Alþýðublaðið - 06.05.1981, Qupperneq 1
alþýðu- Milli steins og sleggju „Forsendur meirihlutans eru afturhald og UppgjÖf” Sjá viðtal bls. 2-3
maoio ??» Sjá leiðara bls. 2 Segir Davið Oddsson um nýja skipulagið
/vuovikudagur 6. maí 1981 öx TunaZT^rgT
„Með aðgerðum sínum
ríkisstjórnin endanlega
ekið út af sporinu”
— segir Sighvatur Björgvinsson
um „aðhaldslögin”
„Þingflokkur Alþýðuflokksins
sat hjá, einfaldlega vegna þess að
við viljum ekki koma i veg fyrir
að rikisstjórnin fái stefnu sina
samþykkta með lögum á Alþingi.
Við hétum þvi að greiða fyrir
meðferð málsins og stóðum við
það. Þetta þýðir hins vegar ekki
að við séum sammála stefnu, eða
stefnuieysi, rikisstjórnarinna-r i
efnahagsmálum. Fjarri þvi.”
Þettá sagði Sighvatur Björgvins-
son, formaður þingfiokks Alþýðu-
flokksins, i samtali við Alþýðu-
blaðið um afstöðu flokksins til
efnahagsaðgerða rikisstjórnar-
innar.
Sighvatur sagði ennfremur, að
aðgerðirnar 1. mai bæru svip að-
gerðanna sem rlkisstjórnin
boðaði á gamlársdag. Þetta
frumvarp væri samið án sam-
ráðs við þær sérfræðistofnanir
■«em Alþingi og rikisstjórn hafa
sér til ráðuneytis I efnahagsmál-
um. 1 öðru lagi væru aðgerðinrar
kynntar i þann mund sem
samþykkja ætti þær og i þriðja
lagi fælist i þeim að rikisstjórnin
gæti ekki komið sér saman um
eitt eða neitt i efnahagsmálum.
— Aðgerðir þær sem rikis-
stjórnin hefur boðað á þessu ári
bera ekki með sér heildarstefnu-
mótun i efnahagsmálum” sagði
Sighvatur,” og það kemur fram, I
einstökum málaflokkum, að
menn eru sammála um að eitt-
hvað þurfi aö gera, en eru i
grundvallaratriðum ósammála
um það hvernig staðið skuli að
framkvæmd mála.” Sighvatur
nefndi dæmi máli sinu til stað-
festingar. Rikisstjórnin væri
sammála um aö hneppa allt i svo-
kölluö „timasett veröhækkunar-
mörk”. Stjórnarherrarnir hefðu
hins vegar ekki komiö sér saman
um hver þau mörk ættu að vera,
auk þess sem gera mætti ráð fyrir
verulegum frávikum frá þessum
mörkum, a.m.k. ef marka mætti
orö ráðherra. Ekkert væri ennþá
ákveðið hvernig staðið skyldi aö
framkvæmd hækkunar bindi-
skyldu. Ekkert samráð hefði ‘
verið haft við stjórnendur Seðla-
banka Islands vegna þessa máis.
Ekkert lægi fyrir um það hvort
rikisstjórnin ætlaði sér aö mis-
muna innldnsstofnunum eöa ekki,
en margt benti til aö svo yrði.
Þannig væri þetta frumvarp allt
þegar betur væri að gáð. Ekkert
ákveðið, annaö en aðleggja fram
á Alþingi frumvarp. Efni frum-
varpsins, eða áhrifagildi aðgerð-
anna skipti greinilega minnsta
máli. „Rikisstjórnin hefur lagt á
þaö ofurkapp að koma þessu máli
I gegn, þrátt fyrir aö sýnt hafi
verið fram á hversu haldlitlar að-
gerðirnar séu. Alþýðuflokkurinn
ætlar sér ekki að standa i vegi
fyrir þvi að rikisstjórnin komi
þessu frumvarpi I gegn. Rikis-
stjórnin ber ábyrgð á þessu frum-
varpi. Viö leggjumst ekki gegn
afgreiöslunni, en við erum langt
frá þvi aö vera sammála efni
frumvarpsins, enda er það ekk-
ert. Hvorki fugl né fiskur,” sagði
Sighvatur Björgvinsson.
Sighvatur sagði ennfremur aö
hér væri á feröinni áframhald
svokallaörar veröstöðvunar sem
hefði veriö i gildi s.l. tiu ár. Allir
vissu að þessi verðstöðvun væri
hefur
Sighvatur Björgvinsson
orðin tóm. Aðspurður sagðist Sig-
hvatur ekki vera á móti tima-
bundinni verðstöðvun, ef ákvörð-
un um hana væri tekin á þeim
grundvelli að viötækar efnahags-
aögeröir ættu að fylgja i kjölfarið.
Þannig væTi þessu ekki fariö nú.
VerðstÖðvuninni nú væri helzt
að likja við stiflu i á, nærri upp-
tökunum. Með verðstöðvun væri
mögulegt að koma i veg fyrir
verðhækkanir i ákveðinn tima.
Fyrr en siðar brysti stiflan, og
verðhækkanir og verðbólga rykju
upp Uröllu valdi. Sighvatur sagði,
að ekkert benti til annars en að
svo myndi fara að þessu sinni.
Eftir f jóra til fimm mánuði færi
allt af stað aftur.
Sighvatur var spurður að þvi
hvort rlkisstjórnin gæti á ein-
hvern hátt komist hjá þvi að þetta
endurtæki sig. Sighvatur sagði:
„Ég held ekki. Eg held að rikis-
stjórnin hafi nU þegar lokað svo
mörgum dyrum að hUn muni ekki
geta hindrað margfalt aukna
verðbólgu siðari hluta ársins. NU
þegar hafa fjárlög verið afgreidd.
Ekkert I þeim bendir til þess að
ríkisstjórnin hafi haft nUverandi
aðgeröir i huga, þegar hUn samdi
og lét samþykkja fjárlagafrum-
varpið. Rikisstjórnin hefur á-
kveðið skattana. Með þvi hefur
hUn gengið svo á þolinmæði laun-
þega, aö þeir veröa ekki tilbUnir
til-að axla frekari byrðar. Rikis-
stjórnin hefur ákveðið
niðurgreiöslur.
Ekkert bendir til þess
Verkalýðs- og sjómanna-
félag Bolungarvíkur
50 ára
Eins og greint var frá i
1. maí blaðinu varð
Verkalýðs- og sjómanna-
félag Bolungarvíkur 50
ára í þessum mánuði. Af-
mælisins var minnst með
samkomu í Bolungarvik
2. maí s.l.- Þar voru
mættir margir þeirra
sem stofnuðu félagið á
sínum tíma, auk sér-
stakra gesta sem boðið
var til hátíðarinnar sér-
staklega. Félaginu voru
gefnar nokkrar gjafir í
tilefni af afmælinu og
voru þær afhentar við
virðulega athöfn. Hér má
sjá þá Karvel Pálmason,
formann. Verkalýðs- og
sjómannafélags Bol-
ungarvíkur, Ásmund Stef-
ánsson forseta ASí og
Hannibal Valdemarsson
sem átti þátt í stofnun
félagsins fyrir fimmtíu
árum síðan. Nánar
verður greint f rá hátíðar-
höldunum í Bolungarvík
síðar í vikunni.
Mjög
góðir fundir
a
Austurlandi
Dagana 2. og 3. mai voru
haldnir fundir á vegum Al-
þýðuflokksins á Seyðisfirði, á
Egilsstöðum og á Eskifirði.
Á'fundinUm mættu Kjartan
Jóhannsson, formaður Al-
þýðuflokksins, Kristin Guð-
munásdffttir, formaður Sam-
bands Alþýðuflokkskvenna og
Erling Garðar Jónasson, for-
rnaður kjördæmisráðs i
Austurlandskjördæmi.
Kjartan hafði framsögn um
stjornmálaviðhorfið og stöðu
efnahags- og atvinnumála,
Kristin f jallaði um flokks-
starfið og málefni flokksfélag-
anna en Erling Garðar rakti
einkanlega mál sem sérstak-
lega vörðuðu Austurland. A
fundinum urðu liflegar um-
ræður og frjó skoðanaskipti og
rikti ánægja með fundina.
Stjórnarfrumvörp um nýjan iðnrekstur:
i
Þrjár verksmiðjur
gagnið fyrir 1985
Fram liafa verið lögð á Alþingi
þrjú stjórnarfrumvörp um nýjar
verksmiðjur, sjóefnaverksmiðju,
stálverksmiðju og steinullarverk-
smiðju, þar sem rikisstjórninni er
heimilað að taka þátt i stofnun og
rckstri þeirra. Gert er ráð fyrir
þvi að þátttaka rikissjóðs i þess-
um fyrirtækjum verði bæði með
þeim hætti aö lagt verði fram fé
úr rikissjóði, veittar verði rikis-
ábyrgðir og felid niður aðflutn-
ingsgjöld og toiiar af vélum og
tækjum. Verksmiðjurnar munu
allar hefja framleiðslu fyrir árs-
lok 1985, ef áætlanir standast.
Frumvarp um sjóefnavinnslu
gerir ráð fyrir 40 þús tonna salt-
verksmiðju á Reykjanesi, þar
sem rekin hefur verið tilrauna-
verksmiðja frá áriby 1978.
Eir.nig er gert ráð fyrir þvi, að
verksmiðjan framleiði önnur efni
er til falla við saltvinpsluna.
Framkvæmdir munu heíjast i ár
að 8000 tonna verksmiðju, ef
heimild Alþingis fæst og mun hún
siðan verða stækkuð i allt að
40.000 tonn ef markaðsaðstæður
reynast hagstæðar á komandi
árum. Aætlaður stofnkosnaður er
nálægt 160 milljónum króna, en
þá er miðað við verksmiðjuna
fullgerða. Fimmtiu manns munu
vinna i sjófefnaverksmiðjunni
þegar hámarksframleiðslu
verður náð.
I frumvarpi rikisstjórnarinnar
um stofnun og rekstur stál-
bræðslu kemur fram, að rikis-
sjóður hyggst leggja fram allt að
40% af hlutafé' fyrirtækisins.
Almenningi, einstaklingum og
fyrirtækjum verður siðan gefinn
kostur á að eignast 60% i fyrir-
tækinu. Framleiðsla fyrirtækis-
ins, steypustyrktarstál verður
eingöngu til að mæta innan-
landsþörfum, eöa nálægt 13000
tonnum árlega i byrjun.
Framlög rikisstjórnarinnar
skv. frumvarpinu veröur i formi
beins fjárframlags að upphæð 12.
m nýkróna sem hlutafé, veitt
verður rikisábyrgð fyrir lánum
og felld verða niður aðflutnings-
gjöld af vélum og tækjum til
verksmiðjunnar. 1 stalbræðslunni
munu starfa milli 60-70 manns,
þegar framleiðsla hefst.
I frumvarpi um steinullarverk-
smiðju er gert ráð fyrir hlutdeild
rikissjóðs iformihlutafjár,allt að
40%. Ekki er kveðið á um stað-
setningu verksmiðjunnar eða
stærð, nema hvað við það miðað,
að annað hvort verði reist stór
verksmiðja, sem byggi á útflutn-
ingi eða minni verksmiðja, sem
verði fyrst og fremst miðuð viö
innanlandsþarfir. Tveir staöir á
landinu hafa eins og kunnugt er
falast 'eftir steinullarverksmiðj-
unni og eru þeir báöir nefndir i
frumvarpinu auk Reykjavikur,
en flutningskostnaöur er lægstur
frá Reykjavik, ef ekki er gert ráð
fyrir aukakostnaði af strandlóð.
Stófnkostnaður 15000 tonna
steinullarverksmiðju verður
nálægt 110 milljónum króna og
starfslið verður. um 70 manns.
Aflþörf er tiltöluléga litil eða um
,5.5 rriW'.' ,
Rikisstjórninni er heimilað skv.
frumvarpinu að leggja fram 14
millj. króna i hlutafé og
veita rikisábyrgð fyrir lánum til
verksmiðjunnar allt að 21 milljón.
Einnig er veitt heimild til að fella
niður aðflutnings- og sölugjöld af
tækjum og vélum til verksmiðj-
unnar.