Alþýðublaðið - 15.09.1979, Blaðsíða 2
2
Lauqardaqur 15. seotember 1979
Laugardagsleiðari:
MEIRfl
VALÍUM?
Island hefur veriö stjórnlaust
land I bráðum heilan áratug.
Veröbólgustigiö er mælikvaröinn
á stjórnleysiö hverju sinni. ViB
höfum bUiö viö þetta 30 til 50%
stjórnleysi mestan part þessa
áratugs. Þessa dagana er stjórn-
leysiöaö r júka upp I 60 til 70%. Ef
ekkertverBur aö gert rekur okkur
hraBfari inn i 100% stjórnleysi.
Samt borgum viö rikisstjórn,
alþingi og heilli embættismanna-
hirö ómælda fjármuni fyrir aö
stjórna landinu. Er allt þetta liö
aö svlkjast um?
Geir, ólafur, hægri, vinstri,
einbjörn, tvíbjörn, þri'björn og
ekkert gengur. Er þá kannski
ekki hægt aö stjórna Islending-
um? Hvernig væri aö láta á þaö
reyna, áöur en vonleysið verður
aö þjóötrú? Áöur en hinn hvlti
fáni uppgjafarinnar veröur
negldur á mastriö og lýöveldið
tsland sagt til sveitar — eftir 35
ára basl?
Auövitað eru rlkisstjórnir ekki
almáttugar, þótt þaö sé ekki aö
heyra á þeim pólitikusum, sem
ævinlega lofa öllum öllu en geta
svo aldrei staöið viö neitt. Þorsk-
urinn ræður meiruum þjóöarhag
en þjóðþingið. Afli og viöskipta-
kjör ráða þvi, hvaö er tíl hluta-
skipta. En þing og stjórn á að
ráöa þvi, ásamt aöilum vinnu-
markaðarins, eftir hvaöa reglum
erskiptoghvernig.I staöinnfyrir
kompás og lóran hafa kallarnir I
brúnni á þjóöarskútunni stýritæki
sem heita ríkisfjármál og
peningamál. Þeim hefur ekki
veriö beitt. EBa þaö sem verra
er: Þeim hefur verið vitlaust
beitt. Afleiðingin er sú aö I staö
þessaöhemjaveröbólgu hafa þau
valdiö verðbólgu.
Burt séö frá öllum utanaökom-
andi áföllum eru tilteknir hlutir
sem stjórnvöld geta gert með
þessum stjórntækjum slnum.
Vélamennirnir (hagfræöingarn-
ir) eru I stórum dráttum á einu
máli um úrræöi. Nokkur dæmi:
Rlkissjóður á ekki, viö rikjandi
aðstæöur, að taka til sln meira en
27 af hundraöi þjóöarframleiösl-
unnar. Hann fer illa meö fé. Af-
gangurinn er betur kominn hjá
öðrum. Hann á fyrst aö ákveöa
þetta tekjustig og snföa svo út-
gjöldin eftir þvi. Ekki öfugt, eins
og hingaö til hefur veriö gert.
Framkvæmdaáform óskalist-
anna, sem tekjur hrökkva ekki
fyrir, eiga að vera áfram á óska-
listunum. Viö eigum ekki fyrir
þeim. Til þess aö þetta sé hægt,
verður aö nema úr gildi nokkra
tugi lagabálka, sem mæla fyrir
um sjálfvirka útgjaldaaukningu
rflrissjóðs ár frá ári, án tillits til
þess, hvort viö eigum fyrir þvi
eöa ekki. Auk þess veröur rikis-
sjóöur, viörlkjandi kringumstæð-
ur, aö skila greiösluafgangi og
byrja að borga skuldir. Þar meö
væru f járlögin oröin hagstjórnar-
tæki gegn veröbólgu. Til þess eru
þau. Og meö slflcum stuöningsaö-
geröum gæti raunvaxtastefnan
komiö aö gagni viö aö stýra auk-
inni sparifjármyndun I aröbæra
fjárfestingu. Hún gerir þaö betur
en kommizararnir — og ódýrar.
Þetta þýöir meiri hagvöxt og bætt
llfskjör.
Hvers vegna er þetta ekki gert?
Llttu i eigin barm. Þaö er erfitt
að hætta aö reykja. Ennþá erfiö-
ara aö hætta aö lifa um efni fram.
Miklu verst aö venja sig af á-
vanafíkn — valiumrúsi veröbólg-
unnar. Auöveldast er aö halda á-
fram aö ljúga aö sjálfum sér og
öörum eins og hinn léttfrlkaði
menntamannaflokkur, sem
kennir sig viö bandalag alþýöu,
hefur gert aö sinum llfsstfl. En
timburmennirnir láta ekki aö sér
hæöa. Partiiö er bráöum búiö.
Þessa dagana reynir á, hvort hin
ráösetta framsóknarmadama
ætlar aö halda áfram aö djúsa
meö þeim léttfrikuöu eöa hvort
þeim verður gert aö horfast 1
augu viö staöreyndirnar — noKk-
urn veginn allsgáöum augum.
JBH
1*1 Félagsmalastofnun Reykjavíkurborgar
S’Vonarstræti 4 simi 25500
Lausar stöður
1. Félagsráðgjafi eða starfsmaður með
sambærilega menntun óskast i fulltrúa-
stöðu i Breiðholtsútibúi, Asparfelli 12. —
Umsóknarfrestur til 8. okt. n.k. Upp-
lýsingar veitir yfirmaður fjölskyldudeild-
ar.
2. Ritari i fullt starf, góð vélritunarkunn-
átta skilyrði. Umsóknarfrestur til 30. sept.
n.k. — Upplýsingar veitir skrifstofustjóri.
&
S m.PA ÚTG.t Rfl RIKISINS
Alþýðublaðið
inn á hvert heimili
Staða skattstjóra
i Austurlandsumdæmi er laus til umsókn-
ar. Staðan veitist frá 1. janúar 1980 að
telja. Umsóknarfrestur er til 8. október.
Umsóknir sendist fjármálaráðuneytinu er
veitir nánari upplýsingar.
Fjármálaráðuneytið,
4. september 1979.
Leiðsögunámskeið
Ferðamálaráðs íslands hefst 4. október
n.k. Umsóknir berist eigi siðar en 24. sept-
ember. — Umsóknareyðublöð fást á skrif-
stofu ráðsins að Laugavegi 3, 4. hæð,
Reykjavik.
Ferðamálaráð íslands. i
Coaster Emmy
fer frá Reykjavik föstudaginn 21.
þ.m. austur um iand til Vopna-
fjardar og tekur vörur á eftirtaldar
hafnir: Vestmannaevjar, Horna-
fjörð, Djúpavog, Breiðdalsvík.
Stöðvarfjöró, Fáskrúðsfjörð,
Reyðarfjörð, F.skifjörð, Neskaup-
stað, Seyðisfjörð (Borgarfjörð og
Vopnafjörð).
Vörumóttaka alla virka daga til
20. þ.m.
Þýskukennsla
fyrir börn 7-13 ára
hefst laugardaginn ,22. september 1979 i
Hliðaskóla kl. 10—12. (Inngangur frá
Hamrahlið).
Innritað verður sama dag frá kl. 10.
Innritunargjald er kr. 3000.00.
Bókasafn þýska sendikennarans.
Prófessor MORTEN LANGE heldur fyrir-
lestur:
„Svampe, farliga og ufarlige”sunnudag-
inn 16. sept. kl. 16:00.
Sænski visnahöfundurinn og -söngvarinn
ALF HAMBE skemmtir með visnasöng
þriðjudaginn 18. sept. kl. 20:30.!. Að-
göngumiðar i kaffistofu og við innganginn.
NORRÆNA
Verið velkomin HUSIO
Sinfóníuhljómsveit Islands
Sala áskriftaskirteina
er hafin að Lindargötu 9 A. Skrifstofan er
opin frá kl. 9—12 og 1—5.
Illl sinfOníi''huOmsx'i:it íslands
U|B HÍKIM IWRI’H)
Innritun í prófadeildir
Eftirtaldar prófadeildir verða starfræktar
i vetur:
Hjúkrunar- og viðskiptasvið 5. bekkjar.
Forskóli sjúkraliðanáms inntökuskilyrði
21. árs aldur og gagnfræðapróf eða igildi
þess.
Grunnskóladeild:
Fornámsdeild fyrir nem. sem ekki hafa
náð tilskyldum einkunnum á grunnskóla-
prófi.
Aðfaranám fyrir fólk, sem aðeins hefur
lokið barnaskóla eða fullnaðarprófi.
Hagnýt verslunar- og skrifstofustörf:
Skólagjöld frá 12000 til 23000 krónur á
mánuði eftir timafjölda. Skólagjald fyrir
1. mán. greiðist við innritun.
Innritun fer fram þriðjudaginn 18. sept. kl.
17 til 22 i Miðbæjarskóla, Frikirkjuvegi 1.
Námsflokkar Reykjavikur.
&
SKIPAÚTGtRö RIKISINS
M.S. Baldur
fer frá Reykjavlk þriöjudag-
inn 18. þ.m. til Breiöafjaröar-
hafna. Vörumóttaka á mánu-
dag og þriðjudag.
Kvennatímar
íbadminton!
6 vikna tímabil að hefjast. Einkum fyrir heima-
vinnandi húsmæður.
Holl og góð hreyfmg.
Kennsla — þjálfun.
Morguntimar — dagtímar.
Tennis- og badmintonfélag Reykjavíkur
Gnodarvogi 1 — Sími 82266.
&
SKIPAÚTGtRB RIKI5INS
M.S. Esja
fer frá Reykjavik miöviku-
daginn 19. þ.m. til tsafjaröar
og tekur vörur á eftirtaldar
hafnir:
tsafjörö, (Bolungarvik,
Súgandafjörö og Flateyri um
tsafjörö), Þingeyri, Patreks-
fjörö, (Bildudal og Tálkna-
fjörö um Patreksfjörö). Vöru-
móttaka alla virka daga nema
laugardag til miðvikudags.