Alþýðublaðið - 17.06.1981, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 17.06.1981, Blaðsíða 3
3 Miðvikudagur 17. júní 1981 alþyou blaöið Útgefandi: Alþýöuflokkurinn Framkvæmdastjdri: Johann es Guðmundsson. Stjórnmálaritstjóri (ábm): Jón Baldvin Hannibalsson. Ritstjórnarfulltrúi: Helgi Már Arthursson. Blaðamenn: Olafur Bjarni Guðnason, Þráinn Hall- gri'msson. Auglýsingar: Þóra Haf- steinsdóttir. Gjaldkeri: Halldóra Jónsddtt- ir. Dreifingarstjóri: Sigurður Steinarsson. Ritstjórn og auglýsingar eru að Síðumúla 11, Reykjavik, simi 81866. Friðrik gerði rétt Friðrik ólafsson, forseti FIDE, alþjóðasambands skák- manna, tók rétta ákvörðun þeg- ar hann ákvað að fresta um einn mánuð fyrirhuguðu heims- meistaraeinvfgi þeirra Anatolys Karpovs, heimsmeistara i skák, og áskoranda hans, Victors Korstnojs. Þessa ákvörðun tók Friðrik að höfðu samráði við stjórn FIDE og eftir fundahöld sem hann hefur átt við ráða- menn skáklistarinnar i Moskvu. Deilur hins landflótta Korstnojsog sovéskra yfirvalda eiga sér langan aðdraganda. Kjarni málsins er einfaldlega sá, að yfirvöld i Sovétrikjunum halda eiginkonu og syni Kortsnojs föngnum, neita þeim um ferðafrelsi. I raun er fjölskylda Kortsnojs I fangelsi i Sovétrikjunum. Það er auðvitað fáránlegt að ætlast til þess að heimsmeistarakeppni i skák verði háð við þau skilyrði, að rikisstjórn annars keppandans haldi fjölskyldu hins sem föng- um, meðan keppnin fer fram. Friðrik Olafsson hefur tekið djarfa ákvörðun, en ákvörðun sem er siðferðilega rétt. Form- lega styðst hann hins vegar við það að i lögum FIDE segir, að keppendur skuli standa jafnir að vigi. Það gera þeir auðvitað ekki nema stjórn Sovétrikjanna sleppi fjölskyldu Kortsnojs út fyrir þá fangelsismúra, sem landamæri Sovétrikjannaeru. Fari svo að ekki verði af fyrír huguðu heimsmeistaraeinvigi, og fari jafnvel svo, að FIDE klofni vegna þessarar ákvörð- unar Friðriks Ólafssonar, þá breytir það samt engu um rétt- mæti þessarar ákvörðunar. Hún byggist á þvi siðferðilega mati að lögreglurfki, jafnvel þótt voldugt sé, má ekki komast upp með það að brjóta iþróttamann niður með þvi að loka fjölskyldu hans inni. Fyrir 37 árum fagnaði smá' iþjóð sjálfstæði sinu. Islending- ar höfðu um aldir verið ný- lenduþjóð Dana, og barist kröftuglega fyrir sjálfstæði sinu i hundrað ár, rUmlega, þegar þeir tóku sér formlega sjálf- stæði. Margir veltu þvi fyrir sér þá hvort við værum færir um að varðveita það sjálfstæði sem svo mjög hafði verið barist fyr- ir, eða, hvernig við ætluðum okkur að tryggja þetta sjálf- stæði. Þeim spurningum hefur nU verið svarað. Ekki verður annað sagt en að við höfum farið vel með. Hér hefur Grettistaki verið lyft á sviði atvinnu- og efnahagsmála og almenn hag- sæld rikiri landinu. Menningar- lif blómstrar. Vissulega hefur oft blásið i mót, en þjóðinni hef- ur ætið tekist að vinna sig Ut Ur erfiðleikunum. Og menn skulu ekki halda að nú, þegar efna- hagserfiðleikar set ja svip sinn á þjóðfélagsmálin, að þá sé sU vá fyrir dyrum að ekki megi sigr- ast á henni. Landið býður upp á óþrjótandi möguleika og þvi er ekkiástæða tilaðlátavandamál dagsins villa sér sýn, eöa leggj- ast i' þunglyndi. Jón SigurÖ6son, forseti vor, gerði sér gleggsta grein fyrir þvi,að frelsisbarátta Islendinga var ekki hvað sist fólgin í upp- byggingu atvinnulifsins i land- inu. Með þrotlausri baráttu hans, og stuðningsmanna hans, tókst tslendingum að losna úr þeim verslunarfjötrum, sem Danir höfðu hneppt ókkur iog i kjölfar þess að verslun var gefin frjáls við aðrar þjóðir en Dani, leystist Ur læðingi islenskt frumkvæðii atvinnulifinu. Þetta og dugnaður þjóðarinnar hefur öðru fremur tryggt sjálfstæði þjóðarinnar fram að þessu. Það er alls ekki sjálfgefinn hlutur, að sjálfstæði smáþjóða sé virt. Smáþjóðir hafa alltaf átt það á hættu að ásælni risavelda breyttist i beina afskiptasemi, eða eins og dæmin sýna að smá •þjóðir væru beinlinis teknar upp og gerðar að lepprikjum stórvelda. Þetta kennir okkur að sjálfstæðirbarátta smáþjóða tekur aldrei endi á meðan eðli risaveldanna krefst þess, að smáþjóðir séu kUgaðar. Þegar seinni heimsstyrjöldinni lauk kröfðust margar smáþjóðir frelsis. Vonir manna voru bundnar við það að aldrei aftur kæmi til jafn hörmulegra at- burða og seinni heimsstyrjöldin var. Þvi miður hafa þetta reynst falskar vonir. Smáþjóðir fengu sjálfstæði, og frelsi, að nafninu til, en hafa verið kUgaðar til hlýðni við stórveldi. Til allrar hamingju átti islenska þjóðin þvi láni að fagna, að ráða mál- um sínum sjálf og réttur hennar til þess hefur verið virtur. Til eru þeir, sem fram að þessu, hafa talið það svik við þjóðina að gera bandalag við lýðræðisþjóðimar á Vesturlönd- um um sameiginlegar varnir landsins. Til allrar hamingju fer þeim fækkandi sem telja aö svo sé. Þröngir flokkspólitiskir hagsmunir eru smátt og smátt að vikja fyrir staðreynd, sem menn horfast nú i augu við, að vera okkar i varnarbandalagi vestrænna lýðræðisrikja hefur tryggt hér lýðræðislega þróun mála. Það sem áður var þunga- miðjan i baráttu þessarra afla er nU að vikja og menn halda þvi ekki lengur til streitu, að fulltrúar meirihluta þjóðarinn- ar séu svikarar og landráða- menn. NU viðurkenna þessi öfl utanrikisstefnu meirihlutans og verður þess vafalaust ekki langt að biða, að stjórnmálaflokkarn- ir fjórir, sem nU sitja á Alþingi, geti komið sér saman um sam- ræmda utanrikisstefnu, i anda þeirrar sem fylgt hefur verið hingað til, til að tryggja áfram- haldandi öryggi Islendinga i samfélagi þjóðanna. E ins og áður sagði tekur sjálfstæðisbarátta smáþjóðar aldrei endi. Þess vegna ber okk- Sovétrikin eru auðvitað eitt- hvert forhertasta lögregluriki veraldar. Og jafnvel þó svo þau látiundan i þessu máli og veiti fjölskyldu Kortsnojs áskoranda þau mannréttindi, sem hún á til- kall til, verður það einasta sem dropi i hafið.Lögreglurikið mun hvorki breyta um andlit né inn- tak fyrir það. Engu að siður yrði það siðferðilegur sigur. Friðrik Ólafsson þarf á þvi að halda að allir skákmenn, allir siðmenntaðir menn, standi dyggilega að baki honum, þegar hann hefur tekið þessa ákvörð- un. Verði Sovétrikjunum ljóst, að Friðrik Ólafsson talar ekki aðeins i nafni sjálfs sin, heldur i nafni voldugs almenningsálits á Vesturlöndum og um heim all- an, er liklegra að þau láti und- an. — VG. Sjálfstæðisbarátta tekur aldrei endi ur að taka þjóðhátiðardaginn hátiðlega. A þessum degi ber okkur að minnast þess mikla erfiðissem áarokkarhafa lagt á sig i baráttunni fyrir þvi tak- marki sem sett var i upphafi. Formlega var þessu marki náð fyrir 37 árum. Við þessi tima- mót skulum við minnast þess að fyrirsjálfstæðinu þurfti að berj- ast — og fyrir þvi verður að berjast, bæði á sviði menningar-, atvinnu- og efnahagsmála, en engu að siður á sviði öryggis- og varnarmála. Þvi þó draumur- inn um vopnlaust hlutleysi sé fagur þá kennir reynslan okkur, að við getum ekki byggt framtið sjálfstæðis okkar á draumórum einum. I upphafi var mörkuð stefna sem byggði á raun- veruleikanum. Þeirri stefnu hefur verið fylgt æ siðan. Þetta hefur og einnkennt lifsbaráttu þjóðarinnar. Hingað til hefur vel tekist til. Hvað framtiðin ber i skauti sér vitum við ekki, — en við verðum að vona, að svo verði áfram. —HMA Alþingi samþykkti tillögu Alþýðuflokksmanna: ER HAGKVÆMT AÐ SAMEINA ALLAN FLUGREKSTUR RÍKISINS? sýni rikja i' verkalýðssamtökun- um og móta afstöðu þeirra á mörgum sviðum. Afstaða þeirra virðist yfirleitt miklu fremur vera neikvæð en jákvæð. Nýjum leiðum i kjaramálu er sýnt hið furðulegast tómlæti að ekki sé meira sagt. Bráðnauðsynlegum skipulagsmálum samtakanna er sáralitið sinnt og tekur sjálfsagt áratugi að koma nýju skipulagi á með núverandi hraða, enda þótt samtökin séu yfirleitt á einu máli um nauðsyn þess. Þá er verkalýðshreyfingin and- vig nýrri vinnumálalöggjöf og er sennilegt að hUn se' ekki talin timabær fyrr en hinu nýja skipu- lagi hefur verið komið á laggirnar.*). Athuglisvert *) Um það leyti gæti verið svo komið, að enn ein afturhalds- stjórnFramsóknar og Ihalds væri sezt að völdum og þá yrði verka- lýðshreyfingin ekki spurð ráða um nýja vinnumálalöggjöf eins og nUverandi rikisstjórn myndi gera. Afstaða verkalýðshreyf- ingarinnar til nýrrar vinnumála- löggjafar minnir þvi miður mikið á afstöðu Framsóknar- flokksins til nýrrar kjördæma- skipunar, sem hann var mjög andvigur, en andstæðingar hans sameinuðust siðan um að koma á. Vonandi á verkalýðshreyfingin ekki eftir að reyna hið sama. er einnig, hve lítið kemur yfirleitt fram af jákvæðum og raunhæfúm umbótatillögum frá verkalýðs- samtökunum og þingum þeirra. Slikar tillögur koma venjulegast frá einstökum verkalýðsleiðtog- um jafnaðarmanna eða þing- mönnum Alþýðuflokksins og eru lögfestar fyrir þeirra baráttu. I samræmi við þetta er svo þvi miður ýmis önnur starfsemi verkalýðssamtakanna, eins og t.d. þing A.S.I., sem yfirleitt eru talin neikvæð og gagnlítil af þing- fulltrUum sjálfum, 1. mai hátiða- höldin i Reykjavik o.f!.★). ■k) Hið jákvæöa við starf verka- lýðssamtakanna I dag virðist fyrst og fremst vera þeirra þáttur I almennri velmegun laun- þega, aukinábyrgðartilfinning og betri skilningur á nauðsyn heil- brigðs efnahagslifs, þrátt fyrir allt og allt, og bætt skilyrði ýmissa verkalýðsfélaga og fé- lagsmanna þeirra, t.d. vönduð og glæsileg félagsheimili stéttarfél- aga, öflugri styrktar- og sjUkra- sjóðir, merkar og traustar at- vinnuleysistryggingar o.s.frv. Það er auðvelt verk að kenna kommúnistum réttilega um stöð- num verkalýðssamtakanna — og láta siðan þar við sitja. Sitthvað er þó hægt að gera til að vinna móti henni, ef forustumenn lýðræðissinna i verkalýðshreyf- ingunni hafa til þess vilja og áhuga. Þeir fara meö stjórn i flestum stærstu verkalýðsfélög- unum I Reykjavik, sem viður- kennt er að eru forustufélög verkalýðshreyíingarinnar. Þessi félög gætu, undir forustu Full- tniaráðs verkalýðsfélagánna 1 Reykjavik, unnið að undirbUningi hins ný ja skipulags hér i bæ og úti á landi. Þessir aðilar gætu lika beitt sér fyrir nýjum leiðum I kjaramálum félaga sinna og rutt þannig brautina, svo sem þeim ber. Verkalýðsfélög kommúnista á Akureyri hafa undanfarið stát- að af þvi að þau hafi tekið forust- una í kaup- og kjaramálum át verkalýðsfélögunum i Reykjavik. FulltrUaráð verkalýðsfélaganna og hin lýðræðissinnuðu forustufélög verkalýðsins i Reykjavik gætu nú með framtaki sinu sannað og sýnt forustu slna óumdeilanlega, ef þau fara þær brautir, sem hér hefur verið bent á. Að halda að sér höndum I þess- um efnum er til skaða og tjóns, bæði fyrir verkalýössamtökin sjálf og félagsmenn þeirra. Stórhuga og myndarlegt framtak iþessum efnum myndi hins vegar veröa sömu aðilum til góðs og visa fulltrúum næsta Alþýöusam- bandsþings veginn til nýrrar og betri stjórnar og starfshátta. Þeir Magnús Magnússon, Arni Gunnarsson og Vilmundur Gylfason fluttu á siðasta þingi tiUögu þess efnis, að allur flug- rekstur rikisins yrði sameinað- ur undir stjórn Landhelgisgæsl- unnar. Allsherjarnef nd samein- aðs þings fjallaði um tiilöguna og leitaði umsagnar aðila: Slysavarnarfél ags tslands (sjúkraflug), Landmælinga ts- lands, Landgræðslu rikisins, Landhelgisgæslu og Flugmála- stjórnar. Nefndin gerði slðan tiUögu um orðalagsbreytingu, og 19. mai samþykkti Alþingi eftirfarandi ályktun: „Atþingi ályktar að fela rlkis- stjórninni að láta kanna hag- kvæmni þess að satneina allan flugrekstur rlkisins.” Greinargerð flutningsmanna var á þessa lund: Á undanförnum árum hefur flugrekstur rikisins og ríkis- stofnana að vonum vaxið veru- lega og er sá rekstur af ýmsu tagi. Landhelgisgæslan er lang- stærsti flugrekstraraðilinn og hefur á hendi gæsluflug, leitar- flug, björgunarflug, sjúkraflug, ísflug o.fl. Flugmálastjórn annast flug- prófanir, leitarflug, sjúkraflug, o.fl. Landgræðslan annast sán- ingu og áburðardreifingu Ur lofti og Landmælingar anna^t mælingaflug með leiguflugvél- um. A vegum Landsvirkjunar er ýmiss konar eftirlitsflug og þannig mætti lengi telja. Auk þess kaupir rikið ýmiss konar þjónustu af einkaaöilum i flug- rekstri. Rikisfyrirtæki hafa stofnað til flugrekstrar með miklum til- kostnaði, fjárfest i dýrum flug- vélum, stundum óhagkvæmum og án tiliits til heildarhagsmuna eða samnýtingar með öðrum rlkisfyrirtækjum. Nýting flugvéla i eigu rikisins er mjög li'til. T.d. var heildar- flugtimi flugvélar Flugmála- stjórnar á s.l. ári 350 klst. eða innan við 1 klst. á dag að jafn- aði. Fokker F27 vélar Land- helgisgæslunnar flugu á sama tima samtals 1399 klst., sem er innan við 2 klst. á flugvél á dag að jafnaöi. Á sama tima var meöalflugtimi Fokker F27 véla Flugleiða 4.71 klst. á dag. Meðan nýting flugvéla rlkis- ins er svona lltil eru Landmæl- ingar með fastan samning við einkaaðila um a.m.k. 70 klst, flug á ári fyrir $ 72.000. Þessu flugi gæti flugvél Flugmála- stjórnar auðveldlega annað. Einnig gæti hún annast f jöldann allan af verkefnum fyrir Land- helgisgæsluna samhliða verk- efnum Flugmálastjórnar. Má þar nefna Iskönnunarflug sam- hliða eftirlitsflugi og flugi vegna viðgeröa tækjabúnaöar Flug- málastjómar Uti á landi. Rekstrarkostnaður Fokker F27 flugvéla Landhelgisgæsl- unnar er margfalt meiri en rekstarkostnaður King Air flug- vélar Flugmálastjórnar, en hún hentar þó m jög vel i flest ef ekki öll verkefni Landhelgisgæslunn- ar, eins og fram kemur i „Afangaskýrslu nefndar um flugrekstur landhelgisgæslunn- ar” Utgefinni af fjármálaráðu- neytinu i júlf 1975. Með því að sameina undir eina stjórn allan flugrekstur á vegum rlkisins er unnt að auka verulega nýtingu flugvélakosts- ins, auka hagræðingu og sparn- að i' rekstri. Þar eð Landhelgisgæslan er langstærsti flugrekstaraöili á vegum ríkisins er lagt til að sameinaður verði flugrekstur rikisins verði undir hennar stjórn.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.