Alþýðublaðið - 09.01.1980, Blaðsíða 1
Vísitölukerfi og kaupmáttur launa:
Raunhæfar aðgerðir
gegn verdbolgu
hljóta að fela í sér
afnám núverandi
aiþýou
blaöiö
=í1i
Miðvikudagur 9. jan. 1980. 3. tbl. 61 árg.
Fréttafölsun Dagblaðsins:
Þjóðhagsstofnun hef-
ur ekkert mat lagt
á efnahagstillögur
Alþýðuflokksins
DAGBLAÐIÐ I fyrradag slær
þvl upp á baksiðu, og ber fyrir
Þjóðhagsstofnun, að efnahagstil-
lögur Alþýðuflokksins hafi reynst
óútreiknanlegar vegna þess að i
þær vanti ýmsa pósta.
Þar sem Alþýðuflokksmönnum
er ekki kunnugt um að fyrir liggi
nein umsögn um efnahagstillögur
flokksins frá Þjóðhagsstofnun,
sneri Alþýðublaöið sér til for-
stjóra Þjóðhagsstofnunar og
spurðist fyrir um, hvað hæft væri
i frétt Dagblaösins.
Alþýðublaðiö fékk þau svör, aö
á vegum Þjóðhagsstofnunar heföi
engin umsögn veriö unnin, að þvi
er varðar efnahagstillögur
Alþýðuflokksins, sem lagðar voru
fram i vinstristjórnarviðræðun-
um. Þjóðhagsstofnun væri með
öllu ókunnugt um, á hvaða
forsendum þessi frétt Dagblaðs-
ins væri byggð.
Sem kunnugt er, óskuöu Fram-
sóknarmenn eftir þvi að Þjóð-
hagsstofnun legði hlutlægt mat á
það, hvort tillögur Framsóknar-
manna um aðgerðir i efnahags-
málum dygðu til aö ná þeim
markmiðum, sem þeir settu sér
um verðbólguhjöönun á næstu
tveimur árum. Slik umsögn um
tillögur Framsóknarmanna ligg-
ur fyrir.
Formaður Alþýðubandalags-
ins, Ragnar Arnalds, hafnaði hins
vegar ósk Steingrims Hermanns-
sonar um að „áherzlupunktar”
þeir, sem Alþýðubandalagið lagði
fram i viðræðunum, væru lagðir
undir mat Þjóöhagsstofnunar.
Skriflegar tillögur Alþýðu-
flokksins voru lagðar fram, skv.
ósk Steingrims Hermannssonar,
undir bk viðræðnanna. Aður en
að þvi kom, að þær væru nánar
ræddar, skilaði Steingrimur af tur
umboði sinu til forseta með þeim
ummælum, að frdcari stjórnar-
myndunarviöræður á þvi stigi
væru tilgangslausar vegna
„skorts á tillögum Alþýðubanda-
lagsins”.
Staöa ríkissjóds vid Sedlabanka:
Nettóskuld 26.7 milljarðar
vísitölukerfis
Skv. bráðabirgðayfirliti um
stöðu rikissjóðs gagnvart Seðla-
banka, nú um s.l. áramót, reynd-
ist rikissjóður eiga inneign á
hlaupareikningi að upphæð rúm-
lega 6 milljarða króna.
Þetta segir hins vegar ekki alla
söguna um heildarstöðu rikis-
sjóðs. Enn sem fyrr er heildar-
skuld rikissjóðs við Seðlabanka
mjög veruleg eða alls kr. 26.679
milljarðar. Þar er um að ræða
skuldaraukningu á árinu sem
nemur 321 milljón króna.
Heildarskuld rikissjóðs við
Seðlabankaskiptist þannig, að 8,5
milljarðar eru i formi
skammtimalána, sem greiðast
eiga uppáþessu ári. 24 milljarðar
eru hins vegar langtimaskuldir.
Alls nemur skuldin þvi 32,5
milljörðum, að frádregnum 6
milljörðum sem eru inneign á
hlaupareikningi, þannig að
nettóskuld rikissjóðs við Seðla-
banka er sem fyrr segir 26.7
milljarðar.
A s.l. sumri var langtimalánum
rikissjóös við Seðlabanka breytt i
skuldabréfalán með vaxtaauka-
kjörum. Aður höfðu lánskjör ver-
10 margvísleg, bæði gengistryggð
og án gengistryggingar. Inn I
heildarskuldinni er þannig verð-
bótaþáttur að upphæð 2.3
milljarðar.
Óvissa i rikisfjármálum
Mikil óvissa rikir nú um inn-
heimtu á tekjum rikissjóðs á
þessu ári. Álþingi hefur ekki enn
samþykkt ný lögum tekjuskatt né
heldur innheimtuheimildir og
hlutfall fyrirframgreiðslu. Þar
sem fjármálaráðuneytið tölvu-
keyrir launaseðla sina venjulega
um 20. hvers mánaöar, og Gjald-
heimtan þarf t.d. á sama tima að
vinna fyrirfram innheimtu af
Framhald á 2 siðu
Margvislegur samanburður
hefur verið gerður á kjörum
launþega á Islandi og i
nágrannalöndunum. Um niður-
stöður sýnist sitt hverjum, en
allir eru þó sammála um, að
engin þjóð I Evrópu og
Noröur-Ameriku hefur komið á
hjá sér launakerfi, þar sem
samningar kveða svo á, að öll
laun og verð innlendra landbún-
aðarafurða skuli breytast sjálf-
krafa með vissu millibili. Þetta
er visitölukerfið svonefnda, sem
þó væri nær að nefna verðlags-
visitölukerfi.
Gamalt og rótgróið
kerfi
Þetta kerfi er orðið gamalt og
rótgróið hér á íslandi og hefur
mótað mjög þróun I launamál-
um og efnahagsmálum yfirleitt
á undanförnum áratugum. 1
hartnær f jóra áratugi hefur höf-
uöreglan verið sú, að laun og
verð landbúnaðarafuröa breyt-
ist sjálfkrafa i hlutfalli við
breytingar á visitölu fram-
færslukostnaöar, eða einhverju
afbrigði hennar.sem nú er nefnt
verðbótarvísitala og hefur þessi
skipan mála annað hvort veriö i
gildi skv. kjarasamningum eða
lögum, með undantekningum
þó. Fyrsti visirinn að verðlags-
visitölukerfinu var lögleiddur á
tslandi 1939 og var rökstuðning-
urinn þá, að kerfi þetta væri
nauösynlegt til þess aö tryggja
kaupmátt launa. Æ siðan hefur
þetta veriö meginröksemdin
fyrir verðlagsvisitölukerfinu.
Að tryggja kaupmátt launa.
Spurningin er bara sú hvort
þetta kerfi tryggi i raun og veru
kaupmátt launa.
Flestir eru á einu máli um
það, að verðbólgan á tslandi sé
skaðleg og að hún sé of mikil.
Samt sem áður hefur þessi ára-
tugur ekki markast af öðru
fremur en verðbólgu. Orsakir
verðbólgunnar eru margþættar
og á henni er engin ein og ein-
föld skýring. Rætur verðbólg-
unnar hérlendis liggja að ein-
hverju leyti I þeirri staöreynd,
að lslandingar eru mjög háöir
einum atvinnuvegi, sjávarút-
vegi, og að sveiflur tekna af
honum er miklar. bæöi vegna
breytilegs afla og verðbreytinga
erlendis. Tekjuaukning i
sjávarútvegi breiðist fljótt út
um allt efnahagslifið. Tekju-
minnkun veldur hins vegar ekki
hliðstæðum samdrætti. Pen-
ingatekjur góðærisins haldast,
en þjóðarframleiðslan minnkar.
Bætist við þetta mikil og jafnvel
aukin fjárfesting rikisvaldsins
verður munurinn á peninga-
eftirspurninni og ráöstöfunarfé
ennþá meiri. Þrýstingurinn á
verölagiö vex. Noti rikissjóöur
þar fyrir ytan meiri fjármuni en
hann aflar með þvi að taka inn-
lend eöa erlend lán, er enn ausiö
oliu á verðbólgubálið. Og sé
kaupgjald og verðlag helztu
neyzluvörutegunda, tengt
breytingum á framfærslukostn-
aði eftir föstum reglum, getur
ekki hjá þvi farið, að kaupgjald
og verðlag hækki á vixl. Verö-
bólguhjóliö snýstmeð sivaxandi
hraða.
Stjórn efnahagsmála
lslenzka þjóðin bjó við mesta
góöæri, sem hún hefur nokkru
sinni notið I upphafi áratugar-
ins. Þetta leiddi eðlilega til
batnandi lifskjara. Stjórn efna-
hagsmála fór hinsvegar illilega
úr böndunum. Fjárfestingar
stórjukust, bankar og fjarfest-
ingarlánasjóöir juku útlán sin,
erlendar lántökur voru stór-
auknar. Rikissjóður notaði
méira en hann aflaöi. Kaup-
gjald og verðlag hækkaði á vixl
með meiri hraða en áður hafði
þekkzt. Þegar góðærinu lauk og
viðskiptakjör versnuðu, var
hægara sagt en gert að hægja á
ferðinni, enda til þess gerðar til-
raunir I takmörkuðum mæli.
Afleiðingin er öllum kunn. Hér
hefur veröbólgan haldizt u.þ.b.
þrisvar til fjórum sinnum meiri
en hiln var áratuginn á undan.
Geir Hallgrimsson, forsætis-
ráðherra 1978, sagði i áramóta-
ræðu þaö ár: ,,Við vinnum ekki
sigur á veröbólgu með skyndi-
sóknum — heldur með þolimæöi
og þrautseigju.” Þetta er lauk-
rétt hjá fyrrverandi forsætis-
ráðherra. Enginn þarf að láta
sér það til hugar koma, aö
30-40% veröbólga verði stöðvuð
skyndilega eöa verulega úr
henni dregið meö neinu einu
átaki. Undirrót slikrar verð-
bólgu verður ekki upprætt
nema á mörgum árum.
Það var tekið fram hér að of-
an, að i tæpfjörutiu ár hefur það
kerfi rikt hér á landi varðandi
kaupgjald að þaö hefur breyzt
sjálfkrafa I kjölfar breytinga á
visitölu framfærslukostnaöar.
Verðbólgan á Islandi er jafn-
gömul þessu kerfi. Með þvi er
ekki átt við, að kerfið sé undir-
rót eða aðalorsök veröbólgunn-
ar, heldur aðeins á þaö bent, að
milli þessara tveggja fyrirbæra
er skyldleiki i_þeim skilningi, að
slikt launakerfi eflir veröbólg-
una.
Heppilegt launakerfi
Rökin fyrir sliku launakerfi
eru og hafa verið, að tryggja
kaupmátt launa, einkum lægstu
launa. Þetta eru sterk r<ac. Það
er óbærilegt fyrir þá, sem hafa
mjög lág laun, aö bera byröar
verðla gsh ækkunar. Rökin eru
veikariað þviersnertir há laun.
Spurmnginer hvort slikt launa-
kerfi getur talizt heppilegt til
frambúðar. Spurningin er hvort
kerfi þetta tryggir hag laun-
þega. Allt bendirtil þess, að svo
séekki. Verðbætur á laun koma
eftir áyþannig að kjaraskerðing
hefur átt sér stað þegar verð-
Framhald á bls. 2.
9 Flestir eru á einu máli um
það, að verðbólgan á islandi
sé skaðleg og aö hún sé of mik-
il. Samt sem áður hefur þessi
áratugur ekki markast af öðru
fremur en verðbólgu.
t't Rökin fyrir siiku launakerfi
eru og hafa verið, að tryggja
kaupmátt launa, einkum
lægstu launa. Þetta eru sterk
rök.
41 Það er skiljanlegt að þeir
sem lægst hafa launin vilji
hafa tryggingu fyrir þvi, að
kaupmáttur þeirra rýrni ekki i
kjölfar verðlagshækkana.
^Mikil veröbólga er ekki að-
eins hemill á heilbrigðan hag-
vöxt. Hún veldur einnig stór-
kostlegu þjóðfélagslegu mis-
rétti.
Helgi Már Arthúrsson skrifar
80 ár frá upphafi raforku-
framleiðslu á íslandi
Söguiegt ytirlit
Raforkan hóf innreið sina hér á
landi árið 1899, þegar Eyjólfur
Þorkelsson úrsmiður setti upp
bogalampa á vinnustofu sinni i
Austurstræti 8 og sömuleiðis i
prentsmiðju og skrifstofu ísafold-
ar i sama húsi. Orkugjafinn var
steinolluhreyfill. A næstu árum
komu fleiri sams konar rafvélar,
sem voru eingöngu notaðar til
ljósa. Arið 1903 kom klæöaverk-
smiðjan Iðunn upp gufuvél, sem
knúði ýmsar vélar verksmiðjunn-
ar og þar á meðal ljósavél.
Fyrsta vatnsaflsstööin var
sett uppiHafnarfiröi árið 1904 af
Jóhannesi Reykdal. Settti hann á
stofn trésmiðaverkstæði við Læk-
inn og keypti frá Noregi 9 kW
jafnstraumsrafal, sem hann setti
i samband við vatnshjólið, sem
knúði vélar verkstæðisins. Þann
12. desember 1904 var kveikt á
fyrstu ljósunum frá þessari vél,
en alls fengu 16 ibúðarhús auk
verkstæðisins rafljós frá vél Jó-
hannesar. Þetta var fyrsta
vatnsorkuver islendinga og
fyrsta rafmagnsveitan til al-
menningsnota. Á næstu árum
stækkaði Jóhannes Reykdal stöð
sina.
Arið 1921 tók Elliðaárstööin til
starfa og var afkastageta hennar
1.500 kW en það afl var tvöfaldað
siðar, starfar sú stöð enn og var
önnur aðfærsluæð stöðvarinnar
endurnýjuð á árinu 1978. Fyrsti á-
fangi Sogsvirkjunar þ.e. Ljósa-
fossvirkjun komstl gagnið 1937 og
tveimur árum siöar var fyrsti á-
fangi Laxárvirkjunar tekinn I
notkun. Segja má, að um þetta
leyti hafi verulegur skriöur verið
kominn á rafvæðingu Islands og
var talið að 60% landsmanna nytu
þá rafmagns, en samanlögð af-
kastageta rafstöðvanna var
20.500 kW. Framleiðsla rafmagns
nam þá 36 GWst.
Upphaflega voru rafveitur nær
eingöngu reknar af sveitarfélög-
um, en á seinni árum hafa rikis-
rafveitur rutt sér meira og meira
til rúms. Voru fyrst sett um þær
lög árið 1942, nefndust þau lög um
Rafveitur rikisins. Árið 1946 voru
samin mun itarlegri lög og nefnd-
ust þau raforkulög (nr. 12/1946).
Samkvæmt raforkulögunum
skyldi rikið framvegis hafa
einkarétt á þvi að reisa raf-
magnsstöövar, þó skyldu þeir að-
ilar, sem áttu eða höfðu i smiðum
þá, er lögin voru samin, stærri
aflstöðvaren lOOhestöfl, hafa rétt
til aö reka þær áfram.
I framhaldi af þessum lögum
var sett á stofn embætti raforku-
málastjóra og sérstök stofnun,
Raforkumálaskrifstofan, sem
reka skyldi Rafmagnsveitur rik-
isins, sem var heildsöluaðili, Hér-
aðsrafmagnsveitur rikisins, sem
var smásöluaðili, Rafmagnseftir-
lit rlkisins og Orkusjóð, sem lánar
fé til raforkuframkvæmda.
Landsvirkjun var stofnuð skv.
lögum nr. 59/1965 meö helmings-
aðild rikisins og Reykjavikur-
borgar. Yfirtók Landsvirkjun
skv. þeim rekstur Sogsvirkjana
og varastöövarinnar við Elliðaár.
Hún hefur ráðizt I mestu stór-
virkjanir á Islandi, þ.e. Búrfells-
virkjun, Sigölduvirkjun og nú slð-
ast Hrauneyjarfossvirkjun.
Arið 1967 voru sett ný raforku-
lög nr. 58/1967. A grundvelli
þeirra var Orkustofnun sett á
laggirnar, sem yfirtók fyrra hlut-
verk Raforkumálaskrifstofunnar,
nema Rafmagnsveitur rfkisins.
Yfirmaður Orkustofnunar nefnist
orkumálastjóri. Með málefni
Rafmagnsveitna rikisins fer Raf-
magnsveitustjóri rikisins.
Arið 1977 voru sett lög um
Orkubú Vestfjarða. Yfirtók sú
stofnun allar rafveitur á Vest-
fjörðum frá og með 1. janúar 1978,
nema rafveitu Snæfjalla sem féll
undir Orkubúið 1. janúar 1979.
Meö tilkomu svonefndrar Norö-
urlinu, sem tengd var á árinu 1977
og Austurlinu, sem tengd var i
desember á siðastliðnu ári er far-
iö að styttast I hringtengingu
landsins alls og eru á döfinni
ýmsar skipulagsbreytingar á raf-
orkudreifingu og rekstri orku-
veitna, sem ekki verður fariö
nánar út i hér.
Mörg önnur lög um einstakar
rafveitur hafa verið sett. Helxtu
áfangar i raforkusögunni eru:
Elliöaár 1921
Sog 1. áfangi 1937, Ljósafoss
Sog 2. áfangi 1953 og siðar, trafoss
Sog 3. áfangi 1959 og slðar, Stein-
grimsstöð.
Laxá I 1939, II 1944, III 1973.
Andakill 1947
Grimsá 1958
Mjólká 1958
Búrfell 1969
Námafjall, gufuvirkjun, 1969
Lagarfljót 1975
Sigalda 1977
Krafla, ólokiö
Hrauneyjarfoss, framkvæmdir
hófust 1978.