Alþýðublaðið - 28.07.1981, Qupperneq 7

Alþýðublaðið - 28.07.1981, Qupperneq 7
Þriðjudagur 28. júlí 1981 7 Efnahagsmál 8 framvindu innlendrar eftir- spurnar má nefna, að innflutn- ingur neyzluvöru fyrstu fimm mánuði ársins var á föstu gengi um 5—7% meiri en á sama tima i fyrra, eftir þvi hvort miðað er við breytingar miðgengis eða sölu- gengis, og svipuðu mali gegnir um vöruinnflutning til fjármuna- myndunar. Samanburður inn- flutningstalna við veltutölur i ymsum iðngreinum bendir til, að eftirspurn hafi sveigzt nokkuð frá innlendri framleiðslu að innflutn- ingi fyrstu mánuði ársins. Tölur oliufélaganna fyrir fimm fyrztu mánuði ársins sýna, að sala gasoliu til húshitunar hefur dreg- izt saman um nær 18% frá fyrra ári, en i heild hefur sala gasoliu minnkað um 8% og sala svartoliu um 5%. Benzinsalan janúar-mai i ár varð svipuð eða heldur minni en á sama tima i fyrra. Loks má nefna, að samkvæmt upplýs- ingum framleiðsluráðs um sölu mjölkurafurða fyrstu fimm mán- uði ársins hefur orðið nokkur samdráttur i sölunni miðað við sama tima i fyrra, litill á nýmjólk og rjóma, en meiri i öðrum af- urðum, einkum smjöri, en sala á osti hefur þó aukizt nokkuð. Utanrikisviðskipti Samkvæmt verzlunarskýrslum Hagstofu fslands var halli á vöru- skiptajöfnuði 220 milljónir króna fyrstu fimm mánuði ársins. Er útflutningur þá reiknaður fob. en innfiutningur cif. (t skýrslum Seðlabanka og Þjóðhagsstofn- unar er hvorttveggja reiknað fob. og erhallinn þá 8 m.kr.). Á.sama tima f fyrra var hallinn 70 m. kr., sem er um 104 m.kr. á gengi i ár. Vöruskiptahallinn er þvi meiri nú en i fyrra. Verðmæti vöruútflutn- ings var nær 1% minna en i fyrra, ef reiknað er á föstu gengi, en verðmæti vöruinnflutnings var rúmlega 4% meira. Einkum var mikill samdráttur i útflútnings- verðmæti áls og kisiljárns. Verðmæti vöruútflutnings i mái •var rúmlega 5% meira i ár en á siðsta ári, ef reiknað er á föstu gengi, en verðmæti vöruinnflutn- ings var rúmlega 14% meira. Þannig varð nokkur halli á utan- rikisviðskiptum i máiá þessu ári, en i fyrra var nokkur afgangur. Vöruútflutningur, fob. Sjávarafurðir A1 og kisiljárn Annað Vöruinnflutningur, cif. Til álvers, járnbl. og Landsvirkjunar Almennur vöruinnflutningur Olia Annað Vöruskiptajöfnuður Vöruskiptajöfnuður, fob. $ Pund Dkr. Skr. Ff. DM SDR Ef breytingar á verði einstakra mynta eru vegnar saman annars vegar með hlutdeild einstakra landa i útflutningi og hins vegar með hlutdeild einstakra landa i Á útflutningsvog hafði verð á erlendum gjaldeyri hækkað um 6% frá áramótum til 30. júni, en á innflutningsvog hafði verðið hækkað um 2%. Munurinn er nær 4%. Fjármál rikisins Eftir rekstrarhalla fjóra fyrstu mánuði ársins, sem alls nam 145 m.kr., var verulegur tekju- afgangur hjá rikissjóði i mai, en litilsháttar halli i júni. Innheimtar tekjur i mai urðu 89 m.kr. umfram útlögð gjöld, en i júni varð rekstrarhalli er nam 6 m.kr.. í júnilok nam rekstrar- hallinn frá áramótum 62 m.kr. eða 2,4% af tekjum rikissjóðs á fyrrihelmingiársins. Framvinda rikisfjármálanna i mai og jðni ætti ekki áð koma beinlinis á óvart þar sem þessir mánuðir hafa undanfarin ár yfirleitt sýnt fremúr hagstæða útkomu, en batinn i mai er þó óvenjumikill. Samanburðu rekstrarafkom- unnar i ár og undanfarin ár sýnir, að i hlutfalli við tekjur er rekstrarhallinn svipaður og i fyrra en miklum mun minni en árin 1976—1979, er hallinn til júni- loká nam 8—13% af tekjum. Fyrstu sex mánuði ársins reyndust innheimtar tekjur rikis- sjóðs 61% meiri en á sama tima i fyrra. Um einstaka liði má nefna, 1.496 2.195 4-0,8 1.157 1.734 1,3 208 259 4-26,0 131 202 4,2 1.566 2.415 4,3 155 257 12,2 1.411 2.158 3,4 248 358 4-2,3 1.163 1.800 4,6 4-70 4-220 1/1/1981 30/6/1981 Brevting Krónur Krónur % 6,23 7,327 17,6 14,890 14,235 4-4,4 1,034 0,978 4-5,5 1,422 1,441 1,3 1,374 1,285 4-6,5 3,182 3,064 4-3,7 7,923 8,431 6,4 innflutningi, þá eru br'eyt- ingarnar frá áramótum eftirfarandi (vi s i t öl u r , 31/12/1980 = 100). að innheimta beinna skatta hefur aukizt heldur meira en heildin og tekjur af aðflutningsgjöldum hafa verð allmiklar. Söluskattsvelta dróst saman að raungildi fyrstu mánuði ársins og tekjur af sölu- skatti hafa þvi orðið minni en ella. Innheimtan varð hins vegar afarmikil i júni. Útgjöld rikis- sjóðs á fyrri árshelmingi voru einnig um 61% meiri en á sama tima i fyrra. Einstakir útgjaldaliðir hafa auk- izt mismikið, en eftirtektar- verðast sýnist 81% aukning útgjalda til tryggingamála en þau nema tæpum þriðjungi af heildar- útgjöldum rikissjóðs. Þá hafa út- gjöld til vega- og samgöngumála og iðnaðar- og orkumála aukizt að mun svo og til landbúnaðarmála annarra en útflutningsuppbóta. Fyrri helming ársins var 82 m. kr. greiðsluhalli hjá rikisjóði þar sem við rekstrarhallann bættist 74 m.kr. halli á viðskiptareikn- ingum en á móti var innstreymi á lánahreyfingum er nam 54 m.kr.. Greiðsluhallinn er um 3% af tekjum þetta timabil og er það heldur slakari niðurstaða en á sama tima i fyrra en mun betri en árin næstu á undan. Utanrikisverzlun janúar — mal, m.kr. jan.—mai jan.—mai 1980 1981 Breyting á föstu gengi % Útflutningsvog Innflutningsvog Meðalta! 31/12/1980 100 100 100,0 31/1/1981 97,8 96,3 97,1 28/2/1981 100,7 99,3 100,0 31/3/1981 100,7 99,4 100,0 30/4/1981 101,1 98,4 100,0 29/5/1981 105,6 102,4 104,0 30/6/1981 106,0 102,0 104,0 Gjaldeyrisforði Seðlabankans jókst um 135 milljónir króna frá áramótum til mailoka (reiknað á gengi i mai), en á sama tima i fyrra minnkaði forðinn um 70 milljónir króna (á sama gengi). Gjaldeyrisstaðan, þ.e. gjald- eyrisforðinn og erlendar eignir viðskiptabanka að frádregnum breytingum á skammtima- skuldum og skuldum við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, batnaði um 119 milljónir króna fyrstu fimm mánuöi ársins samanborið við rýrnun um 21 milljón á sama tima i fyrra. Gengi Gengi Bandarikjadollars hækkaði enn i júnimánuði gagn- vart flestum Evrópumyntum. Þar sem meðalgengi krónunnar er haldið stöðugu, fól þetta i sér, að verð á dollar hækkaði i islenzkum krónum en verð á ýms- um Evrópumyntum lækkað nokk- uð. Eftirfarandi yfirlit sýnir gengi (kaupgengi) helztu mynda um áramótin og 30. júni siðast- liðinn. FLOKKSSTARF Utanlandsferð 1 byrjun september verður farin þriggja vikna ferö til St. Petersburg Florida. Fararstjóri Arni G. Stefánsson. Nánari upplýsingar á skrifstofu Alþýðuflokksins I sima 15020. Alþýðuflokksfélagar Munið að tekið er á móti greiðsium félagsgjalda á skrif- stofunni Hverfisgötu 8—10 alla virka daga frá kl. 14—18. Húsnæði óskast til kennslu i sérgreinum, helst i nágrenni Vesturbæjarskóla við öldugötu. Tilboð með lýsingu á þvi húsnæði sem i boði er og leigukröfum, sendist fræðslu- skrifstofu Reykjavikur, Tjarnargötu 12, fyrir 8. ágúst n.k. Fræðsiustjóri. Fjármálaráðuneytið (fjárlaga- og hagsýslustofnun) óskar að ráða fuiltrúa eða skrifstofumann nú þegar. Góðrar islensku og vélritunar- kunnáttu er krafist. Nauðsynlegt er að umsækjandi hafi vald á ensku og einu Norðurlandamáli og geti unnið sjálfstætt að verkefnum. Laun skv. launakerfi opin- berra starfsmanna. Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf óskast sendar fjármálaráðuneytinu, fjáriaga- og hagsýslustofnun, Arnarhvoli. KERFISSETNING - FORRITTJN Kerfisdeild Sambandsins auglýsir eftir starfsfólki til kerfissetningar og forritun- ar. Æskilegt er að umsækjendur kunni skil á COBOL, PL/leða RPG. NÁM í KERFISSETNINGU FORRITUN Kerfisdeild auglýsir eftir fólki til náms i kerfisfræði og forritun. Æskilegt er að umsækjendur hafi próf i viðskiptafræðum eða hafi góða þekkingu á bókhaldi. Umsóknareyðublöð fást hjá starfsmanna- st jóra Umsóknarfrestur er til 10. ágúst n.k.. SAMBAND ÍSL.SAMVINNUFÉIAGA STARFSMANNAHAU) jfc RÍKISSPÍTALARNIR S lausar stödur LANDSPtTALINN SJÚKRAÞJÁLFARAR óskast við endur- hæfingardeild frá 1. september n.k. Meðal annars er laust starf við Barnaspitala Hringsins. Upplýsingar veitir yfirsjúkra- þjálfari endurhæfingardeildar i sima 29000. HJÚKRUN ARFRÆÐINGAR OG SJÚKRALIÐAR óskast á öldrunarlækn- ingadeild Landspitalans við Hátún. Upp- lýsingar veitir hjúkrunarforstjóri i sima 29000. KLEPPSSPÍTALINN HJÚKRUNARFRÆÐINGAR óskast við Geðdeild Barnaspitaia Hringsins við Dal- braut. Upplýsingar veitir hjúkrunarfor- stjóri Kleppsspitalans i sima 38160. TJALDANESHEIMILIÐ STARFSFÓLK óskast til vaktavinnu við Tjaldanesheimilið i Mosfellssveit. Skrif- legar umsóknir með meðmælum og upp- lýsingum um fyrri störf, óskast sendar forstöðumanni heimilisins i pósthólf 33, 270 Varmá. Reykjavik 24. júli 1981 Skrifstofa rikisspitalanna, Eiriksgötu 5, Reykjavik. simi 29000

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.