Vísir - 11.03.1969, Blaðsíða 5

Vísir - 11.03.1969, Blaðsíða 5
VÍS'IR . Þriöjudagur li. marz 1969. i í slenzkur leikhúskjóll Frumsýningar eru jafnan við- burðir í skammdeginu, þá skart ar fólk sínu bezta, enda hefur frumsýningum stundum verið Ifkt við tízkusýningar. Hvað um það, i dag birtum við mynd af íslenzkum leikhúskjól, sem sýnd ur var á sýningu kjólameistara á Hótel Sögu fyrir skömmu, en það er Pálina Jónmundsdótt- ir sem ber kjólinn, en hann saumaði Vilborg Jónsdóttir. Kjóllinn er léttur og þægilegur að sitja í, iöngu ermamar gera haiv' hlýjan og pallíettumar, sem skreyta hálsmálið og erma- líningarna- gera hann að reglu lega glæsilegum kvöldkjól. 'CSestar húsmæður matreiða af og til eftir erlendum upp- skríftum, sem þær fá í erlendum blöðttm og matreiðslubókum. Þær fá nýjar hugmyndir og mat reiðsian verður skemmtilegri en oft lenda þær í vandræðum með að komast fram úr uppskriftun um, vegna þess, að þar koma bouillon :— tært kjötsoö. canapé — þunn sneið af rist- uðu brauði, þakin osti, kjöti eða fiski.i chutney — kryddaður, sætur jafningur frá Indlandi gerður úr ávöxtum og grænmeti. coddle — að láta sjóða við lít inn hita stundarkorn. fyrir heiti og orð, sem finnast ekki í venjulegum orðabókum. Einkum eru það enskar og bandariskar uppskriftir, sem eru fullar af þessum orðum, og svo auðvitað franskar uppskriftir, en þaðan eru flest þessi heiti runn in. Skandinavisku uppskriftirnar eru yfirleitt auðveldari viöfangs, en þó koma sum þessara heita þar fyrir Hka. Við ætlum nú að reyna að út- skýra nokkur af þessum orðum og við ráðleggjum þeim hús- mæörum, sem matreiöa míkið eftir erlendum uppskriftum, að klippa orðalistann úr og geyma. Orðalistinn er samkvæmt staf'- röfsröö. aspie — Hlaup úr þurrkuðu grænmetissoði, kjötsoöi eða fisk soöi blandað gelatini. Selt í pökk um eins og pakkasúpur. au beurre — með, eða soð ið i smjöri. au gratin — þakið brauð- mylsnu. barbecue — Að glóðarsteikja yfir kolum eða glóð og kryddað með sterkri sósu. compote , — ávaxtajafningur með síröpi. consommé — tært kjötsoð af kálfakjöti eða kjúklingi. crepe — mjög þunn, frönsk pönnukaka. demitasse — mjög líti-11 bolli (af kaffi). drippings — kjötfita og vökvi af kjöti, sem hefur verið steikt. fondant — sykur og síróp soðið og hnoðað í litlar kúlur. fondue — 1. bakaður eggja- réttur með osti, mjólk og brauði. 2. svissneskur ostaréttur, vana- lega með víni. fromage — franskt orð yfir ost. garnish — að skreyta með lit- skrúðugum og ólfkum mat. goulash — þykkur. ungversk ur nautakjötsréttur. herbs — kryddjurtir til skrauts og bragðbætis. hors d’oeuvres — úrval af lystaukandi forréttum. julienne — matur skormn í örmjóa strimla. kisses — litlar „marengs“kök, ur. lard —\vínafita. marinade — lögur til að bragðbæta og geyma í mat minestrone — ftalskt orð yfír þykka grænmetissúpu. mousse — léttur eftirréttur, stundum frosinn. pare — að skera hýðið af eplum og kartöflum (flysja). purée — að merja grænmeti eða ávexti í gegnum siu eða saf inn, sem kemur við þessa með- höndlun. ragout - krydduð, þykk kjöt kássa. ravioli — ítalskur hveitjafn- ingur, bakaður utan um kjötbúð ing í litlum teningum. rissole — kjötblanda þakin brauðdegi, steikt í feiti. roux — soðin blanda af hveiti og smjöri, til að nota í jafninga o. fl. scallop — sjávarréttur sear — snöggsteikja. shortening — fita. soufflé — eggjakaka með osti, kjöti, ávöxtum eða grænmeti. stock — soðið af kjöti, fiski eða grænmeti. tutti-fruttí — blandaðir ávext VEIJUM ISLENZKT [SLENZKÚRIÐHAÐUR ELDHUSINNRETTINGAR SKEIFAN 7 SÖLUUMBOÐ: ÓBINSTORG HF. SKÓLAVÖRÐUS7ÍG 16 Ódýrt — Tækifærisverð Eftirprentuð málverk meistaranna Seljum næstu daga mikið úrval af sérstaklega falleg- um eftirprentunum í stærðunum 50x70 cm, á aðetns 595. - innrammaðar í furu-ramma. — Athugið að þetta verð er sama og fyrir fyrri gengislækkunina. Um 700 mismunmdi myndir um að velja. Höfum einnig myndir á 65, 95, 195, 225, og 395 krónur. Komið meðan úrvalið er mest. ÍNNRÖMMUN og EFTIRPRENTANIR Laufásvegi 17 (við hliðina á Glæsi). Óskum að rúðu effirtuldu stcttfs- V . a* menn tðl rufmugnsdeildur ABverk- smiðjunnur í Struumsvík: Rafvélavirkjar eða rafvirkjar með reynslu við viðhaád og viögerðir ýmiss konar raftækja í verksmiðjurekstri. Ráðning frá 1. apríl 1969. Starfsmaöur á skrifstofu rafmagnsverkfræðings tíl ýmiss konar skrifstofustarfa, úrvinnslu úr mælaálestri vélritunar, verkfæravörzlu o. s. frv. Nokkur kunnátta í vélritun, góð reikningskunnátta og nokkur þekking í rafmagnstækni æskileg.. Ráðning frá 1. apríl 1969. Starfsmenn með góða þekkingu á sjálfvirkum stjórn- búnaði, sérstaklega rafeindabúnaði, æskileg undir- staða er próf í radíósímvirkjun, útvarpsvirkjun, eða tiT- svarandi svo og enskukunnátta. Þeir, sem þar aö auki hafa sveinspróf í rafvélavirkjun ganga að öðru jöfnu fyrir. Ráöning frá 1. apríl og 1. maí 1969. Nánari upplýsingar verða veittar á skrifstofu vorri í Straumsvík. Skriflegar umsóknir sendist fyrir 18. marz 1969 til ís- lenzka álfélagsins hf. Pósthólf 244, Hafnarfirði. Umsóknareyöublöð má fá á skrifstofu vorri í Straums vík, Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar, Austur- stræti 18, Rvík og í Bókabúð Olivers Steins, Strand- götu 39, Hafnarfirði. ÍSLENZKA ÁLFÉLAGIÐ HF. Hugmyndasamkeppni íþróttasamband íslands hefur ákveðið að efna til hug- myndasamkeppni um gerð merkis fyrir íþróttahátíð Í.S.Í. 1970. Merkið verður notað í barmnælu, í minnispening ca 5 cm í þvermál og einnig til almennra auglýsinga. Tvenn verðlaun verða veitt kr. 10.000 og kr. 5.000. Tillögur skulu merktar dulnefni höfundar og sendar í lokuðu umslagi ásamt nafni og heimilisfangi höfundar til íþróttasambands íslands, íþróttamiðstöðinni, Laug- ardal fyrir 1. maí n.k. ÍÞRÓTTASAMBAND ÍSLANDS Takið eftir Opið öll kvöld og um helgar. Verzlunin ÞÖLL — Veltusundi 3 (gegnt Hótel íslands bifreióastæðinu) SIGTÚNI 7 — SÍMI 20960 BÝR TIL STIMPLANA FYRIR YÐUR FJÖLBREYTT ÚRVAL AF STIMPILVÖRUM

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.