Alþýðublaðið - 16.05.1981, Qupperneq 3

Alþýðublaðið - 16.05.1981, Qupperneq 3
Laugardagur 16. maí 1981 TAKIÐ ÞATT f PðLITfSKU STARFI Stjórnmál eru i hugum margra, eitthvað ljótt og svik- samlegt. Sömuleiðir lita ýmsir svo á, að stjórnmálamenn séu upp til hópa, metorðagjarnir eiginhagsmunaseggir, sem hugsi um litið annað en maka krókinn fyrir sig og sina. Af þessum sökum heyrist ekki ósjaldan: „Pólitik. Ég vil ekki hugsa um hana. Ég vil ekki koma nálægt slíkum viðbjóði”. Hvað sem annars má um stjórnmálsegja, eða þá sem þar eru fremstir i flokki, þá verður þvi ekki á móti mælt, að pólitik er hreyfiafl þeirra hluta sem gerast i tilverunni. begar þú ferð út i búð og kaupir mjólk, þá er það stórpólitisk aðgerð. Þú ert þar með orðinn þátttakandi i pólitiskri hingiðu, hvort sem þér likar betur eða ver. Þú ert t.a.m. orðinn þátttakandi i land- búnaðarpólitikinni, verðlags- pólitikinni, verðbólgunni, efna- hagsmálaþróuninni o.s.frv. Þú ert nefnilega ab taka þátt i póli- tik nánast hvenær sem þú segir eitthvað, hvenær sem þú gerir eitthvað. Það er af og frá, aö þln þátttaka miöist einungis við að, mæta með hangandi hendi á kjörstað reglulega og krossa við einn eöa annan flokk, sem þú ert ef til vill sáróánægður með. Þegar þú bölvar þannig póli- tikinni og stjórnmálamönnun- um án þess að risa upp á aftur- fæturna og gerast virkur þátt- takandi og meðvitaður. Þú ert þá aðeins að viðurkenna van- mátt þinn og jafnframt að leggja blessun þina yfir núver- andi ástand. Þú ert þar með orðinn samsekur þeirri vitleysu sem þú bölvar. Félagsleg deyfð og áhugaleysi um stjórnmál og gang þeirra, gerir nákvæmlega ekkert annað en það, en undir- strika „status quo” ástand. Þú ert sem sé, óvirkur en þó með- vitaður þátttakandi i stjórnmál- um, ert óánægður með stöðu og gang mála, en styður engu að siður rikjandi ástand. Er hægt að standa sig ver — en þetta? Að sönnu erum við ungir jafn- aðarmenn alls ekki ánægðir með stöðu mála og margt það sem viðgengst i þjóðfélagi nú- timans. Sömuleiðis erum við ekkert allt of ánægðir með sið- ferði allra stjórnmálamanna. Við viljum þvi gera betrum- bætur á þjóðfélaginu og berjast fyrir þeim. Og okkar baráttu- vettvangur er jafnaðar- mennskan, sem byggir á frelsi, jafnrétti og bræðralagi. En það þarf að taka þátt i baráttunni og gefa ekkert eftir til að breytingar sjái dagsins ljós. Það verða allir aö gera. Þú lika. Ungir jafnaöarmenn vilja ýmsar grundvallarbreytingar á þjóðfélaginu. Við viljum þó ekki gera það með valdbyltingu, heldur með starfi og krafti innan hins lýðræðislega stjórnarforms. Ungir jafnaðarmenn vilja koma á efnahagslegum jöfnuði allra þegna þjóðfélagsins. Við mótmælum sérhagsmunapólitik Sjálfstæðisflokksins, sem býggir á þvi að hlaða undir þá sem meira mega sin. Við afneit- um haftastefnu og sveitaróman- SAPAFRONT + ál-forma-kerfið (profilsystem) er hentugt byggingarefni fyrir islenzkar aðstæöur. Einangraðir álformar i útveggi, glugga og útihurðir. óeinangraöir álformar innanhúss. Útlitið er eins á báöum geröunum. I sérstökum leiöbeininga- bæklingi eru upplýsingar um buröarþol, varmaleiðni og hljóö- einangrun álformanna, ennfremur vinnuteikningar, sem léttir arkitektinum störfin. Byggingarefni framtiðarinnar er SAPAFRONT + SAPA — handriðið er hægt að fá i mörgum mismunandi útfærsl- um, s.s. grindverk fyrir útisvæði, iþróttamannvirki o.fl. Enn- fremur sem handrið fyrir veggsvalir, ganga og stiga Handriðiö er úr álformum, þeir eru rafhúöaðir i ýmsum litum, lagerlitir eru Natur og KALCOLOR amber. Stólparnir eru gerðir fyrir 40 kp/m og 80 kp/m. Með sérstökum festingum er hægt að nota yfirstykkið sem hand- lista á veggi. SAPA — handriðiö þarf ekki að mála, viðhaldskostnaður er þvi enginn eftir aö handriðinu hefur veriö komið fyrir. Gluggasmidj an Gissur Símonarson Siðumúla 20 Reykjavík — Simi 38220 tik framsóknar, sem er ekki i takt við timann. Við berjumst gegn hentistefnu Alþýðubanda- lagsins sem byggir á skoðujium gamalla Stalinista annars vegar og kerfiskalla i ráðherrastólum hins vegar. Ungir jafnaðarmenn eru i skipulagstengslum við Alþýðu- flokkinn og styðja hann i hinni pólitisku baráttu. Þrátt fyrir það, fylgja ungir jafnaðarmenn flokknum ekki blint og eru ekki sammála honúm á nokkrum sviðum. Samband ungra jafnaðar- manna er stjórnmálaafl, sem byggir á alþjóðlegri hugsjón: Jafnaðarstefnunni. SUJ hefur þar af leiðandi góö samskipti við bræðrahreyfingar erlendis, enda telja ungir jafnaðarmenn að baráttan fyrir frelsi, jafnrétti og bræðralagi, hljóti að vera al- þjóðleg. Hvers vegna ekki að kynnast nánar starfi félaga ungra jafn- aðarmanna? Punktar úr stefnuskrá SUJ: skal eiga Þjóðin ísland Jafnaðarmenn berjast fyrir lýðræði og vilja að það móti alla gerð samfélagsins. Lýðræði felur i sér rétt allra manna til að móta i samfélagi viö aðra þær ákvarð- anir sem varða þá sameiginlega. Lýðræðisleg stjórnskipun tryggir öllum jafnan rétt til að velja stjórnendur og veita þeim aðhald og jafna möguleika til að taka að sér forystustörf. Lýðræðislegir starfshættir stjórnmálaflokka og almanna- samtaka, réttur til frjálsrar allt félagastarfsemi, og frjáls aðgangur að upplýsingum eru nauðsynlegir þættir lýðræðisþjóö- félags. En á öllum sviðum stjórnmála, stjórnsýslu, og skoðanamyndunar, er nauðsyn- legt að draga úr áhrifum fjármálavaldsins, þvi misskipt- ing þess leiðir til mikillar mis- skiptingar stjórnmálavalds. Stjórnmálaflokkar og verkalýðssamtök — Stjórnmálaflokkum og verka- lýðssamtökum skal tryggt nægilegt fjármagn til starfs- semi sinnar. — Efla skal tengsl SUJ við sam- tök launþega i landinu. — Efla ber fræöslustarf innan verkalýðshreyfingarinnar þannig, að einstaklingurinn innan hennar verði sem hæf- astur til þátttöku i starfi verkalýðsfélaganna. A þann hátt verður best tryggð lýðræðisleg starfsemi verka- lýðshrey fingarinnar. Eignaráð á landinu Þjóðin skal eiga Island allt, gögn þess og gæði, og miðin um hverfis það. — Orkulindir náttúrunnar I fall- vötnum og jarðvarma skulu vera sameign þjóðarinnar. — Eins og þjóðin á sameiginiegan rétt til landsins og gæða þess, ber henni sameiginleg skylda til að varðveita náttúru lands- ins og auka gróðurríki þess. Jafnréttismál Allir skulu njóta sömu réttinda og jafnrar aðstöðu á öllum sviðum þjóðlifsins. — Greiða skal sömu laun fyrir sömu vinnu. — Tryggja skai fötluðum og þroskaheftum rétt til atvinnu og menntunar. Menntamál Skólastarfiö skal kenna nemendum að starfa með öðrum og undirbúa þá undir þátttöku i lýðræöisþjóðfélagi, sömuleiðis að temja þeim að beita hæfileikum sinum á sjálfstæðan hátt. — Allir skulu eiga rétt til ókeypis skólagöngu, við sitt hæfi. — Séð skal fyrir nægjanlegri verkmenntun og skipulagðri endurmenntun og fullorðins- fræðslu. — Tryggja skal tengsl ungs fólks við atvinnulif landsins, meðal annars meö starfsfræðslu I skólum og þátttöku skólafólks i atvinnuiifinu. — Tryggja skal fjárhagslega af- komu nemenda á framhalds- skólastigi með námslauna- kerfi. Menningarmál og tómstundir Tómstundir eru mikilvæg llfs- gæöi. — Styöja skal frjálst menningar- starf. — Stuðla ber að þátttöku sem flestra I iþróttum og hvers konar útilifi. — Rikisvaldið skal stuðla að þvl að lista- og menningarlif auögi lif þjóðarinnar allrar. — Vernda ber náttúrufegurð landsins og auðvelda fólki að njóta hennar. FAGMENNIRNIR VERSLA HJAQKKUR Þvi að reynslan sannar að hjá okkur er yfirleitt til mesta úrval af vörum til hita- og vatnslagna. BURSTAFELL byggingavöruverslun Réttarholtsvegi 3 simi 38840

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.