Alþýðublaðið - 05.03.1981, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 05.03.1981, Blaðsíða 4
I STYTTINGI Yfirlýsing frá Foreldra samfökum vegna vinnudeilu við fóstrur Foreldrasamtökin lýsa áhyggj- um sinum yfir þvi að ekki skuli hafa tekist viðunandi samningar við fóstrur i nýafstöðnum sér- kjarasamningum. Samtökunum kemur ekki á óvart að langflestar fóstrur hafa nú sagt upp störfum. Sá mögu- leiki að fóstrur gangi út af dag- heimilum og leikskólum i vor eða sumar knýr samtökin til að hvetja borgaryfirvöld til að endurskoða i alvöru þessa samn- inga. Þeir sem komið hafa nálægt starfi dagvistarheimila vita að starfsmannaskipti þar eru mjög tið. Þessar „breytingar” og lang- vinn óánægja starfsliðs með kjör sin er okkur foreldrum mikið áhyggjuefni. Við trúum þvi ekki að hjutverk fóstra við uppeldi og mótun barna sé ekki metið til jafns við hlutverk kennara. Foreldrasamtökin eru ekki þrýstihópur en þau vilja vekja athygli á tvennu: 1. Óánægja fóstra er mjög almenn. Takist ekki endur- skoðun sérkjarasamninga kemur án efa til þess að upp- sagnir þeirra taki gildi. 2. Ringulreiðin sem verður þegar útivinnandi foreldrar halda kyrru fyrir heima með börn- um sinum verður veruleg, bæði fyrir þá sjálfa og vinnu- staðina. Foreldrasamtökin álita að hér sé á ferðinni mikilvægt og sam- þætt hagsmunamál foreldra, fóstra og atvinnulifsins og þau vænta þess að borgaryfirvöld og Starfsmannafélag Reykjavikur- borgar sýni frumkvæði og jákvæðan skilning á málinu. Samtökin vilja einnig hvetja hagsmunasamtök vinnuveitenda og launþega að ljá málstað fóstra lið sitt. Gerist áskrifendur að málgagni ykkar Borgarmáhi Um sambandsleysi borgarfulltrúa og kjósenda Það er ekki á hverjum degi sem maður sest niöur og skrifar i Alþýðublaðið sitt. Reyndar mættum við jafnaðarmenn gera dálitið meira af þvi, • svo þetta blaðokkargeti orðið vettvangur pólitiskra skoðanaskipta okkar i milli, i' rikara mæli en nú er. En nóg um það. Alþýðublaðið hefur gert þing- málum liðandi stundar ágæt skil, en minna hefur farið fyrir borgarmálum og sveitarstjórn- armálum á siðum blaðsins og er það miður, þvi þau mál eru oft engu siðri en þingmálin. Borgar- og bæjarmál tengjast raunar hinu daglega lifi bæjar- ins mun nánar en flest þingmál, enda fjalla þau um hluti sem gerast i okkar nánasta unhverfi og geta haft veruleg áhrif á at- hafnir okkar og lifshætti. Ein- mitt vegna þess arna er þessi greinarstúfur settur saman. Þannig er mál með vexti, að mér ( og vafalaust fleirum) finnst sem borgarapparatið i Reykjavik sé orðiö nokkuð fjar- lægt hinum venjulega bæjar- búa. Þetta finnst mér að komi hvað berlegast i ljós, þegar hin ýmsu ibúa- og hverfasamtök borgarbúa senda frá sér álykt- anir um þau mál, sem þau telja að tengist sér á einhvern hátt. Virðist manni sem að i mörgum tilfellum sé hreint ekkert mark tekiðá slikum ályktunum. Þetta stafar af sambandsleysi milli borgarfulltrúa og kjósenda, en borgaryfirvöld gera alltof litið af þvi, að kynna fyrirhugaðar framkvæmdir sinar og leita eft- ir áliti bæjarbúa á þeim. Ætti slikt þó að teljast sjálfsagður meðákvörðunarréttur bæjarbúa við stjórn borgarinnar. Ég ætia nú að gerast svo frakkur að nefna eitt litið dæmi um þetta sambandsleysi, en reyndar er af nógu að taka i þvi sambandi. Fyrir allmörgum árum var reist á Seljavegi i Vesturbænum kolsýruhleðsla, sem hlaut það frumlega nafn Kolsýruhleðslan sf. Nú er það i sjálfu sér ekkert merkilegt þott fyrirtæki séu § eftir Baldur Ragnarsson Hagsmunamál stúdenta ekki það vel á vegi stödd að vert sé að dreifa kröft- unum frá þeim — segir Kjartan Ottósson Þann 11. mars nk. verður gengið til kosninga meðal stúdenta við Háskólann um fulltrúa i Stúdentaráð og Háskólaráð. Að þessu sinni stendur baráttan ekki eingöngu milli vinstri og hægri manna, heldur hefur nú komið fram þriðja framboðið, sem umbóta- sinnaðir stúdentar gangast fyrir. 1 tólfta sæti á lista umbótasinnaðra, er Kjartan Ottósson, formaður Stúdenta- félags Jafnaðarmanna, og spurði Alþýðublaðið hann, hver væru helstu baráttumál sem umbótasinnaðir stúdentar settu á oddinn i' kosningabaráttunni, Við viljum t.d. fá fastari stjórn á málum Félagsstofn- unar stúdenta, sagði Kjartan, og við viljum að nokkur mál verði tekin þar út og gerð forgangsmál, t.d. matarverðí i stofnuninni, en það næst aðeins með þvf að rikið auki framlag sitt. Þá viljum við gera bygg- ingu nýrra garða, bæði fyrir einstaklinga og fjölskyldufólk að forgangsverkefni. Við viljum að slikir garðar yrðu opnir háskólanemum sem og nemendum i öðrum framhalds- skólum á þessu stigi. Best væri að mynduð yrðu samtök náms- manna á framhaldsskóla- stiginu. Þá viljum við að gert verði átak i byggingu barnaheimila, og bendum á að þegar er til lóð undir slikt, við Hjónagarðana. Þá viljum við að greint verði meira á milli einstakra rekstrarþátta Félagsstofnunar. Svo, t.d. Bóksalan verði ekki látinstanda undir áhætturekstri annarra þátta. 1 sambandi við lánamál höfn- um við stefnu Vöku um að engar tekjur skuli draga frá lánum.Ef um framfærslulán er að ræða, teljum við eðlilegt að svo sé, enda mikil hætta á að ef stúdentar geti tekið lánin burt- séð frá tekjum, skapist hætta á að fólk braski með þessi lán. Þá teljum við, að endurgreiðslur lánanna eigi að fara eftir tekj- um, þannig að hún verði hverju sinni ákveðinn hluti árstekna, sem menn greiða siðan jafnt og þétt þar til lánið er endurgreitt. Við erum á móti fjöldatak- mörkunum i ýmsar deildir og leggjum áherslu á að sem fyrst verði komið upp réttindaskrif- stofu stúdenta við skólann, til að aðstoða nemendur i ýmsum málarekstri innan skólans. t lögum stúdentaráðs er ákvæði um þessa skrifstofu en af einhverjum ástæðum hefur hún legið i láginni. Almennt erum við þeirrar skoðunar að i stúdentapólitik séu hagsmunamál stúdenta ekki sett nóg á oddinn. Hún hefur snúist mest um mál sem eru óskyld hagsmunum stúdenta. Ástandið i hagsmunamálum stúdenta er ekki það gott, að það sé vert að dreifa kröftunum frá þvi, sagði Kjartan að lokum. A RATSJÁNNI Nú hefur Dagblaðið fundið gott mál, til að slá upp á forsiðum dag eftir dag. Þar að auki fyllir þetta mál ófáa dáika innan i blaðinu og er gott auglýsingamál. En um- fram allt, sleppur Dagblaðið við að birta eins mikið af óþægilegum fréttum úr pólitikinni fyrir vikið. Það er nú einusinni svo, að það getur verið erfitt lifið á stjórn- arpressunni, þegar ekki berast nema vondar fréttir af stjórnar- heimiiinu. Að sönnu er þessu máli slegið upp sem meiriháttar máli skv. stjórnarskrá. Auðvitað verður þetta heljarmikið spursmál um réttindi. (Hinsvegar virðist Dag- fyrir fréttum sinum leyndum. Og allir rjúka upp og æsa sig út af prentfrelsi og mannréttindum og hvað eina. Nú er Þagall einlægur stuðn- ingsmaðurprentfrelsis og ýmissa annarra tegunda frelsis, sem taldar eru nauðsynlegar lýðræð- inu. En þegar menn tala um rétt- indi, verður lika að ræða skyldur. Til hvers notaði Dagblaðið sér prentfrelsið? Til þess að verða sjónarmun á undan öðrum fjöl- miðlum aðsegja fréttina af þvi að ólánssöm kona hafði játað á sig morð. Þegar talað er um frelsi fjöl- miðla, er það gjarna gert á þeirri STÓRT M ÚRSUTH KOMAEK rótunum „Stjórn Blaðamannafélags íslands /gir-* jitur svo á, að það séu augljósir HT ?■ hagsmumr blaðamanna, jafnt sem mWC) skylda þcirra við heimildarmenn sína, '1 að skýra ckki frá þeim. Ef út af þcssu I fSW * væn brugðið, mundi það verða til að stórskerða möguleika blaðamanna til V °8 VCí?a Þannig sljórnarskrárvernduðu n frds, Óö.ur um fði. „Svo «gi, i Siyk.un „j6,nar Blaöamannafélagsms i gxr um mál Dagblaösmann. anna tveggja, sem hafa neílaö aö gefa upp nöfn heimildarmanna fyrir frétt. aí skýra ekki frá nSfnum heimilda Við vitum um réttindin — en hverjar eru skyldurnar? blaðið fáum skyldum hafa að gegna, sem koma á móti réttind- unum, en það er auðvitað annað mál). Tveir starfsmenn Dagblaðsins hafa lent i útistöðum við lögregl- una fyrir það að neita að greina frá því hvaða heimildamenn þeir höfðu fyrir ákveðinni frétt. Það er auðviiað ljóst, að hver sem heim- ildarmaðurinn hefur verið, hefur hann brotið trúnað, sem honum er lögum samkvæmt skylt að virða. Engu að sfður er það brot ekki höfuðatriði málsins. Ónei, höfuð- atriði málsins, er einhver óljós réttur blaðamanna til að halda nöfnum heimildamanna sinna forsendu, að þeir hafi upplýsinga- hlutverki að gegna, að þeir eigi að þjóna lesendum sinum, sem eins- konar aðhald að rikisvaldinu. T.d. þegar stjómvöld i Bandarikjun- um reyndu að þagga niður i blöð- um, sem sögðu frá Watergate hneykslinu, varð það öllum ljóst, að blöð geta gegnt lykilhlutverki við að upplýsa fólk um það, sem valdamenn vilja, ranglega, að fari leynt. Það er ljóst, að til þess að fjölmiðlar geti gegnt þessu hlutverki sinu verða þeir að njóta ákveðinna réttinda og ákveðinnar verndar. En á hvern hátt varð það lesendum Dagblaðsins og þjóð- inni að gagni, að það blað varð öllu fyrra til að greina frá játn- ingu konunnar, en aðrir fjölmiðl- ar? Voru þegnarnir eitthvað bet- ur settir með það að vita það deg- inum fyrr að konan hefði með- gengið? Nei, auðvitað ekki, nema einhver ætli að halda þvi fram að lögreglan hafi ætlað að halda játningunni leyndri að eilifu. Staðreyndin er auðvitað sú, að eini aðilinn, sem var betur settur með þessa frétt Dagblaðsins, var Dagblaðið. Eflaust hefur þessi frétt selt blaðið betur en endra- nær, enda leikurinn eflaust til þess gerður. Það er auðvitáð ósköp ánægjulegt til þess að vita, að blessað blaðið selst. Það efast enginn um að til að þjóna sinum tilgangi verða fjöl- miðlar að hafa ákveðið frelsi og njóta ákveðinna réttinda. Það er hinsvegar þessvegna óhjákvæmi- legt. að það frelsi og þau réttindi verði notuð i öðrum tilgangi en þau voru upphaflega veitt. Þagall vonar, framtiðarinnar vegna, að Dagblaðið vinni málið, fyrir prentfrelsið i landinu. Það er hinsvegar leiðiníegt að prófmálið þurfi endilega að vera þetta. Og Dagblaðið má jarma á forsiðum og innsiðum að eilifu út af þessu máli, það fær enga samúð. —Þagall NMPU-þing á Islandi Ákveðið hefur verið að næsta þing Nordisk Musikpedagogisk Union, sem eru samtök norrænna tónlistaruppalenda, verði haldið á Islandi dagana 5.—11. júli i sumar. — Þingið verður haldið i Reykjavik með aðsetri i Hagaskóla, en fyrirlestrar og tón- leikar verða viða i borginni. Þeir aðilar sem standa að þessu þingi af íslands hálfu, eru: Tón- menntakennarafélag Islands, Félag tónlistarkennara, Kennaradeild Félags islenskra hljómlistarmanna og Samtök tónlistarskólastjóra. Ennfremur munu Kennaraháskólinn og Norræna húsið leggja sitt af mörkum til þess að gera kleift að halda þingið hér a’ landi, að ógleymdum hlut rikis og borgar. Eitt megin viðfangsefni þingsins að þessu sinni verður að kynna islenska tónlist fyrir erlendu gestunum. En þeim er svo ætlað að kynna þau verk, sem henta fyrir nemendur i heimalöndunum. Nordisk Musikpedagogisk Union er aðili að alþjóðlegum samtökum um tónlistarfræðslu, International Society for Music- education (ISME). Norræna sambandið heldur þing annað hvort ár, þegariekkii eru stór alþjóðleg þing á 'vegum ISME Siðasta ISME-þing var haldið i Póllandi, og tóku nokkrir islenskir tónmenntakennarar þátt i þvi sl. sumar. Siðasta norræna þingið var hins vegar i Finnlandi 1979 og þar áður i örre- bro i Sviþjóð, en nú er röðin komin að Islandi að halda þingið. Dálitill hópur islenskra tón- menntarkennara hefur jafnan sótt þessi þing að staðaldri, en nú eru hæg heimatökin fyrir islenska kennara að fjölmenna og kynnast starfsbræðrum sinum erlendis. fslandskynning á hótel d’Angleterre 1 tengslum við heimsókn forseta Islands til Danmerkur beittu Otflutningsmiðstöð iðnaðarins, Ferðamálaráð, Sam- band búvörudeild og Flugleiðir sér fyrir kynningu og móttöku á Hótel d’Angleterre 28.02. siðast- liðinn milli 12.00 og 14:00. Kynning var fyrst og fremst haldin fyrir danska viðskipta- menn tslendinga, sem bæði versla með vörur frá tslandi svo og veita þjónustu, bæði til Islands og á íslandi. Þá var og boðið miklum fjölda blaðamanna, sem annars vegar rita um fatnað, tisku og mat, og hins vegar um ferðamál. Sendiráð tslands i Kaupmanna- höfn veitti verðmæta aðstoð og tóku sendiherrahjónin á móti gestum, en sendiherra ávarpaði samkvæmið. Forseti Islands, Vigdis Finnbogadóttir, heiðraði samkvæmið, með nærveru sinni og fyrir bragðið hafði kynningin alveg sérstakt gildi, sem er óneitanlegtfyrir alla aðila sem að málinu stóðu svo og fyrir útflytjendur sjálfa. bolabAs „Stalín er ekki I Selfossbió” segir í Dagblaðinu i gær. Við megum kannski búast við framhaldsgreinum um hina ýmsu staði, þar sem Stalín fyrirfinnst ekki, svo sem, „Stalin er ekki i þinghúsinu”, „Stalin er ekki i Hallgrims- kirkju” og svo framvegis.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.