Alþýðublaðið - 16.05.1981, Page 2

Alþýðublaðið - 16.05.1981, Page 2
2 Laugardagur 16. maí 1981 Þorvaldur Viktorsson: Lengi getur Verksvið almennrar stjórn- málanefndar SUJ er að fjalla um stjórnmál innanlands hverju sinni. Nefndin heidur fundi eftir föngum og eru þá tekin fyrir þau málefni sem efst eru á baugi þá stundina. Einnig heldur nefndin ráðstefnur um ákveðna máia- flokka, efnahagsmál, húsnæðis- mál, mennta- og mcnningarmál svo eitthvað sé nefnt. Stjórnmál um þessar mundir einkennast af duglausri og sundurlyndri rikisstjórn. Birtist dugleysi stjórnarinnar einkum i efnahagsmáium, en verðbólgan æðir áfram og lifskjör i landinu hriðversna með hverjum degin- um sem líður. Hið slæma efna- hagsástand bitnar verst á ungu fólki, sem er að komast yfir eigið húsnæði og á elli- og örorkulíf- eyrisþegum, sem er ætlað að framfleyta sér á sultarlaunum. Rikisstjórnin er máttlaus gagn- vart efnahagsvandanum og beitir helst skammtimaaðgerðum, sem oftast verða til þess að vandinn vex siðar. Uppáhaldsaðgerðir stjórnarinnar er að svikja laun- þega um umsamdar kjarabæt- ur og hefur kaupmáttur sjaldan verið lakari en nú. Rikisstjórnin hefur enga heildarstefnu en helsta markmið hennar er að sitja sem lengst i ráðherrastólun- um. 1 því tilliti er Framsóknarflokk- urinn tilbúinn að sitja i hvaða rikisstjórn, að þvi tilsettu að forn- eskjuleg landbúnaðarstefna flokksins haldist. 1 siðustu kosningum boðaði Framsókn fagurlega niðurtalningu verð- bólgunnar. í rikisstjórninni hefur þetta stefnumið breyst i niður- talningu lifskjara og er ekki að sjá að Framsóknarmenn skamm- ist sin fyrir þessi svik við kjós- endur. Mellan og Alþýöubanda- lagiö Alþýðubandalagið, sem eitt sinn var hliðholt verkalýðnum, fórnar hverju sem er fyrir stólana og hefur kastað helstu stefnumið- um sinum fyrir róða. 1 efnahags- málum er Alþýðubandalagið orð- ið sama sinnis og ihaldið, að of há laun verkamanna sé meginorsök verðbólgunnar. Helsta verkefni Alþýðubandalagsins i rikisstjórn- inni er að fá forkólfa sina i verka- lýðshreyfingunni til að samþykkja kauplækkun og hefur Nýjar islenskar bækur og bækur fyrri ára Litið inn — CSAn w|Uil er sögu rikari Sendum i póstkröfu um allt land Markadshús Bókhlöðunnar Laugavegi 39 — Simi 16180 vont þvi tekist lygilega vel að draga verkalýsforustuna á asnaeyrun- um. Hermálið er Ur sögunni og hlæja forystumenn Alþýðubanda- lagsins að þeim herstöðvaand- stæðingum, sem viljafylgja þess- ari stefnu eftir. Á viðreisnarárun- um réðst Þjóöviljinn daglea á Alþýðuflokkinn fyrir samstarf við Sjálfstæðisflokkinn og var Alþýðuflokkurinn fyrir bragðið kallaður mella Ihaldsins. NU er Alþýðubandal agið i hlutverki mellunnar og leikur það dável. Sjálfstæðisflokkurinn er marg- klofinn og er pólitiskt séð i lama- sessi. I þvi flokksræskni ræða menn frekar brotareikning en pólitik. Fara þar fram háalvar- legar umræður um hvaða brot sé stærst og i hvaða broti þessi og hinn er. Erfitter að henda reiður á hvaða stefnu þessi ræfilsflokkur hefur. Þó er ljóst að Gunnarsbrot- ið hefur það eitt að leiðarljósi að sitja sem lengst i rikisstjórninni. Að öðru leyti virðist stefna járn- frUarinnar i Bretlandi kærust öll- um brotabrotunum og kemur það ekki á óvart þvi það var stefna Sjálfstæðismanna i siðustu kosn- ingum. Allir hafa séð hvernig járnfrUin hefur lagt efnahag Breta i rUst. Þar er svipað at- vinnuleysi og var á kreppuárun- um. Ef ræfilsflokknum tækist að koma þessari stefnu I fram- kvæmd yrði þjóðfélagslegt mis- rétti i landinu miklu meira en nU er. Fegursta stjórnmálastefn- an Stjórnarandstaða Alþýðu- fiokksins hefur verið ábyrg og markviss en ekki nægilega hvöss til að ná eyrum landsmanna. Þingmenn flokksins hafa starfað ágætlega og flutt mörg góð mál. Þó ereins og vanti sannfæringar- Skyldi ekki vera til neinn skynsamlegur millivegur, strákar? Árni Hjörleifsson: versnað tslenskt verkafólk er orðið langþreytt á langlundargeði verkalýös- forystunnar. kraftinn i gagnrýni þeirra á rikis- stjórnina. En málefnastaða flokksins er nU svo góð, að hefja á stórsókn til sigurs. Til að svo megi verða verður að stórbæta innra starf flokksins. Stefnumál Alþýðuflokksins frá siðustu kosningum eru enn i fullu gildi. Ber þar hæst, að i stað skammtímaaðgerða komi gjör- breytt efnahagskerfi og markviss uppbygging efnahags- og at- vinnumála. Þetta verður best gert á grundvelli áætlunarbU- skapar, þar sem markað er hlut- verk atvinnugreina i framtiðar- mynd þjóðfélagsins. Byggja verður upp sterkt atvinnulif, sem tryggir aukningu kaupmáttar og stöðugleika í verðlagi. Hætta út- flutningi á óarðbærum land- búnaðarvörum. Fella niður tekju- skatt á almennum launum. Stór- auka hUsnæðislán og lengja láns- tima svo að fólk geti eignast eigin ibUðir án óhóflegs vinnuálags. Hér eru ekki tök á að nefna fleiri stefnumál Alþýðuflokksins en að lokum minnt á að hann byggir á fegurstu stjórnmála- stefnunni, jafnaðarstefnunni, hugsjóninni um frelsi, jafnrétti og bræðralag. Frá verkalýðsmálanefnd SUJ Nefndina skipa formaður auk þriggja meðstjórnenda sem kosnir eru á árlegu sambands- þingi S.U.J. einnig eiga sæti I nefndinni meö fullum réttindum varaformaður framkvæmda- nefndar S.U.J. og svo form. S.U.J. í 2. gr. reglugeröar fyrir verka- lýösmálanefndar S.U.J. stendur að nefndin skuli annast alla mála- fiokka er heyra undir verkalýðs- mál fyrir hönd S.U.J. Eitt af verkefnum nefndarinnar er að Utbúa drög að ályktun um verkalýðsmál, sem ber að Ieggja fyrir sambandsþing S.U.J. A 33. þingi S.U.J. sem haldið var 1981 var samþykkt ályktun um verkalýösmál, þar sem lýst er áliti ungra jafnaðarmanna til ýmissa þátta verkalýðsmála, svo sem að breyting verði gerð á lánakerfi húsnæöismálastjórnar, þar sem miðað er við að auövelda fólki að eignast sina fyrstu ibúð. (Minna má á frumvarp Magnúsar H. Magnússonar um húsnæðismál). Krafist var þess að forystu- menn verkalýðshreyfingarinnar stæðu vörð um þá frumskyldu sina að bæta kjör þeirra, sem minnst hafa og verst eru settir, en reynsla undanfarandi ára sýni að þrátt fyrir fögur orð um bætt kjör hinna lægst launuðu, hefur lág- launafólk ávalt borið skarðastan hlut frá boröi, þegar upp hefur verið staðið. Bent var á að i þvi veröbólgu- flóði sem tröllriðið hefur öllu efnahagslifi á Islandi undanfarin ár, og sist viröist i rénum, er aug- Ijóst að krónutöluhækkun launa ein og sér er ekki einhlit til þess aö ná fram launajöfnuði. Eins var krafist sömu réttinda til handa félagsmönnum al- mennra lifeyrissjóða og rikis- valdið hafði samiö um við starfs- menn sina. Alyktað varum málefni og rétt- indi aldraðra, öryrkja og þroska- heftra til að tryggja þeim sóma- samleg lifsskilyröi. Vakin var athygli á að tafalaust þyrfti að breyta fyrirkomulagi kosninga i verkalýðsfélögunum, og persónukosning tekin upp, en ekki viöhöfð sú ólýðræðislega listakosning sem nú tiðkast, og staöið hefur í vegi fyrir eðlilegri endurnýjun i forystuliðinu. 1 framhaldi af þessu er rétt að minnast þess að Vilmundur Gylfason hefur lagt fram frum- varp til laga um breytingar á lög- um um stéttarfélög og vinnu- deilur, en I lögum þessum er meðal annars stuðlað að meiri virkni launþega, — þvi gert er ráð fyrir að stofnuð séu starfsgreina- félög á vinnustöðum með 25 starfsmenn eða fleiri, og séu þau samningsaðili allra launþega hjá sama atvinnurekanda. Um frum- varp Vilmundar eru skiptar skoð- anir, en ljóst er að það er engin algild lausn, en er þó litið skref á þeirri braut að breyta verkalýös- félögunum i virkari hreyfingu. Það er ljóst að starfsvið verka- lýðsmálanefndar getur verið á ýmsan hátt f jölbreytilegt ef öllum öngum verkalýðsmála á að vera sinnt sem skyldi, en það er þó megin verkefni nefndarinnar aö stuðla að auknum áhuga ungs fólks á verkalýðsmálum, og að störf þeirra innan verkalýðs- hreyfingarinnar séu i anda jafn- aðarstefnunnar. Árni Hjörleifsson form. verkalýðsmálanefndar Hradfrystistöðin i Reykjavik

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.