Vísir - 27.06.1969, Blaðsíða 13
V í SIR . Föstudagur 27. júní 1969.
»^^^^^^^^^^WWV¥WVMV¥¥¥»>W¥V¥¥¥¥V¥¥¥¥y¥¥¥V¥¥¥W¥y¥¥¥¥¥V¥¥¥¥»
T3
Ottó Schopka
SPJALLAÐ UM IDNÞRÓUNiNA
SKIPASMÍÐAR
Á TÍMAMÓTUM
málin allt öðruvfsi við. Hér eru
til stöðvar, sem hafa sýnt að
þær geta smíöað vönduð og full
komin skip og á samkeppnis-
hæfu verði, ef þeim eru tryggö
samfelld verkefni. En það eitt.
nægir engan veginn til þes-s áö
útgerðarmenn og aörir leiti ti!
þeirra um smíöi nýrra skipa. í
flestum nágrannalöndum okkar
bjóða stöövarnar 75-80% liostn-
áðarverðs að Iáni til 8-10 ára
með 6% vöxtum. Ef íslenzku
stöðvunum verður ekki gert
kleift að bjóða hliðstæð kjör,
eru miklar líkur á að sú saga
endurtaki sig, sem oröið hefur
svo mörgum hneykslunarefni á
undanfömum árum, að íslend-
ingar láta smíða allan sinn skipa
stól erlendis.
En þess gætir þegar, að mikil
hætta sé á aö þetta gerist aftur.
Sambandiö héfur í athugun að
endurnýja skipastól sinn, en
girnileg lánstilboð erlendra
skipasmiðja geta hæglega valdið
því, að þáu skip verði smíðuð
erlendis.
íslenzk skipasmíðastöö á þess
kost að smíða tvö lítil fiskiskip
fyrir Indverja, ef þau viðskipti
falla kaupendum í geð, eru lik-
ur á að um allmiklu meiri við-
skipti geti oröið aö ræöa. En
íslenzka stööin veröur að bjóða
svipuð lánskjör og t. d. Noregur,
Danmörk ög Holland. Takist
það ekki er líklegt, að ekki verði
af samningnum. Það tækifæri,
sem þarna býðst, má ekki fyrir
nokkurn mun láta sér úr greip
um ganga.
Það er ljóst, að það sem haml
ar viðunandi nýtingu skipasmiöj-
anna, er skortur . fjármagns,
Þetta fjármagn verður -að út-
vega, því að allt mælir-með því
að íslendingar ættu aö geta ver-
ið meðal fremstu þjóða heims á
sviði fiskiskipa, ef fjármagn
skortir ekki, Erlendar lántökur
í þessu skyni ættu. ekki .aö hafa •
n.ein, Qhagstæð áhrif á efnahags-
þróunina innanlands nemá .siður:;
væri á meðan ónóg atvinna ér v
landinu og iðnaðarmenn verða
að leita í stórum hópum til
starfa í öðrum löndum. \
Skipasmíðaiðnaðurinn er áfar ’-
vinnuaflsfrek atvinnugrein, . —
vinnulaun eru stór þáttur f frám
leiðslukostnaðinum. Þótt ekki
væri némá af þesari ástæðu er
full þörf á að búá svo um hnút-
ana, að íslendingar geti smíðaö
sín skip sjálfir og til útflutnings
að auki. Þaö væri í meira lagi al
varlegt mál, ef verið væri aö
smíða skip erlendis fyrir Íslend-
inga á sama tíma og hér væru
verkefnalausar skipasmiðjur og
atvinnulausir iðnaðarmenn og
verkámenn. Slíkt má aldrei ger-
ast.
J síðustu viku var hleypt at
stokkunum hjá Slippstöðinni
á Akureyri stærsta skipi. sem til
þessa hefur virið ^míðað í ís-
lenzkri skipasmiðju, eitt þúsund
lesta strandferöaskipi fyrir
Skipaútgerð ríkisins. Sá atburð-
ur markar tímamót í sögu ís-
lenzks iðnaðar og þó einkum í
skipasmíðaiðnaðiQum.
En skipasmíðaiöhaðurinn stend
ur raunar á tímamótum f öðrum
skilningi og af öðrum orsökum
um þessar mundir. Hér hafa ver
ið byggðar á undanförnum ár-
um miklar skipasmiðjur, sem
hafa möguleika á að framleiða
meginhlutann af þeim skipastól,
sem Iandsmenn þurfa á að
halda. Samt er ástandið þannig,
að margar stöðvarnar hafa haft
Iangtum of lítil verkefni nú um
langt skeið en eins og gefur að
skilja er þeim mjöjg að vanbún-
aði að standast 'álík áföll til
lengdar, þar sem skuldir eru
miklar og greiðslur af lánum
skipta háum upphæðum á ári
hverju. Að sjálfsögðu á verkefna
skorturinn rætur að rekja að
sumu leyti til hins slæma árferö-
is, sem hér hefur ríkt, en margt
bendir til þess að afkoma útgerð
arinnar hafi batnað talsvert á
síðustu vetrarvertíð og áhugi út-
gerðarmanna á skipakaupum hef
ur aukizt verulega.
Um leið hefur ríkisstjórnin
marglýst þvf vfir, að ýmsar ráð-
stafanfr skyldu gerðar til þéss
að skapa skipasmiðjunum viðun-
andi verkefni. Þannig var t. d.
í ársbyrjun 1968 heitið 10% við-
bótarlánafyrirgreiðslu til þeirra
útgerðarmanna, sem létu byggja
skip sín hér heima til viðbótar
við 75% lán Fiskveiöasjóðs, en
lán sjóðsins til fiskiskipa, sem
smíðuð eru erlendis, nema mest
67% af verðmæti skipsins. Þá er
og skemmst að minnast þess að
Atvinnumálanefnd ríkisins sam-
þykkti að ráðstafa 50 m. kr.
til skipasmíða í íslenzkum skipa
smíðastöðvum til atvinnuaukn-
ingar. Er um þessar mundir unn
ið að gerð áætlunar um smíði
fiskiskipa, sem Atvinnumála-
nefndin mun greiða fyrir.
En svo ágæt sem þessi fyrir-
heit-um-aöstoð-kuana að vera,
þá hafa þau fram til þessa
reynzt heldur gagnlítil, en alvar-
legast er þó. að sá hlekkur. sem
mikilvægastur er, Fiskveiðasjóð
ur, er algerlega ófær um að fjár
magna nokkrar verulegar skipa
smíðar hér innanlands næstu ár.
Því^veldur, að sjóðurinn er að
greiöa niður stutt-tíma-Ián, sem
tekin voru erlendis fyrir fáum
árum, þegar skipasmíðar fyrir
íslendinga urðu hvað méstar er-
lendis. Þær skipasmíðar voru að
verulegu leyti fjármagnaðar með
stutt-tfma-Iánum, sem hinir er-
lendu framleiðendur gátu boöið
— að sjálfsögðu með opinberri
aðstoð — og Fiskveiðasjóður yf-
irtók þessi lán og endurlánaði
kaupendum skipanna til lengri
tíma. Þess vegna er Fiskveiða-
sjóður ekki aflögufær nú til aö
efla innlendan skipasmíðaiðnað.
Siðastliðin 2 ár hefur stórlega
dregiö úr endurnýjun fiskiskipa-
flotans, aðallega af tveimur á-
stæðum. Annars vegar varö veru
leg endurnýjun á árunum 1963
- ,67, sem dregur úr endurnýjun-
arþörfinni á næstu árum, hins
vegar vegna lélegrar afkomu í
sjávarútvegi, sem hefur lamað
getu útgerðarinnar til þess að
kaupa ný skip. En nú eru ný
viöhorf að skapast og greinilega
hefur orðið vart vaxandi áhuga
útgerðarmanna á að láta smíða
ný skip, og þá einkum þær gerð
ir, sem látnar voru sitja á hak-
anum á árunum 1963-’67, þegar
stefnan var sú að hafa stærö
skipanna sem mesta. Nú er eft-
irspurn eftir minni stærðum
skipa og sú eftirspum fer vafa-
laust vaxandi, því að endurnýj-
un þess hluta flotans hefur ver-
ið vanrækt. Hér verður að gæta
þess vel, að íslenzku skipasmiðj-
unum verði sköpuð aöstaða til
þess að smíða skip, þ. e. a. s. að
nauðsvnlegt lánsfé verði útveg-
að.
Þegar uppgangurinn mikli
hófst árið 1962, voru íslenzku
skipasmiöjurnar algerlega ófær-
ar um að taka þátt í þeirri miklu
uppbyggingu, sem þá hófst enda
áttu þær ekki nema tiltölulega
lítinn hluta í henni. En nú horfa
LJÓSASTILLINGAR
Bræúúrnir Ormsson ht
1 i/ , 'Mtfmúla ,38820.
..(Betní -á.jöðii.bensinstöð BP viö Háaleitisbr.)
Seljum oruna- og annað fyllingarefni á mjög hagstæðu verði.
Gerum tilboð 1 jarðvegsskiptingar og alla flutninga.
ÞUNGAFLUTNINGAK h/f . Simi 34635 Pósthólf 741
PLATÍNUBÚÐIN, Tryggvagötu
Sfmi 21588.
Úrval af ódýrum lugtum f
alla evrópska bíla t. d.
Renault R-16, Simca, Citro-
en, Daf, o. fl.
FASTEIGNA — VERÐBRÉFASALA — INN-
IÍEIMTA — KAUP SALA — EIGNASKIPTI
Fasteigna- og veröbréfasalan. Eignaskipti. Laugavegi 11, 3ja
hæð. Sími 13711 á skrifstofutíma 9.30—7 og eftir samkomul.
Nýtizku veitingahús - AUSTURVER - Háaleitisbraut 68
— Senöum — Sími 82455
L E IG A N s.f.
Vinnuvelar til feigu
Litlar Steypuhrœrivélar
Múrhamrar m. borum og fleygum
RafknOnir Steinborar
Vatnsdœlur ( rafmagn, benzín )
J arðvegsþjöppur Rafsuðutœki
Víbratorar
Stauraborar
Slípirokkar
Hitablásarar
HÖFDATUNU - SiMI 23480
FóiS þér [slenzk gólftappi fr<5»
ggj
mtirna
TEPPflHIISIÐ
Ennfremur.édýr EVLAN feppf.
Spadð tima og fyrithöfn; og vöH$8 á einum'sfað.
SUÐURLANDSBRAUT10. REYKJAViK PBOX1311Í
n / h i
■t3S.