Alþýðublaðið - 24.10.1981, Side 14

Alþýðublaðið - 24.10.1981, Side 14
14 Laugardagur 24. október 1981 T ónlist Sigurður Þór Guðjónsson Einstaklingurinn í tónlist Sinfóníutonleikar 15. október F.fnisskrá : Karólina Eirfks- dóttir: Sónans (frumfluttn). Haydn: Sinfónaia nr. 104 Brahms: Fiðlukonsert. Einieikari: Pina Carmirelli. Stjórnandi: Jean-Pierre Jacquillat. Aðrir tónleikar Sinfóniunnar fóru fram i Háskólabiói þ. 15. október. Stjórnandi var Jean Pierre Jacquillat og einleikari Pina Carmirelli. Tónleikarnir hófust á frum- flutningi á nýju verki eftir Karólinu Eiriksdóttur. Það ber nafnið Sónans. Ég hafði aldrei heyrt tónlist eftir Karólinu og var nú mikið spenntur. Og þetta var bráðsmellið verk sem gaman væri að heyra sem fyrst aftur. Frá tuttugastu öldinni var næst stokkið nákvæmlega tvö hundruð ár aftur i timann og leikin sinfónia nr. 104 eftir Haydn. Hann var eitthvert yndislegasta tónskáld sem um getur. Aldrei veit maður hvort honum leið vel eða illa. A þessum timum var einstakl- ingurinn ekki orðinn til i músik- inni. Hún kom beina leið úr hæöunum a.m.k. þegar Haydn átti i hlut. En svo kom egóistinn Beethoven með allar sinar áhyggjur og þjáningar.. Eftir hans daga og fram á okkar öld var tónlistin eintal tónskálda sem næstum aldrei sáu glaðan dag. Brahms varð gamall ef ekki elliær, fyrir aldur fram af að dekra við eigið þunglyndi. En hann var gæddur nokkurn veg- inn eðlilegri sál og kunni sé hóf i sorginni. Auk þess var hann ótrúlega snjall að hugsa. Þess vegna hefur hann margt að segja okkur nútimamönnum. Og þetta kvöld var einmitt fluttur fiðlukonsert Brahms. Hann var mjög fallega og rómantiskt leikin af Pina Carmirelli og hljómsveitinni. Mér finnst þetta fegursti fiðlu- konsert sem til er og heimurinn verður ofurlitið betri. og bjartari i hvert skipti sem maður heyrir hann. Þessir tón- leikar voru þvi ekki svo galnir og vonandi verður framhaldið eftir þvi. Sigurður Þór Guðjónsson Andlegur þroski Beethoventónleikar í Austur- bæjarbiói 17. október Flytjendur: Pina Carmiirelii og Arni Kristjánsson Efnisskrá: Sónata «r. 5 op. 24: sdnata nr. 10 op. 96, sónata nr. 7 op. 30 nr. 2. Pina Carmirelli hélt aðra tón- leika og nú með Árna Kristjáns- syni i Austurbæjarbiói þ. 17. október. Þau léku þrjár sónötur fyrir fiðlu og pianö eftir Beethoven. Hann er það skáld tónanna sem náði mestum andlegum þroska af þeim sem náðu sæmilega háum aldri á annað borð. Fáir menn hafa átt jafn hörð og ást- laus örlög.. En i einmanaleik sinum og þjáningu tókst Beet- hoven að hefja sig upp yfir tak- markanir venjulegra manna upp i heiðrikju andans þar sem persónuleg ævikjör einstakl- ingsins skipta ekki lengur máli heldur sammannleg gleði og þjáning. Úr þessum hæðum færði Beethoven mannkyninu tóna sem koma úr dýpri og feg- urri vidd en öll önnur tónlist. Búdda kenndi að lifið væri þjáning og benti mönnum á leiðir til að sigrast á þjáning- unni. Beethoven gerði þetta i tónlist sinni siðustu árin sem hann lifði. En við vitum ekki hvernig hann fór að þessu né hvernig honum leið meðan hann var að semja. En eitt er vist. Það er að þennan þroska öðlaðist Beet- hoven með mikilli baráttu ára- tugum, saman. Hann var gæddur ótrúlegum lifsþrótti sem á yngri árum kom fram i lifsþorsta og lifsgleði. Vor;- sónatan ber þessu fagurt vitni. Yfirbragð hennar minnir oft á Schubert. Arni og Carmirelli léku þetta verk fallega og mjög ljúft en mér fannst nokkuð skorta snerpu og fjör. Sónata op. 30 nr. 2 speglar hrikaleg sál- ræn átök. Hún er eitthvert magnaðasta meistaraverk sem Beethoven samdi og sú fiðlusón- ata sem mér finnst áhrifamest. Og ég saknaði meiri átaka og andstæðna i flutningnum sem þó var fallegur og ágætur i mörgum greinum. Að lokum léku Pina Carmirelli og Arni Kristjánsson siðustu fiðlusónötu Beethovens i G-dur op. 96. Hún er með ljóðrænustu og inni- legustu verkum hans og róman- tisk i fegurstu merkingu þess orðs. Þetta verk var best leikið á þessum tónleikum og sérlega yndislega. Og allur blær þessara tónleika var mjög fall- egur, hljóðlátur og hjartan- legur. Sigurður Þór Guðjónsson FAGMENNIRNIR VERSLA HJÁ OKKUR Þvi að reynslan sannar að hjá okkur er yfirleitt til mesta úrval af vörum til hita- og vatnslagna. BURSTAFELL byggingavöruverslun Réttarholtsvegi 3 sími 38840 SKYTTURNAR eftir Alexandre Dumas eldri 128. — Ég sagði herra deCavos að þér gætuðekki fariö meöhonum til hans náöar, þar sem þér væruö ekki heima, sagöi Planchet. En þá sagöi hann aö þér yröuö endilega aö lita inn tii hans einhverntimann i dag. — Þetta er vissulega blekking, sagöi d’Artagnan. Þetta hljómar ekki sennilega, frá kardinálanum. — Ég er lika alveg viss um þaö, sagöi Planchei, svo ég sagöi honum aö þér heföuð haldiö af staötii Troyes i Champagne eftirmiödaginn I gær. — Þú ert snillingur Planchet, sagöi d’Artagnan. Og nú förum viö af staö. — Ég heföi einmitt ráölagt feröalag. En leyfist mér aö, spyrja hvert viöförum? — 1 þveröfuga átt viöþá tii Troyes. Viö munum leita vina okkar! — Snjöli hugmynd, sagöi Planchet. Viö höfum eflaust gott af hinu friska lofti lands- byggöarinnar. — Það er best aö þú pakkir niöur fyrir okkur báöa Planchet, en ég ætla aö skreppa frá. Þaöer rétt sem þú sagöir um Bonacieux. Hann er þorpari! D’Artagnan hélt fótgangandi af staö. Hann hélt til Ibúöa vina sinna, en enginn þeirra reyndist kominn til baka. Hinsvegar beiö ilmandi bréf meö fagurri utanáskrift eftir Aramis. D’Artagnan stakk bréfinu í vasann. TIu minútum seinna hitti hann Pianchet viö hesthúsin. — Flýttu þér aö sööla fjóra hesta, sagöi hann, Viö veröum aö flýta okkur af staö. — Haldið þér aö viö veröum fljótari með tvo hesta hvor? — Neiapinn þinn, en meö fjóra hesta komum viö vinum okkar fyrr heim. 129. D’Artagnan og Planchet héldu burt frá hesthús, annar til hægri en hinn tii vinstri. Þeir ætluðu aö hittast handan viö Saint-Denus. Þeir riöu siöan saman til Pierrefitte. Ekkert geröist og vinir okkar náöu tiöindalaust til Chantilly. Þegar veitingamaöurinn sá ungan mann meö þjón og fjóra hesta, tók hann vel á móti þeim. Hann þekkti þá ekki aftur, og d’Artagnan taldi aöbest væri aö sofa þar, þó Porthos væri þar ekki. Hann pantaöi mat og vin, og veitingamaðurinn varö mjög hrifinn og bar matinn fram sjálfur. — Ef þér hafið valiö fyrir mig besta viniö i húsinu, vil ég bjóöa yöur aö þiggja eitt gias hjá mér, sagöi d’Artagnan og skálaöi fyrir veitingahúsinu. Hann óskaöi þvi velgengni. Siöan sagöi hann eigandanum aö hann heföi veriö þar áöur meö nokkrum vinum sinum, sem allir voru skytturog einn þeirra heföi lent I bardaga viö ókunnan mann. — Þaö man ég vel, sagöi eigandinn. Þér eigiö viö herra Porthos? — Þaö er rétt, hann lofaöi aö koma á eftir okkur, en viö sáum hann ekki meir. — Hann hefur gert okkur þann heiöur aö biöa hér, sagöi eigandinn. En ánægjan er ekki óblandin. Hann skuldar þó nokkuö. — Hann borgar sinar skuldir, sagöi d’Artagnan, og þaö lifnaði yfir eigandanum. — Þaö var gott aö heyra, þvilæknirinn ætlar aö innheimta sinn reikning af mér, sagöi hann. — Særöist Porthos? — Ég veit ekki hvaö segja skal. Hann sagöi mér aö hann myndi skera úr mér tunguna og af mér eyrun, ef ég segöi þaö nokkrum manni.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.