Vísir


Vísir - 30.01.1969, Qupperneq 1

Vísir - 30.01.1969, Qupperneq 1
VISIR Á sáttafundum á nóttunni - í atvinnumálanefnd á daginn V' V I ÞAÐ VORU örþreyttir menn, í nótt. Fulltrúar í samninga- sem blaðamaður Vísis hitti í viðræðum útvegsmanna og Aiþingishúsinu klukkan fimm sjómanna. Þó báru þeir sig Á slíkum fundum eru „stóru málin“ til umræðu. „Topparnir“ ræ ða saman í sérherbergi, en síðan ganga þeir á fund félaga sinna og gefa skýrslu um nýjustu atburði. YFIR13 ÞUS. í BÆTUR A MANUÐI - HAFI BÆÐI HJÓNIN UNNIÐ ÚTI vel, og brandarar flugu á milli manna. Stundum köpur- yrði, en aldrei illvíg. Þessir menn sátu nú sáttafund þriðju nóttina í röð. Á dag- inn höfðu þeir, margir hverj- ir, verið á fundum atvinnu- málanefnda, sem setið höfðu á rökstólum þrjá daga f röð. í gær lauk fundum nefndanna hér í borg, og vonandi gefst fulltrúum í sjómannadeilunni tækifæri til nokkurrar hvíld- ar á næstunni. Húsvörður sagði, að sumir sætu á fundum stanzlaust. Er sáttafundum lyki um sjöleytið á morgnana, sætu þeir kyrrir í stólum sínum og biðu næsta fundar atvinnumálanefndanna. Aðeins væri skipt um fundar- gerðarbækur! Fulltrúamir létu ekki of vel yfir líkum á skjótri lausn sjó- mannadeilunnar. Mest heföi á stóru fundunum verið rætt um ýmis tiltölulega smærri atriði, en hin veigameiri væru til um- ræðu í hornum, eða á fundum undirnefnda, þar sem „topparn- ir“ kæmu saman. Einhver hélt þó, að draga kynni saman um helgina, og allir vonuðu, að sam komulags væri skammt að bíða. Sáttafundinum lauk um klukk an sjö í morgun og haföi þá staðið síðan hálf níu í gær kvöldi. Fundur er boðaður í dag klukkan fjögur. Atvinnuleysisbætur kvæntra manna eru 296 krónur á dag, en ókvæntra einstaklinga 256 kr. Fyrir hvert bam á framfæri bæt- ast við 28 krónur á dag. Þó eru hámarksbætur, hafi annað for- eldra unnið úti en misst vinn- una, 395 krónur á dag, sem þeir fá, er fjögur böm eða fleiri eiga. Það svarar til nánast 3*4 bams, miðað við 28 krónur með barni. Hafi hjón bæði unnið úti, geta þau bæði fengið einstaklingsbæt- ur, eða tvisvar sinnum 256 krónur Hrakti til hafs í 0 vindstigum og hörkugaddi — Sex skipverjum af Svani Is bjargað eftir 4 tima volk SEX SKIPVERJAR af vélbátn- um Svani frá Súðavik hröktust í gúmbát í fjórar klukkustundir f hörkufrosti og 10 vindstigum úíi af ísafjarðardjúpi í gær. Báturinn fékk á sig brotsjó um tvöleytið, þegar skipverjarnir voru langt komnir að draga iínuna — r.m 17 sjómílur norðvestur af Ðeild. — Lagðist báturinn óðara á l'liðina, en skipverjar komust upp á stýrishúsið. Gúmbaturinn, sem þar var kom þeim ekki nema að hálfum notum, þar sem hann skarst í sundur, þegar verið var að sjó- setja hann og náðu skipverjar með naumindum í annan gúmbát sem var frammi á hvalbak. Skipstjórinn á Svani, Ömólfur Grétar Hálfdánarson, hafði með ?ér neyðartalstöð, þegar hann yfir- gaf stýrishúsið og með henni gátu þeir félagar sent út neyðarkall. — Það var Hálfdán Einarsson skip- stjóri á Sólrúnu frá Bolungar- vík, sem heyröi fyrst neyðar- kallið ásamt skipsfélögum sín- um, en þeir voru að veiðum litlu norðar. Höfðu þeir samband við skipbrotsmennina í gúmbátnum unz þeir voru komnir að honum. Leitarskilyrði voru afleit, dimm- viðri, snjókoma og rok. Óhætt er að fullyrða að neyöar- talstöðin hafi orðið skipverjunum á Svaninum til bjargar. Landátt var og gúmbátinn rak hratt til hafs. Reikna menn með að bátinn hafi rekið einar níu mílur þessa fjóra tíma — á meðan hans var leitað og neyðartalstöðin var tekin að dofna svo að ekki mátti tæpara standa. Skipverjarnir fóru síðan um borð í varðskipið Þór, sem kom þarna á vettvang stuttu síðar og komu þeir heilu og höldnu til Isafjarðar um miðnætti í nótt. Svanur ÍS 214 var 101 lestar stál bátur smíðaður í A.-Þýzkalandi ár- ið 1960. Eigandi var hlutafélagið Álftfirðingur, Súðavík. Þeir Súðvík- ingar eiga nú aðeins einn bát til róðra. fyrir þau, þ/e. 512 kr. á dag. Greidd ar eru bætur fyrir alla virka daga atvinnuleysis. Hámarksbótatala á tólf mánuðum er þó 156 dagar, þannig að þeir, sem atvinnulausir eru allt árið, fá greiddan tæpan helming þess. Fáeinar fleytur eru á sjó hér syðra þrátt fyrir verkfall sjómanna. Útilegubátarnir, sem létu úr höfn fyrir verkfallið eru að tínast til hafna. Þrír bátar lönduðu í Reykja- vík í gær og í dag samtals um 150 tonnum. Ásbjörn var með 42 tonn, Ásþór 50—60 tonn og Þor- steinn með 50 tonn. Nokkrir Reykjavíkurbátanna sigldu með afla sinn og sumir eru enn á veiðum. Von er til dæmis á Vigra inn einhvem daginn meö togafla. Fái hjón bæði bætur, geta þau haft yfir þrettán þúsund krónur á mánuði, kvæntir menn nálægt átta þúsundum. Þessar tölur eru samkvæmt upp lýsingum Verkamannafélagsins Dagsbrúnar. Trillur hafa róið frá Akranesi og fengið reyting á línu. Fimm bát- ar hafa róið frá Keflavík, þrátt fyrir verkfallið, þeir stærstu um 20 tonn. Eru það eigendurnir sjálf- ir, sem róa. Afli þeirra á línu hefur komizt upp í 3*4 tonn. — Tveir bátar róa frá Sandgerði og einhverjir hafa róiö frá Grindavík, þannig aö hvarvetna hefur fengizt nóg í soðið, en aöeins hefur veriö unnið I einu frystihúsi á Suður- nesjum í verkfallinu, Geröahúsinu, svokallaða. Forstjórar á skólabekk Námskeiðj vinnuveitenda um stjórnunarmál lýkur í dag og hefur það staðið í fjóra daga. Prófessor Guðlaugur Þorvalds- son og Magnús Gústafsson hafa haft aðalleiðsögn á námskeiö- inu. I dag mun Jónas H. Haralz forstjóri Efnahagsstofnunarinn- ar, ræða notagildi áætlanagerð- ar við rekstur íslenzkra fyrir- tækja. Tæknideild Vinnuveitenda- sambandsins hefur tekið nám- skeiðahald fyrir stjórnendur fyr- irtækja á dagskrá sína. Með þessari starfsemi er ætlunin að aðstoða vinnuveitendur við að fylgjast með nýjungum á sviöi stjórnunarmála og eins að skapa vettvang, þar sem vinnuveitend ur, sem eiga í svipuðum atvinnu rekstri geta skipzt á skoðunum »»))—> 10 síða 150 tn. of bótofiski landað í Reykjavík í gær og í dag yrirtækjanna eins og drengir á skólabekk hlýöa andagtugir á fyrirlesara og búa sig undir að skýra frá eigin reynslu og miðla hver öðrum af þekldngu sinni. /

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.