Alþýðublaðið - 28.10.1981, Page 4

Alþýðublaðið - 28.10.1981, Page 4
4 Miðvikudagur 28. október 1981 Útdráttur úr stefnuræðu forsætisraðherra: Ástandid er harla gott 1 útvarpsumræöum frá Al- þingi um stefnuræöu forsætis- ráöherra dró forsætisráöherra i lokaoröum upp þessa mynd af árangri stjórnarstefnunnar hingað til: „Það sem einkennt hefur þjóðarbúskap íslendinga á þessu ári öðru fremur, er að betra jafnvægi og meiri stöðug- leiki hefur færst i efnahagslifið en verið hefur um langt árabil. Verðbólga hefur hjaðnað verulega. Þetta hefur tekist án þess að færa fórnir atvinnu- leysis og rýrnandi lifskjara, sem aðrar þjóðir hafa fært i þessari sömu baráttu. Rikisfjármál og peningamál eru i betra jafnvægi en verið hefur á siðari árum. Viðunandi jafnvægi hefur náðst i viðskiptum við útlönd. Gengi gjaldmiðils hefur hald- ist stöðugra en verið hefur um langt skeið. Þjóðarframleiðslan hefur aukist meira en gert hafði verið ráð fyrir. Þetta hefur tekist á einhverj- um mestu umhleypingatimum i alþ jóðaefnahagsmálum. Á næsta ári munu erfiðleikar i efnahagsmálum heimsins og þau slæmu viðskiptakjör, sem við höfum búið við á siðustu misserum, sniða vexti fram- leiðslu og tekna þjóðarinnar þröngan stakk. Viðskiptakjör Óbreytt stefna Þó viðurkenndi forsætisráð- herra að verðbólga væri enn mikil meinsemd i efnahagslif- inu. Hann sagði rikisstjórnina leggja höfuðáherzlu á það á komandi ári, að þrýsta verð- bólgunni enn verulega niður i samræmi við það meginmark- miö að koma henni svo fljótt sem kostur er niður á svipað stig og er i helztu viðskiptalönd- um okkar. Með þeim árangri, sem náðst hefur á þessu ári, og þeim skref- um sem fyrirhuguð eru á næsta ári, sagði hann skapast mögu- leika til þess að ná betra jafn- vægi og meiri stöðugleika en verið hefur um árabil. 1 þvi sambandi sagði hann þaö skipta sköpun, að aðilar vinnu- markaðarins sem ji svo um kaup og kjör á næsta ári, að markmið um fulla atvinnu og hjaðnandi verðbólgu verði ekki teflt i tvi- sýnu. Hér þyrfti að koma til samstillt átak rikisstjórnar- innar og aðila vinnumarkaðar- ins. Viðskiptakjör Islendinga eru nú 12—14% lakari en þau voru á árinu 1978. Ekki eru horfur á, að viðskiptakjör batni á næsta ári, og raunar bendir ýmislegt til þess,að sá litli bati á viðskipta- kjörum, sem fram kom á þessu ári, muniað miklu leytihverfa á þvi næsta. Við íslendingar getum þvi ekki vonast eftir aðstoð af er- lendum toga viö lausn okkar efnahagsmála. Þess i stað verðum við enn um sinn að miða stefnuna við ókyrr- an sjó i alþjóðaefnahagsmálum. Við þessar aðstæður getum við ekki búist við verulegri aukningu þjóðarframleiðslu eða þjóðartekna á næsta ári. Þó er gertráð fyrir þvi, að á næsta ári vaxi útflutningsframleiðsla okkar um 4% og þjóðarfram- leiðsla um 1%. Þjóðartekjur munu vaxa minna vegna versn- andi viðskiptakjara. Með auknum stöðugleika og jafnvægi í efnahagsmálum erum við að leggja grunninn að sókn til bættra lifskjara. Þennan grunn verðum við að treysta enn, þvi verðum við á næsta ári að sýna áfram gætni og festu i efnahags- og kjara- málum til þess að þessi árangur ónýtist ekki. Þvi betur sem við treystum þennan grunn, þeim mun fyrr mun atvinnulif okkar blómgast og lifskjör batna”. Forsætisráðherra fullyrti að tekist hefði að draga svo úr hraða verðbólgu, að hún verði um eða innan við 40% i ár, eins og að var stefnt, i stað um 60% verðbólgu tveggja undangeng- inna ára. Þá fullyrti hann einnig, að kaupmáttur væri nú i- við meiri en orðið hefði án efna- hagsaðgerða rikisstjórnarinnar um siðastliðin áramót. Kaup- máttur ráðstöfunartekna hafi vaxið á þessu ári, þrátt fyrir umfangsmikiaraögerðirtil þess að draga Ur verðbólgu. Hann sagði, að rikisstjórnin muni á næsta ári fylgja i öllum grundvallaratriðum sömu stefnu i efnahagsmálum og nú i ár.Afram verður stefnt að fullri atvinnu, hjaðnandi veröbólgu, vernd kaupmáttar. Þessu hyggst rikisstjórnin ná fram, meö þvi að beita aðhaldi i fjár- festingum, gengismálum, pen- ingamálum, rikisfjármálum og verölagsmálum. Dr. Gunnar Thoroddsen, for- sætisráðherra. vart meðalgengi helztu við- skiptalanda. Hins vegar hafi i tvigang orðið að gripa til gengisfellinga: i mai um 4% og i ágústlok á ný um tæp 5%. Forsætisráðherra sagði rikis- stjórnina áfram stefna að stöð- ugu gengi. Afkoma útgerðar aldrei betri. Forsætisráðherra taldi mikilsverðan árangur hafanáðst i rikisfjármálum. A siðasta ári hafi rikissjóður bæði haft rekstrarafgang og greiðsluaf- gang i fyrsta sinn um langt skeið. Allt bendi til þess að af- koma rikissjóðs i ár verði góð. Þannig hafi i ár og i fyrra ekki einungistekistaðhalda jöfnuði i rekstri rikissjóðs, heldur einnig reynst unnt að greiða stórar fjárhæðir til Seðlabanka, til greiðslu á þeim skuldum, sem safnast höfðu við hallarekstur rikissjóðs á fyrri árum. Hann sagði að ráðgert á þessu ári, aðkomaskuld rikissjóðs við Seðlabanka niður i fjárhæð, sem nemur rúmlega 1 1/2% af þjóðarframleiðslu, en það þýddi, að þessi skuld hefði iækkað um meira en helming að raungildi á tveimur árum. Árangur verðtrygg- ingarinnar Forsætisráðherra sagði að si minnkandi sparifjármyndun landsmanna á undanförnum árum hafi verið orðin háskaleg. Það hafi stuðlað að jafnvægis- leysi á fjármagnsmarkaði og i utanrikisviðskiptum. Hann sagði þessa þróun hafa snúist við. Sparifé hafi tekið að vaxa á ný og mjög ört á þessu ári. Um það sagði hann: „Hlutfall innlána af þjóðar- framleiðslu var fyrir 3 árum komið niður i 21,5% Það hækk- aði i fyrra up i 23,8% og i ár i 26,5%. Horfur eru á að þessi þróun haldi áfram á árinu 1982 og hlutfall innlána af þjóðar- framleiðslu hækki þá i um 29% og yrði þá hærra en verið hefur siðustu ár”. Um gengismál sagði forsætis- ráðherra, að rikisstjórnin hefði horfið frá gengissigi, þ.e. hæg- fara en mjög tiðri lækkun krónunnar. Þess i stað hefði verið ákveðið að stefna að stöð- ugu gengi og miða við meðal- gengi erlendra gjaldmiðla. 1 5 mánuði hafi tekist að halda gengi krónunnar óbreyttu gagn- Forsætisráðherra kvað fjár- festingu þjóðarbúsins nema rúmlega 25% af þjóðarfram- leiðslu á þessu ári. Á næsta ári væri gert ráð fyrir að hún verði um 24%. Með þessu væri að þvi stefnt að færa fjármuna- myndunina nær heildarsparnaði þjóðarbúsins og draga úr við- skiptahalla. Um verðlagsmálin sagði for- sætisráðherra rikisstjórnina stefna að þvi, að verðlagskerfið verði gert sveigjanlegra, þegar betra jafnvægi hefði náðst i þjóðarbúskapnum. Sagði hann unnið að endurskoðun á verð- lagsstefnunni i ljósi efnahags- þróunar á þessu ári, og með til- liti til horfa á næstu misserum. Þannig hafi rikisstjórnin til at- hugunar ýmis atriði sem hnigi i átt til aukins frjálsræðis i við- skiptum og verðlagsmálum. Atvinnuástand taldi forsætis- ráðherra harla gott, þrátt fyrir ýmis staðbundin vandamál. Hann bar Þjóðhagsstofnun fyrir þvi að allan siðasta áratug hafi útgerðin verið rekin með umtalsverðum halla. Afkoma hennar i ár hafi verið ;skárri en undangengin 10 ár. Eina gagnrýnin, sem ráð- herra taldi réttmæta á störf rikisstjórnarinnar, var sú, ,,að með einhverjum hætti verði að tryggja betri samræmingu veiða og vinnslu en náðst hefur með (rikjandi) fiskveiðistefnu”. Sagði hann þetta vera i athugun hjá sjávarútvegsráðuneytinu. Hann kvað ýmsar áætlanir i undirbúningi til eflingar iðnaði. Nefndi hann þar til ráðstafanir tileflingar iðnaðiá landsbyggð- inni, áætlun um innlenda endur- nýjun bátaflotans o.fl. Meginviðfangsefnin I raforku- málum á næstunni kvað hann vera að ljúka virkjunarfram- kvæmdum við Hrauneyjarfoss og auka vatnsöflun til núverandi orkuvera. Enn fremur að halda áfram undirbúningi að fram- kvæmdum við næstu stórvirkj- anir og ljúka hringtenginu byggðalina. Þá sagði hann orkustefnunefnd á vegum rikis- stjórnarinnar vinna að athugun á undirbúningi framkvæmda á sviði orkufreks iðnaðar. Sagði hann stórbrotin verkefni fyrir islenzkan iðnað mundu tengjast hagnýtingu orkulindanna, en á þvi sviði verð stefnt að þvi að treysta „innlenda forystu og frumkvæði”. Útflutningsbætur viðvarandi ekki Forsætisráðherra sagði rikis- stjórnina hafa mætt samdrætti búvöruframleiðslu á ýmsan hátt, m.a. með útvegun fjár- magns umframlögboðnar út- flutningsbætur. Ekki væri þó gert ráð fyrir að sérstök fyrir- greiðsla af þessu tagi verði við- varandi. Um samgöngumálin sagði forsætisráðherra, að i fyrra hefði hafist nýtt átak til þess að auka lagningu bundins slitlags á þjóðvegakerfið. Fram til sið- asta árs hafi lagning bundins slitlags orðið mest 40 km. á ári og stundum minna. 1 fyrra hafi þaö aukist i 90 km og i ár væri ráðgert að ljúka við 150 km. A næsta ári verði þetta enn aukið. Þannig verði sá hluti þjóðvega- kerfisins, sem lagður er bundnu slitlagi, talsvert meira en tvö- faldaður á skömmum tima. Forsætisráðherra visaði til samþykktar langtimaáætlunar i vegamálum, sem gerir ráð fyrir eirin ; auknum framlögum til í> „Þetta var gott og starfsamt þing,” sagði Kjartan Jóhanns- son formaður Alþýðuflokksins, þegar Alþýðublaðið leitaði álits hans á aukaflokksþingi Alþýðu- flokksins, sem haldið var nú um helgina. „Fjöldamörg mál af- greidd og baráttuhugur rikjandi hjá þingfulltrúum.” Kjartan sagði að ekki færri en 30 tillögur til lagabreytinga, hefðu verið afgreiddar á þing- inu. Það hefði m.a. verið sam- þykkt tillaga um f jölgun fulltrúa á flokksþingum. „Sú breyting verður til þess, að fulltrúaf jöldi á flokksþingum Alþýðufldtksins nálægt þvi tvöfaldast,” sagði Kjartan, „og ég held að sú fjölg- un geri: Alþýðuflokkinn lýðræð- islegri, opnari, geri fleiri virka i starfi hans og kalli fleiri til ábyrgðar við stefnumótun i æðstu valdastofnun Alþýðu- flokksins.” Si"ðan sagði Kjartan Jóhanns- son: Þá var einnig fellt Ur lög- um flokksins bann við því að fleiri en.eitt flokksfélag Alþýðu- flokksins starfi i sama sveitar- félagi. Þetta opnar leið til þess að sérflokksfélög geta t.d.orðið til iýmsum hverfum borgarinn- ar og stærri bæjum landsins. Það þarf hins vegar tæplega að taka það fram að öll flokksfélög verða að sjálfsögðu að undir- gangast lög og stefnu Alþýðu- flokksins eins og verið hefur. Það er þvi alls ekki verið aö opna leið annarra flokka and- stæöra stjórnmálaafla i Alþýöu- flokkinn eins og sumir virðast hafa haldið. Það er einungis verið að opna möguleikann á fleiri og smærri einingum og fjölga þar með virkum þátttak- endum i starfi flokksins. Þetta fyrirkomulag er við lýði hjá bræðraflokkum okkar á Norður- löndunum og hefur gefist vel”. Þá sagði Kjartan að einnig hefðu verið samþykktar nokkr- ar breytingar á kjöri til flokks- stjórnar og framkvæmdastjóm- ar og hefðu þær gengið i' þá átt að auka áhrif flokksþings á þessar stofnanir flokksins. „Þá var hafnað framkominni tillögu um landskjw- formanns Alþýðuflokksins og taldi þingið það ekki til bóta og eðlilegra væri að flokksþing Alþýðu- flokksins kysi formann flokks- ins eins og verið hefur,” sagði Kjartan. ,,Gott Frá þinginu um helgina. Kjartan þingsins. A myndinni eru einnig, kvæmdastjóri flokksins, Karl Stein Magnússon varaformaöur Alþýðu i Nokkrar breytingar voru j gerðar á prófkjörsreglum * flokksins og sagði Kjartan Jó- hannsson að þingið hefði talið sjálfsagt og eðlilegt að prófkjör yrðu opin eins og verið hefur. 1 KASTLJOS A KJARAMALIN: Vinnutími, dagvin og yfirvinnutekju Kjaramálin eru nú i brenni- depli. Þingi Verkamannasam- bands tslands er nýlokið. Þar kom upp mikill ágreiningur um þær kröfur, sem settar verða fram f næstu kjarasamningum. Með naumum meirihluta var samþykkt að setja fram kröfur, sem að mati hagdeildar ASl fela isér kauphækkun upp á ca. 19%. Tillögur minnihlutans, sem var hafnað meðaðeins 4 atkv. mun, fela i sér miklu hærri kaup- kröfur, eða á bilinu 35—39%. Þar munar mestu um þá kröfu, að fella með öllu niður yfir- vinnu, en það kaup sem hún hef- ur hingað til skilað bætist við dagvinnutaxta. Sú breyting ein út af fyrir sig mun þýða um 31,5% kauphækkun. Forsvarsmenn Vinnuveit- endasambandsins hafa nú þegar vi'sað þessum kröfum gersamlega á bug sem óraun- hæfum og fjarstæðukenndum. Þorsteinn Pálsson, fram- kvæmdastjóri Vinnuveitenda- sambandsins fullyrðir, að þessum kaupkröfum fylgi enginn rökstuðningur með vísan til aukinna þjóðartekna á mann eða batnandi viðskiptakjara. Hér sé þvi um að ræða kröfur, sem séu aðeins ávisun á aukna verðbólgu. Guðmundur J. TAFLA I: Verkamenn á höfuðborgarsvæði: Vikulegur vinnutími 1. Ýtu- og kranastjórar 61,1 2. Lyftaravinna 58,3 3. Bifreiðastjórar 57,0 1. ófagl. bifr.sm. og viðg. 55,1 5. Hafnarvinna 54,2 6. Ýmisalm.vinna 52,2 7. Pakkhúsvinna 51,7 8. Byggingarv. 51,7 9. Fiskvinna 50,5 10. Slippvinna 50,5 11. ófagl. málmsm. 50,3 12. Verksmiðjuv. 46,0 13. ófagl. trésm. 44,7 Munur lengsta og stysta vinnutíma Karlar á höfuðborgarsv. alls. 36,7% 52,4

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.