Alþýðublaðið - 25.09.1980, Page 3

Alþýðublaðið - 25.09.1980, Page 3
Fimmtudagur 25. september 1980. 3 alþýöu H hT'TT'M (Jtgefandi: Alþýöuflokkurinn Framkvæmdastjóri: Jóhannes Guömundsson Stjórnmálaritstjóri (ábm): Jón Baldvin Hannibalsson. Blaöamenn: Helgi Már Arthursson, Ólafur Bjarni Guönason. Auglýsinga- og sölustjóri: Höskuldur Dungal Auglýsingar: Elin Haröar- dóttir Gjaldkeri: Halldóra Jóns- dóttir. Dreifingarstjóri: Siguröur Steinarsson. Ritstjórn og auglýsingar eru aö SiöumUla 11, Reykjavik, simi 81866. T il hvers höfum við rikis- stjórn? Þaö er satt aö segja von aö spurt sé. Fyrstu skyldur rikisstjórnar eru viö atvinnu- lifiö i landinu. Fari atvinnulifið á vonarvöl, er úti um atvinnu- öryggi og afkomuöryggi fólks- ins i landinu. (Jtflutningsfyrir- tæki veröa aö vera samkeppnis- hæf. Fyrirtæki, sem framleiöa fyrir heimamarkaö, veröa aö geta staðizt samkeppni við inn- fluttan varning. Fyrirtæki sem rekið er af viti, verður að geta skilað hagnaöi. Þetta er hinn frægi rekstrargrundvöllur at- vinnuveganna. Hann er nú brostinn. N Uverandi rikisstjórn viröist enga stefnu hafa iefnahagsmál- um, og þar af leiöandi ekki heldur i atvinnumálum. Meö stefnu- og aðgerðarleysi sinu, hefur hUn velt vanda atvinnu- veganna yfir i bankakerfið, eins og Helgi Bergs, bankastjóri, lýsti i fréttaauka rikisútvarps- ins i gær. Fyrirtæki eru flest rekin með tapi. Hingaö til hefur banka- kerfiö lánað i þennan tap- rekstur, með þvi að láta Seðla- bankann prenta seöla. Það magnar veröbólgu. Skipi rikis- stjómin bönkunum að kippa að sér hendinni, er vandanum velt yfir á fyrirtækin. Þá kemur til rekstrarstöövana. Þá er at- vinnuöryggiö brostið. Fólk og fyrirtæki: „f Sovétríkjunum og öðrum kommúnistaríkjum hefur þjóðunum verið boðað, að þær yrðu að færa fórnir um sinn upp á betri tíma síðar. Betri tið hefur látiðá sér standa. Hér á landi hefur Framsóknarára- tugur Alþýðubandalagsins, með 4 ára hjálp Sjálf- stæðisf lokksins hins vegar einkennzt af því, aðfólki er sagt að fórna nú, í vissu um enn meiri fórnir síðar. Sitjandi ríkisstjórn virðist helzt ráðin í að halda enn fastar fram en nokkru sinni fyrr atvinnumálastefnu lífskjaraskerðingarinnar". AÐ FJARFESTA I FRAMTÍÐINNI Með þessum hætti hangir is- lenzkt atvinnulif á bláþræði. Eina lausnin sem til er, er að skera á sjálfvirk tengsl gengis, fiskverðs, búvöruverös, verð- lags og launa. Þetta treystir nú- verandi rikisstjórn sér ekki til aögera. Þess vegna er hún óhæf til aö stjórna landinu. HUn er pólitiskt lömuð. Hefur þessi rikisstjórn þá enga stefnu I atvinnumálum? JU, reyndar. Kjartan Jóhanns- son, fyrrverandi sjávarútvegs- ráðherra, lýsir henni á eftirfar- andi hátt i grein i Alþýðublaöinu i dag: „Rikjandi atvinnumálastefna er i þvi fólgin, aö auka land- búnaðarframleiöslu, stækka fiskiskipaflotann, skrifa skýrslur um iðnþróun og skipa nefndir um iðnaöaráætlanir. Virkja i Kröflu, nýta ekki orku- lindir til stóriðju, gera ekkert i verðbólgumálum og láta at- vinnufyrirtækin vera á fram- færi banka og sjóða”. Hvaö á að gera? 1 sömu grein lýsir Kjartan Jó- hannsson stefnu Alþýðuflokks- ins á eftirfarandi hátt: ,,(1) Það verður að hafa hóf á landbúnaðarfra mleiðslu og draga Ur framleiöslu á mjólkur- afurðum og kindakjöti. Viö höf- um ekki efni á að verja tugum milljarða á ári hverju i niður- greiðslur og matargjafir til út- lendinga. Samdráttur i þessari framleiöslu myndi létta skatt- byrði af þjóðinni og bæta lifs- kjör. Alþýðuflokkurinn hefur boöaö þessa stefnu. Hinir flokk- arnir hafa staöiö fyrir gömlu framleiðsluaukningarstefnunni I landbúnaöi og tilheyrandi lifs- kjaraskeröingu. (2). Það verður að halda stærð skipastólsins i skefjum. Það veiöimagn sem unnt er að sækja I fiskstofnana er tak- markað. Afköst flotans við nú- verandi aöstæður eru meiri en svarar til eölilegs afraksturs fiskistofna. Þorskveiöar togara erubannaðar milli þriðjungsog helmings ársins. Loðnuflotinn getur lokið veiði á u.þ.b. þriöj- ungi ársins. Sérhver viðbót við fiotann þýðir meiri skömmtun minna I hvern hiut og lélegri afkomu sjómanna, Utgerðar og þjóðar- innar i heild. aö veröur (3) að auka fjár- festingu f tækniframförum f fiskvinnslu og aöbúnaöi verka- fólks.Framundan er harðnandi samkeppni við Kanadamenn og Bandarikjamenn á fisk- markaöi. Aöeins með þvi að vera i fararbroddi i greininni, tæknilega, i gæðum og vegna lágs vinnslukostnaöar, munum viö varöveita markaðsstöðu okkar. Hagræðing og tækniframfarir i fiskvinnslu fela i sér einhverja mestu hagvaxtarmöguleika sem völ er á. Þess vegna á að fjárfesta i slikum framförum. aö á (4) að beizla fallvötnin til aukinnar iönaöarframleiðslu með orkufrekum iönaði. Engar ákvarðanir hafa veriö teknar umnýjastóriöju, sl. 6ár. Undir- búnings- og framkvæmdatimi er a.m.k. fjögur til sex ár. Þess vegna er ekki ráð nema I ti'ma sé tekið. 1 fallvötnunum og jarð- varmanum liggja ónýttar auö- lindir til iönaðarframleiöslu. A þeim veröum viö aö byggja vonir okkar um batnandi lifs- kjör i framtlðinni. Meö orku- frekum Utflutningsiðnaði getum viö skapað ný atvinnutækifæri og aukiö þjóðarframleiðslu. (5). Það veröur að skapa skil- yrði til almennrar iðnþróunar. Verðbólgan, ‘ööugleiki i efna- hagsmálum, urelt verðlags- og tollalöggjöf, eyöileggur alla vaxtarmöguleika. Forstöðu- menn fyrirtækja eru gerðir að sendisveinum i reddingarerind- um, peningaslætti og verðlags- þrasi. Þeir fá engan tima til raunverulegrar framleiöslu- stjórnar. Þeir sjá litinn ávinn- ing I tækniframförum eða hag- ræðingu. Nýskipan verölags- mála, endurskoöun tollalög- gjafar, skynsamleg skatta- stefna, jafnræöi á lánamarkaði, aukinn stööugleiki I efnahagslifi og lækkun veröbólgu eru skil- yrði fyrir eflingu iönaðar. fi ö lokum segir Kjartan Jó- hannsson: „1 Ráöstjórnarrikj- unum og öörum kommúnista- rikjum hefur þjóðunum veriö boöað aö þær yröu aö færa fórnir um sinn upp á betri tima siðar, sem reyndar létu svo á sér standa. Hér á landi hefur Framsóknaráratugur Alþýöu- bandalagsins með 4 ára tilhjálp Sjálfstæðisflokksins hins vegar einkennztaf þvi að fólkier sagt að fórna nii, i vissu um enn meiri fórnir siöar. Sitjandi rikisstjórn viröist helzt stað- ráðin i að halda enn fastar fram en nokkru sinni fyrr atvinnu- málastefnu lifskjaraskerð- ingarinnar. Ef stemma á stigu við landflóttanum veröur þessi stefna aö vikja, og við aö taka atvinnustefna i þágu lifs- kjara”. — JBH 1 Landflótti Húsnæðismál 4 tækjum. NU er hins vegar gert ráð fyrir að enginn vöxtur verði á þessari fjárfestingu og sjávarútvegsráöherra gerði tillögur um að allt hagræð- ingarfé Fiskveiðasjóðs færi i einungis þrjú fyrirtæki og þá ekki sérstaklega til véiakaupa. Þetta er stórt skref aftur á bak. Hagræðing og tækniframfarir I fiskvinnslunni fela i sér ein- hverja mestu hagvaxtarmögu- leika, sem völ er á. Þess vegna á aö fjárfesta i slikum fram- förum. Það bætir afkomu verkafólks i greininni, styrkir markaösstöðu okkar og treystir lifskjörin flandinu. 4. Fallvötnin á að beizla til auk- innar iðnaðarframleiðslu á svið orkufreks iönaöar. Engar ákvaröanir hafa veriö teknar um frekari stóriðju s.l. 5-6 ár. Eðlilegur undirbúnings- og framkvæmdatimi er þó að lik- likindum um það bil 4. ár. Þess vegna er ekki ráð nema I tima sé tekiö. Fallvötnin eru mesta, ónýtta auðlind þjóöarinnar ásamt jarðvarma.Þau verðabezt nýtt til iðnaöarframleiöslu. 1 þvi eru ótæmdir hagvaxtamögugleikar og lifskjarabætur. Samninga- gerð, sem tryggi islenzka hags- muni og mengunarvarnir, verður aö vanda. Það krefst þvi góðs aödraganda. Virkjun fall- vatnanna til arðbærs orkufreks iðnaðar á að skapa ný atvinnu- tækifæri og auka þjóðarfram- leiðslu, þannig að meira verði til skiptanna. Þess vegna er nýting þessarar auðlindar mikilvæg undirstaöa fram- tiðarlifskjara i landinu. 5. Skapa veröur skilyrði til al- mennrar iðnþróunar. Eins og efnahagslifi er nú háttað eru iðnþróunarskilyrði bágborin. Verðbólga, óstöðugleiki i efnahagsmálum, Urelt verð- lags- og tollalöggjöf eyðileggur allan þróunarþrótt. Forystu- menn fyrirtækja gerast sendi- sveinar i reddingarerindum, peningaslætti og verölagsþrasi, en gefa sér takmarkaöan tima til raunverulegrar framleiöslu- stjórnar. Þeir sjá litinn ávinn- ing I tækniframförum eða hag- ræðingu, enda þykjast þeir vita að allt slikt yrði jafnóöum að engu gert við rikjandi að- stasður. Meö jafnræöi á lána- markaði, nýskipan verðlags- mála, endurskoðun tollalög- gjafar, skynsamlegri skatta- stefnu, auknum stöðugleika I efnahagslifi og verulegri lækkun verðbólgunnar mundu skapast hér eölileg iönvaxtar- skilyrði. Spurningin um iönþróun er þvi ekki sú hvort sérfræðingar og embættismenn skrifa um hana færri eða fleiri skýrslur, heldur einfaldlega hvort efnahagslif- inu verður komið Ur núverandi vitahring og á heilbrigðari grundvöll. Sama gildir um verzlunina I landinu, þróunarskily röi hennar eru undir sömu megin- þáttum komin. Landflótti eða atvinnustefna I þágu lifskjara 1 Sovét-Rússlandi og öörum kommúnistarikjum hefur þjóð- unum veriö boöað, aö þær yrðu að færa fórnir um sinn upp á betri tima siöar, sem reyndar létu svo á sér standa. Hér á landi hefur Framsóknaráratugur Alþýöu- bandalagsins meö 4 ára tilhjálp Sjálfstæðisflokksins hins vegar einkennzt af þvi að fólki ersagt að fórna nú i vissu um enn meiri fórnir siöar. Sitjandi rikisstjórn virðist helzt staðráöin i að halda enn fastar fram en nokkru sinni fyrr atvinnumálastefnu lifskjara- skerðingarinnar. Ef stemma á stigu við landflóttanum verður þessi stefna aö vikja og við aö taka atvinnustefna i þágu lifs- kjara. Gervasoni 1 Eigum viö að úthýsa slikum nauðþurftarmanni? Eigum við að framselja hann I hendur frönsku lögreglunnar? Ég segi nei. Jafnvel þótt það kosti okkur að umbera þessa rikisstjórn eitthvað lengur. V ■ inur minn, Vrazda, þessi landflótta Tékki i Kaupmanna- höfn, segir i bréfi sinu: „Gervasoni-málið snýst um að finna honum griðarstaö þar sem hann getur lifað eðlilegu lifi án þeirrar sálfræðilegu áþjánar, sem þvi fylgir aö fara huldu höföi I mannlegu sam- félagi. Island er okkar siðasta von.” Hann segir lika: „Þetta er ekki pólitiskt mál. Þetta er mann&ðarmál. Við höf- um beðið alla aðila á íslandi að forðast aö gera þetta að flokks- pólitisku máli. Við höfum beöið menn að vinna aö þvi málefna- lega og hljóðlega á bak viö tjöld- in, og forðast að gera þaö að opinberu deilumál.” Alþýðubandalagið, samtök herstöðvaandstæðinga, Þjóð- viljinn, SINE og hópar há- skólastúdenta, hafa orðið við þeirri bón — eöa hitt þá heldur. Þurfa þessir abilar ævinlega aö niðast á öllu, sem þeim er trúað fyrir? Góði dátinn Sveik Tékkinn Vrazda er nú félagi i danska sósialdemókrataflokkn- um. Hann segir að þetta mál orðið að ágreiningsefni innan flokksins. Um þaö segir hann orðrétt: „Ef danska rikið er reiðubúiö að veita viðtöku flóttafólki frá Austur-Evrópu, af sömu ástæðum og liggja að baki umsóknar Gervasonis, þá tel ég það siðferöilega skyldu að eitt gangi yfir alla, — ella verði öll- um visaö frá.” Hann likur bréfi sinu með þessum orðum: „Ef þú gætir lagt þessu máli lið, helzt hljóðlega og á bak við tjöldin, eöa á annan hátt, ef allt um þrýtur, myndi þaö árétta fyrir mér einu sinni enn, að ég slátraöi ekki kúnum I Tékkó- slóvakiu forðum til einskis.” — Sem andófsmaður i Tékkóslóva- kiu var Vrazda tekinn Ur umferð og gerður aö verkstjóra á rfkis- búi. Þegar hann sá að hverju fór i landi sinu brá hann sér Ut i fjós slátraði kúnum og hélt meb liöi sinu úr landi. Hann kom vegabréfslaus til Danmerkur frá landi góða dátans Svejks. — JBH. vegum sveitarfélaga, sem hús- næðismálastjórn hefur heimild til að veita allt að 80%-lán til. A ár- inu herti stofnunin enn á þvi eftir- liti og þeim skorðum, sem settar hafa veriö á samþykktan bygg- ingarkostnaö og iánveitingar til byggingar þessara ibúöa, er áöur höfðu verið teknar upp. A árinu 1979 voru sett tvenn lög, sem veittu hUsnæöismálastjórn nýjar heimildir til lánveitinga. Var þar annars vegar um að ræöa heimild til lánveitinga til bygg- ingar vistheimila fyrir aldrað fólk, hins vegar heimild til Ián- veitinga til byggingar dagvist- unarstofnana. Nokkrar lánsum- sóknir hafa þegar borizt um lán þessi, en engin hafa enn verið veitt. A árinu 1979 var áfram unnið að endurskoðun á löggjöfinni um Húsnæöismálastofnun rikisins. Var það verk unnið á vegum starfshópa og nefnda, sem skip- aðar voru af félagsmálaráðherra. Haustiö 1979 lagði ráöherra fram á Alþingi frumvarp til nýrra laga um stofnunina, sem siöan hefur verið samþykkt. Á árinu 1979 var endanlega gengið frá aðild HUsnæðismála- stofnunar rikisins að stofnun Byggingaþjónustunnar, er hún kom d fdt meö Arkitektafélagi Is- lands og Rannsóknarstofnun byggingariðnaöarins. Bygginga- þjónustan rekur upplýsingaþjón- ustu á sviði byggingariönaðar, byggingartækni og byggingar- listar og er sjálfseignarstofnun. Tók hún viö starfsemi Bygginga- þjónustu Arkitektafélags Islands. Skipulagsskrá hinnar nýju stofn- unar er undirrituð hinn 8. marz 1979 og var hún staðfest af For- seta tslands hinn 23. marz 1979. Tæknideild HUsnæðismála- stofnunar rikisins veitti mörgum húsbyggjendum, stjórnum verka- mannabústaða, sveitarstjórnum o.fl. aðilum margvislega aðstoö og þjónustu á árinu. Hún var upp- haflega fyrst og fremst stofnuð i þágu hinna dreiföu byggða og er þeim enn sem fyrr mikil stoð, án hennar geta þær ekki verið, ef vel á aö vera. A árinu 1979 voru sett lög um húsaleigusamninga og er þeim ætlað það hlutverk, að tryggja beturen áður samskipti leigusaia og leigutaka. Eru þetta fyrstu lögin um húsaleigumál, sem sett hafa verið áratugum saman, þegar lög nr. 58/1973 og nr. 38/1976 um bygginga leigu- og söluibúöa á vegum sveitarfélaga eru undanskilin. Lagafrumvarpið var unnið af nefnd, sem skipuö var af félagsmálaráðherra, og starfar hún áfram að undirbún- ingi löggjafar um hámark húsa- leigu og fleiri viðfangsefnum. Útboð Stjórn verkamannabústaða i Reykjavik óskar eftir tilboðum i eftirtalda verk- og efnisþætti 60 ibúða i raðhúsum i Hóla- hverfi. 1. Pipulögn. 2. Ofnar 3. Gler. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu V.B. Máfahlið 4, gegn 20 þús. kr. skilatrygg- ingu frá fimmtudegi 25/9. Tilboð verða opnuð á skrifstofu V.B. Suð- urlandsbraut30. miðvikudaginn 8. október 1980.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.