Alþýðublaðið - 06.05.1981, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 06.05.1981, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 6. maí 1981 3 myndir, sem fram koma i greinargerð Borgarskipulags um Austursvæðin, þar sem gert er ráð fyrir ..blandaðri byggð” ibiíðarlnísa og bygginga fyrir atvinnustarfsemi? Já. ég vil gera miklar athugasemdir við þau vinnubrögð, sem þarna eru viðhöfð. Það er auðvelt að gera eins og þarna er gert að setja skipulag niður á blað og teikna siðan inn á það nokkur grá svæði og segja áð þetta séu at- vinnusvæði. Það fylgir siðan ekki stafkrókur um það hvernig atvinnufyrirtæki eiga að hafa aðsetur þarna, eða nánara skipulag, og við lögðum fram sérstaka bókun um þetta atriði og sama veit ég að skipulags- stjóri rikisins hefur gert: þetta eru auðvitað forkastanleg vinnubrögð. Ég vil leggja áherslu á það að ekki er hægt að marka stefnu með svona vinnu- brögðum. Þegar við Sjálfstæðis- menn lögðum fram Aðalskipu- tagið 1977 var gert ráð fyrir at- vinnusvæðum og það var vand- lega Utfært i smáatriðum, en þessi vinnubrögð eru fyrir neð- an allar hellur. Almennt um það að blanda saman ibúðabyggð og atvinnu- svæðum vil ég segja það, að það er að mörgu leyti æskilegt, þvi með þvi má koma i veg fyrir myndun svokallaðra svefn- borga en það verður þá að vera vandlega unnið og ekki i þeim stilsemnU hefur verið lagður til grundvallar. NU hefur verið haldið fram undanfarna daga að þið Sjálf- stæðismenn hafið forðast að ræða þær forsendur sem liggja að breyttu skipulagi. þ.e. að ihdðum mun ekki fjölga i Reykjavik i þeim mæli sein búist hafði verið við þegar skipulagið frá '77 var samþvkkt. Hvað vilt þU segja um þetta? Það er auðvitað af og frá að halda sliku fram. Ég ræddi til dæmis töluvert um þetta ivið- tali, sem MBL tók við mig daginn, sem skipulagið var samþykkt. Ég tel að þær forsendur sem menn gefa sér fyrir að þurfa ekki að skipu- leggja séu uppgjafar og aftur- haldsforsendur. Ef menn ætla ekki að hafa nægilegt framboð af lóðum, þá náttúrlega fækkar ibúum hér eða fjölgar ekki. 1 skipuiaginu er ekki gert ráð fyrir fjölgun á Stór-Reykja- vikursvæðinu. Þvi er spáð að öll sú fjölgun sem hér verður, um þUsund manns á ári muni færast til nágrannasveitarfélaganna Ut á land eða tilUtlanda. Hvað tvo fyrri möguleikana snertir hefur afar mikið að segja hvernig borgin stendur sig við að bjóða fram lóðir og hins vegar at- vinnuuppbyggingin. A hvorugu sviðinu hefur nokkuð verið aðhafst. Þetta eru eftirárök, sem meirihlutinn kemur nU með til að réttlæta aðgerðarleysið i skipulagsmálum. Þeir eru með þessu skipulagi að segja að hér þurfi ekkert að skipuleggja, þvi að hér muni ekki verða nein fjölgun. Þetta er mjög hættuleg þróun, með þessu eru þeir að ákveða að tekjuháar f jölskyldur eigi að setjast að annar staðar en i Reykjavik. Kn eru tillögur vkkar nú ekki h r e i n s y n darmennska? V i ð I oka a fgr ei ðs I u s kipu I ags i ns lágðirþií fram gamla skipulagið sem valkost. Kru þetta ekki dæmigerðar stjórnarandstöðu- tillögur. sein ekki eru raun- hæfar miðað við breyttar for- sendur'.’Það er náttUrlega alveg makalaust að segja að skipulag, sem lagt var fram i borgar- stjórn '77 eftir rnargra ára undirbúningsvinnu sé bara s y n da r m e n n s k a . öllum flokkum bar saman um það að þær tillögur voru mjög vel unnar og jafnvel Alþýðubanda- lagið viðurkenndi það, þó að þeir væru ekki sammála forsendunum. Það er gjarnan látið þannig með tillögur stjórnarandstöðu að þær séu einungis sýndarmennska af þvi að þær geta ekki fengist sam- þykktar. En tillöguflutningur- inn er viljayfirlýsing frá minni- hlutanum um hvað hann mundi gera ef hann væri i meirihluta. Þetta er engin sýndarmennska heldur yfirlýsing um það hvað við ætlum að gera ef við fáum meirihluta. Sænsk orðuveiting Þann 18. marz siðastliðinn var Sigurjóni Sæmundssyni, ræðis- manni Svia á Siglufirði veitt orðan „Riddari hinnar konung- leeu Norðurstjörnu”, sem veitt er Sænski sendiherrann, frú Ethel Wiklund nælir oröuna i barm Sig- urjóns Sæmundssonar. af Sviakonungi fyrir vel unnin störf og dygga þjónustu i þágu Sviþjóðar. Orðuveitingin fórfram að heimili sænska sendiherrans á Islandi frú Ethel Wiklund að viö- stöddum nánustu ættingjum og starfsmönnum sendiráösins. Sigurjón Sæmundsson hefur verið ræðismaður Svia á Siglufirði frá árinu 1968. Veiðar i þorskanet háðar leyfum Sjávarútvegsráðuneytið hefur nýlega sett reglugerð, þar sem á timabilinu 21. mai til 31. desem- ber 1981 eru bannaðar allar veiðar i þorskfisknet án leyfis ráðuneytisins. Ráðuneytið getur bundið leyfi og úthlutun þeirra þeim skil- yröum, sem nauðsynleg þykja m.a. i þvi skyni að stuðla að auknum gæöum afla og takmarka fjölda eða veiðar einstakra gerða skipa. Aðhaldslögin 1 að hún vilji taka á þeim málum af raunsæi. Sighvatur bætti þvi við, að ýmislegt það sem rikisstjórnin hygðist framkvæma jaðraði við stjórnarskrárbrot, en einmitt það sýndi að rikisstjórnin vissi ekkert um það hvert skyldi halda né heldur hvernig hún ætti að kom- ast á ákvörðunarstað. „Efna- hagsaðgeröirnar nú eru haldlitl- ar, framhald kuklsins frá þvi i ársbyrjun og'munu ekki skila neinum árangri, rikisstjórnin hefur nú endanlega ekið út af sporinu”, sagði Sighvatur Björg- vinsson að lokum. Hrollvekja 4 það vandasama hlutverk að þýöa leikrit Shepards. Shepard þykir skrifa kjarnyrt mál, og verður ekki betur séð, en að Birgi hafi tekizt dável að kom- ast að kjarnanum, án þess aö vera uppáþrengjandi. Enn fáum við að lita samstarf þeirra Stefáns Baldurssonar og Þórunnar Sigriðar. Þau hafa oft gert frábæra hluti, en nú finnst mér eins og finlegur smekkur þeirra og stilbrögð fái ekki full- komlega notið sin. Litiö sviðs- rými takmarkar auövitaö möguleikana, auk þess sem leikgerö Shepards setur þeim ákveöin mörk. Hins vegar hefur leikendum tekizt undir hófstilltri stjórn Stefáns að skapa eftirminnileg- ar persónur. Steindór Hjörleifs- son dró t.d. upp átakanlega mynd af hinum vonsvipta, deyj- andi Dodge. Þó aö hann væri mjög fráhrindandi persóna, þá tókst Steindóri san t aö vekja meö honum samúö. Þvi aö innst inni voru i honum mannspartar þrátt fyrir allt. Hanna Maria Karlsdóttir er hætt aö koma okkur á óvart. Hún skilar hverju hlutverkinu á fætur ööru listavel. Shelly er ósköp venjuleg stúlka, en samt veröurhún aðlaöandi i meöför- um Hönnu. Þorsteinn Gunnarsson og Siguröur Karlsson gera sér of mikinn mat úr bæklun persóna sinna. Þar af leiöandi vekja þeir ekki nægilegan áhuga, veröa of einhliöa. Þorsteinn reynir þó aö draga fram hið mannlega i Tilden, en Siguröur er ómennsk- ur i hatri sinu. Hjalti náði vel aö lýsa vonbrigöum unga mannsins, drykkjulátum og algerri uppgjöf i lokin. Margrét ólafsdóttir og Guömundur Pálsson áttu gott samspil I seinni hlutanum, en i upphafi virtist Margrét óörugg og náöi ekki verulegum tökum á þessu örlagakvendi. Niöurstaöan er sem sagt sú, aö ádeila höfundar hafi falliö i skuggann af hrollvekjunni, sem var svo Ismeygileg, aö heitt kaffi dugði ekki til aö hrista hana af sér. Bryndls. FLOKKSSTARF Alþýðuflokksfélagar Munið að tekið er á móti greiðslum félagsgjalda á skrif- stofnnni Ilverfisgötu 8—10 alla virka daga frá kl. 14—18. Aðalfundur Alþýðuflokks- félags Húsavikur Aðalfundur Alþýðuflokksfélags llúsavikur vcrður haldinn i llótel llúsavík. fimmtudaginn 7. þ.m. kl. 20:30. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. UTBOD Rafmagnsveitur rikisins óska eftir tilboð- um i stækkun aðveitustöðvar að Eyvindará við Egilsstaði. Útboðið nær til byggingarhluta stöðvarinnar, þ.e jarð- vinnu, stöðvarhúss og undirstaða fyrir stálvirki, spenna og girðingu. Útboðsgögn verða seld á skrifstofum Raf- magnsveitna rikisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavik og að Dvergaklettum, Egils- stöðum frá og með 29. april 1981 og kosta kr. 100 hvert eintak. Tilboðum skal skila til skrifstofu Raf- magnsveitnanna Laugavegi 118, eða á skrifstofu Rafmagnsveitnanna á Egils- stöðum fyrir kl. 11.00 þriðjudaginn 12. mai n.k. og verða þau þá opnuð. Tilboð sé i lokuðu umslagi merkt RARIK- 81011. Verki á að ljúka fyrir 10. júli 1981. Góð orð duga skammt, Gott fordæmi skiptir mestu máli. I UMFEROAR 1 RÁD Reykjavikurhöfn Reykjavikurhöfn vinnur að þvi að gera byggingarhæfar lóðir á tveim athafna- svæðum við höfnina: i. A fyliingu utan Grandagarðs. Lóðir þarna eru ætlaðar fyrir fyrirtæki sem tengd eru sjávarútvegi, fisk- vinnslu og þjónustu við útgerð II. Svæði við Skútuvog við Kleppsvík: Þar eru lóðir hugsaðar fyrir fyrirtæki, sem áherslu leggja á skipaviðgerðir. Þeir sem áhuga hafa á að koma til greina við lóðaúthlutanir á svæðum þessum, sendi skriflegar umsóknir til Hafnar- skrifstofunnar Hafnarhúsinu v/Tryggva- götu fyrir 20. mai n.k. Allar nánari upplýsingar veitir undirrit- aður. Hafnarstjórinn i Revkjavik

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.