Alþýðublaðið - 26.11.1981, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 26. nóvember 1981
INNLEND NlALEFNI
3
--------RITSTJÓRNARGREIN--------------------------------
Hallar undan fæti
Mönnum er enn i fersku minni, að rikisstjórn Ólafs Jóhannesson-
ar leystist upp innan árs frá valdatöku sinni, vegna þess aö ekki
náðist samkomulag milli stjórnarflokkanna um nauðsynlegar
breytingar á okkar sjálfvirka verðbólguhagkerfi. Að loknum kosn-
ingum og langdregnu stjórnmyndunarþófi, tók núverandi 'rikis-
stjórn við. Hún hefur nú senn haft tvö ár til þess að sýna, hvers hún
er megnug. öfugt við rikisstjórn Ólafs Jóhannessonar hefur þessi
rikisstjórn haldið sér á floti hingað til, meö þegjandi samkomulagi
milli stjórnarflokkanna um að láta vandamáiin óieyst. Með því að
velta þeim á undan sér, eða iáta eins og þau séu ekki til.
þrátt fyrir óvenju hagstæðar ytri kringumstæður hefur þessari
rikisstjórn ekki tekizt að skapa atvinnuvegum þjóðarinnar rekstr-
argrundvöll. Rikisstjórnin hefur ekki borið við að rjúfa sjálfvirka
véígengni vaxandi rikisútgjalda, hækkandi skatta, erlendra lána,
visitölu launa, ákvörðun búvöruverðs og fiskverðs og gengisfell-
inga. Nákvæmlega þetta var þó aðalkosningaloforð Framsóknar-
flokksins fyrir kosningarnar 1979. Vandamálin sem urðu rikisstjórn
ólafs Jóhannessonar að falli eru öil óleyst. Þau eru enn i dag þau
sömu. bað hefur i engu verið hróflað við hinu sjáifvirka verðbólgu-
kerfi. Afleiðingarnar birtast þjóðinni með nákvæmlega sama hætti
á 3ja mánaða fresti. Útflutningsatvinnuvegir og samkeppnisiðnað-
ur geta ekki staðið undir kostnaöarhækkunum, sem er stefnt langt
umfram tekjur, sem verðlag á erlendum mörkuðum ræður. Þá er
enn gripið tii gengisfellinga, eða samblands gengisfellinga og milli-
færslna. Nú á þrautarlendingin að vera sú að lifa á gjaldeyrisvara-
sjóðnum með sama hætti og einstaklingur sem ætlar sér að lifa á
verðbólguhækkun á matsverði eígna sinna. Þjóðin situr i nákvæm-
lega sömu sporum og árið 1979. Ekkert sem máli skiptir hefur
breyzt. Engin vandamál hafa verið leyst. Þeim hefur aðeins verið
slegið á frest. Framsóknarflokkurinn hefur svikið öll sin kosninga-
loforð. Þaðhefur ásannast, sem Steingrímur Hermannsson reyndar
viðurkenndi i stjórnarmyndunarviðræðum um áramótin 1979/80, að
Alþýðubandalagið hefur enga stefnu og engin úrræði til lausnar
efnahagsvanda þjóöarinnar. Og forsætisráðherra og félagar hans
hafa aðeins eitt áhugamál, sem flokkast undir einkamál fremur en
stjórnmál: Þaðer að halda lifinu i rikisstjórninni hvað sem á dynur
og hvað sem það kostar.
Pessi rikisstjórn getur ekki skellt skuldinni á utanaðkomandi
áföll, eða óviðráðanlegt andstreymi. Arið sem er að liða er 4ða
mesta aflaár i Islandssögunni. Verðlag á mikilvægustu útflutnings-
mörkuðum hefur hækkað, eftir langt stöðnunartimabii. Verðlag á
innfluttu eldsneyti hefur beinlinis lækkað. Mestu máli skiptir þó, að
á einu ári hefur sá gjaldmiðill, sem bróðurpartur okkar útflutnings-
afurða er greiddur með, hækkað um hvorki meira né minna en
þriðjung. Þetta var óvæntur og ófyrirséður happdrættisvinningur.
Þannig hefur allt, sem ekki er á okkar valdi að ráða við, verið
stjórnvöldum hagstætt. 1 sliku góðæri á að vera gott að stjórna. A
slikum timum er auðveldara að koma fram nauðsynlegum umbót-
um i hagstjórn, enda þótt það verði aldrei sársaukalaust. A alvar-
legum samdráttartimum kann slikt að reynast ógjörningur. En allt
hefur komið fyrir ekki. Rikisstjórnin hefur misnotað þetta góða
tækifæri til þess að leggja grunninn að bjartari timum framundan.
Hún hefur reynzt vera stefnulaust rekald.
I stað þess að marka sér ákveðna stefnu og standa við hana i
verki hefur þessi rikisstjórn ástundað blekkingariðju og feluleik.
Ekkert af þvi, sem ráðherrarnir hafa hælt sér af, hefur staðizt eða
skilað árangri. Þeir hæla sér af jafnvægi i rikisbúskapnum. Stað-
reyndin er hins vegarsú, aðþrátt fyrir stóraukna skattheimtu, hef-
ur vandinn verið fluttur til rikisstofnana, sem reknar eru með bull-
andi tapi, með þeim afleiðingum aö eriendar lántökur hækka nú
milli ára um 160%. Þetta gerist, þrátt fyrir að orkuframkvæmdir
dragast saman.
Rikisstjórnin hælir sér af þvi að hafa náð árangri I verðbólgumál-
urn.Það hefur hún gert með þvi að falsa visitöluna með hrikalegum
niðurgreiðslum og með þvi að halda niðri gjaldskrám opinberra
fyrirtækja á sama tima og hallarekstur þeirra er fjármagnaður
með lánum. Mestu skiptir þó, að 30% hækkun dollarans á árinu hef-
ur að mati Þjóðhagsstofnunar ein út af fyrir sig minnkað verðbólgu-
hraða hér á landi um 15—18%. Nú er þessi feluleikur uppvis og
gengur ekki lengur. Nú má fastlega gera ráð fyrir allt aö 13% hækk-
un framfærsluvisitölu 1. marz n.k., en það þýðir verðbólguhraða yf-
ir 60% á ári. Varanlegur árangur er enginn.
Rikisstjómin hælir sér af stöðugu gengi.Staðreyndirnar eru þær,
aðgengi hefur verið fellt fjórum sinnum á árinu: 1 byrjun febrúar, i
endaðan mai, i ágústmánuði og nú siðast þann 10. nóv. Gengi krón-
unnar gagnvart dollar hefur á stjórnarferlingum lækkað um 103,
93%. Gengislækkunarþörfin i upphafi næsta árs er nú metin á bilinu
10—15%. Árangurinn er þvi enginn. Enda er þaö ekki á valdi rikis-
stjórnar, sem engin ráð kann til þess að draga úr innlendri verð-
bólgu (kostnaðarhækkunum innanlands) að halda stöðugu gengi. Sú
kenning var biekking frá upphafi.
Hverer stefna rikisstjórnarinnar ipeningamálum?Rikisstjórnin
hefur ekki treyst sér til að falia frá verðtryggingarstefnu, sem
reyndar er eina umtalsveröa breytingin i islenzkri hagstjórn á öll-
um s.l.áratug. Samthallmæla ráðherrarnir þessaristefnu viö hvert
tækifæri. Þessi stefna hefur skilað umtalsverðum árangri i formi
aukinnar sparifjármyndunar. En rikisstjórnin hefur ekki sýnt neinn
lil á þvi að nýta aukinn sparnað i þágu húsbyggjenda, með þeim af-
leiðingum að ungu fólki er nú ókleift aðkoma sér upp þaki yfir höf-
uðið.
Landbúnaðarpólitikin hjakkar áfram i sama farinu. Fiskveiði-
pólitikin er á reki. Engar ráðstafanir eru gerðar til þess að tryggja
islenzkum iðnaði sambærilega samkeppnisaðstöðu og keppinautar.
t virkjunarmálum er ákvörðunum slegið á frest. Engin stefna hefur
verið mótuð um það, hvernig nýta megi orku nýrra stórvirkjana
með arðsömum hætti. Það er sama hvert litið er: Þessi rikisstjórn
fylgir svokallaðri núll-stefnu á öllum sviðum. Hún lifir samkvæmt
mottóinu: Flýtur á meðan ekki sekkur.
A sinum tima var Alþýðuflokknum borið á brýn ábyrgðarleysi
fyrir að slita samstarfi I rikisstjórn, sem engri stefnu fylgdi og lét
reka á reiðanum með sama hætti og núverandi stjórn. Alþýðuflokk-
urinnboðaði harðar aðgeröir á öllum sviðum efnahagsmála. Varö-
hundar óbreytts ástands i Framsókn og Alþýðubandalagi brugðu
fæti fyrir þá stefnu. Þeir eru nú uppvisir að blekkingum og úrræða-
leysí. Nú er æ fleir i að veröa ljóst, að Alþýöuflokkurinn hafði rétt
fyrir sér 1978 og 1979. Það er núverandi rikisstjórn, sem er uppvis að
ábyrgðarleysi, með þvi að sitja áfram við völd, án þess að fylgja
nokkurri stefnu eða leysa nokkur vandamál. Þjóðin hefur ekki efni á
svona stjórnarfari.
— JBH
Kjartan Jóhannsson um „hagnað” Seðlabankans:
Það er fásinna að eyða
gjaldeyrisvarasjóðnum
Er umræður stóðu yfir á
Alþingi í siðustu viku um svo-
nefndan ,,hagnað” Seðlabank-
ans, sagði Kjartan Jóhannsson,
formaður Alþýðuflokksins, að
sér þætti einkennilegt við þessa
umræðu alla, að þær tölur sem
þingmenn nefndu um hagnað
kæmu úr efnahagsreikningi
bankans en ekki úr rekstrar-
reikningi. ,,Ég hef vanist þvi að
gróði kæmi fram á rekstrar-
reikningi,” sagði Kjartan, ,,og
menn styddust við hann, þegar
rætt væri um hagnað eða
gróða”. Hann sagði siðan, að
það jafngilti þvi fyrirþjóðina að
nota fé af endurmatsreikningi
Seðlabankans eins og ef launa-
manni væri sagt að lifa af hækk-
uninni á fasteignamati ibúðar
sinnar.
Umræðurnar spunnust út frá
fullyrðingum Steingrims Her-
mannssonar sjávarútvegsráð-
herra og Ölafs Ragnars Grims-
sonar og fleiri þingmanna
Alþýðubandalagsins um að nota
ætti svokallaðan hagnað Seðla-
bankans til að létta undir með
atvinnuvegunum. Kjartan lagði
áherslu á, að gjaldeyrisvara-
sjóðurinn værieign þjóðarinnar
og ekki mætti ganga á þann
sjóð, þannig að hann yrði þurr-
ausinn eins og allir aðrir sjöðir,
sem ríkisstjórnin hefði komið
nálægt. Hvernig ættiað verja fé
úr þessum sjóði, ef af yrði,
spurði hann.
„Ef úthiuta ætti fé úr gjald-
eyrissjóðum þjóðarbúsins er
vandséð, hvers vegna þvi skuli
Uthlutað eingöngu til fáeinna at-
vinnurekenda”, sagði hann.
„Hvers vegna þá ekki til hinna
atvinnurekendanna, sem fram-
leiða vörur fyrir innanlands-
markað svo að ekki þarf að
flytja þær inn? Hvers vegna
ekki til skósmiðsins, sem sér til
þess með vinnu sinni, að skórnir
okkar endast betur og við
kaupum þess vegna ekki eins
ört nýja fyrir erlendan gjald-
eyri? Hvernig er með verka-
manninn við höfnina,- hefðu
þessi verðmæti skapast án hans
tilverknaðar? Hefðu þessi verð-
mæti skapast, ef vélsmiðurinn
eða rafvirkinn hefði ekki unnið
við viðhald á fiskiskipa-
stólnum? Hann á þá hlut i
sjóðnum og kröfu á úthlutun
eins og aðrir. Afgreiddi verzl-
unarmaðurinn ekki kostinn i
skipið? Var kosturinn óþarfur?
Lagði hann ekki lika sitt af
mörkum til gjaldeyrissköp-
unarinnar? Hvað með fóstruna,
sem gætti barnsins svo að
móðirin gæti unnið i frysti-
húsinu eða i bankanum, þar sem
atvinnurekandinn fékk lánið
sitt? Hvað með hjúkrunarfræð-
inginn, sjúkraliðann og Sóknar-
konuna, sem önnuðust ömmu
gömlu, svo að annað heimilis-
fólk þyrfti ekki að sitja yfir
henni og likna, heldur gæti verið
Kjartan Jóhannsson
ivinnu utan heimilis? Hvað með
skattþegninn, sgm lagði sitt af
mörkum til að byggja sjúkra-
húsið, þar sem amma fékk pláss
og stendur undir jaunagreiðsl-
um á sjúkrahúsinú?
Ég ætla ekki að rekja fl«ri
dæmi”, sagði Kjartan. „Vita-
skuld er það svo, að þjóðin á
gjaldeyrissjóðinn saman. Verði
úthlutað úr honum eiga ekki fá-
einir útvaldir rétt, heldur allir.
Mikilvægast er þó að þessi
sjóður er liftrygging þjóðar-
innar i heild, ef i nauðir rekur og
hverju sinni sem á bjátar.”
Kjartan fagnaði siðan yfir-
lýsingu frá viðskiptaráðherra
$
ISHIDO
Sú nýjasta frá Japan:
-K Ótrúlega fyrirferðalitil vog
meö sambyggðum
miðaprentara
Rafeindavigtarbúnaður
(loadsell) =Meira vogarþol,
meiri nákvæmni
Vatnsvarið takkaborð
■K Getur stimplað vöruheiti
-k Sjálfvirk eða handvirk
miðaprentun
-K Vogin er mjög fljótvirk i
uppvigtun. í afgreiðslu er
flýtt fyrir með
fastasetningu einingarverða
inn á minni. Einnig er
margföldunartakki o.fl. o.fl.
n L'-lilZ
r í. , q 0 L-J
C 1 1 \,3° f ! 7“'": ?
- '50 - W
Model: COSMIC-30 COSMIC-60 COSMIC-100
Capacity: 3 kg 6 kg 9.995 kg
Weight Division: 1 g 2 g 5 g
Maximum Tare Reduction: 999 g 998 g 995 g
Adding Function:
‘Automatic adding by label print-out
Printing Items:
* Date, Unit Price, Weight, Total Price
'At Totalizing:Number of labels issured (4 Digits)
Total Weight (6 Digits)
Total Price (6 Digits)
- . s 9
É m £
r
lUHton 3
m m
lc-a series
Type LC-250A LC-500A LC-1200A LC-2000A LC-2500A
Capacity 2.5 kg 5 kg 12kg 20 kg 25 kg
Minimum Indícatíon 0.001 kg 0.002 kg 0.005 kg 0.010 kg 0.010 kg
Type LC-50L LC-100L LC-50S LC-100S
Capacity 50 kg 100 kg 50 kg 100 kg
Minimum Indication 0.02 kg 0.05 kg 0.02 kg 0.05 kg
PLASTPOKAR
O 826 55
PlasÉns lif <SE&&
PLASTPOKAR
O 82655
PLASTPOKAVERKSMIÐJA ODDS SIGURÐSSONAR REYKJAVIK
BYGGINGAPLAST * PLASTPRENTUN * MERKIMIÐAR OG VÉLAR