Alþýðublaðið - 14.06.1979, Blaðsíða 2
2
Fimmtudagur 14. júní 1979
Umferðarfræðsla
Brúðuleikhús og
kvikmyndasýning
fyrir 5-6 ára börn i Kópavogi.
Fiiæðslan fer fram sem hér segir:
14. júni
Snælandsskóli
Kársnesskóli
18. júni
Kópavogsskóli
Digranesskóli
kl. 09.30 og 11.00
kl. 14.00 og 16.00
kl. 09.30 og 11.06
kl. 14.00 Og 16.00
Lögreglan i Kópavogi.
Umferðarráð.
Frá Kennaraháskóla íslands
i 19. gr. laga nr. 51/1978 um embættisgengi
kennara og skólastjóra (Ákvæði til bráða-
birgða) segir svo:
,,Þeir sem við gildistöku þessara laga hafa
starfað sem settir kennarar við skyldunáms-
skóla 4 ár eða lengur, en fullnægja ekki skil-
yrðum laganna til að hljóta skipun í stöðu,
skulu eiga kost á að Ijúka námi á vegum
Kennaraháskóla íslands til að öðlast slík
réttindi. Um tilhögun námsins og mat á fyrri
menntun og starfsreynslu skal setja ákvæði í
reglugerð".
I samræmi við þessi ákvæði hefir mennta-
málaráðuneyti nú í maímánuði gefið út reglu-
gerð, þar sem kveðið er nánar á um nám
þetta.
Bréf með reglugerðinni og umsóknareyðu-
blöðum hafa þegar verið send þeim sem rétt
eiga á námi þessu og voru í starf i nú á liðnum
vetri.
Þeir sem telja sig eiga rétt samkvæmt
ákvæðum laganna en hafa ekki fengið bréf
um það eru beðnir að haf a samband við Kenn-
araháskóla (slands, menntamálaráðuneytið
eða stéttarfélag sitt sem allra fyrst.
Umsóknarf restur um námið rennur út 30. júní
næstkomandi.
Rektor
® ÚTB0Ð
Vegna sameiginlegra innkaupa borgarstofnana óskast til-
boö i kjötvörur, nýlenduvörur, mjólkurvörur, fisk o.fl.
Ctboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frikirkjuvegi 3
Reykjavik.
Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtudag 5. júli næst-
komandi ki. 11 f.h.
INNKAUPASTOFNUN reykjavíkurbor.gar
Fríkirkjuvcgi 3 — Sími 25800
Námskeið um viðgerðir
á einangrunargleri
Dagana 19. júni og 20. júni verða haldin
verkleg námskeið i viðgerðum á einangr-
unargleri. Leiðbeinandi verður Knud
Mogensen ráðgjafi við Teknologist Instit-
ut i Danmörku.
Námskeiðin standa yfir frá kl. 9-17 hvorn
dag og verða haldin i Rannsóknastofnun
byggingariðnaðarins að Keldnaholti.
Þátttökugjald er kr. 30 þús., matur og
kaffi innifalið.
Þátttaka tilkynnist Iðntæknistofnun
Islands, simi 8-15-33.
Iðntæknistofnun íslands
Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins
flðalfundur Amnesty International
Sfðastliðið þriðjudagskvöld
var aðalfundur tslandsdeildar
Amnesty International haldinn
að Hótel Esju.
Formaður deildarinnar,
Margrét R. Bjarnason blaða-
maður, flutti skýrsfu fráfarandi
stjórnar. Þá fluttu formenn
starfshópanna tveggja, þau
Linda Jóhannesson og Asgeir B.
Ellertsson, skýrslu um starf-
semina s.l. starfsár. Báðir hafa
hóparnir verið mjög athafna-
samir og lagt lið til þess að
skoðanafangar I mörgum lönd-
um væru leystir úr haldi.
Linda Jóhannesson gaf
skýrslu um störf skyndiað-
gerðahópa og Anna Atladóttir
ræddi störf herferðahópa og
skýrði hún frá þvi að 22. þ.m.
myndi hópurinn beita sér fyrir
kynningu á baráttunni gegn
mannréttindabrotum i Argen-
tínu.
Gjaldkeri deildarinnar, Frið-
rik Páll Jónsson, lagði fram
reikninga hennar. Siðan voru
breytingar gerðar á lögum
deildarinnar til samræmis við
lög alþjóðasamtakanna.
Margrét R. Bjarnason var
endurkjörinn formaður. Jóna
Llsa Þorsteinsdóttir baðst und-
an endurkjöri I stjórn. í staö
hennar var Anna Atladóttir
kjörin. Að öðru leyti var stjórnin
endurkjörin, en hana skipa
ásamt fyrrnefndum aðilum:
Erika Urbancic kennari, Frið-
Margrét R. Bjarnason var end-
urkjörin formaður Amnesty.
rik Páll Jónssonfréttamaður og
Sigurður Magnússon fyrrver-
* andi blaðafulltrúi, en hann er
jafnframt varaformaður.
1 yarastjórnvoru kjörnir séra
Areiius Nlelsson og Ingi Karl
Jóhannesson framkvæmda-
stjóri.
Asgeir B. Ellertsson baðst
undan endurkjöri til for-
mennsku starfshóps; voru hon-
um þökkuðmikilogárangursrik
störf að undanförnu. Bergljót
Guömundsdóttir var valin, I
stað Asgeirs, til forystu I starfs-
hópnum. Formenn annarra
hópa eru þau Linda Jóhannes-
son og Þórir Ibsen.
Margt fróðlegt kom fram á
fundinum um starfsemi
tslandsdeildarinnar, sem hér er
ekkirúm að rekja, en auðsætt er
að deildin, sem nú er skipuð um
300 félögum, hefur að undan-
förnu unniö mikið og gott starf
að málefnum mannréttinda.
A fundinum voru til sölu ýmis
erlend rit er fjalla um mann-
réttindiogbrotá þeim.auk þess
sem lagður var fram nýr kynn-
ingarbæklingur.
Þeim, sem vilja gerast félagar
eða leggja málinu lið með öðr-
um hætti, er bent á skrifstofú
samtakanna að Hafnarstræti 15
I Reykjavik. Póstmlmer deild-
arinnar er 7124.
Alþýðublaðið miin fjalla nán-
ar um störf og stefnu samtak-
anna næstkomandi laugardag.
G.Sv.
Aðalfundur Verkakvennafélagsins Framsóknar:
Halda skal í skefjum kauphækkun hálaunastétta
Undanfarnar vikur hefur flest
snúist til verri vegar 1 þróun
kjara- og verðlagsmála.
Hátekjuhópar hafa hrifsað til
sin ómældar launahækkanir og
stöðugt berast fleiri og hærri
kröfur frá hátekjuhópum og á
sama tlma eykst verðbólgan
hröðum skrefum. Ekki sist
vegna hækkana hvers konar
opinberrar þjónustu. A sama
tima og rlkisstjórnina skortir
flest til aö berjast gegn þessum
verðhækkunum hefur hún verið
að skerða vísitölugreiðslur á al-
mennt kaup.
Aðalfundur Verkakvennafé-
lagsins Framsóknar lýsir að
verkafólk er reiðubúið til raun-
hæfrar baráttu gegn verðbólgu
en sú barátta veröur að felast I
öðru en einhliöa vfsitöluskerð-
ingu rikisstjórnarinnar. Fund-
urinn skorar á stjórnvöld að
gera nú þegar ráðstafanir til að
halda I skefjum kauphækkun
hálaunastétta og tryggi að verð-
bætur á almenn laun haldi sér
eins og samningar og lög segja
til um og berjast gegn verö-
hækkunum af einurð og festu.
Aðalfundur Verkakvennafé-
lagsins Framsóknar lýsir þvi
yfir að félagið muni alls ekki
þola vaxandi launamismun I
landinu og áréttar fyrri afstöðu
sina að verði það látið viðgang-
ast af rlkisvaldinu muni Verka-
kvennafélagið Framsókn gera
allar þær gagnráðstafanirsemfé*
lagiö hefur yfir að ráða. Fund-
urinn vill minna rlkisstjórnina á
að I upphafi ferils slns hét hún
þvi að tryggja kaupmátt
almenns launafólks miðað við
samningana frá 1977 og vaxandi
launajöfnuð, þetta markmið
studdu og styðja verkalýös-
samtökin, kaupmáttur lægri
launa verður að hafa algjöran
forgangsrétt og siðan verður
stefnan að vera hækkun kaup-
máttar almenns verkafólks,
auknar félagslegar umbætur og
réttindi sem stuöla aðauknum
jöfnuði i landinu. Glati rlkis-
stjórnin þessari framtiðarsýn i
stefnu sinni og störfum hefur
húnglatað stuðningi verkafólks.
Opið bréf til Ferðaraálasjóðs:
Veitingahúsarekstur á landsbyggðinni
á í vök að verjast
Stjórn Sambands veitinga- og
gistihúsaeigenda hefur á fundi
slnum rætt sölu Ferðamála-
sjóðs á Flókalundi til verka-
lýöshreyfingarinnar. Harmar
hún, að félagasamtök skuli hafa
verið tekin fram yfir einka-
reksturinn, að hótel, sem byggt
er upp fyrir lán úr Feröamála-
sjóði, skuli að nauðsynjalausu
gert að orlofsheimili. Mála-
myndagerningur þess efnis, að
almennur hótelrekstur skuli þar
um alla framtíð er marklaus,
enda hlýtur sllkt að vera and-
stætt markmiðum og hagsmun-
um kaupenda.
Okkur er tjáð, að ráðstöfun
þessihafi ákvarðast af hagstæð-
ara verðtilboði verkalýðshreyf-
inearinnar, en veitingamanns
þess, er einnig falaöist eftir
eigninni. Hafi endatölur verið
svipaöar en staðgreiðsla fyrr-
nefndu aðilanna hærri.
Meðtilliti til þeirra lánakjara
og verðtryggingar, sem Ferða-
málasjóður býöur, og ætla má
að gildi við þessa sölu, veröur
ástæða þessi haldlltil, aðeins
virðist spurning um vilja sjóðs-
stjórnar til fjármagnsdreifing-
ar.
Veitinga- og gistirekstur um is-
lenzku landsbyggðina á i vök að
verjast vegna uppbyggingar
alls kyns .•} lofs-, dvalar- og
félagsheimila. Þau njóta skatt-
friðinda og eru niðurgreidd og
kostuð af ýmsum hags-
munahópum. Við bætist, að
Ferðaskrifstofu ríkisins er með
lögum gert að opna á annan tug
sumarhótela, sem fleyta
rjómann af ferðamanna-
straumnum, en loka dyrum sin-
um um leið og dregur úr um-
ferð. Þau.ásamt orlofsbyggöun-
um,hirða tekjur, sem árshótel-
unum eru nauðsynlegar til þess
að standa undir taprekstri
vetrarmánaðanna, en bera
engar þjónustuskyldur við þá,
sem erindi eiga um landið utan
sumartima.
Sé þaö vilji forustumanna
ferðamála og annarra ráða-
manna, að á Islandi sé enginn
veitinga- og gistirekstur utan
félagsheimila og Eddu hótela,
tiu vikur sumars, er stefnan rétt
mörkuð. Sé hins vegar nauðsyn-
legt talið að fá megi húsaskjól
og beina árið um kring þarf
gagngera endurskoðun á
viðhorfum til einstaklings-
framtaksinsogframlagi þesstil
hérlendra ferðamála.
Virðingarfyllst,
f.h. stjórnar Sambands veit-
inga- og gistihúsaeigenda,
Bjarni I. Arnason
formaður
Hólmfríöur Arnadóttir
framkvæmdastjóri
Kj úkr un arf r æðingar
Tvo hjúkrunarfræðinga vantar að
Fjórðungssjúkrahúsinu Neskaupstað.
Annan frá 1. ágúst ’79.
Hinn frá 1. sept: ’79.
Skurðstofumenntun æskileg.
Nánari upplýsingar gefur hjúkrunar-
forstjóri i simum 7403 og 7466.
F jór ðun gss j úkra húsið
Neskaupstað.