Vísir - 09.01.1969, Blaðsíða 16

Vísir - 09.01.1969, Blaðsíða 16
VISIR Konan elskar ilminn af Maðurinn þekkir' gæðin. bi[m(i 17! - Sídú 2U20 ítiljnik Sœ(L œuzennn Síœi 13835 Ævaxiasafi, seu má Mjliyfa 4 siimnm ueSvatnL Læknadeila á Húsavík Húsvíkingar og raunar fleiri nyrðra fylgjast spenntir með því, hver veröi úrslit f læknadeilu þeirri, sem komin er upp á Húsa- vík. Þar deila Gísli Auðunsson hér- aðslæknir og Ingimar Hjálmarsson aðstoðarlæknir við Daníel Daníels- son sjúkrahússlækni, vegna þess að fyrrnefndu læknarnir telja sig ekki hafa þá aðstöðu .sem skyldi á sjúkrahúsinu. Læknamir tveir hafa starfað á M-+- 10. síða. Snjóblásarí á vegi nyrðra Veldur hann byltingu / baráttunni við snjóa- lögin? — Skiptar skobanir um hvort taka ætti stærri eða minni gerð blásara • Sjóblásari, tæki til þess að ryðja snjó af vegum, er væntanlegur til landsins í Iok mánaðarins. Það er Vega- málaskrifstofan, sem fær tæk ið, en farið verður með það norður í land og það reynt á leiðinni frá Akureyri, til Dal- víkur, Ólafsfjarðar og Siglu- f jarðar í vetur. Tækið getur komið af stað miklum samgöngubótum á leið- inni, sem það verður reynt á en þar hefur oft verið snjó- þungt á vetrum og leiðin til Ak ureyrar lokazt. Norðiendingar höföu áður unnið að því, að útvega stóran og fullkominn snjóblásara tfl notkunar á leiðinni, sem fyrr greinir og var verkfræðingur Dalvíkur- og Ólafsfjarðarkaup- staðar sendur út tH Noregs tH þess að athuga um kaup á blás ara. Meö honum fór BaMur Sig- urðsson frá Akureyri, sem hafði hug á því aö fá hlutdeild í kaup um á snjóblásaranum með það fyrir augum, að reka hann á sumrin meö öðmm útbúnaði, sem gerir vélinni kleift aS 10. Mörg ný verkefni æfð í leikhúsunum Líða tekur að nýjum frumsýn- ingum hjá leikfélögunum hér í borg og standa æfingar yfir á mörgum verkefnum. Næsta leikrit Þjóöleikhússins er Candida eftir Bemhard Shaw, sem verður frumsýnt um 20. þ. m. Leik- stjóri er Gunnar Eyjólfsson, en með titilhlutverk fer Herdís Þorvalds- dóttir. Með stór hiutverk fara að auki Erlingur Gíslason, Valur Gísla- son og Sigurður Skúlason. Æfingar hafa nú staðið alllengi yfir á söngleiknum Fiðlarinn á þak- inu, sem verður frumsýndur I marz. Aðalleikstjóri er ensk kona, Stella Claire að nafni, en Benedikt Áma- son er aðstoðarleikstjóri. Colin Russel stjórnar dansatriðum. Sem kunnugt er fer Róbert Arnfinnsson með aðalhlutverkið og hefur hann þegar æft hlutverkið lengi. Þá verður nýtt leikrit eftir Matt- hías Jóhannessen fmmsýnt i apríl en það leikrit hefur enn ekki hlot- ið nafn. Æfingar standa yfir á Orfeus og Evridís eftir franska leikskáldið Anouilh hjá L.R. og verður frum- sýning þess um miðjan mánuö, leik- stjóri er Helga Bachman. Aðalhlut- verkin leika Valgerður Dan, Guð- mundur Magnússon, sem braut- skráöist frá leikskóla leikfélagsins í vor sem leið, Helgi Skúlason og Steindór Hjörleifsson. Þá er verið að æfa gamanleikinn Aaaaást eftir Murray Schisgal, bandarískt leikskáld, og er Jón Sig- urbjörnsson ieikstjóri að því leik- riti, en með hlutverkin, sem eru þrjú, fara þau Guðrún Ásmunds- dóttir, Pétur Einarsson og Þor- steinn Gunnarsson. Leikurinn verð- ur frumsýndur í lok mánaðarins. Gunnar Guðmundsson frkvstj. sinfónuíuhljómsveitarinnar ásamt Lawrence Foster og Louis Kentn- er, sem koma fram á tónleikunum í kvöld. „ VIÐ ERUM OANÆGÐ" Louis Kentner leikur í Kópuvogi og Reykjuvík segir ungt fólk um skemmtanalif hófuðborgar innar og stofnar Klúbb 20 „UNGT FÖLK er óánægt meö | Á skuufum j t ■ Á litlu og lágu Seltjarnar-1 i nesinu voru krakkar að ^ renna sér á skautum, þegar i Ijósmyndari blaðsins átti leið l hjá garði. ) ■ Þar dunaði í svellum, þeg- \ ar rauðnefjaðir krakkar (. voru að leikjum í frosttæru í ioftinu, og það blikaði á ; skautana, sem eflaust hafa / | verið mikið notaðir í vetur. ) þær skemmtanir, sem það á kost á,“ sögðu þrír ungir menn úr stjórn nýs félags, Klúbbs 20, í viðtali í gær. „Okkur fannst tími til kom- inn að láta til skarar skríða og stofna félag um okkár á- hugamál. Á föstudagskvöldiö byrjar Klúbbur 20 fyrst fyrir alvöru að reyna ísinn, — þá veröur dans- leikur í diskótekinu Las Vegas við Grensásveg, en þeir félagar sögðu blaðinu að klúbburinn væri ekki. lokaöur a.m.k. gæti allt „skikkanlegt" ungt fólk um tvítugsaldurmn fengiö inngöngu. „Við erum engir öfgamenn í bindindismálum, en við erum þó leiðir á fylliríssamkomum þar sem fólki er hrúgað saman eins og fé í rétt. Þess vegna fannst okkur tími til kominn aö stofna félagið. Og til þess að leysa vandamáliö með húsnæði höfum við komizt að samkomu- lagi viö forráðamenn Las Vegas as, sem hafa verið okkur ein- staklega hjálpsamir, sögðu þeir félagar í gær. ® Það kom fram að margt ann- að er á döfinni en dansleikja- hald, skíðaferðir, ferðalög f sum- M-+ 10. síða. • Fyrstu tónleikar sinfóníu- hljómsveitarinnar á þessu ári eru f kvöld í Háskólabíó. Þar leik- ur einleik píanóleikarinn Louis Kentner en hljómsveitarstjóri er Bandaríkjamaöurinn Lawrence Foster. Á efnisskrá tónleikanna eru Píanókonsert no. 1 eftir Brahms og sjöunda sinfónía Beethovens. • Á laugardag leikur Kentner á tónleikum Tónlistarfélagsins í Austurbæjarbíói en annað kvöld á tónleikum f Kópavogi, sem nýstofn- að tónlistarfélag þar í bæ gengst fyrir f félagsheimilinu. Stúdentar í S-Þýzkalandi ræða fjárskort námsmanna Frá íslenzkum stúdentum i Suður-Þýzkalandi hefur blaðinu borizt greinargerð, þar sem skýrt er frá breytingum, sem oröið hafa á hag námsmanna þar eftir síðustu gengisfellingu. í greinargerðinni er þess getið, aö rikisstjórnin hafi aukiö framlag til námsmanna erlendis um 54,4%, en þrátt fyrir þær ráðstafanir sé aðstaða námsmanna mun verri en nokkru sinni fyrr. Þessu til stuðn- ings eru teknir til samanburðar hinir ýmsu gjalda- og tekjuliðir fyrir og eftir gengisfellinguna. Töl- urnar fyrir gengisfeilingu eru inn- an sviga: Náms- og uppihaldskostnaður (90.000) 140.000. Tekjur (50.0000) 50.000. Umframfjárþörf (40.000) 90.000. Lán samkvæmt lánakerfi (15.000) 2 7,500. Ferðastyrkur (10.000) 15.000. Það sem á vantar (15.000) 47.500. í greinargerðinni segir síðan: „Við námsmenn hér í S.-Þýzkalandi getum ekki gert okkur f hugarlund, hvernig afla má þeirra peninga, sem á vantar upp í námskostnað eins og sakir standa nú. Upphæð þessi hefur í flestum tilvikum kom- ið frá aðstandendum og jafnvel lánastofnunum. Þessar leiðir er nú ekki hægt að fara, nema að tak- mörkuðu leyti, þar sem um svo mikla hækkun er að ræða.“ Síðan er á þaö bent. að aðstoðin M~> 10. sfða.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.