Alþýðublaðið - 22.05.1979, Qupperneq 3
Þrið[udagur 22. maí 1979
Keflavík
AUGLÝSING UM TÍMABUNDNAR UM-
FERÐARTAKMARKANIR í KEFLAVÍK
Vegna hitaveituframkvæmda á Hafnar-
götu, Keflavik, i sumar mega vegfarendur
búast við umferðartakmörkunum, s.s.
einstefnuakstri á hluta götunnar, tak-
mörkunum á bilastæðum og fleiru.
Lögreglustjórinn i Keflavik,
16. mai 1979
Jón Eysteinsson.
VÉLSKÓLI ÍSLANDS
Inntökuskilyrði
1. stig: a) Umsækjandi hafi náð 17 ára aldri,
b) Umsækjandi sé ekki haldinn næmum sjúk-
dómi eða hafi líkamsgalla sem geti orðið hon-
um til tálmunar við starf hans. c) Umsækj-
cindi kunni sund.
2) stig: á) Umsækjandi hafi náð 18 ára aldri,
b) sama og fyrir 1. stig, c) sama og fyrir l.
stig, d) Umsækjandi hafi lokið miðskólaprófi
eða hlotið hliðstæða menntun, e) Umsækjandi
hafi eitt af þrennu: 1. lokið vélstjóranámi 1.
stigs með framhaldseinkunn, 2. öðlast a.m.k.
tveggja ára reynslu í meðferð véla eða í véla-
viðgerðum og staðist inntökupróf við skólann,
3. Lokiðeins vetrar námi í verknámsskóla iðn-
aðar í málmiðnaðargreinum og hlotið a.m.k. 6
mánaða reynslu að auki í meðferð véla eða
vélaviðgerðum og staðist sérstakt inntölupróf.
Umsóknir
Umsóknareyðublöð liggja frammi í skrifstofu
skólans i Sjómannaskólanum, 2. hæð.
Umsóknir berist skólanum fyrir 10. júní 1979.
Kennsla hefst í byrjun september.
Skólastjóri.
/ sis %
Tilboð óskast i eftirtaldar bifreiðar og bát,
er verða til sýnis þriðjudaginn 22. mai
1979, kl. 13-16, i porti bak við skrifstofu
vora að Borgartúni 7:
Toyota Corolla fólksbifreið árg. ’75
Ford Bronco árg. ’74
Willys Wagoneer árg. ’74
Willys Wagoneer árg. ’70
Land Rover lengri gerö bensln árg. ’70
Chevrolet Suburban 4x4 sendif.bifr. árg. ’75
Chevrolet Suburban sendif.bifr. árg. ’73
Ford Transit sendibifreið árg. ’73
Ford Transit sendiferðabifreið árg. ’73
Ford Transit sendiferöabifreiö árg. ’73
Ford Transit sendiferðabifreið árg. ’72
Bedford vörubifreiö árg. ’64
Volvo vöru/fólksflutningabifreiö árg. ’60
Plastbátur 17 feta, yfirbyggöur
m. 60 ha utanborðsvél og tengivagni
Heybindivél Welger AP45 árg. '72
Til sýnis hjá Vegagerð rfkisins,
Borgartúni 5, Atlas Copco loftpressa
m. dieseivél, 160 cu. fet. Ógangfær.
Tilboðin verða opnuð sama dag kl. 16.30 að
viðstöddum bjóðendum. Réttur áskilinn
að hafna tilboðum, sem ekki teljast viðun-
andi.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
Þjóðhátiðarnenfd Reykjavikur
Sölutjöld 17. júní í
Reykjavík
Þeir sem óska eftir leyfi til veitingasölu á
þjóðhátiðardaginn vinsamlegast vitjið
umsóknareyðublaða að Frikirkjuvegi 11.
Opið kl. 8.20-16.15.
Umsóknum sé skilað i siðasta lagi föstu-
daginn 8. júni.
Þjóðhátiðarnefnd.
Verslunarstjóri
Viljum ráða verslunarstjóra i raftækja-
verslun sem fyrst.
Skriflegar umsóknir með upplýsingum
um aldur, menntun og fyrri störf, sendist
starfsmannastjóra fyrir 30. þ. mán., sem
veitir nánari upplýsingar.
^ SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA
Rekstrartæknifræðingur
•Viljum ráða rekstrartæknifræðíng tíl
starfa sem fyrst.
Umsóknir er greini frá menntun og fyrri
störfum, sendist starfsmannastjora, fyrir
30. þ.mán., sem veitir nánari upplýsingar.
^ SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA
Frá
Fjölbrautaskólanum á
Akranesi
Skólinn óskar eftir upplýsingum um hugs-
anlegar leiguibúðir fyrir kennara næsta
vetur. Má miða leigutima við 15. ágúst. Þá
vill skólinn kanna hvaða ibúðaeigendur á
Akranesi vilja leigja nemendum herbergi
á hausti komanda. Nánari upplýsingar
veitir Þorvaldur Þorvaldsson simi 1408 og
skrifstofa skólans simar: 2544,2545 og 2546
kl. 9.00-15.00 virka daga.
Skólanefnd.
■ *1 Felagsmalastofnun Reykjavíkurborgar
11 f Vonarstræti 4 sími 25500
Laus staða
Staða skjalavarðar á skrifstofu i Vonar-
stræti 4, er laus til umsóknar. Umsókn er
greini aldur, menntun og fyrri störf, skulu
berast fyrir 26. mai n.k. Upplýsingar um
stöðuna veitir skrifstofustjóri.
Félagsmálastofnun Reykjavikurborgar
3
Fréttatilkynning
Skýrslutæknifélag Islands er fé-
lag áhugamanna um gagna-
vinnslumálefni oe telur um 280 fé-
lagsmenn. Félagið var stofnað i
mars 1968 og lýkur þvi ellefta
starfsárinu um þessar mundir.
Aðalfundur félagsins var haldinn
27. mars.sl. Bre^ting varö á skip-
an manna i stjorn, þar sem frá-
farandi formaður, dr. Oddur
Benediktsson og meöstiórnandi,
Þórður Jónsson, gáfu ekki kost á
sér til endurkjörs.
1 stjórn eru nú dr. Jón Þór Þór-
hallsson formaður, Páll Jensson
varaformaður, Óttar Kjartansson
ritari, Arni H. Bjarnason féhiröir,
Ari Arnalds skjalavöröur og Sig-
urjón Pétursson, meðstjórnandi.
Varamenn eru Halldór Friðgeirs-
son og Þorgeir Pálsson.
Á starfsárinu hélt félagiö sex fé-
lagsfundi, þar sem rædd voru
ýmis svið gagnavinnslu og tölvu-
tækni. Þá gekkst félagið, i sam-
vinnu við Reiknistofnun Háskól-
ans^, fyrir smátölvusýningu i
janúar sl. og var hún fjölsótt.
Sýningin þótti gefa góða mynd af
stööu þessara mála hérlendis.
Ýmsum kom þaö á óvart, hve
margir islenskir aðilar hafa hasl-
aö sér völl á sviði framleiðslu á
fjölbreytilegum smátölvubúnaði.
Félagið skipaði á árinu tvo vinnu-
hópa, sem báðir hafa lokið störf-
um. Annar hópurinn samdi drög
aö stöðluðúm samningum um viö-
hald?"sölu og leigu á tölvubúnaði.
Brýn þörf var á að fá þessa samn-
inga staölaöa og staðfærða hér-
lendis. Hinn vinnuhópurinn gerði
drög að umsögn um svonefnda
persónugagnalöggjöf, eða
„Frumvarp til. laga um kerfis-
bundna skráningu á upplýsing-
um, er varöa einkamálefni”, en
Dómsmálaráðuneytiö leitaði eftir
umsögn félagsins um frumvarp-
ið. Bæði þessi viöfangsefni hlutu
siðan endanlega meöferö og af-
greiðslu á félagsfundum.
A vegum Skýrslutæknifélagsins
starfar oröanefnd, sem nú undir-
býr 3. útgáfu skrár um orð og
hugtök á sviði gagnavinnslu og
tölvutækni. Formaður orða-
nefndar er Sigrún Helgadóttir.
Siðasti félagsfundur á starfsárinu
var haldinn 8. mai sl. I Norræna
Húsinu. Þar flutti Sigurður Þórð-
arson, stjórnarformaður Skýrslu-
véla rikisins og Reykjavikur-
borgar, framsöguerindi um efnið
„Opinber stefnumótun á sviði
tölvumála”. Sföan stýrði dr. Jón
Þor Þórhallsson, forstjóri, hring-
borðsumræöum um málefnið. A
samt framsögumanni tóku þátt i
umræðunum þeir Brynjólfur I.
Sigurðsson, hagsýslustjóri, Egill
Skúli Ingibergsson, borgarstjóri,
Elias Daviðsson, kerfisfræðingur,
Frosti Bergsson, deildarstjóri,
Halldór Friðgeirsson, verkfræð-
ingur, dr. Oddur Benediktsson,
dósent og Ottó A. Michelsen, for-
stjóri.
Liölega eitt hundrað manns sóttu
fundinn.
Þingsályktunar-
tillaga Gunnlaugs
Framhald af bls. 1
málanefndar, en þar náðist ekki
samkomulag um hana. Meiri
hluti nefndarinnar gerði þaö að
tillögu sinni að málinu yrði visað
til rikisstjórnarinnar. Siðan hefur
ekkert gerst og máliö ugglaust
dagað uppi i einhverri glat-
kistunni.
Flutningsmenn þessarar þings-
ályktunartillögu vilja benda á
samstarfsyfirlýsingu núverandi
rikisstjórnar, þar sem m.a. segir
orðrétt: „Skipulag ollusölu og
vátryggingarmála verði endur-
skoöuð og leitað hagræðingar.”
Meiri hagræðing
nauðsynleg
Þaö er ákveðin og eindregin
skoðun flutningsmanna, að hér á
landi mætti lækka talsvert verð 3
hvers konar oliuvörum með meiri
hagræðingu. Það er nánast frá-
leitt að hér skuli starfa þrjú oliu-
félög, sem hafa það eitt hlutverk
að dreifa oliu, sem öll er keypt i
einu lagi fyrir milligöngu rikisins.
Hinn þrefaldi rekstur eykur allan
dreifingarkostnað og sá kostnaö-
ur leggst á oliuverð til
almennings.