Alþýðublaðið - 06.08.1980, Síða 2

Alþýðublaðið - 06.08.1980, Síða 2
Miðvikudagur 6. ágúst 1980. HVOR ER HÆTTULEGRI FYRIR JIMMY CARTER: QADDAFI EÐA BILLY BRÓÐIR Carter brosiö fræga, Billys bros er ekki siöur breitt en Jimmys. Það hefur ekki farið fram hjá neinum, sem hefur fyigst með fréttum upp á siðkastið, að Jimmy Carter heföi betur gætt bróður sins og það all náið. Eða var nokkur ástæða til þess? I breska timaritinu New States- man birtist grein þann 1. ágúst, þar sem fullyrt er, að allt „Billy- gate” málið eins ogþaöleggur sig sé ekkert annað en tilraun tveggja stórblaða i Washington til þess aö eyöileggja oröstfr Carters og koma honum þannig frá embætti. Billy Carter er sakaður um þrennt* aö hann hafi neytt fjöl- skyldutengsla til þess að auöga sig; aö hann hafi þegið fé af sendimönnum Lybiustjórnar fyr- irað beita áhrifum sinum við for- setann, Lybiu i hagj og aö hann hafi einnigboðist til að beita þess- um áhrifum sinum til þess aö afla bandarisku oliufélagi oliu frá Lybiu, enfyrir það átti hannaðfá milljónir dollara i þóknun. Reyndar er ekkert af þessu ólöglegt. Margir hafa lifibrauð sitt af þvi i Washington að selja „áhrif”. En þeir, sem gera það fyrir erlend stjórnvöld, verða að láta skrá sig sem slika. Arið 1979 voru 6000 manns skráðir þannig. Samkvæmt skráningu, hefur Billy viðurkennt, aö hafa þegið hnakk, silfursleginn, disk, fjögur gullarmbönd, fatnað og tvær ókeypis feröir til Lybiu. Billy sagöi að hann hefði einnig fengiö tvöhundruöþúsund dollara aö láni frá Lýbiumönnum. Þegar þetta upplýstist hófst mikil herferð i Washington press- unni. Eftir japl og jaml og fuður viöurkenndi Hvita húsið, m.a. aö Billy hafi verið beðinn að beita áhrifum sinum til þess aö fá Lybiumenn til að hjálpa til að fá gislana i Teheran látna lausa. Þaö sem Lýbiumenn segja um þetta alltsaman er alltannað og hefurekkibirst i Bandarikjunum. Það sem geröist var þetta. ^Billy Carter heyrði fyrst um Lybiu 1978, þegar honum var sagt að það væri mikiö oliuland. Hann Stærdfrædikennarar Flensborgarskóla vantar stærðfræðikenn- ara: Upplýsingar veitir skólameistari i sima 50560. Skóiameistari. Kennarar Tvær kennarastöður lausar við Grunn- skóla Akraness. Kennslugreinar: Almenn bekkjarkennsla- og danska. Upplýsingar hjá skólastjóra i sima 93-1388 og 93-1938. Umsóknarfrestur er til 15. ágúst. Skólanefnd. Launadeild fiármálaráðuneytisins óskar að ráða starfsfólk frá 1. september nk. til launaútreiknings gagnaflokkunar og tölvuskráningar taxtaskráningar og eyðublaðagerðar ritarastarfs (2/3 starfs) Laun samkvæmt kjarasamningum fjár- málaráðherra, BSRB og Félags starfs- manna stjórnarráðsins. Umsóknir, er greini menntun og fyrri störf, sendist launadeildinni fyrir 15. ágúst á eyðublöðum, sem þar fást. Launadeild fjármálaráðuneytisins Sölvhólsgötu 7, simi 28111. !■! Felagsmálastofnun Reykjavikurborgar ! | ^ Vonarstræti 4 simi 25500 Laus staða Umsóknarfrestur um áður auglýsta stöðu félagsráðgjafa við fjölskyldudeild, útibúið Asparfelli 12, framlengist til 22. ágúst n.k. Upplýsingar veita deildarfulltrúar i sima 74544. og vinur hans, Randy Coleman, báðu um að sérfræöingar Hvita- hússins gæfu þeim upplýsingar um landið. Sex mánuöum siöar var Billy kominn til Lýbiu, I boði Ahmed Shahati, sem er einn valdamesti maöurinn i stjórn Lýbiu. Shahati þessi var siðan I forsæti sendinefndar frá Lybiu, sem fór um Bandarikin i febrúar 1979, en Billy fylgdi þeim um landiö. Billy lét þá nokkur ógætileg orö falla um „Gyðinga pressuna” og um það aö það væru fleiri Arabar I heiminum en Gyðingar og missti þar spón úr aski sinum, þvi hann hafði haft dágóðan pening upp úr þviaö ferðast um og halda ræður, en eftirspurnin eftir slikri skemmtun minnkaöi mikið viö þetta. Siöan geröist þaö, að gamall vinur Billy sem vinnur hjá oliu- fyrirtæki, hafði samband viö hann. Fyrirtækiö, Charter Oil Company haföi misst mikiö við- skipti við Lybiu, þegar Lybia dró saman framleiöslu sina á oliu. Þeir vinirnir geröu samning þar sem Billy átti aö beita áhrifum sinum til að fá olíu aukalega, um- framkvótafrá Lybiu.og fyrir þaö átti hann aö fá umboöslaun upp á 55cent fyrir tunnuna. Billy lét sig þá dreyma um milljónir dollara, og lagði af stað til Libiu. En milljónirnar komu ekki, og Lybiumenn segja aö þeir hafi ekkert vitaö af þessu makki og gefa I skyn að ekki hefði tekist hjá Billy aö fá oliu aukalega hvort eð er. Lybiumenn þurftu að standa viö samninga gagnvart gömlum viöskiptavinum og áttu ekki oliu aflögu. El-Houderi, æðsti sendi- maöur Lybiu I Bandarlkjunum sagðist ekkert vita hvað Billy fékk frá oliufélaginu, en hann hafi ekkert fengið frá Lybiu. El-Houdini viðurkennir þó að hafa lánað Billy tvöhundruöþús- unddollara. t ágúst 1979varBilly orðinn bláfátækur og átti i vandræöum við bandarisku skattayfirvöldin. Hann vildi fara aðra ferö til Lybiu, liklega vegna þess að hann vonaðist enn til að verða rlkur í olfubransanum. Þegar hann kom til Lybiu vildi hann fá að hitta Gaddafi, en fékk ekki, þótt hann biöi I fjórar vikur. Þá segir El-Houderi aö hann hafi beöiðum lán.Lyblumennféllust á að lána honum, því þeir töldu aö hann ætti i fjárhagserfiðleikum vegna sambands síns viö þá. Honum voru greiddir 220.000 dollarar i januar, með ávísun, sem El-Houderi skrifaöi undir. E1 Houderi segir að ásakanir um aö peningarnir hafi verið greiðsla fyrir þjónustu sem Billy hafi innt af hendi fyrir Lybiustjórn séu al- rangar. El-Houderi segir einnig að frá- sagnir frá Hvlta húsinu um hlut Billys i þvi aö fá Gaddafi til að stuöla aö lausn gislanna I Teher- an, séu ekki réttar. Samkvæmt frásögn El-Houderi var hringt tfl hans I nóvember sl. frá Hvita hús- inu og Brzezinski öryggismála- ráögjafi Carters baö hann að koma til fundar við sig. Þegar El- Houderi kom á fundarstað var Billy þar fyrir. El-Houderi segist ekki hafa vitað fyrir að hann yröi þar. Brzezinski talaði mest á fundinum og spuröi hvort Lýbiu- stjórn væri tilbúin aðhjálpa til við að fá gislana leysta úr haldi. Þessi málaleitan var send áfram til Tripoli og stjórnvöld þar á kváöu að gera eins og um var beðiðán þess að fara fram á quid pro quo. El-Houderi segir að það sé ekki rétt hjá talsmönnum Hvita hússins, aö Billy hafi komið þessum fundi á. Snemma i desember var El- Houderi aftur boðaöurtil Hvita hússins, í þetta sinn til fundar við forsetann sjálfan. Sá fundur stóö i stutta stund, en forsetinn bað El- Houderi fyrir skilaboð til Gaddafi um gislamálið og annaö, talað var um að senda aðra samninga- nefnd, og forsetiitn gerði þaö ljóst að hann vildi árangur og bjóst við honum. El-Houderi vildi ekki segja hvað annað var rætt á fundinum, en nokkru siðar gaf Gaddafi það í skyni blaðaviðtali. Hann sagði að ef Bandarikjamenn væru tilbúnir til að reka Shahinn frá Banda- rikjunum, eða tilkynna honum opinberlega að nærveru hans væri ekki óskað og gerðu eitthvað til þess að koma einhverju af þvi fjármagni sem Shahinn stal, til baka til tran, þá væri möguleiki aö hægt væri að komast aö sam- komulagi. Skömmu áður hafði Shahinn komið út af sjúkrahúsi i New York og Hvita húsið haföi gert lýðum ljóst að ætlast var til aö hann færi úr landi eftir að hafa stoppað stund i Texas, til að ná sér. Svo virðist, sem Hvita húsið hafi gefiö i skyn við El-Houderi að þeir væru tilbúnir aö ganga að öörum skilmálum og El-Houderi segist hafa verið bjartsýnn á að samkomulag myndi nást. Hann neitar að ræða þá skilmála sem um var rætt og neitar einnig að segja hvort það hafi verið stjórn- völd I íran eða Bandarikjunum, sem sögðu nei, á endanum. Það eina sem hann vill segja er aö þegar frá öllu verður sagt, mun Carterforseti koma út úr þvi meö hreinan skjöld. Hann segir einnig að sá þriðji fundur sem banda- risku blöðin tala um milli hans og Brzezinskihafialdreiátt sérstaö, og aö Billy hafi ekki átt neinn þátt i viöræðunum. Þaö er augljóslega viðkvæmt mál, en gefiö er I skyn, að Carter muni breyta stefnu sinni i mál- efnum Mið-Austurlanda eftir for- setakosningarnar. Svo virðist sem fylgismenn Gyðinga meða! starfsmanna Hvita hússins hafi staðið fyrir þvi að upplýsingum var lekið til blaöanna, i þeim til- gangi aðkoma illa við Brzezinski, sem þeir hafa átt i illdeilum við. Þá héldu þeir, sem láku, að um væri að ræöa samninga milli Brzezinski og PLO. Með þvi að ýkja hlutverk Billy, ætlaði Hvita húsið að sleppa viC aö viðurkenna að hafa haft sam- band við Gaddafi. Þetta gerði það að verkum, að Billy virtist enr meiri „agent” fyrir Lýbiustjórr en ella. Þetta hefur gefið þeim sem eru mótfallnir stefnubreyt- ingu i Mið-Austurlöndum gott tækifæri til að ráðast á forsetann Þannig varð það að hinn pen ingagráðugi bróðir forsetans kastaði skugga sinum yfir Hvita húsið. Hvað varöar Hvita húsið eru þeir ekki alveg vissir, hvorl er hættulegra t sambandiö viC Lybiu.eða Billy. Blöðin hafa hins vegar skemmt sér konunglega aC velta forsetanum upp úr hvoru tveggja. (Þýtt, endursagt og styttúrNev Statesman) Kvennaráðstefnu S.Þ. lokið í Kaupmannahöf n Eins og kunnugt er lauk ráð- stefnu Sameinuðu þjóðanna um réttinda og hagsmunamál kvenna I Kaupmannahöfn aðfaranótt 31. júli. A þessari ráöstefnu átti aö gera úttekt á þvi hvernig réttinda máium kvenna hefur miðað þann hálfa áratug, sem liðinn er frá hinu alþjóðiega kvennaári, sem hófst meö ráðstefnu þeirri sem haidin var i Mexikó áriö 1975, auk þess sem ráðstefnunni nú, var ætlað að móta stefnu i þessum málum fyrir næstu fimm ár. Mörg deilumál komu upp á ráöstefnunni og bar þar mest á skiptum skoöunum einstakra þjóða á zionisma, frelsishreyf- ingu Gyðinga, en fulltrúar ýmissa rikja höfðu lagt fram tillögu um að þessi stefna yröi skilgreind sem undirokunarstefna. Var gengið til atkvæöagreiðslu um þessi mál þrátt fyrir aö fjöldi þátttakenda væri þvi andvigur. PLO og fulltrúar annarra Araba- þjóða höföu þannig sitt fram. 94 greiddu tillögunni atkvæði, 4 þjóðir voru á móti, en 22 þjóöir sátu hjá við atkvæðagreiðsluna þar á meðal Island, sem gerði svohljóöandi grein fyrir afstöðu sinni: „Sendinefnd Islands þykir leitt að sjá að i annaö sinn, fyrst i Mexikó og nú i Kaupmannahöfn, er veriö aö nota kvennaráöstefnu Sameinuöu þjóöanna á pólitiskan hátt með þvi áö táka fyrir mál, sem að okkar mati ber að fjalla um á allsherjarþingi S.Þ. Óviðkomandi efni hefur verið sett inn i framkvæmdaáætlun, sem að öðru leyti er fullkomlega aðgengileg og vissulega mjög þýðingarmikil, en að samningu hennar hafa flestar sendinefndir hér á ráðstefnunni lagt fram mikla vinnu. Meðal okkar eru fulltrúar helmings mannkyns og það veröa konum áreiðanlega mikil von- brigöi, að ekki skyldi unnt að samþykkja áætlunina einróma. Konur allstaðar að úr heiminum hafa komið á ráöstefnuna i þeirri trú, að meginmarkmiö hennar væri að bæta stöðu kvenna og vinna að jafnrétti, en hafa komist að raun um, að hún hefur i raun verið notuð sem vettvangur fyrir deilur, sem hafa dregiö athyglina frá raunverulegum tilgangi hennar. Við höfum til dæmis varla heyrt minnst á oröin „konur” eða „jafnrétti” hér i dag. Við efum aö konum muni þykja það ómaksins vert að sækja þriðju ráöstefnuna af þessari teg- und. Enda þótt sendinefnd Islands telji flest atriðin i framkvæmda- áætluninni nauðsynleg fyrir áframhaldandi starf að jafnrétti kynjanna, einkum hvaö snertir markmið einstakra þjóöa og einnig i alþjóölegu samhengi, taldi tsland af framangreindum ástæðum sér ekki annað fært en að sitja hjá við atkvæðagreiösluna” Fyrsta Ping-golfmótid Fyrsta Ping golfmótið veröur haldið á Hamarsvelli i Borgar- nesilaugardaginn 8. ágúst kl. 9.00 f.h. Leiknarveröa 18 holur i tveim flokkum, meö og án forgjafar. Hamarsvöllurinn er að verða geysi skemmtilegur, og hafa félagar unnið mikiö starf til aö gera völlinn sem beztan á allan hátt. 1 sumar hefur t.d. veriö plantaö yfir 7000 trjáplöntum. Mikill áhugi er nú fyrir golfi I Borgarnesi, og fer ört vaxandi. Hreppsnefndin hefur stutt drengi- lega viö bakið á klúbbnum á allan hátt. Oll verðlaun eru gefin áf tslenzk-Ameriska Verzlunar- félaginu, sem er umboösaðili fyrir Ping golftæki, er margir af okkar beztu kylfingum leika með. Sérstök verölaun veröa veitt fyrir holu i höggi, og högg næst holu. Golfklúbbur Borgarness, býður alla kylfinga velkomna til spenn- andi móts. Skráning fari fram fyrir kl. 19.00 á föstudagskvöld 7. ágúst I sima: 93-7248, 93-7374, 93-7209.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.