Alþýðublaðið - 26.11.1981, Blaðsíða 1
Fimmtudagur 26. nóvember 1981
137.
-62. árg.
Kvennaframboð
í borgarstjórn?
S.l. mánudagskvöld fjölmenntu
konur á umræðufund að Hötel
Borg til þess að ræða spuminguna
um sjálfstæð kvennaframboð. Af
hálfu þesshóps kvenna, sem þeg-
ar hefur tekið ákvörðun um sjálf-
stætt kvennaframboð við kom-
andi borgarstjórnarkosningar,
talaði Kristin Astgeirsdóttir,
fyrrv. blaðamaður á Þjóðviljan-
um. Hún sagði að aðstandendur
kvennalistans hefðu þegar fundið
miklar undirtektir við sjálfstætt
kvennaf ram boð. Sjálfstætt
kvennaframboð væri nauðsynlegt
i mótmælaskyni við áhrifaleysi
kvenna i islenzkum stjómmálum,
hvort heldur væri i sveitarstjóm-
armálum eða á Alþingi.
Af hálfu stjórnmálaflokkanna
tóku eftirtaldar konur til máls:
Kiistin Guðmundsdóttir,formað-
ur Alþýðuflokkskvenna, Sigrún
Magnúsdóttir.fulltníi Framsókn-
arkvenna, Svanhildur Björgvins-i
dóttir, fulltrúi Sjálfstæðiskvenna.
Björn Arnórsson um kröfugerð BSRB:
Ekki hrifnir af Ólafslögum
— menn ekki á þvi að taka skammtimasamningum
Eiður spyr utanríkisráðherra um sovézku kafbátana:
Varnarliðið vísar málinu
til flotastiornar NATO i
Norfolk
A Iþýðublaðið skýrði frá þvi I
gær, að á stúdentafundi á
mánudagskvöld hcfði Eiður
Guðnason alþm. sagzt hafa
heimildir fyrir þvi, að sovézkir
kafbátar, sem taldir eru búnir
kjarnavopnum, héldu sig allan
ársins hring ckki langt undan
landi úti fyrir Austfjörðum.
Starfsmaður öryggismála-
nefndar rikisins staMesti í við-
tali við Alþýðublaðið, að honum
heföu borist upplýsingar eftir
heimUdum i aðalstöðvum NATO
i Briissel.og ennfremur eftir
norskum heimildum, þessa efn-
is.
Þvi til viðbótar hafði Alþýðu-
blaðið það eftir ónafngreindum
heimiidamanni, sem sjálfur var
viðstaddur upplýsingafund i
aðalstöðvum NATO i Bríissel,
að þar hefði norskur herforingi
lýst þvi yfir að NATO hefði um
skeið haft vitneskju um sovézka
kafbáta, sem með reglulegum
hætti væru staðsettir innan 200
milna lögsögu Islands úti fyrir
Austfjörðum. Þessir kafbátar
væru af annarri gerð en þeir
„YANKEE”-kafbátar sovézkir,
sem tíðast eru i förum fram og
tii baka frá KOLA-svæðinu að
austurströnd Bandarikjanna og
fram h já islandi. Norski herfor-
inginn hefði sýnt staðsetningu
hinna sovézku kafbáta úti fyrir
Austfjörðum á sjókorti. Talið
var að þeir væru árásarkafbát-
ar, ýmist af gerðinni
„CHARLIE” eða „ECHO”, en
það eru árásarkafbátar búnir
stýrifiaugum meðkjamaoddum
með markdrægni alltaö 250 sjó-
milur.
Enda þóttstarfsmaður örygg-
ismálanefndar kannaöist við
þessar fréttir, kom fram i svör-
um utanrikisráðuneytisins, að
það kannaðist ekki við slikar
upplýsingar.
Af þessu tilefni lagði Alþýðu-
blaðið ákveðnar spurningar fyr-
ir fulltrúa varnarliðsins á
Keflavfkurfiugvelli. Spurt var
hvort varnarliðið gæti staðfest
þessar upplýsingar. Ef svo
væri, hversu lengi NATO hefði
haft umrædda vitneskju, hversu
nálægt landi hefði sést til ferða
þessara kafbáta og hvaða upp-
lýsingar væru til um gerð þeirra
og búnað.
Blaðafulltrúi varnarliðsins
kvað rannsókn þessa máls taka
lengri ti ma en svo að hægt væri
að svara samdægurs. Þegar Al-
þýðublaðið þess vegna sneri sér
aftur til fulltrúa varnarliðsins i
gærkvöldi fékk það eftirfarandi
svör:
Spurningum hafði verið beint
til f lotastjórnar NATO á
Atlantshafi i Norfolk i Virgíniu.
Svör hefðu hins vegar ekki bor-
iztenn, enyrðu látin i téum leið
og þau bærust. Þetta tæki óhjá-
kvæmilega nokkurn tima þar
sem leggja yrði málið fyrir sér-
fræðinga á ýmsum sviðum. Hins
vegar var það skýrt tekið fram,
að varnarliðið gæti ekki aö öðru
jöfnu gefið opinberar upplýsing-
ar um það, hversu nákvæmlega
þaö fylgdist með ferðutnj.
sovézkra kafbáta, án þess aðU\
Fundur bókagerðarmanna: ,
Lítið traust á forystu ASÍ
i lok fundar bókagerðar-
manna á þriðjudaginn varborin
upp tillaga um að Félag bóka-
gerðarmanna gengi i ASi og ætti
með því samflot í komandi
kjarabaráttu. Tillagan hlaut
stuðning 22 félagsmanna af 398
sem voru á fundinum, en það er
um 5.5% atkvæða.
Alþýðublaðið leitaði álits
Magnúsar E. Sigurðssonar for-
manns bókagerðarmanna og
Skafta Ólafssonar flutnings-
manns tillögunnar.
— Það eru deildar meiningar
innan Félags bókagerðar-
manna um það hvort við eigum
að hafa samflot við ASI eða ekki
sagði Magnús. Það er ákveðinn
hópur sem vill samflot við
Alþýðusambandið og telur að
samkomulag okkar sé i' engu
frábrugðið samkomulagi ASI.
Við höfðum atkvæðagreiðslu um
það sl. vetur hvort við ættum að
fylgja ASl eða ekki og það var
samþykkt með miklum meiri-
hluta að vera þar fyrir utan.
— Telur þú að tillagan hafi
verið flutt til þess að lýsa van-
trausti á þig og samninganefnd-
ina fyrirað hafa ekki gertbetur
en samflot við ASI hefðigefið af
sér?
— Siður en svo, enda samn-
ingarokkar betri en hjá ASt. Ég
tel aðþað hafi komið skýrt fram
að félagar FB vilji ekki vera i
samfloti með ASI þar sem það
viðhefurröng vinnubrögð, rekur
ranga stefnu og vegna þjónkun-
ar þess við rikisvaldið.
Það var ekki vegna þess að ég
teldi ASt hafa staðið sig vel að
ég flutti þessa tillögu, sagði
Skafti Ólafsson, en miðað við
það sem á undan var gengið
finnst mér að FB hefði ekki átt
að hætta strax fyrst við vorum
byrjaðir. Ef menn fylgjast með
því sem á undan hefur gengið þá
er ljóst að allt okkar strögl
leiddi til sömu niðurstöðu og
samningar ASI.
— Var tillagan borin fram til
að lýsa vantrausti á stjórn
bókagerðarmanna fyrir að hafa
ekki staðið sig betur en samftot
við ASI hefði gefið af sér?
— Að vissu leyti má kannski
segja það, en þess ber að gæta
að óskadraumur viðsemjenda
okkar er að launþegar séu
sundraðir og að ýmis mál sem
aldrei komatil umræðu hjá okk-
ur er fjallaö um i sér nefndum
hjá ASI.
— Nú voru undirtektir frekar
dræmar.
— Já, og ég benti á að annað
hvort væri það vegna þess að
það væri baráttuhugur i mönn-
um eða menn vildu ekki vera i
ASI til þess að vera ekki i' ASI.
Og það er ljóst að stjómin er
styrkari eftir þessa atkvæða-
greiðslu.
Ég vona bara að stéttabar-
áttan sé ekki fyrir bi með öllu
þessu samkrulli. I gamla daga
lögðu menn á sig löng verkföil
tilað fá réttindi sem þykja sjálf-
sögð i dag. Og fyrst við vorum
aö þessu á eigin spýtur þá áttum
við ekki að hætta fyrst við vor-
um byrjaðir.
— Helsta krafa BSRB er að
bætt verði kaupmáttarskerðing
opinberra starfsmanna sem
orðið hefur frá þvi 1977, sem
þýðir að laun hækki allt að 20%,
sagði Björn Arnórsson hagfræð-
ingur Bandalags starfsmanna
rikis og bæja, þcgar hann var
beðinn að skýra kröfugerð
bandaiagsins, sem var lögð
fram á mánudaginn.
1 kröfugerðinni er jafnframt
gert ráð fyrir þvi’ að það verði
aldurshækkanir i lægstu flokk-
unum og aðrar starfsaldurs-
hækkanir yfir linuna. Einnig er
lögð rik áhersla á að fram-
færsluvísitala verði ekki skert,
en eins og komiðhefur fram þá
hyggst rikisstjórnin taka i gildi
svo kölluð skerðingarákvæði
Ólafslaga um áramótin.
— Við erum ekkert hrifnir af
Ólafslögum, sagði Björn, og þar
sem við höfum búió við hagstæð
viðskiptakjör i nokkurn tima þá
má búast við að þaö verði nokk-
uð stór biti af okkur tekinn, ef
skerðingarákvæðin ná fram að
ganga.
Þá er farið fram á að laugar-
dagar verði felldirút úr orlofi og
Verkakvennafélagið
Framsókn:
Samþykkti
vítur á
20 manna
samninga-
nefnd ASÍ!
Á f undi verkakvennafélagsins
Framsóknar um siðustu helgi
þar sem greidd voru atkvæði
um kjarasam ninga ASl, kom
fram tillaga um að fundurinn
samþykkti vítur á 20 manna
samninganefnd ASÍ, vegna þess
hvernig fólk i bónusvinnu væri
grátt leikið.
Tillagan mun hafa verið borin
fram i byrjun fundar, af Stellu
Stefánsdóttur trúnaðarmanni i
Bæjarútgerð Reykjavikur. Um
300 manns sóttu fundinn og þeg-
ar allsherjaratkvæðagreiðslu
var lokið fór nokkur hluti fund-
armanna af fundi, en þá átti enn
eftir að afgreiða viturnar.
Samkvæmt heimildum Al-
þýðublaðsins var inntak tillög-
unnar það að 20 manna samn-
inganefndin „versli ekki með
bónusgreiðslur i komandi
samningum”. Litlar umræður
munu hafa spunnist um tillög-
una en hún var samþykkt með
handauppréttingu og liggja at-
kvæðatölur ekki fyrir. Þó mun
mestur hluti þeirra sem enn
sátu fundinn hafa samþykkt vit-
urnar.
Þegar Alþýðublaðið reyndi að
forvitnast nánar um þetta mál
hjá skrifstofu Framsóknar, og
fá i hendur önnur plögg sem
samþykkt voru á fundinum,
fengustþær upplýsingar að hætt
hefði verið við að senda fjöl-
miðlum gögn af fundinum. Var
visað á Þórunni Valdimarsdótt-
ur formann félagsins en ekki
réyndist unnt að ná sambandi
við hana i gær.
krafist þess að lögin um lág-
markshvild taki fullt gildi.
— Við viljum að vinna, umfram
lágmarkshvild, verði borguð i
auknu orlofi en ekki i peningum.
Það er ,i anda laganna en rikið
hefur enn ekki getað fallist á
þetta.
Einnig er i kröfugerðinni gert
ráð fyrir f jarvistarrétti foreldra
af vinnustað vegna veikinda
barna, og atriði varðandi
skatta- og húsnæðismál.
— Nú hafa flest allir launþeg-
arsamið til skammstima og um
3.25% hækkun,- er raunhæf von
um að BSRB náifram samningi
um 20% launahækkun og það til
eins árs?
— Við höfum verið meðnefnd
starfandi frá þvi siðasti samn-
ingur var undirritaður, með
tveimur fulltrúum frá hvorum
aðila, til þess að gera launa-
samanburð milli BSRB og sam-
bærilegra starfa á almennum
vinnumarkaði. Þó niðurstöður
liggi ekki fyrir enn, þá teljum
við vist að við höfum dregist aft-
ur úr og það þarf að bæta upp.
Þar með er ekki sagt að við
bindum okkur við þessar leiðir,
sem við leggjum fram. Aðalá-
herslan er að kaupmátturinn
verði bættur. Það kom einnig
fram f skoðanakönnun á vegum
BSRB að félagar vilja hækka
kaupið.
— Eigið þið von á að fá boð
um einhverja félagsmála-
pakka?
— Við erum nú ekki búnir að
fá svar frá ráðherra ennþá. Viö
sendum honum kröfugerðina á
mánudaginn og væntum ekki
svars fyrr en á mánudaginn
kemur. Ég vil þvi' ekkert segja
um það.
— Er BSRB reiðubúið að fara
i verkfall?
— Það er ekki nokkur leið að
ræða þann möguleika nú, þar
sem við vitum ekki hvernig ráð-
herra mun bregðast við. Það er
þó vonandi að okkur takist að
semja áður en allt fer i óefni.
— En nú má vænta þess að
ykkur verði boðin sömu kjör og
þeim sem búið er að semja við,
hvernig verður þvi tekið?
— Ég vil ekki tjá mig um
samninga á þessu stigi. En mér
heyrist á mönnum að þeir séu
langt frá að taka sliku boði.
- EGE
Hallar undan
fæti
sjá leiðara bls. @
„Hagnadur”
Seðlabankans
sjá bls.(|) 0g 0
Þingmál
Alþýðu-
flokksins
sjáopnu