Alþýðublaðið - 09.09.1980, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 09.09.1980, Blaðsíða 3
2 Fjórðungsþing 4 að ná þessu marki. Um tekjustofna sveitarfélaga. Fjórðungsþing Norðlendinga haldið á Akureyri 31. ágúst til 2. september 1980 leggur áherslu á aukna valddreifingu m ,a. þannig aðsveitarfélgum verði falin fleiri verkefni og aukið frumkvæði gagnvart rikisvaldinu. Samhliða þessu telur þingiö nauösynlegt að fram fari hlutlægt mat á tekjustofnaþörf sveitar- félaganna miöað við hlutverk og verkefni sem þeim verði falin. A niðurstööum sliks mats veröi tekjustofnar markaöir. Um umdæmaskipulag Fjórðungsþing Norölendingu haldið á Akureyri 31. ágúst til 2. september 1980 telur að samein- ing og samvinna sveitarfélaga sé æskileg og leiði til félagslegrar jöfnunar I landinu. Sveitar- stjórnir eru eindregið hvattar til að kjósa sameiginlegar nefndir innan ákveðinna svæða. Nauð- synlegt er að nefndirnar hafi að- gang aö sérfræðilegri aðstoö við könnun á þeim breytingum, sem til greina koma á umdæmaskipu- lagi. Þingið skorar á Félagsmála- ráðuneyti að veita fé til þessarar starfsemi. Fjórðungsþingið varar ein- dregiö viö þvi að lögbinda um- dæmaskipulag og sameiningu sveitarfélaga nema að undan- genginni könnun á þvi, hvort al- mennur vilji sé fyrir þeirri skipan, sem stefnt er að. V erkamenn í byggingarstörf Nokkra verkamenn vantar i byggingar- vinnu. Góð vinnuaðstaða, mötuneyti á staðnum. Upplýsingar hjá verkstjóra i vinnuskála á horni Austurbergs og Suðurhóla. Stjórn Verkamannabústaða. *■■ Felagsmálastofnun Reykjavíkurborgar f j ^ DAGV1STUN BARNA’ FORNHAGA 8 S1MI 27277 Staða forstödumanns við nýtt dagvistarheimili við Fálkabakka er laus til umsóknar fóstrumenntun áskil- in, laun samkvæmt kjarasamningi borgarstarfsmanna. Einnig er óskað að ráða talkennara til starfa við dagvistarheimili Reykjavikur- borgar. Umsóknarfrestur um báðar stöðurnar er til 22. september. Umsóknir sendist til skrifstofu dagvistunar Fornhaga 8. En þar eru veittar nánari upplýsingar. Laus staða Stáða deildarstjóra við freðfiskdeild Framleiðslueftirlits sjávarafurða er laus til umsóknar. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins. Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, skulu sendar sjávarútvegsráðuneytinu fyrir 1. október 1980. Sjávarútvegsráðuneytið, 3. september 1980. TILKYNNING TIL NEMENDA í SÆNSKU OG NORSKU TIL PRÓFS í STAÐ DÖNSKU Nemendur mæti til viðtals i Miðbæjarskóla sem hér segir: 10 og 11 ára .... miðvikudag 10. sept. kl. 16.00 12 ára....... miðvikudag 10. sept. kl. 17.00 13.ára....... miðvikudag 10. sept. kl. 18.00 14ára......... fimmtudag 11. sept. kl. 17.00 15ára......... fimmtudag 11. sept. kl. 18.00 Framhaldsd. .. fimmtudag 11. sept. kl. 19.00 Áriðandi er að nemendur mæti með stundaskrá sína. NÁMSFLOKKAR REYKJAVÍKUR Utanrlkisráðherrar einkenndi orkumálin, yfir efna- hagslegu misrétti, sivaxandi veröbólgu og þar af leiðandi verndunarhneigðum einstakra rikja. Lausnin á þessum vanda- málum felst i sameiginlegu átaki innan hinna ýmsu alþjóðlegu samstarfsstofnana til aö tryggja aukna útþenslu og tryggja þannig atvinnu manna til lengri tima. Ailar þjóöir veröa, eins fljótt og auðið verður, að leggja sitt að mörkum viö lausn félags- og efnahagslegra vandamála þriðja- heimslandanna, en lausn þeirra 1 vandamála kemur iðnrikjunum til góöa þegar til lengri tima er litið. Að lokum gáfu utanrikisráð- herrarnir út yfirlýsingu um það, að þeir vonuðust til þess, að frum- kvæði Norðurlandanna á vett- vangi Sameinuðu þjóðanna, undir heitinu: „Umræður um virkari reglur vegna verndunar, öryggis og sjálfstæðis sendiráða og starfsfólks þeirra”, yröi til þess að auka virðinguna fyrir sendi- ráðum og málum sem snerta sendiráð. Skýrsla Flugleiða til rlkisstjórnar: Eignarfjárstaða jákvaeð en greiðslu- fjárstaða erfið gert ráð fyrir jákvæðum rekstri upp á 900 milljónir á næsta ári Stjórn Flugleiða sendi i gær Steingrimi Hermannssyni sam- gönguráöherra skýrslu um fjár- hagslega stöðu Flugleiða og rekstaráætlun félagsins fyrir tólf mánaða timabilið 1. nóvem- ber 1980 til 31. október 1981. Innihald skýrslu þessarar var i stórum dráttum kynnt blaða- mönum á fundi i gær. t skýrslunni kemur fram að þrátt fyrir tap félagsins á árinu 1979 og á yfirstandandi ári eru eignir Flugleiða verulegar um- fram skuldir. Samkvæmt bréfi endurskoðanda félagsins, og miðað við þær forsendur sem þar eru raktar, er endurmetið eigið fé félagsins 30. júni 1980 um 13 milljaröar króna. 1 bréfi til Steingrims Her- mannssonar samgönguráð- herra, en afrit af þvi voru einnig send forsætisráðherra, utanrik- isráðherra og fjármálaráð- herra, kemur fram að skv. þeirri áætlun sem nú liggur fyr- ir um rekstur Flugleiða ofan- greint timabil er gert ráð fyrir að rekstur félagsins verði jákvæður um 900 milljónir króna á þvl timabili. Afskriftir á timabilinu eru þá reiknaðar 3 milljarðar króna. Tekið er fram að áætlun þessi sé mjög var- færnisleg. Höfuðahersla er lögð á að komast út úr taprekstri sem félagið hefur verið i undan- farna mánuði. Skýrsla Flugleiða sem send var samgönguráðherra i dag, var gerö samkvæmt beiðni ráð- herra og rikisstjórnar Islands þann 20. ágúst 1980. Fram kem- ur að vegna mikillar hækkunar á eldsneyti samfara gifurlegri samkeppni á Norður-Atlants- hafsleið félagsins, svo og sam- dráttar i efnahagslifi vestur- landa og minnkandi flutninga, hefur enn orðið tap á rekstri Flugleiða fyrri hluta yfirstand- andi árs. Mikil verðbólga hér á landi hefur einnig aukið á vandann. Þetta hefur gert það nauðsynlegt og óhjákvæmilegt aðstarfsemi félagsins á Norður- Atlantshafsleiðinni veröi færð niður i algjört lágmark, jafn- framt þvi að framkvæmd er hagræðing á öllum sviöum starfseminnar. Starfsemi félagsins á Evrópuflugleiöinni og i innanlandsflugi verður með hefðbundnum hætti. Eftir þær breytingar og end- urskipulagningu á starfsemi félagsins sem nú hefur átt sér staö og enn er unnið að, telur stjórn félagsins tryggt að mynd- aður hafi verið öruggur rekstrargrundvöllur fyrir áframhaldandi starfsemi innan þeirra marka sem fyrirhuguð eru. Samkvæmt skýrslu endur- skoðanda er eignarfjárstaöa Flugleiða jákvæð. Rekstrar- áætlanir til októberloka 1981 gefa til kynna að fyrirtækið verði rekið með hagnaði á fyrr- greindu timabili. Greiöslufjár- staða félagsins er hinsvegar mjög erfið. í lok bréfsins sem undirritaðer af Erni Ö. Johnson formanni stjórnar Flugleiða og Sigurði Helgasyni forstjóra, er óskað eftir viðræöum við rik- isstjórn íslands um úrlausn þeirra mála, m.a. um aðstoð rikisins til að breyta skamm- tima skuldum i föst lán. I ofangreindri áætlun1 er gert ráð fyrir sölu tveggja Boing- véla, en að sögn forráðamanna félagsins eru þær ekki auð- seljanlegar þar sem um 50 slikar vélar eru þegar á mark- aðnum. Þá gerir þessi áætlun og ráð fyrir að Atlantshafsflug félagsins dragist ekki meira saman en orðið er. Haldist þessi áætlun kveðst Sigurður Helgason forstjóri vongóður um að þeim takist að koma félaginu á réttan kjöl á nýjan leik. Forráöamenn félagsins voru spurðir álits á fullyrðingum þess efnis að rangt haf i verið aö loka söluskrifstofum erlendis i þeim mæli sem gert var. örn O. Johnson stjórnarformaður kvaðst ósköp feginn aö þeir skyldu ekki hafa valið þann kost aöhalda söluskrifstofunum opn- um, „enda sætum við þá varla hér á fundi með ykkur núna”, sagði örn. Varðandi samningaviöræð- urnar i Luxemburg vildi örn að fram kæmi að hvert einasta orð sem haft hefði verið eftir for- stjóra félagsins i fjölmiðlum þar um væri sannleikanum sam- kvæmt. Þar ytra hefðu umræö- ur aldrei komist á það stig að fjallað væri um fjárframlag Flugleiða. Siguröur Helgason sagöi að ekki væri enn ljóst hve margir yrðu endurráðnir þann 1. nóvember n.k., það væri tals- vert háð leigusamningum sem nú stæöu fyrir dyrum. Styttingur lækni. Við athöfn þessa voru og viðstaddir nokkrir læknar af Austurlandi, starfsfólk sjúkra- hússins, starfslið verktaka, hönn- uðir, bæjarfulltrúar, fréttamenn og fulltrúar félaga, sem eru styrktaraöilar sjúkrahússins. Heilbrigðismálaráðherra flutti ræðu þar sem hann m.a. rakti þróun heilbrigöismála á Austur- landi. Vilhjálmur Hjálmarsson f.v. menntamálaráöherra flutti ávarp og færði sjúkrahúsinu kr. 500 þúsundir að gjöf frá Mjóa- fjarðarhreppi. Stefán Þorleifsson framkvæmdastjóri sjúkrahússins lýsti húsinu og rakti sögu þess. Kom þar fram, að byggingar- framkvæmdir hófust árið 1973 og 4 samið hefur verið við verktaka um aö byggingunni verði aö fullu lokiö árið 1981. Húsiö er á þremur hæðum og er hver hæö um 1000 ferm, auk kjall- ara að flatarmáli 240 ferm, en þar veröa ýmsar geymslur sjúkra- hússins, verkstæði og vararaf- stöð. Á neðstu hæð verður endur- hæfingarstöð, þvottahús, bún- ingsklefar starfsfólks o.fl. A ann- arri hæð eru heilsugæslustöð, röntgendeild, rannsóknarstofa, skurðstofa ofl. A þriðju hæð verða sjúkrastofur með 31 sjúkrarúmi ásamt ýmsum vinnuherbergjum. Verktakar eru Byggingarfélagið Valmi h.f. Neskaupstað og arki- tektar Arkitektastofan s.f. Ormar Þór Guðmundsson og örólfur Hall, Reykjavik. Þriðjudagur 9. september 1980 Priðjudagur 9. september 1980 Ur flokkstarfinu Dagana 10.—16. ágúst siðast liðinn héldu sambönd alþýðu- flokkskvenna á öllum Noröur- löndunum sina árlegu námsviku. Námsvikan var að þessu sinni haldin á skólasetri Norska Alþýðusambandsins i Sörmarka i grennd við Oslo. Þátttakendur voru 32 talsins. Fulltrúar Sambands Alþýðu- flokkskvenna á tslandi voru þær Hólmfriður Friðriksdóttir, for- maður Kvenfélags Alþýðuflokks- ins á Sauðárkróki, Asta Bene- diktsdóttir, varaformaður Kven- félags Alþýðuflokksins i Reykja- vik og Sólveig Helga Jónsdóttir, ritari Kvenfélags Alþýðuflokks- ins i Kópavogi. Aðalefni námsvikunnar var: 1) Ofbeldi á heimilum. 2) Afvopnun. Samband Alþýðuflokkskvenna hefur tekið virkan þátt i starfi norrænna jafnaðarkvenna allt frá árinu 1975, en sambandið var stofnað árið 1972. Framkvæmd og umsjón námsviku sem þessarar var i höndum islensku jafnaðar- kvennanna i júni á siðasta ári, 1979, og var hún haldin i Hús- mæðraskólanum á Laugarvatni. Að öllu forfallalausu verður framkvæmd hennar öðru sinni i okkar höndum sumarið 1984. alþýdu i n et.tt. Ctgefandi: Alþýöuflokkur- inn Framkvæmdastjóri: Jóhannes Guðmundsson Stjórnmálaritstjóri (ábm): Jón Baldvin Hannibalsson. Blaðamenn: Helgi Már Arthursson, ólafur Bjarni Guðnason. Auglýsinga- og sölustjóri: Höskuldur Dungal Auglýsingar: Elin Harðar- dóttir Gjaldkeri: Halldóra Jóns- dóttir. Dreifingarstjóri: Siguröur Steinarsson. Ritstjórn og auglýsingar eru að Siðumúla 11, Reykjavik, simi 81866. Vissulega ekki. Viðhorf pólsku þjóðarinnar til hinna kommúnisku valdhafa eru eink- um blandin tvenns konar tilfinn- ingum: Ótta og fyrirlitningu. Rikisstjórn Póllands er lepp- stjórn erlends valds. Kommún- istaflokkur Póllands saman- stendur af örfámennum minni- hlutahópi meðal þjóðarinnar. Hann komst til valda i lok seinni heimsstyrjaldar i skjóli sovézks vopnavalds. Hver einasti Pól- ,,Pólskir verkamenn ganga ekki að því gruflandi að kröf um þeirra og aðgerðum er beint gegn kjarna þess ráðstjórnarsósíalisma sem byggir á kenningu Leníns um algera valdaeinokun flokksins. Frjáls verkalýðs- félög samrýmast ekki þeirri kenningu. Málfrelsi, rit- frelsi, félaga- og fundafrelsi, samrýmist ekki þeirri kenningu. Efnahagsleg valddreifing, sem byggir á efnahagslegum sjálfsstjórnareiningum, i samkeppni á markaði, samrýmist ekki þeirri kenningu. Lýð- ræðissósíalismi samrýmist ekki kenningum Leníns." Á húsgangsklæðum Lenmismans ,,Sá dagur mun koma að verka- menn munu ekki gera sig ánægða með hálfan sigur. Þann dag verða meiri háttar átök óhjákvæmileg”. (Jecek Kuron, formaður félagslegrar sjálfs- varnarnefndar pólskra verka- manna). M eð hvaða rétti fara Kommúnistar með völd i Pól- landi? Hafa þeir fengið umboð þjóðarinnar til þess i almennum kosningum, þar sem hugmyndir og stefna kommúnista hefur hlotið dýpri ijJjómgrunn og meira fylgi en stefna andstæð- inga þeirra? verji veit, að núverandi vald- stjórn i Póllandi stæðist ekki deginum lengur, ef hún nyti ekki við kúgunartækja leynilögreglu, efnahagslegrar og pólitiskrar nauðungar og erlends hervalds. Eina réttlætingin sem til er á völdum þessarar erlendu lepp- stjórnar i Póllandi, jafnt sem öðrum löndum Austur-Evrópu, er grimulaust ofbeldið. Full- trúar Kommúnistaflokksins hafa aöeins einn boðskap að flytja þjóðinni: ,,Ef hróflaö verður við völdum okkar, verður gerð innrás I landið, þá verður blóðbað”. H verjum einasta ærlegum Pólverja býður við þvi að þurfa að heyra þetta hyski réttlæta of- beldið I nafni sósialisma og lýð- ræðis. Þess konar þulur þýðir ekki að fara með frammi fyrir pólskum verkalýð. Þær eru aðeins til útflutnings, handa gáfumannafélögum á Vestur- löndum, sem enn kenna sig við einhvers konar marx-lenin- isma, en piskra eitthvað um söguleg mistök og senda sam- úðarkveðjur þegar upp úr sýöur á fárra ára fresti. A fturbatapikur Stalinism- ans i Vestur Evrópu, sem sumir hverjir kenna sig nú orðið við „evrópukommúnisma” ræða gjarnan ástand mála i Austur- Evrópu út frá þeirri forsendu, að þar hafi átt sér stað einhver söguleg mistök við framkvæmd sósialismans. Stalinisminn á að hafa verið mistök. Þeir vilja gera ræki- legan greinarmun á honum og stefnu Lenins, hins upphaflega kennimeistara þessa þjóð- félagskerfis. Þannig telur aðal- ritstjóri Þjóðviljans pólskum verkamönnum það helzt til hjálpræöis að glugga betur i Lenin þennan. Ekki er vitað til þess, að nokkur fulltrúi hinna sovésku leppstjórnar i Póllandi, hafi dirfst að láta uppi slika ósvifni i áheyrn pólskra verka- manna. K jarninn i kenningu Lenins þessa var sá, aö kommúnista- flokkurinn, sem sjálfskipaður úrvalshópur og framvarðar- sveit öreiganna, skyldi hafa óskoraða einokun á öllu efna- hagslegu og pólitisku valdi i þjóðfélaginu. Kenning hans var i innsta kjarna andlýðræðisleg. Dreifing valds, sem er forsenda lýðræðislegrar þróunar, er ger- samlega ósamrýmanleg þjóð- félagskenningum Lenins. Lenin boðaði eins flokks kerfi. Þessi eini valdaflokkur átti ekki aðvera fjöldaflokkur. Hann átti að vera samsærishópur, úrvals- lið. Honum átti að stjórna meö valdboöi, ofan frá og niður úr. Innan flokksins mátti hvorki þola skoðanaágreining, né and- stöðuhópa. Aðrir stjórnmála- flokkar, eða fjöldahreyfingar, utan flokksins, áttu ekki tilveru- rétt, samkvæmt kenningum Lenins. Alkunna er, að Lenin fyrirleit innilega verkalýðs- hreyfingu af þvi tagi, sem verið hefur bakhjarl Sósialdemó- krataflokka á Vesturlöndum. Skv. þessari kenningu tók hinn fámenni samsærishópur Lenins öll völd i Rússlandi með ofbeldi. Til þess aö halda völd- um, varð skv. bæöi kenningu og reynslu, að beita kerfisbundnu ofbeldi. Otrýma andstöðuhóp- um, afnema skoöanafrelsi, rit- frelsi, fundafrelsi, mýla og gelda verkalýöshreyfingu, og beita stéttahópa og þjóðernis- minnihlutahópa valdi. Þessir höfuðdrættir Ráöstjórnarsósial- ismans voru að fullu mótaðir i tið Lenins. Stalinisminn var rökrétt niðurstaða af þessari hugmyndafræði. Hann er stað- festing á kenningunni, ekki frá vik frá henni. Polskir verkamenn ganga ekki að þvi' gruflandi, aö kröfum þeirra og aðgerðum er beint gegn kjarna þess ráöstjórnar- sósialisma, sem byggir á kenn- ingu Lenins um algera valda- einokun flokksins. Frjáls verka- lýðsfélögsamrýmast ekki þeirri kenningu. Málfrelsi, ritfrelsi félaga- og fundafrelsi, sam- rýmist ekki þeirri kenningu. Efnahagsleg valddreifing, sem byggir á efnahagslegum sjálfs- stjórnareiningum, i samkeppni á markaði, samrýmist ekki þeirri kenningu.Lýðræðissósial- ismi samrýmist ekki kenning- um Leníns. An lýðræðis er enginn sósial- ismi hugsanlegur. Þaö varð lýö- ræðis jafnaðarm önnum á Vesturlöndum ljóst á seinustu áratugum 19. aldar. Um það hefur deila þeirra viö Sovét- kommúnista/ og fylgifiska þeirr%.staðið i tæpa öld. Atburð- irnir i Póllandi staðfesta rétt einu sinni enn, hverjir þaö eru, sem hafa haft rétt fyrir sér allan timann. —JBH Feilar á fimm ára áætlunirmi: Vitlaust skipulag, vitlaus verdlagning, vitlaus taekni Þótt Sovétstjórnvöld vilji allt til vinna, að halda þegnum sinum i einangrun, frá umheiminum, gcta þau það ekki, þegar efnahagslegir erfiðleikar gripa um sig. 1 grein þeirrisem hér fylgir á eftir, og þýdd er úr bandaríska timaritinu Time, er fjallað um þann efnahagsvanda, sem nú biasir viö Sovétmönnum, og gæti reynst áhrifameiri sem afl til þjóðfélagsbeytinga, en andóf litils hóps manna. 1 vinsælum Moskvubrandara, sitja Stalin, Krúsjof, og Brezbuef saman I járnbrautarlest. Þegar vélarbilun verður, Iætur Stalin skjóta vélstjórann og aðstoðar- menn hans. Lestin hreyfist ekki. Eftir nokkurn tima, endurreisir Krúsjof áhöfnina. Enn hreyfist lestin ekki. Að lokum dregur Brésnéf niður gluggatjöldin i klefanum, stynur og segir: „Jæja, við skulum þó alla vega þykjast vera á hreyfingu.” Síðustu mánuði hafa leiötogar Sovétrikjanna átt i erfiðleikum við að þykjast vera á hreyfingu. Eftir stórkostlegar efnahagslegar framfarir síöustu hálfa öldina, hefur nú komið upp kreppuástand i sovésku efnahagslifi. Hag- vöxtur, sem var 5,3% árlega frá 1966 til 1970, og var 7,2% fyrir ekki lengra siðan en 1973, hefur nú dottið niður i 0,7% fy.rir áriö 1979. Stálframleiösla, sem hefur alltaf þótt gefa góða hugmynd um frammistöðu sovésks iðnaðar,, minnkaði um 1,6% siðasta ár, en það er i fyrsta sinn, sem fram- leiðsla minnkar milli ára, siðan seinni heimsstyrjöld lauk. 1 staö þess að efna gefin loforö um paradis verkamannanna, þar sem allir heföu hagsæld og góð lifskjör, hefur Marx-Lenin- isminn, sem Moskva boðar búið til stétt skriffinna, sem eru tregir til breytinga, og draga úr hvatn- ingu til framleiðslu og vanmeta uppáfinningasemi. Fyrir sovéskan iðnað, er fimm ára áætlunin eins og boðorðin tiu. GOSPLAN, sem er rikisstofnun,, sem vinnur að gerð slikra áætl- ana, ræður hvert fjármagni til fjárfestingar er beint, ákveöur verð á framleiðslu og magn hennar, og ræður utanrikis- verslun. Fimm ára áætiunin, sem setur um 350000 fyrirtækjum og stofnunum verkefni, hefurþannig áhrif á lif hvers einasta þegns Sovétrikjanna. Lögfræöingar verða að taka sinn kvóta af málum á ári hverju, rakarar verða að klippa sinn fjölda af hausum, leigubilstjórar verða að "keyra sinn fjölda af milum. Aætlunin ákvaröar hvaða hráefni verksmiðjan fær, hve marga verkamenn hún fær að ráða, eini mælikvarði á frammistööu, er hversu vel eða illa hefur tekist til við að fylla kvótann. Sovéskir hagfræðingar segja að þaö hafi aðeins verið vegna fyrir- skipana stjórnarinnar, að landinu tókst að ná sér eftir hörmungar striðsins. Með gifurlegum fjár- festingum og vinnu, hefur land- búnaðarframleiðsla aukist um 3% árlega siöan 1953. Þó fæöa almennings sé enn of sterkjurik og þó dreifingarkerfið sé undir of miklu álagi og of gamaldags, hefur fæðuneysla aukist um meir en helming siðan 1959, en þaö er meir en nokkur önnur iðnþróuð þjóð hefur náð. Aukning i iðn- framleiðslu hefur lika verið stór- kostleg, heildarframleiðsla Sovétrikjanna var aþeins 40% af heildarframleiðslu Bandarikj- anna 1955, nú er hún 60%. En nú þurfa Sovétleiðtogarnir að takast á viö annað vandamál, sem er erfitt viðfangs. Aðal- vandamálið er að kerfið er ekki fært um að nýta framleiðslutæki sin nóg og vel. Sérfræðingur i efnahagsmálum Sovétrikjanna segir: „Hið sovéska kerfi of miðstýrðrar áætlunargerðar, reyndist vel áður fyrr, þegar vandinn var að skipuleggja nýtingu mikils fjármagns og fjölda verkmanna. En nú, þegar ástandið krefst þess, að þeir nýti það sem til er i framleiöslunni betur, reynist þetta kerfi ekki nóg og vel.” Þegar fimm ára áætlanir eru gerðar, eru markmið oft kos- in, vegna þess aö þau eru sláandi á pappirnum. Sovétrikin hafa i raun sett upp hagkerfi, þar sem framleiösla 100 vörubifreiða, sem bila oft og endast illa, er megin meir en framleiðsla 10 slikra bifreiða, sem eru betur smiðaðar, bila sjaldnar og endast lengur. Aætlanirnar leggja mesta áherslu á fjölda framleiddra eininga, en taka ekki tillit til gæða. Hið kapitaliska hagkerfi vestursins verölaunar þá, sem taka áhættu og tekst vel til. Sovéska kerfið verðlaunar þá sem fara varlega og fylgja fyrir- skipunum. Sá verksmiðjustjóri, sem reynir að beita nýjum aöferðum við framleiðsluna, tekur þá áhættu, að tilraunin mis- takist og hann nái ekki að upp- fylla sinn kvóta. Þess vegna er það, að metnaður framleiðslu- aðilanna, er sá aö breyta sem minnstu. Ef framleiðsluháttum er breytt, þýðir þaö óhjákvæmi- lega að framleiðslan fer úr skorðum um einhvern tima. Dæmi um ihaldssemi i sovéskum stil, eru nýmörg. Efna- iðnaðurinn sovéski var ófær um að takast á við framleiðslu á plastpipum, i stað steyptra járn- pipa, sem þó voru til vandræða vegna þess hve mikið þær ryðguðu. Astæðan var sú að i pipuframleiðslu áætlun GOS- PLAN, eru kvótarnir ákveðnir eftir þyngd framleiðslunnar og hvaða verksmiðja, sem breytti framleiðslu sinni á pipum úr járn- i plastpipur, myndi þar með dragast aftur úr öörum verk- smiöjum, og gæti ekki fyllt kvótann. Sovétleiðtogarnir hvetja verk- smiðjustjóra og verkamenn til að auka framleiðsluna, en ekkert virðist nókkurntima verða af sliku. Arið 1965 beitti Kosygin sér fyrir stjórnunarbreytingum, sem áttu aö hvetja til meiri afkasta. Verksmiðjur og fyrirtæki áttu að hafa meiri völd til þess að ákveða framleiðslu sina sjálf, koma á beinu sambandi viö neytendur og áttu lika að halda eftir meira af gróða sinum til endurfjár- festingar. En þessar umbóta- áætlanir urðu að engu i meðferð rikisapparatsins. Efnahagslegar umbætur verða alltaf aö engu, þvi þær krefjast þess, á endanum, að umbætur verði lika gerðar á póli- tiska sviöinu. Þó fjárfesting i landbúnaði sé meirien 500milljaröardollara, er landbúnaðurinn þó vandræða- barnið i sovésku efnahagslifi. Landbúnaðarverkamenn eru átta sinnum fleiri i Sovétrikjunum en i Bandarikjunum, eða um 23% af vinnuafli Sovétrikjanna. Landbúnaðurinn dregur til sin um fjórðung alls fjármagns til fjár- festingar, eða fimm sinnum meiri upphæð en i Bandarikjunum. Þrátt fyrir þaö er landbúnaðar- framleiösla Sovétrikjanna aöeins 80% af framleiðslu Bandarikj- anna. Eins og einn sérfræðingur orðaöi það: „Skipulagið er vit- laust, verðlagningin er vitlaus, tæknin er vitlaus. Þetta er allt vitlaust.” Landbúnaður Sovétrikjanna á við loftslagsvandamál að eiga, sem engin rikisstjórn getur bjargað. Að visu er kornfram- leiðsla Úkrainu gifurleg, en meginhluti ræktanlegs lands liggur norðar, þar sem miklar sveiflur eru i meðalhita og úrkomu. Þessar sveiflur leiða siðan til sveiflna i landbúnaðar- framleiðslu, sem getur farið allt upp i 40%. Þessi vandamál eru svo gerð erfiðari með stjórnunar- kerfinu. Þótt samyrkjubúin séu oft borin saman við hin stóru landbúnaöar- fyrirtæki i Bandarikjunum þá er munurinn gifurlegur þar á, þvi verkamennirnir hafa engar áhyggjur af framleiðni á rikis- jörð. Sönnun þessa er sú, að á þeim 2—3% landrýmis i Sovét- rikjunum, sem eru i einkaeign, er framleidd 25% af landbúnaðar- framleiöslu i Sovétrikjunum, aðallega grænmeti, ávextir, mjólk og kjöt. Framleiöni i landbúnaði er enn frekar heft af skorti á þjálfuðum starfskrafti. Þegar fleiri og fleiri hinna yngri fara frá sveitunum i verksmiðjuvinnu i borgum, er landbúnaðarframleiðsla skilin eftir i höndum hinna eldri, sem kunna minna til verka. Vinnuafls- skortur er reyndar alvarlegt vandamál á öllum sviðum so- vésks efnahagslifs. Atvinna i iðnaði eykst aöeins um 0,7% ár- lega, miðað við 1,8% á ári 1976—78. Þegar litil vandamál i land- búnaði verða að stórum vanda- málum, bregðast sovéskir skrif- finnar þannig við, að lausnin verður oft jafnmikið vandamál. Þegar uppskeran af korni verður meiri en við var búist til dæmis, verða yfirmenn að leita um stór svæði að vinnuafli og flutningsbif- reiðum, sem þeir veröa aö taka frá öðrum verkefnum, sem verður auövitaö aö hætta við i bili. Afleiðing þessa er samfellt kapphlaup um vinnuafl og tæki, sem allt of litið er til af, hvort eð er. Þó Sovétmenn vilji allt til vinna að komast yfir vestræna tækniframleiöslu og kunnáttu, t.d. tölvur og vélar, þá eiga þeir erfitt með að koma sinni fram- leiðslu á markað vestan járn- tjalds. Fyrir utan vodka eiga Sovétmenn ekki auðvelt að selja annað en hráefni, eins og hráoliu og gull. Þó vara eins og Yak-40, farþegaflugvélin eða Lada bilar séu boðin á góöu verði, hefur ekki gengið vel að selja það i Vestur Evrópu. Yfirleitt verða Sovét- menn að selja sinn útflutning til hinna Austur-Evrópu rikjanna eða þriöja heimsins. Sovéskir borgarar hafa vanist þvi, siðan striðinu lauk, að lifs- kjörfæru batnandi. Nú verða þeir að búast við afturför. Mið- stýringin, sem geröi Sovét- rikjunum kleift aö iðnvæðast hratt, hefur nú breyst i hindrun á framfarabrautinni. (Þýttog endursagt úrTime, 23. júní 1980!. Þó f járfesting í landbúnaði sé meiri en 500 milljarðar dollara, er landbúnaðurinn þó vandræðabarnið í sovésku efnahagslífi. Landbúnaðarverkamenn eru átta sinnum fleiri í Sovétríkjunum en í Bandarikjunum, eða um 23% af vinnuafli Sovétríkjanna. Landbúnaðurinn dregur til sin um fjórðung alls fjármagns til fjárfestingar, eða fimm sinnum meiri upphæð en í Bandaríkjunum. Þrátt fyrir það er landbúnaðarframleiðsla Sovétríkjanna aðeins 80% af framleiðslu Bandaríkjanna. Eins og einn sérfræðingur orðaði það: „Skipulagið er vitlaust, verðlagningin er vitlaus, tæknin er vitlaus. Þetta er allt vitlaust."

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.