Alþýðublaðið - 23.05.1981, Qupperneq 1
alþýöu-
blaðið li
Laugardagur 23. mai 1981 . 72. tbl. 62. árg.
„Að verma sitt hræ við
annarra eld”
— Sjá leiðara bls. 3
í VARAAFL
Alþingi á síðasta snúningi:
EGGERT HAUKDAL NYTTUR
Fylgdi steinullarverksmiðjan með í kaupunum?
Miklar annir hafa vcriö á Ai-
þingi undanfarna daga og hafa
fundir staftiö langt fram á nótt. Af
þeim málum sem mestur styr
hefur staðift um ber hæst Heigu-
vikurmálið og frumvarp rikis-
stjórnarinnar um raforkuver.
Eggert Haukdal haffti lýst þvi yfir
aft hann mundi ekki styftja frum-
varpið, en stjórnarliöum tókst i
gær að fá hann til að samþykkja
þaft. Nánast engar stefnumark-
andi breytingar hafa vcrift gerftar
á frumvarpinu. Heimildir eru
nokkuft auknar til stækkunar
virkjana á Sufturlandi — aft
fengnu samþykki rikisstjórnar-
innar og einnig er gert ráft fyrir
þvi aft greinargerft verfti lögft
fram um þjóöhagsiega hag-
kvæmni virkjana. Meginiinur
frumvarpsins standa þvi
óbreyttar og gera menn þvi skóna
á Alþingi, aft Eggert hafi varia
samift upp á svo lítift: Steinullar-
verksmiðjan i Þorlákshöfn hljóti
aft fylgja i kaupunum.
Samkvæmt þeim breytingartil-
lögum, sem samþykktar voru við
frumvarp stjórnarinnar veröur
heimilt með samþykki rikis-
stjórnarinnar að stækka Hraun-
eyjarfoss i allt að 280MW, að
stækka Sigölduvirkjun i allt að 200
MW og að gera ráöstafanir, sem
nauðsynlegar þykja til aö tryggja
rekstur orkuveranna á Þjórsár-
svæðinu m.a. með Kvislaveitu,
stækkun Þórisvatnsmiðiunar og
stiflu viö Sultartanga (Sultar-
tangavirkjun) með allt að 130
MW. Vakin skal athygli á k.
orðalaginu ,,að fengnu
samþykki Ly'
Ríkið á virkjunarrétt við Blöndu:
Tillaga Árna Gunnarssonar
um eignarnám felld
naumlega — Alþýðubandalagið á móti!
Arni Gunnarsson iagfti fram
breytingatillögu vift virkjana-
frumvarp rikisstjórnarinnar á
þingi á fimmtudagskvöid. Sam-
kvæmt tillögu Arna átti að iáta
reyna á hvort samningar næðust
ekki um Blönduvirkjun vift vift-
komandi sveitarféiög, fram til 1.
ágdst nk., en ef samningar næft-
ust ekki, skyldi ráftherra beita
heimiid sem hann hefur skv.
iögum um eignarnám.
1 viðtali við blaðamann Alþýðu-
blaösins, sagði Ami að hann hefði
undirhöndum afsal, undirritað af
Jóni Magmíssyni ráðherra Is-
lands, þar sem beitarréttur á
AuðkUluheiði væri framseldur
Svinavatnshreppi, Torfulækjar-
hreppi og Blönduóshreppil En i
afsalinu væru undanskilin fossar
og námur i jörö, svo það er ljóst,
að rikisvaldið hefur fulla heimild
til aö virkja þarna án þess að
spyrja kóng eða prest.
Auðvitaö hefur rlkisvaldiö ekki
heimild til aö kaffæra beitarlönd,
ánþessað bætur komifyrir, sagði
Arni en slikar bætur á að ákveða
eftir að eignarnám hefur farið
fram, ef til þess kæmi að þess
þyrfti.
Hvað varöar Eyvindarstaða-
heiði sagði Ami, að ekkert lægi
fyrir um þaö, hver ætti hana.
Rikið gæti alveg eins átt hana og
bændurnir.
Mér finnst það ekki hægt, að ör-
fá próm il þjóðarinnar geti staöið i
vegi fyrir hagkvæmum stórfram-
kvæmdum, sagði Arni. NU
stendur málið þannig, að tveir
hreppar af þremur hafa ekki á
móti virkjuninni. Aðeins i Svina-
vatnshreppi er máliö stopp, en
þar standa mál þannig i hrepps-
nefnd, að tveir eru fylgjandi,
tveirá móti, og einn er vaklandi.
Það sem ég óttast mest i þessu
máli, er að hér sé að koma upp
Arni Gunnarsson
annaö Laxárævintýri, en það
leiddi þjóðina svo Ut i Kröfluævin-
týrið eins og allir vita.
Tillaga Arna var felld, með 18
atkvæöum gegn 17, en 11 sátuhjá.
Arni sagði aö það hefði verið tölu-
verður sigur Utaf fyrir sig, að svo
mjótt varð á mununum. Hann
sagöi að það hefði þó vakið mesta
athygli sina, hversu skrýtin af-
staða Alþýöubandalagsins hefði
veriö. Aðeins einn þingmaður Al-
þýðubandalagsins, Garðar Sig-
urðsson greiddi breytingartillögu
Arna atkvæði. Sjálfur þjóönýt-
ingarflokkurinn var á móti þess-
airi tillögu sagði Arni að lokum.
Karl Steinar Guðnason alþm.:
Helguvíkurmálinu lokið með
fullum sigri tillögumanna
Alþýðubandalagið hefur étið allt ofaní sig
A fundi utanrikisnefndar
Alþingis á þriðjudag sl. var
samþykkt, ályktun þess efnis
aft hraftaft yrði sem mest
framkvæmdum vift eld-
neytisgeyma varnarliftsins.
Aiyktunin var gerö samhljófta,
m.a. með atkvæfti Ólafs Ragn-
ars Grimssonar aiþm.
Þetta var umsvifalaust túlk-
að, sem uppgjöf Alþýðubanda-
lagsins i Helguvikurmálinu
svokallaða, þó ólafur Ragnar
Grimsson vildi ekki kannast
viö að svo væri.
Ólafur Jóhannesson, utan-
rikisráöherra, sem hefur með
þessi mál að gera, skv. venju-
legri verkskiptingu sagði um
'þessa áiyktun, að i henni væri
ekkert, sem segði aö oliutank-
arnir ættu ekki að vera i
Helguvik eða nokkuð annað,
sem breytti þvi, sem fyrir
hefði legið i þessu máli. Hann
lýsti þvi yfir, aö hann áskildi
sér allan rétt I þessu máii,
enda heyröi þaö undir hans
embætti.
1 viðtali við blaöamann
Alþýðublaðsins, sagði Karl
Steinar Guðnason alþm. aö
þaö væri skoöun allra i utan-
rikisnefnd og allra þing-
manna, nema þingmanna
Alþýðubandalagsins, að sam-
kvæmt ályktun nefndarinnar
hafi engar efnisbreytingar
orðið. Það má lika benda á
það, sagði Karl Steinar, aö hiö
svokallaða leynisamkomulag
heldur ekki i þessu tilviki, þar
sem þingið hefur faliö málið
utanrikisráöherra. Þannig
hafa Alþýðubandalagsmenn
étið ofani sig allt, i þessu máli.
Og málinu hefur lokið með
fullum sigri tillögumanna.