Vísir


Vísir - 22.03.1969, Qupperneq 4

Vísir - 22.03.1969, Qupperneq 4
Kemurðu upp um þig í Sérhvert okkar ver um þriöj- uagi ævi sinnar í þetta... liggur meö lokuð augu í því ástandi. sem kallað er SVEFN. Sérfræðingar hafa dundað viö það um árabil að finna skýringar á hinu dularífulla í atferli okkar. Þeir reyna að túlka hvað gerist í draumum okkar og annarri hugar starfsemi. Ein aðferðin er að fylgj ast meö okkur er við sofum. Sum ir halda því fram, að mikið megi marka af stöðu okkar, liggjandi í rúminu. Kallast það S.P.I. (Sleep Posture Interpretation). Franskir læknar starfa með hópi sjálfboða liða og hafa samið vísindalega greinargerö um málið. í Banda- ríkjunum eru kvikmyndir teknar af sofandi fólki. Læknir einn segir: „Þegar fólk sefur, tekur undirmeðvitundih við. og hennar verkefni er að láta hugann glíma við fortíöina eða óleyst verkefni af ýmsu tagi. Er þetta gerist til dæmis í draum um, leggst persónan í þær „stell- ingar'1, sem sýna hvernig hún bregzt viö vandamálum lífsins.“ Auðvitað breyta margir um stöðu svefni? margsinnis á hverri nóttu. Flestir sofa á hliðinni, segja læknarnir, og fremur á annarri eftir vana. Konur sofa frekar á maganum en karlar. Þeir liggja frekar á bakinu en konur. Sérfræðingar telja, að gera megi ákveðið kort, ef fylgzt er með ákveðinni manneskju, sem veltir sér á ýmsa vegu um nótt ina. Undín í hnút. Sérfræðingar segja, að þetta sé sígilt dæmi um það „að hverfa aftur til móðurkviðar“, til tímans fyrir fæðingu. Sálfræðingar segja: „Þessi persðna gerir sér rellu út af hlutunum og vili gefa sig að hugarórum bernskunnar á nýjan leik. Staðan í svefni táknar líklega, að stúlkan sé mjög ástfangin og vilji vera háð eiginmanni sínum eða öðrum ástvini af hinu kyninu“. ÞEIR, SEM SOFA A BAKINU. „Þetta er yfirleitt stolt fólk með sterkan persónuleika og í svefni er það að sýna, að ekkert geti raskaö jafnvægi þess. Þar sem það er vel á verði, heldur það ekki, að nokkru sinni komist upp um það, svo annað fólk sjái. að það hafi ákveðna veikleika, sem annars eru faldir. KODDAFAÐMLÖG. Þrýsti fólk koddunum að sér i svefni, sýnir það mikla þörf fyrir ástúð og umhyggju. Hafi menn höfuðið undir sænginni, eru þeir svartsýnir. Fólk, sem „dettur út af“ frá bókalestri er eins og þeir sem síétandi eru sætindi. Það á erfitt með að „slappa af.“ Sofi menn með höfuöið hang- andi út fyrir rúmið, þá eru þeir yf irleitt með sektarkenndir. Á MAGANUM. Hamingjusöm manneskja, sem hefur aðlagazt aðstæðum vel. Til dæmis: Ég er viss um að ástvinur minn yfirgefur mig ekki. TEYGJANDI ÚR SKÖNKUNUM. Eirðarlaus manneskja, æst og alltaf á ferðinni. Hefur „kom- plexa" og hættir til einræðis- hneigðar. Þaer stúlkur sem stinga þumal fingrinum upp í sig og faðma bangsa eöa dúkku, þurfa stöðugt á hughreystingu að halda. Rellu- samar og óttast að týna ástvini sínum. Nú getur hver litið í eigin barm, eða látið aðra gera það fyrir sig. VELJUM (SLENZKT <H> ÍSLENZKAN IÐNAÐ | M JBP-HiIIur JON LOFTSSON h/f hringbraut I2i.sími iosoo I* V.W.WAW, J. B. PETURSSON SF. ÆGISGÖTU 4 - 7 58 13125,13126 ICL.JEÐNENQ HF. * Fagmenn fyrir hendi ef óskaS er LAUGAVEGI 164, SIMI 21444. i

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.