Alþýðublaðið - 30.12.1978, Síða 5
5
Laugardagur 30. desember 1978.
■
uflokksins
ns
skort á til þessa), ættu þeir að geta
stýrtlandinu enn um sinn ogkomiö
mörgu góöu til leiðar.
Kosningaúrslitin á siðastliðnu
sumri leiddu til fjölmargra stærö-
fræðilegra möguleika á myndun
meirihlutastjórnar, en í reynd
hurfu þeir eins og dögg fyrir sólu og
reyndust óraunhæfir. Ekki er
hyggilegt aö Utiloka breytingar á
viöhorfum flokka til stjórnarmynd-
unar, en samt sem áður eru þeir
ótrúlega margir, sem koma ekki
auga á góða kosti, ef núverandi
samstarf tekur skjötan endir. Allt
mælir þvi með áframhaldandi setu
rikisstjórnarinnar, þótt óliklegt sé,
að það verði þrautalaust á kom-
andi tímum frekar en hingað til.
Hér verða ekki rakin einstök
málefiii, sem nauösyn er að takast
á við. A ýmsum sviðum virðist þó
vera um breytt viðhorf hagsmuna-
aðila aö ræöa, sem ættu að geta
leitt til skynsamlegra breytinga,
svo sem i landbúnaðarmálum.
Athygli almennings hefur mjög
beinst aö þeim þingflokkum, sem
flesta hafa nýliða i röðum sinum.
Þvi má þó ekki gleyma, að átta af
niu ráðherrum eru nýliðar i sinum
störfum,þóttþeir hafisumir setið á
þingi, og einnig þeir hafa margt að
læra, en bera þunga starfsbyröi. Af
þessum sökum er ekki ástæða til að
láta róstusamt haust I stjórnmála-
heiminum útiloka, að betur geti
gengið samstarf stjórnarflokkánna
i framtiðinni.
V.
Alþýðuflokkurinn er það, sem
hann sagöist vera fyrir kosningar I
fyrrasumar, nýr flokkur á göml-
um grunni.
Ég þarf ekki að skilgreina þetta
tvennt. Enginn getur efast um bar-
áttu flokksins fyrir litilmögnum
þjóðfélagsins, enda hafa félags-
málin ávallt veriö það sviö, sem
flokkurinn náöi mestum árangri á
(og kommúnistar minnstum).
Margir af núverandi þingmönnum
Alþýðuflokksins eru sérfræðingar á
sviðum trygginga, heilbrigðismála
og vinnumála.
Gamla grunninum er vel borgið.
Þaö sáum við á svip eldra fólksins,
sem stutt hefur Alþýðuflokkinn i
áratugi gegnum þykkt og þunnt, er
það brosandi keypti sér ráuða rós
og hópaðist á fundi okkar I fyrra-
vor.
Nýja flokkinn þekkir núlifandi
kynslóðvafalaustbetur,enda hefur
hann látið meira I sér heyra i f jöl-
miðlum. Baráttan gegn spillingu og
misrétti snertir strengi I hjarta
hvers manns, sem ekki sjálfur
stundar þessar ódyggðir. Harkan
og þrótturinn I ungu þingmönn-
unum er einnig ný af nálinni, af þvi
að hinir herskáu á vinstri væng
stjórnmálanna hafa oft aðhyllst
kommúnista, meðan hinir mildari
mannvinir hafá aðhyllst jafnaðar-
menn. Þaö sakar ekki, þótt sú
skipting verði jafnari I framtiöinni,
meðan bandalagskommar halda
enn áfram að bæta við sig ein-
hverju fylgi.
VI.
Alþýðuflokkurinn á að baki við-
buröarikasta ári' sögusinniallt frá
stofnun. Þaö munar aðeins hárs-
breidd, aö hann sé jafnstór Alþýöu-
bandalaginu og þá i nánd við að
veröa annar stærsti ftokkur lands-
ins.
Barátta þingftokksins bendir til
þess, að sóknin haldi áfram. Við
eigum að visu margt óunnið, sér-
staklega á skipulagssviði, og
verðum að undirbyggja betur ftokk
af þeirri stærö, sem nú situr á
Alþingi. Þetta mun takast, en það
verkefni má ekki vanmeta og það
mun krefjast starfs og fórna af
okkur öllum.
Eg þakka öllum þeim, sem á ein-
hvern hátt veittu Alþýðuflokknum
stuöning I prófkjörum, sveitar-
stjórnar- og alþingiskosningum
siðasta árs. Ég vona, að þið styðjið
okkur öll til nýrra átaka og nýrra
sigra.
Ég óska þjóöinni árs og friöar.
Benedikt Gröndal
Friðaða svæðið
á Papagrunni og
Lónsdjúpi opnað
Nú nýverið var ofangreint
veiðisvæði kannað undir eftirliti
Hafrannsóknastofnunarinnar. 1
ljós kom að fiskur á svæðinu var
allur mjög stór, afli var misjafn,
en góður sums staðar á svæöinu.
Með tilliti til þessara niðurstaða
lagði Hafrannsóknastofnunin til
að veiðisvæöi þetta yrði opnað og
hefur sjávarútvegsráöuneytiö
gefið út reglugerö þar að lútandi I
dag.
Verða þvl togveíðar heimilar
aftur á þessu svæöi frá og með
fimmtudeginum 28. desember
n.k.
Sj ávarút vegsráðun ey tiö,
27. desember 1978.
Kaupfélag Vopnfirðinga,
Vopnafirði
óskar viðskiptavinum og starfsfólki sínu
farsæls komandi árs.
Þakkar viðskiptin á liðna árinu.
Gleöilegt nýár,
þökkum viðskiptin á liðna árinu.
ístak,
iþróttamiöst. Laugardal
Gleöilegt nýár,
þökkum viðskiptin á liðna árinu.
Ferðafélag islands
öldugötu 3
Vonogvissa
Miði í happdrætti SÍBS
gefur góða von um vinning.
Áhersla er lögð á marga vinninga
sem koma sér vel.
Þó eru hæstu vinningar
2 milljónir
og dregið er um milljón mánaðarlega.
Hver seldur miði gefur
endurhæfingarstarfinu sem unnið er
á vegum SÍBS aukinn styrk.
Sá sem á miða í happdrætti SÍBS
á sjálfur vinningsvon og gefur einnig
öðrum vonir um bjartari framtíð.
Það kostar aðeins 800 kr. á mánuði
að gera eitthvað í því að auka slikar
> vonir.
Vinningsvon og vissa um
að verða að Iiði.
Happdrætti SÍBS