Alþýðublaðið - 16.05.1981, Page 1
Hnefinn og rósin
Málgagn sambands ungra jafnaðarmanna
Nokkur atriði úr stefnuskrá ungra jafnaðarmanna
Samband Ungra Jafnaöar-
manna er stjómmálahreyfing
sem starfar á grundvelli jafn-
aðarstefnunnar, sem byggir á
hinni alþjóðlegu hugmyndafræði
sósialismans, og er i skipulags-
legum tengslum viö Alþýðuflokk-
inn. Jafnaöarmenn berjast fyrir
frelsi, jafnrétti, og bræöralagi,
gegn einræði, kúgun, og auðvaldi.
Jafnaðarstefnan felur i sér hug-
sjónir lýöræðis, og félagshyggju.
Meö félagshyggju er átt við, að
framleiðsla og dreifing lifsgæða
mótist af samvinnu og samstööu.
Með lýðræði er átt við rétt allra
manna til þátttöku i ákvörðunum,
sem varða þá sjálfa sem félag i
heild.
Félagshyggja og lýðræði eiga
sameiginlega grundvallarhug-
sjón. Sú hugsjón er jafnrétti.
Jafnaðarstefnan er jafnréttis-
stefna, sem berstgegn forréttind-
um i hvaða mynd sem þau birtast
Hún er tæki þeirra sem engra for-
réttinda njóta, i baráttunni gegn
forréttindahópunum. Sú stétt sem
jafnaðarmenn berjast gegn, er
hin samtvinnaða og samtryggöa
valdastétt, sem ræður fyrir
fjármagni og hlunnindum, og
misnotar aðstöðu sina I eigin
þágu, en býr við takmarkað lýð-
ræðislegt aöhald.
SUJ er stjórnmálahreyfing sem
vill efla jafnrétti, mannúð, og
mannréttindi, og stuðla að efna-
hagslegum framförum i þágu
þjóðarheildarinnar. SUJ telur að:
— Allir landsmenn eigi rétt til at-
vinnu og menntunar.
— Allir eigi rétt til heilsugæslu og
læknishjálpar.
— Allir eigi rétt til að bera mál
sin undir dómstóla.
— Ailir eigi rétt til framlaga úr
almannatryggingakerfinu,
þegar út af ber.
— Allir eigi rétt til lifeyris þegar
aldurinn færist yfir.
— Rikja eigi fullur jöfnuður á
sviði mannréttinda og
persónufrelsis, svo sem með
jafnrétti kynja, jafn kosninga-
réttur, jafn réttur allra til aö
mynda sér skoðanir og berjast
fyrir þeim.
— Blandaö hagkerfi henti
þjóðinni best, breyta beri til
frambúðar auðlegðar og
valdahlutföllum alþýðunni I
hag, það er að atvinnuvegirnir
verði reknir i formi einka-
reksturs, samvinnureksturs og
opinbers reksturs, en þróa beri
atvinnulýðræöi innan allra
rekstursforma.
— Standa beri vörð um stjórnar-
farslegt og efnahagslegt sjálf-
stæði þjóöarinnar.
A alþjóðavettvangi ber Islend-
ingum að vinna að friði meðal
þjóða heims, styðja snauðar þjóö-
ir, gæta þess að réttur smáþjóða
verði eigi fyrir borð borinn, og
stuðla að aukinni samstöðu allra
þjóða.
Fyrir ofangreinum mark-
miðum, og eim sem á eftir fara i
einstökum köflum stefnuskrár
þessarar mun SUJ berjast í kom-
andi framtið.
V. ísland i
samfélagi þjóðanna
Það er kjarni jafnaðarstefn-
unnar að berjast gegn hverskonar
ranglæti. Boðskapur hennar er
friöur um viða veröld, frelsi öll-
um til handa, jafnrétti i skiptingu
lifsgæða, og bræöralag með
mönnum og þjóöum.
Með alþjóðasamstarfi skal
vinna að friði i heiminum, og^aö-
stoð viö þær þjóöir sem eru
afskiptar I efnahagsmálum, eða
búa við órétt i stjórnmálum.
Utanrlkisstefna tslands skal
markast af metnaöi til að varð-
veita fullveldi þjóöarinnar, og
lýðræðislegt stjórnarfar. Gæta
verður efnahagslegs og menn-
ingarlegs sjálfstæöis þjóðarinnar.
Nauösynlegt er að vinna að vin-
samlegum samskiptum við allar
þjóðir I þágu friðar i heiminum.
Styðja ber lýðræðislegar frelsis-
hreyfingar kúgaðra þjóöa, og sem
jafnasta skiptingu á framleiðslu
jarðar milli allra ibúa hennar.
— Utanrikisstefnan skal byggjast
á þátttöku i Sameinuðu
þjóðunum og norrænu sam-
starfi.
— Tryggja skal sjálfstæði og
fullveldi Islensku þjóðarinnar,
öryggi hennar og algjör yfir-
ráð yfir landi, landgrunni, og
hafinu yfir þvi.
— SUJ er mótfalliö hverskonar
þátttöku og samstarfi i
auðvaldsefnahagsbandalög-
um, t.d. EBE.
öryggismál
Samband Ungra Jafnaöar-
manna telur að þjóöin tryggi best
öryggishagsmuni sina með þvi að
lýsa yfir hlutleysi, og stuðli
þarmeð að afvopnun og friði i
heiminum. Af þessu leiöir að
sambandið er þeirrar skoðunar,
að landið eigi ekki að taka þátt i
neinskonar hernaöarbandalögum
og berst fyrir afnámi þeirra, enn-
fremur er SUJ alfarið á móti
nokkurskonar hernaðarsamvinnu
landsins við aðrar þjóðir. Efla ber
Sameinuðu þjóöirnar til að
tryggja vopnlausan frið i heimin-
um.
Stuðningur við
þróunarlönd
SUJ vill að þróunarrikin verði
studd baráttu sinni fyrir efna-
hagslegu og pólitisku sjálfstæði.
SUJ er alfarið á móti aröráni riku
þjóðanna og fjölþjóðafyrirtækja á
náttúruauðlindum og vinnuafli
fátæku þjóðanna. SUJ styður
sókn frelsishreyfinga gegn
innlendri og erlendri harðstjórn,
og vill stuðla að samstööu smá-
þjóöa til verndar rétti sinum.
— Þjóðinni ber að greiða 1% þjóö-
ártekna til þróunarhjálpar.
— SUJ telur, að tslendingum beri
að styðja alþjóðlega nýtingu
úthafsins, svo að það veröi
þáttur i félagslegri baráttu
mannkynsins við hungur og
fátækt.
Orku- og iðnaðarmál
Efla skal islenskan iðnað meö
öflugum stuðningi hins opinbera.
— lslenskan iðnað skal fyrst og
fremst byggja á þeim auðlind-
um, og þvi hráefni sem fyrir er
i landinu.
— Hafna ber innflutningi á
erlendu auöhringafjármagni
til fjárfestingar I landinu.
— Byggja skal orkunotkun
þjóðarinnar sem mest á
innlendn orku, og skal þvi
leggja áherslu á hraöa nýtingu
vatnsafls og jarðvarma.
— Taka skal fullt tillit til náttúru-
verndar og byggðasjónarmiða,
þegar orkuöflunar- og iönaöar-
möguleikar eru metnir.
Verzlun
Stefnan i verzlunarmálum skal
iryggja hag neytenda varðandi
vöruverð, vöruúrval, og >öru-
vöndun.
— Til þess að tryggja hag
neytenda skulu stjórnvöld hafa
heimild til að beita hverjum
þeim aögeröum, sem best
henta i hverri verzlunargrein.
—-Þjóðnýta skal miliiliðaverzlun
i innflutningi.
— Verðskyn neytenda skal eflt
með virkri upplýsingamiðlun
um verðlag og vörugæöi i sam-
vinnu vi samtök neytenda.
Málefni barna og
unglinga
— 011 vöruverö, vöruúrval, og
börn skulu eiga kost á
daggæslu.
— Séð skal til þess að alltaf séu
íyrir hendi friðuð athafna-
svæðifyrir börn.
— Börn og unglingar skulu ávallt
hafa aðstööu til hollra
tómstundaiðkana.
— Æskulýðshreyfingum skal
tryggt nægilegt fjármagn til
starfssemi sinnar.
Húsnæðismál
Stefnan i húsnæöismálum skal
taka mið af þvi aö gott og hæfilegt
húsnæði er eitt af frumskilyrðum
mannlegs Hfs, og skal þvi tryggja
öllum viðunandi húsnæði á
viðráðanlegum kjörum.
— Löggjöf um leiguhúsnæði skal
tryggja hagsmuni leigjenda
hvað varöar leigutima og
leiguupphæð. <
— Hið opinbera skal annast
fasteigna viðskipti fyrir
sanngjarnt verö.
— Löggjöf um sölu og kaup
fasteigna, skal tryggja hags-
muni kaupenda og seljenda.
— Reistar skulu með félagslegu
átaki fbúðir fyrir þjóðfélags-
hópa meö sérþarfir.
Alþingi
og stjórnskipan
— Stjórnarskráin skal tryggja að
þingstyrkur stjórnmálaflokka
sé i fullu samræmi við kjör-
fylgi þeirra.
— Kjósandi skal geta valið á milli
frambjóðenda á þeim lista sem
hann kýs.
— Stjórnmálaflokkar sem ná 4%
greiddra atkvæða hljóti
fulltrúa á þingi.
— Kosningaaldur skal miðast við
18 ára aldur.
— Alþingi skai starfa i einni deild.
— Hlutverk þjóðaratkvæða-
greiðslu i stjórnskipan lands-
ins skal ákveöiö með löggöf.
— óháð umboðsnefnd Alþingis
skal rannsaka umkvartanir
fólks, sem telur sig órétti beitt
i samskiptum við opinbera
aðila.
'H*..°PÍnbera Skal annast fasteignaviöskipti fyrir s^nngjarnt
/ ' ,
.Greiða skal sömu laun fyrir sömu vinnu.”
„SUJ telur að landið tryggi best öryggis-
hagsmuni sina með að lýsa yfir hlutieysi
og standa utan hernaðarbandalaganna.”
....Jafnaðarstefnan er baráttutæki launþega gegn elnokun
og arðráni i hvaða mynd sem sliktbirtist, en berst fyrir aukn-
um réttindum og bættum kjörum launþegum til handa.”
„011 börn skulu eiga kost á daggæsiu