Alþýðublaðið - 28.07.1981, Page 2

Alþýðublaðið - 28.07.1981, Page 2
2 Þriðjudagur 28. júlí 1981 Frá Þjóðleikhúsrádi: Enn um „hljóðnemamálið” Hinn 19. jiini sl. barst Þjóð- leikhúsráði bréf frá Sigurði Eggertssyni, hljóðmeistara, þar sem hann óskar eftir „leiðrétt- ingu” á samþykkt ráðsins frá 18. jiini' 1981, þ.e. þeim hluta samþykktarinnar þar sem seg- ir: „Tilað eyða tortryggni hefur orðið fullt samkomulag um að fjarlægja hljóðnema þann, sem nýlega var tengdur segulbandi i skrifstofu þjóöleikhússtjóra og annan hljóðnema á Litla svið- irai, sem tengdur hefur verið tækjum í herbergi hljóðmanns þannig að engin samtöl verður framvegis hægt aö taka upp án vitundar hlutaðeigandi aðila”. Astæöan fyrir þvi, að getiö var um hljóönema á Litla svið- inu eru eftirfarandi ummæli i greinargerð Kristins Daniels- sonar frá 15. júní 1981 þar sem segir: ,,Mér er kunnugt um að með litilli fyrirhöfn er hægt að tengja mikrófóna á Litla sviðinu við upptökutæki i hljóðstjórn, vegna leiksýninga þar”. Hinn 22. jUni sl. barst þjóð- leikhUsráði greinargerð frá Sig- urði Eggertssyni, svohljóðandi: „Tvær h'nur liggja frá klefa hljóðmanns niöur i ÞjóðleikhUs- kjallara (Litia leiksviðið). Viö þær er hægt að tengja hljóö- nema þegar upptökur eiga að fara fram. Aö staðaldri eru hljóönemar þessir geymdir i klefa hljóðmanns. Allar frum- sýningar Litla leiksviðsins eru teknar upp til varöveizlu. Þá eru hljóðnemar þessir tengdir sama dag og frumsýning fer fram og teknir niður að lokinni upptöku. Þó getur komiö fyrir að hljóðnemar þessir séu tengd- irdaginn áður, á aðalæfingu, til að stilla styrk upptökunnar, og eru þá ekki teknir niður fyrr en eftir frumsýningu”.Þessi grein- argerð Sigurðar er staðfest af Þoriáki Þórðarsyni leiksviðs- stjóra. A fundi þjóðleikhúsráðs 24. júli 1981 var gerð eftirfarandi samþykkt. ,,Að gefnu tilefni tekur þjóðleikhúsráð fram að i samþykkt þjóðleikhúsráðs hinn 18. júní sl. fólst að sjálfsögðu engin ásökun i garð Sigurðar Eggertssonar, sem ráðið ber fyllsta traust til”. Á sama fundi var samþykkt aö senda ritstjóra Visis svo- hljóöandi bréf: „t forystugrein og grein Svarthöföa i blaði yðar 22. júni sl. er leitt að því getum að úr- sögn Þórhalls Sigurðssonar úr þjóðleikhúsráði stafi af flokks- pólitiskum sjónarmiðum hans, sem ekki hafi náð fram aö ganga i leikhúsrekstrinum. Þjóðleikhúsráð harmar slik skrif og tekur fram, aö aldrei hafi veriö hægt að draga störf Þórhalls i þjöðleikhúsráði i póli- tiskan dilk. Þar hefur hann starfaö af stakri samvizkusemi og trúnaði við leikhúsið og ráðiö notið góðs af mikilli þekkingu hans á málefnum leikhússins”. Á fundi þjóöleikráös, þar sem þessar samþykktir voru geröar sátu, auk formanns, Gylfi Þ. Gíslason, Margrét Guðmunds- döttir og Þuriður Pálsdóttir. f.h. þjóðleikhúsráðs Haraldur Ólafsson form. Pétur Pétursson, þulur: Að borða úti og vera úti að aka Vilmundur Gylfason er kunnur áhugamaöur um margt, bókmenntir, ljóöagerð, stjórn- mál og verkalýösmál, svo fátt eittsé nefnt.Hann hefir nýverið sent frá sér ljóðakver, órimuð ljóð. Þaö er góöra gjalda vert. Hitt er verra, aö hann skuli hnoöa skáldskaparleir i stjórn- málaskrifum sinum á Alþýðu- Pétur Pétursson þulur. blaöinu, og raunar meö þeim hætti að hann er naumast svaraverður. Eða hvernig skal bregöast viö þvi, að hann skuli þráfaldlega rangtúlka orð and- mælenda sinn og ekki vera treystandi frá föstudagskvöldi til laugardagsmorguns að hafa rétteftir það sem þeir hafa ritað um deilumál,en kosta kapps um að gera þeim upp skoðanir er þeir hafa hvergi látið I ljós. Þetta er þeim mun hryggi- legra sökum þess að pilturinn er góðviljaður i persónulegri við- kynningu og hverjum manni viðræöubetriá góöra vina fundi. Vilmundur segist fara út að borða. Veröi honum að góðu. En hann er lika úti að aka i grein sinni. Það er öllu verra. Hann segir að ég boröi heima. Mikið rétt, en ég læt stundum eftir mér að matast annarsstaðar. þótt ég kyngi ekki matreiðslu Vilmundar. Vilmundur ætti einnig að boröa heima öðru hverjum, ef það gæti leitt til þess að hann væri betur heima i þvi er hann ritar um. Vilmundur lætur nú móðan mása i' gagnrýni sinni á sam- tökum verslunarmanna. Ber þeim á brýn ódugnað I starfi og lýsir ábyrgö á hendur forystu- lmönnum vegna lélegra kjara. Hinsvegar er hann harð- ánægður með þróun mála i Al- þýðuhúsinu. Þar blómgast hinn nýi „lífsstill”. t lögum Alþýðuhússins segir svo 13. grein: um tilgang félags- ins: ,,að reisa og reka sam- komu- og skrifstof uhús fyrir al- þýöufólk i Reykjavik”. Sam- kvæmt sömu lögum 25. grein, félagsslit segir: „allar þær eignir sem félagiö kynni þá aö eiga skuldlausar skulu renna til almennrar menningarstarfsemi fyrir verkalýöinn í Reykjavík”. Nú er spurningin: Telur Vil- mundur að svo hafi fariö um húsakynni Alþýöuhússins i Reykjavik, sé tekið mið af þeirri ráöstöfun húsakynnanna sem við höfum deilt um? Með þvi aö mér virðist Vil- mundur eigi hafa skilið orö min er ég hefi f fyrri greinum fjallaö um máiið leyfi ég mér að biðja Helgarpóstinn n.k. föstudag aö birta myndasögu er skýrir málin honum og öðrum er kynnu aö búa við svipaöa orö- blindu. Mun þá leitt i ljós hversu málum er háttað á öld nýkrata undir merkjum hins nýja „lifs- stils”. fl SEYÐI - A SEYÐI - A SEYÐI - A SEYÐI - A SEYÐI - A SEYÐI- A S Sýningar Djúpiö: Jay W. Shoots sýnir ljósmyndir. Tema sýningarinnar er Götulif i Reykjavik 1980—1981, „50 works in silver”. Jay þessi er fæddur I Winter Park, Florida U.S.A. og byrjaöi aö fást við ljósmyndun 14 ára gamall. Hann er fæddur 1951 og sl. fimm ár hefur hann eingöngu unnið við ljósmyndun. Sýningin stendur til 22. júli og er opin daglega frá kl. 11—23. Listasafn Einars Jónssonar: Opið alla daga nema mánudaga frá kl. 13.30—16.00. Nýja galleríið: Laugavegi 12 Magnús Þórarinsson sýnir verk sin. Galleriið er opiö frá klukk- an 14.00—18.00 alla virka daga. Árbæjarsafn: Safniö er opiö alla daga nema mánudaga frá kl. 13.30 til 18.00 til 31. ágúst. Strætisvagn nr. 10 frá Hlemmi fer aö safninu. Norræna húsið Yfirlitssýning á verkum Biom Austurbæjarbió Úr einum faömi i annan Bráðskemmtileg og djörf, ný, kanadisk kvikmynd i litum, byggð á samnefndri bók eftir Stephen Vizinczey. Aðalhlutverk: Karen Black, Susan Strasberg, Tom Berenger. Hafnarbíó Cruising Æsispennandi og opinská ný bandarisk litmynd, sem vakið hefur mikið umtal, deilur, mót- mæli o.þ.l. Hrottalegar lýsingar á undirheimum stórborgar. A1 Pacino — Paul Sorvino — Karen Allen Nýja bió Lokaátökin Fyrirboöinn III Tónabió „APOCALYPSE NOW” (Dómsdagur nú) Leikstjóri: Francis Ford Coppola. ÞORVALDAR SKÚLASONAR, opin daglega kl. 14—19 alla daga vikunnar. Lýkur 16. ágúst. t anddyri og bókasafni— Sýning á islenskum steinum (Náttúru- fræöistofnun tslands) opin á opnunartima hússins. Torfan: Nú stendur yfir sýning á ljós- myndum frá sýningum Alþýðu- leikhússins sl. ár. Ásgrímssafn: Safnið er opið alla daga nema laugardaga frá kl. 13.30—16.00. Kirkjumunir: Sigrún Jónsdóttir er með batik- listaverk. Gallerí Langbrók: Sumarsýning á verkum Lang- bróka stendur yfir. Galleriið er opið frá 13—18. Kjarvalsstaðir: Sumarsýning i Kjarvalssal. Sýnd eru verk eftir meistara Kjarval úr eigu Reykjavikur- borgar. 1 vestursal og á göngum eru verk eftir 13 islenska lista- menn sem ber yfirskriftina: Leirlist, gler, textill, silfur, gull. Höggmyndasafn Ásmundar Sveinssonar: Opið á þriöjudögum, fimmtu- dögum og laugardögum frá klukkan 14 til 16. Epal, Síðumúla20. Sýning á grafik- og vatnslita- myndum og textilverkum eftir danska listamanninn og arkitektinn Ole Kortzau. Sýn- ingin stendur yfir til 16. júli og er opin á venjulegum verslunar- tima. Bogasalur: Silfursýning Siguröar Þor- steinssonar verður i allt sumar. Listasafn Islands: Litil sýning á verkum Jóns Stef- ánssonar og einnig eru sýnd verk i eigu safnsins. 1 anddyri er sýning á grafikgjöf frá dönskum málurum. Safnið er opið dag- lega frá kl. 13.30—16.00. Aðalhlutverk: Marlon Brando, Martin Sheen, Robert Duvall. Sýnd kl. 4.30, 7.20 og 10.15. ATH: Breyttan sýningartima. Laugarásbíó Darraðardans Ný fjörug og skemmtileg gamanmynd um „hættuleg- asta” mann i heimi. Verkefni: Fletta ofan af CIA, FBI, KGB og sjálfum sér. Háskólabió Mc Vicar Ný hörkuspennandi mynd, sem byggð er á raunverulegum at- burðum um frægasta afbrota- mann Breta, John Mc Vicar. Tónlistin i myndinni er samin og flutt af The Who. Stjörnubíó Bjarnarey Hörkuspennandi og viðburðarik ný amerisk stórmynd i litum, gerð eftir samnefndri metsölu- bók Alistairs Macleans. Leik- 'stjóri Don Sharp. Aðalhlutverk: Donald Sutherland, Vanessa Redgrave, Richard Widmark, Christopher Lee o.fl. Regnboginn. A. Lili Marleen B. Járnhnefinn c. Jómfrú Pamela D. Hefnd þrælsins Hafnarf jarðarbíó Farþegi I rigningu (Raider in the Rain) Æsispennandi hrollvekja. Aðal- hlutverk: Charles Bronson og Marlene Jobert. Bæjarbíó t nautsmerkinu Bráðskemmtileg og djörf gamanmynd. Útvarp Miðvikudagur 22. júli 7.00 Veðurfregnir. Fréttir Bæn 7.15Tónleikar. Þulur velur og kynnir. 8.00 Fréttir. Dagskrá. Morgunorð Jóhannes Tdmasson talar. 8.15 Veðurfregnir. Forustgr. dagbl. (útdr.). Tónleikar 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna. „Steinn Bollason”, Heiðdis Norðfjörö les siðari hluta rússnesks ævintýris. 9.20 Tónleikar. Tilkynningar. Tónleikar 10.00 Fréttir. 10.10 Veöur- fregnir. 10.30 Sjávarútvegur og sigl- ingar Umsjón: Ingólfur Amarson. Fjallaö verður um skattamál sjómanna fyrr og nú. 10.45 Kirkjutónlist Martin Gíinther Förstemann leikur á orgel Selfosskirkju a. „Hegn mér ei i reiöi þinni”, sálmhugleiöingu op. 40 nr. 2 eftir Max Reger. b. Prelúdiu og fúgu i A-dúr og „Kem nú fyrirþinn hástól ”, sálmforleik eftir Bach. 11.15 Garöabrúöa Þorsteinn Ó. Thorarensen les úr þýð- ingum sinum á Grimms- ævintýrum. 11.30 Morguntónleikar Thomas Brandis, Ulrich Strauss, August Wenzinger og Eduard Mliller leika Trió i Es-dúr eftir Georg Philip Telemann / Leopold Stastny og Herbert Tachezi leika Flautusónötu i A-dúr eftir J.S. Bash. 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til- kynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veður- fregnir. Tilkynningar. Miövikudagssyrpa — Svavar Gests. 15.10 M ið de gis s a ga n : „Praxís” eftir Fay Weldon Dagný Kristjánsdóttir les þýðingu sina (13). 15.40 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Siðdegistónleikar David Rubinstein leikur á pianó Sónatinuie-mollop. 54 nr. 1 eftir Sergei Prokofjeff / Harvey Shapiro og Jascha Zayde leika Sellosónötu i F- dúr op. 6 eftir Richard Strauss / Melœ-kvintettinn leikur Blásarakvintett i A- dúrop. 43eftirCari Nielsen. 17.20 Sagan: „Litlu fiskarnir” eftir Erik Christian Haugaard Hjalti Rögn- valdsson les þýðingu Sigriðar Thorlacius (3). 17.50 Tónleikar. Tilkynningar 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar 19.35 A vettvangi 20.00 Sumarvakaa. Kórsöngur Liljukórinn syngur islensk lög. b. Sumarsveit bernsku minnar Séra Garðar Svavarsson flytur þriöja og siðasta hluta minninga sinna frá þeim árum, er hann dvaldi i Flóanum. c. Byggöin kallar Jóhannes Hannesson bóndi á Egg i Hegranesi les fimm kvæöi eftir Daviö Stefánsson frá Fagraskógi. 21.10 iþróttaþáttur Hermanns Gunnarssonar 21.30 Útvarpssagan: „Maöur og kona” eftir Jón Thoroddsen Brynjólfur Jó- hannesson leikari les (9). 22.00 Joan Sutherland syngur lög eftir Dvorák, Mendels- sohn, del Rigeo o.fl. meö Nýju fílharmóniusveitinni: Richard Bonynge stj. 22.35 „Miðnæturhraðlestin” eftir Billy Hayes og William Hoffer Kristján Viggósson les þýðingu sina (13). 23.00 Fjórir piltar frá Liver- pool Þorgeir Astvaldsson rekur feril Bitlanna — „The Beatles”, sjöundi þáttur. (Endurtekið frá fyrra ári). 23.45 Fréttir. Dagskrárlok.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.