Alþýðublaðið - 06.06.1981, Side 8

Alþýðublaðið - 06.06.1981, Side 8
alþýðia- blaðið Laugardagur 6. júní 1981 Garðari Cortes veitt Bjart- sýnisverðlaun Bröste- fyrirtækisins Það var Garðar Cortes sem fyrstur manna fékk „Bjart- svnisverðlaun” Bröste hins danska. Sjóðurinn var stofn- aður þegar Vigdís Finnboga- dóttir var i Danmörku s.I. vetur. í tilkynningu vegna verðiaunaafhendingarinnar segir svo: Garðar Cortes er viður- kenndur óperusöngvari i heimalandi sinu. Ástæðan fyrir því aö það var einmitt hann sem fékk fyrstur manna verðlaunin er hins vegar sú mikla bjartsýni sem Garðar hefur sýnt með þvi að stofna samtök á Islandi i þeim til- gangi að setja upp óperur á Is- landi, en Garðar er sjálfur for- maður samtakanna, tslenzku Óperunnar. Hingað til hefur það verið i verkahring Þjóðleikhússins að setja upp óperur og lengi vel hefur það tiðkast að setja upp eina óperu á ári, auk óperetta og söngleikja. Siðustu ár hefur óperuflutningur verið i lág- marki, enGarðar Cortes hefur breytt þessu með bjartsýni sinniog samstarfsfólks sins. Á fyrsta starfsárinu hafa verið settar upp óperur sem Garðar hefur sjálfur stjórnað. Þá segir að þurfi að minnsta kosti mikla bjartsýni til að stofna samtök sem hafa þaö að markmiði að flyt ja 230 þús. manna þjóð óperur þær sem fluttar eru meðal milljóna- þjóða. Um Garöar Cortes segir svo: Garðar Cortes er alhliða menntaður músikant. Hann nam i London: A ferli sinum hefur hann stjórnað kór og is- lensku sinfóniuhljómsveitinni. Fyrstog fremstber hins vegar að iita á hann sem söngvara og hefur hann farið með fjölda óperuhlutverka. t augna- blikinu fer hann með hlutverk Rudolfs i óperunni „La Bo- heme” eftir Puccini sem sett hefur verið upp i Þjóöleikhús- inu. Othlutunarnefndin telur að Garðar Cortes og það sem hann hefur gert sé i samræmi viö þau skilyrði sem sett hafa verið varðandi úthlutun úr sjóðnum. BOLABÁS Kjartan ólafsson, aðalrit- stjóri Þjóðviljans ku vera farinn i sumarfri. Ef ekki þá hefur viðtal við Ðagsbrúnar- vor.amenn I fimmtudags- blaðinu farið fram hjá honum. Sá margfrægi kór, Kór Menntaskólans við Hamrahlið hyggst nii leggja land undir fót og halda til Þýskalands i tón- leikaferð. Ferðin mun taka tvær vikur og lokakonsert verður þann 17. jiini i Bonn. Þorgerður Ingólfsdóttir, stjórnandi kórsins sagði i viðtali við Alþýðublaðið að ferðinni væri heitið um Rinarlönd aðal- lega. Haldnir yrðu 10 tónleikar. 10 kvöld i' röð, og efnisskráin væri mjög fjölbreytileg. Það mætti segja að kórinn hefði 4 prógröm tilbúin fyrir ferðina. „prógröm með kirkjulegri tón- list og tvö með veraldlegri. Efnisskráin spannaði islenska tónlistarsögu i heild sinni, þvi m.a. syngi kórinn úr Þorláks- tiðum, sem er með elstu upp- skrifaðri tónlist islenskri, og frumflytti verk eftir Þorkel Sigurbjörnsson. Þá væru á efnisskránni verk eftir Atla Heimi Sveinsson, Jón Norddal, Gunnar Reyni Sveinsson ofl. Þá má nefna það að verk eftir einn kórmeðlim, Hauk Tómasson, við ljóð annars kórfélaga Berg- þóru Ingólfsdóttur væri á efnis- skránni. Upnhaflega var kórnum boðið Þýskalands til Diisseldorf að syngja við Jó- hannesarkirkjuna þar, en i framhaldi af þvi voru fleiri tón- leikar skipulagðir til að gera kórnum kleift að fara ferðina. M.a. var kórnum boðið að syngjaá tónlistarhátiðiBonn og svo verða lokatónleikarnir þann 17. júni' eins og áður sagði, en það er islenska sendiráðið i Þýskalandi sem gengst fyrir þeim tónleikum. Hamrahlíðarkórinn í tónleikaferð til Musica Nova endurreist stofntónleikar að Kjarvalsstöðum á mánudag MUSICA NOVA hefur nú starfsemi á nýjan leik eftir u.þ.b. 10 ára hlé. Markmið þess er sem fyrr að kynna nýja tón- list, innlenda sem erlenda og stuðla að auknum samskiptum islenskra tónskálda, tónlistar- flytjenda og almennra áheyr- enda. A starfsárinu 1981—82 eru fyrirhugaðir fernir „fastir” tón- leikar (október-desember-febr- úar-april) og verður nýtt is- lenskt tónverk, sérstaklega samið að tilhlutan félagsins, frumflutt á hverjum þeirra. Þessi tónverk, sem greitt er fyr- ir með hjálp menntamálaráðu- neytisins og Tónskáldasjóðs Rikisútvarpsins, hafa þegar verið ákveðin og urðu tónskáld- in Atli H. Sveinsson, Guðmund- ur Hafsteinsson, Jónas Tómas- son og Karólina Eiriksdóttir fyrir valinu sem höfundar þeirra. önnur verk á fyrirhug- uðum efnisskrám verða ný eða nýleg islensk og erlend tónverk, svo og verk genginna meistara, sem vanræktir mega teljast hér á landi (Ives, Varése, Webern, Schönberg, Jón Leifs osfrv. osfrv.) Fyrirhugað er að gefa út grammófónplötur með islensku tónverkunum og mun sú fyrsta koma út að loknu starfsárinu, i mai 1982. Verður hún og aðrar grammófónplötur Musica Nova seld með miklum afslætti til þeirra sem gerast áskrifendur að tónleikum félagsins. „Skerpla 1981” er tilraun Musica Nova til að sameina dreifða krafta nútima tónlistar i einu og eftirminnilegu átaki. Aðeins tvo fyrstu tónleikana er hægt að skrifa með öllu á reikning félagsins: Stofntón- leikana að Kjarvalsstöðum, þar sem áheyrendur geta látið skrá sig sem „stofnfélaga” i endur- reistu Musica Nova og kirkju- tónleikana i Kristkirkju. Hinir tónleikarnir þrir, „Músikhópur- inn” að Kjarvalsstööum. „Ny- listatónleikarnir i Norræna hús- inu (i'samvinnu við Nýlistasafn- ið) og tónleikar með verkum eftir Snorra S. Birgisson, i Há- skólabiói, hefðu eflaust verið haldnirán afskipta félagsins, en þeir falla á allan hátt inn i ramma starfsemi Musica Nova, enda eru flestir hlutaðeigandi nátengdir þvi á einn eða annan hátt. A stofntónleikunum að Kjar- valsstöðum verða eftirtalin verk á dagskrá: Charles Ives .... Tone Roads 1-3 Anton Webern 6Bagatellen op. 9 Ton de Leeuw......Night music Edgard Varése........Octandre Árgerð ’81 (frumflutningur) Jónas Tómasson........Skerpla Askell Másson Sólmánuður Jón Nordal...........Heyannir Magnús Bl. Jóhannsson .... Tvi- mánuður Gunnar R. Sveinsson .... Haust- mánuður Leifur ÞórarinssonGormánuður Karólina Eiriksdóttir....Ýlir Hjálmar Ragnarsson. Mörsugur ÞorkellSigurbjörnsson ... Þorri Snorri S. Birgisson.......Góa Páll P. Pálsson.... Einmánuður Atli H. Sveinsson.......Harpa Flytjendur/ Manuela Wiesler (flauta), Kristján Stephensen (óbó), Sigurður Snorrason (klarinett), Hafsteinn Guð- mundsson (fagott), Stefán Step- hensen (horn), Sveinn Birgisson (trompet), William Gregory (básúna), Laufey Sigurðardótt- ir (fiðla), Júliana Kjartansdótt- ir (fiðla), Helga Þórarinsdóttir (vióla), Nora Sue Kornbluch (selló), Joan Stupcanu (kontra- bassi), Helga Ingól fsdóttir (semball), Snorri S. Birgisson (pianó), Óskar Ingólfsson (klarinett), Jón Aðalsteinn Þor- geirsson (klarinett), Reynir Sigurðsson (vibrafónn). Atsiðir Islendinga eru merki- legir. Allir þekkja söguna af þvi, þegar Agli Skallagrimssyni var boðið upp á skyr. Honum likaði ekki veitingarnar, sérlega með. tilliti til þess að kónguri næsta herbergi fékk betri mat, svo hann tók gestgjafa, krækti Ur honum augað, ældi framani hann og drap hann siðan.Slikar aðfarir þykja ekki góðir mannasiðir i dag. Siðan hafa farið fram mörg át á Islandi. Ólafur Ragnar Grimsson gerðist kostgangari hjá Ólafi Jó- hannessyni nú fyrr á árinu og skipulögöum þessa keppni,” ■ Ari LANGAÐII ENN MEIRA ÞEGAR ÉG VAR BÚINN’ sagði Ari Gunnarsson, sem hesthúsaði þrjá hamborgara á 68 sekúndum ræddum 119sekúndum, 1.37 roinútum, svo „Eg SkvaO a6 taka þált i þegar eg var búinn. Eg skal ekki Obmbi i —— e^im mni. hcssu. rgjr nafa veno. Gastrónómískar svaðilfarir virðist una sér vel. Allavega hefur ekki heyrst múkk i strákn- um nú um langa hrið, og allir vita að blessuð börnin eru þægust, þegar þau eru vel södd. Menn segja jafnvel aö Ólafur Ragnar hafiá timabili veriðjafn matlyst- ugur og hinn frægi rómverski hermaöur Phagus, sem þótti með svo miklum ólikindum girugur til matar, að hann var sendur til Rómar, svo Agústinus keisari fengi að lfta dýröina. Ekki man Þagall lengur upp á hár hver matseðillinn var i sýningarveisl- unni, sem Phagus hélt fyrir keisara.en þar var þó boöið upp á a.m.k. prjá grisi, ásamt nokkrum ám, kjúklingum og öörum búfén- aði. Phagus mun hafa étið allt. Kasarinn fékk ekki neitt. Hvað eru menn svo að tala um að gjalda keisaranum það sem keisarans er! Það er aftur vist, að jafnvel þó Ólafur Ragnar sé jafn svangur og Phagus, eru kræsingarnar á hans matseðli nægar til næstu ára, jafnvel þó aðeins sé boðið upp á hans fyrri fullyrðingar. En matsmenn eru fleiri á isa köldu landi en ÓRG. Þar má nefna til sögunnar Ara nokkurn Gunnarsson, matreiöslumann, sem hefur unnið þaö sér til frægðar (og hjóls) að borða þrjá hamborgara á 68 sekúndum. Geri aðrir betur! (Eða verr) Ekki má heldur gleyma þvi, að i i'slenskum bókmenntum er að finna skemmtilegar karakter stú- díur átvagla. Dugar þar að nefna manninn, sem átti þá ósk heit- asta, eftir át mikið, að hann væri „sofnaður, vaknaður aftur og far- inn að éta”. Islenska átvagla- hefðin er þvi forn og þó siung. Og hún hefur listrænt gildi. Ari þessi, hamborgarabani, lét t.d. hafa það eftir sér, að hann hefði gjarna viljaö fá eitthvað meira í sarpinn, þegar ham- borgararnir þrir voru uppklár- aðir. Slikar het jur við matboröið eru fáséðar. (Og sumum við- kvæmum sálum finnst það eflaust bara gott). En Þagall á enn eftir að nefna eina tegund áta, sem er algerlega nýtilkomin. Þessi áttegund var til skammst tima óþekkt á Islandi, en með upphafif jölmiðlaaldar fór að bera á henni nokkuð og er hún nú viða vel þekkt. Góður kunningi Þagals sendi á Alþýðublaðið fréttatilkynningu um samkomu nokkra, sem halda skyldi i þágu góös málstaðar. Hann sendi með orðsendingu þar sem hann bauð okkur Alþýðu- blaösmönnum upp á „handát”. Nú er ekki svo að skilja að vér Alþýðublaðsmenn séum mat- vandir. Fjarri þvi. Margar mál- tiðirhöfum vér gert okkur úr grá- sleppu, súru slátri, skötu og öðrum þjóðlegum, en „einkenni- legum” islenskum fæöuteg- undum. En handát! Nei takk, svo svangir veröum við seint! — Þagall

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.