. Og meö þennan mælikvaröa aö leiöarljósi veröur ekki annaö sagt en aö Guðmundur Kamban. allir skili leikararnir góöu starfi, þótt nokkrir beri vissu- lega af. Þaö má vissulega deila um þaö hvort leikrit sem þetta geti oröiö hvetjandi innlegg i bolla- ieggingar manna nú til dags um stööu hjónabandsins sem fé- lagslegrar stofnunar og sam- býlisforms, en þaö er óneitan-- lega fróölegt aö setja sig inn i umræöur um þetta efni frá þriöja áratug aldarinnar. Alvöruþungi og einhæfni leik- ritsins fellur þó trúlega ekki aö kröfum sjónvarpskynslóðar, sem er farin aö venjast hrööum taktslætti klippara sjónvarps- þátta og kvikmynda, og þar meö viröist leikritiö til að mynda fremur lognast út af en ljúka af- gerandi. Sifellt ráp leikara inn I og út úr leikmyndinni ætti llka aö tilheyra liðinni tiö og heföi mátt koma þar til nokkur lag- færing á handriti, en svo virðist sem handritiö hafi veriö lagfært og nútimasett I leikstjórn meö smáspaugilegum atriðum sem kaffidrykkjunni og dárahætti grallarans Baldvins (Aöalsteinn Bergdal). I heildina tekiö má komast aö þeirri niöurstöðu, aö upphaf leikárs LA hefði aö ósekju mátt verða ögn nútimalegra leikrit, ekki sist til aö koma Eyfiröing- um og nábúum á Norðurlandi inn I Samkomuhúsið — en miöaö viö verkefnisval hafi bærilega til tekist. Vert er aö vekja athygli á, aö á undan sýningu og milli þátta leika Soffla Guömundsdóttir og Michael Clark á píanó og fiölu, og I forsölum leikhússins sýnir Óli G. Jóhannsson listmálari myndir. -BS Stjórn Leikfélags Akureyrar ásamt leikhússtjóra: Hreinn Sk. Pálsson, Heimir Ingimarsson, Þórhalla Þorsteinsdóttir, Marinó Þorsteinsson, Þórey Aöaisteinsdóttir, Guömundur Magnússon, formaöur L.A., Oddur Björnsson. ÞINGMENN ALÞYÐUBANDALAGSINS STYÐJA FRUMVARP UM 18 ÁRA KOSNINGA- ALDUR Athugasemd frá Arthúr Morthens Herra ritstjóri. t blaöi yöar þann 19. 10. er á forsiöu viötal viö undirritaöan, þar sem i fyrirsögn er mjög hallaö réttu máli. Þar stendur: „A.m.k. ungir Alþýöubanda- lagsmenn vilja 18 árakosninga- aldur”. Slöar I viötalinu er sett fram sú fullyröing að þing- menn Alþýöubandalagsins hafi ekki tekiö vel I frumvarpiö um 18 ára kosningaaldur. Meö fyrirsögninni er I raun veriö aö undirstrika þessa staöhæfingu. Hér er aö mlnu viti um mjög grófar falsanir aö ræöa. Sann- leikurinn er sá, aö þingmenn Alþýöubandalaagsins hafa bæöi á siöasta þingi og I upphafi þessa þings flutt frumvarp um 18 ára kosningaaldur, og fullyrði ég, aö allir þingmenn Alþýðubandalagsins standa heilshugar aö þessu máli. Svar ritstjórnar: I rauninni er Arthúr Morthens hér aöeins aö mótmæla þeirri staöhæfingu, aö Alþýöubanda- lagsmenn hafi tekiö dræmt und- ir málflutning þingmanna Alþýöuflokksins þegar þeir hafa áöur flutt þetta mál á þingi, en þvl mótmælti hann reyndar ekki I viötalinu, heldur visaöi hann á þingmenninna sjálfa. Viö eftirgrennslan I Alþingistlðindum kom I ljós, aö þingmenn Alþýöuflokksins hafa flutt þetta mal á þingi fjórum sinnum áöur. Fyrst fluttu þeir þaö áriö 1965, og náöist þá sú málamiölun, aö kosningaaldur var lækkaöurúr21ári niður 120. Ariö 1974 tóku þingmenn flokks- ins máliö upp aftur á þingi. Enginn kvaddi sér hljóös um málið, og var þvl visaö til 2. um- ræöu og siðan til nefndar, þar sem þaö var svæft. Alveg fór á sömu leiö árið eftir. Veröur þvi varla sagt aö þingmenn Alþýöu- bandalagsins hafi sýnt málinu brennandi áhuga á þessum tima. Nú brá hins vegar svo viö, er þingmenn Alþýöuflokksins fluttu málið I þriöja sinn I þess- ari atrennu, aö Lúövlk Jóseps- son kvaddi sér hljóös og sagöi þann 25. nóvember 1976: „Herra forseti. Ég vildi viö fyrri um- ræöu um þessa tillögu strax lýsa afstööu minni til tillögunnar. Ég er samþykkur efni þessarar til- lögu, ég álít aö þaö sé kominn tlmi til þess aö viö leiöum I lög hér 18 ára kosningaldur. Þessi skoöun mln er i fullu samræmi við afstööu mins flokks”. 1 árs- byrjun 1978 flutti svo þingmaöur Alþýöubandalagsins I fyrsta sinn tillögu um 18 ára kosninga- aldur. Enda þótt þingmenn Alþýöu- bandalagsins hafi þannig verið nokkuö lengi aö taka viö sér, ber auövitaö að fagna þvi, ef þeim finnst nú timabært að lækka kosningaaldurinn. Sjómannablaðið Víkingur 40 ára Nú um þessar mundir er sjómannablaðið Vik- ingur 40 ára. óhætt er að fullyrða að blaðið hefur tekið miklum stakka- skiptum á þessu fertugs- afmæli þvi svo mjög hef- ur það breyst i útliti. Er þaö ætlun forráömanna sjó- mannablaösins aö gera þetta blaö aö meira málgagni sjómanna en þaö hefur verið. Fjallað verður um kjaramál, öryggismál og ým- is félagsmál sjómanna. Þá veröur einnig fræöslu- og skemmtiefni I blaöinu. 1 þtssu nýútkomna afmælis- blaöi Vikings segir m.a. I leiö- ara. „Vikingurinn tekur stakka- skiptum á fertugsafmælinu. Þakka ber þaö,^sem vel hefur veriö gert I útgáfu blaðsins á undanförnum árum. Þaö er vissulega margt og liggur ekki gleymt. En þvi er eins farið meö timaritog önnurmannanna verk, að eigi þau að halda notagildi sinu, veröa þau að aölaga sig aö- stæöum hverju sinni, tileinka sér nú og sibreytileg viðhorf. Með þetta I huga var ákveðið aö breyta útliti Vikingsins og fjöl- breytni þess efnis, sem hann flyt- ur lesendum sinum. Vikingurinn mun eftir sem áður birta skemmtilegtefni og fræöandi, en félags- og áhugamál sjómanna- stéttarinnar allrar munu skipa veglegri sess i blaðinu en áöur hefur veriö. Vikingurinn er gefinn út af félagasamtökum sjómanna, og þvi er ekkert eölilegra en að hann sé málgagn þeirra, segi af þeim fréttir og komi sjónarmið- um þeirra á framfæri”. Alþýöublaöið óskar Vfldngi til hamingju með fertugsafmæliö og vonar að blaö allra sjómanna megi þjóna þvi hlutverki sem þvi er ætlað um langan aldur. —G Söngvinir í heimsókn Schuberttónleikar: Gérard Souzay og Dalton Bald- win flytja Winterreise hjá Tónlistarfélaginu Góöir gestir sækja Noröbýlinga heim, þegar myrkriö sækir aö og vetrarkuldinn. Þeir flytja okkur list Franz Schubert og skamm- degiö veröur bærilegra. Sum lög Schuberts eru svo yndisleg aöþaueru hafin yfiralla umræöu. Algjört samræmi er milli lags og texta, hin skáidlega ljóðræna og hrynjandi lag- llnunnar falla I eitt. Þessi lög eru svo hrifandi, aö allir heillast af þeim og gleymaþeim aldrei. Þau eru bæöi dægurlög og eillf list. í Schubert sameinast Vinarklassikin og rómantlkin, enda eru mörg af 600 sönglögum meistaranstaliðþað bezta i ljóða- söng. Winterreise fjallar um ástar- sorg og brostiö hjarta, einmana- leik og aðrar sálarhræringar hins umkomulausa manns. Inn á milli eru þó stöku vinjar og eru það sjálfsagt þau lög, sem þekktust eru, t.d. Linditréö og Vor- draumur. Textinn er eftir Wilhelm Mulier og er ekki vafi & þvl, aö lifsreynsla Schuberts sjálfs, hefur laöað hann aö text- anum. Þótt vinamargur væri, átti hann viö andstreymi aö búa, ástarsorg sbr. Meyjar- skemmuna, og rúmlega þrítugur dó hann I sárustu fátækt. Um tónleikana og flutning Souzay og Baldwin á þessu snilldarverki þarf ekki aö hafa mörg orö. Þeir voru I einu orði sagt stórkostlegir. i raun og veru er þaö hrein lifsreynsla fyrir hvern þann, sem hefur veriö aödáandi sumra þessara laga frá barnæsku aö upplifa þaö algjöra vald, sem söngvarinn hefur á röddinni, textanum og þeim skilningi sem flestum finnst aö eigi aö leggja I túlkun laganna. Þá er ekki slöur stórkostlegt aö sjá samvinnu þessara tveggja meistara og hversu algjörlega fyrirhafnarlaust þeir túlkuöu listaverkiö. Þaö var ekki einu sinni, aö á þurfti aö halda hinu velkunna „nikki” söngvarans til undirleikarans,þegarbyrjað er á nýju lagi, heldur kom þetta allt viðstöðulaust. Sem sagt, takk fyrir yndislega stund og vonandi læra íslenzkir einsöngvarar og undirleikarar sem mest af þessum snillingum. Guölaugur Tryggvi Karlsson

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.