Vísir - 06.08.1969, Blaðsíða 4
Jóakim
Hið fyrsta af mörgum nöfnum
hins nýfædda Danaprins er, sem
kunnugt er, Jóakim. Margir eru
þeirrar skoöunar að krónprins-
essan hafi ekki sýnt fjölskyldu-
erfðum og sögu landsins nægjan-
lega tillitssemi með þessari nafn-
gift. En móðirin segir, að bamið
hafi einfaldlega hlotið þetta nafn
vegna þess, að þeim hafi fundizt
það óvenju fallegt. Og þar við sat.
Léttleiki
Meira en milljón karla og
kvenna í Sovétríkjunum iðka
einhvers konar likamsrækt, leik-
■imi og loftfimleiká. Auk þess
taka margar milljónir landsmanna
þátt í morgunleikfiminni í útvarp
inu á hverjum morgni hjá þeim
„Valdimar og Magnúsi."
Áfengisútgjöld
I Noregi eru heildarútgjöld
landsmanna til áfengiskaupa árið
1968 kr. 1.699.500.000 og nálgast
þannig 1% milljarð króna á ári.
Von Rosen
í fyrradag hóf sænski greifinn
von Ro^en að nýju þátttöku í
styrjöldinni í Bíafra. Ein af smá-
flugvélum hans varpaði sprengju
á oliubirgðastöð í Nígeríu og eyði
lagði hana. Takmark hans er að
eigin sögn einungis það, að þjóð-
inni í Bíafra verði ekki útrýmt
úr tölu sjálfstæðra þjóða.
Humphrey snýr aftur
Hubert Humphrey, fyrrverandi
varaforseti Bandaríkjanna, íhugar
nú sterklega að snúa sér aftur að
stjórnmálunum á næsta ári. —
Humphrey sagði, að hann myndi
örugglega sækjast eftir kosningu
árið 1970 sem þingmaður heima-
ríkis sins, Minnesota.
Og...
... Norömenn fíytja út sand til
Libýa.
Mótmæla sxðleysi
Fyrk skömmu safnaðist hópur
manna fyrir framan leikhús eitt í
New York til þess að mótmæla
gamaníeiknum „Oh, Calcutta", en
þar er opinskátt fjaílað um kyn-
feröismál. Mótmælendur báru
spjöld, þar sem á var letrað: Við
krefjnmst siðsemi og velsæmis í
Tistaverkunum."
BER ER HVER AÐ BAKI....
Leidd á brott að söng loknum.
Spáin gildir fyrir fimmtudaginn
7. ágúst.
Hrúturinn, 21. marz til 20. april.
Loforð geta brugðizt og flest
farið á annan veg en þú reikn-
aðir með. Gerðu því ekki neinar
fastar áætlanir, en taktu hlut-
unum eins og þeir koma fyrir.
Nautið, 21. apríl til 21. mal.
Það virðist geta farið svo, að
óstundvísi og óorðheldni, helzt
þó í sambandi við smámuni að
kalla, valdi þér óþægindum og
gremju, einkum fyrri hluta dags
ins.
Tvfburamir, 22. maí til 21. júní.
Þetta getur orðið nokkuð und-
arlegur dagur. Margt virðist
getá brugðizt, en verða þér aö
vissu leyti ávinningur, einmitt
fyrir það, þótt þaö komi ekki
strax. fram.
Krabbinn, 22. júní til 23. júli:
Gagnstæða kynið getur valdið
þér gremju og ef til vill nokkr-
um erfiðleikum í dag, en ein-
hvern hlut muntu líka eiga að
þvi, þótt þú viljir ekki e. t. v.
viðurkenna það.
Ljónið, 24. júlí til, 23. ágúst.
Þetta getur orðið sæmilegur dag
ur í peningamálum, en helzt
lítur út fyrir að eitthvað geti
gengið úrskeiðis á öðrum svið-
um, eitthvert ósamkomulag, e.
t. v. heima fyrir.
Meyjan, 24. ágúst til 23. sept.
Gerðu þér sem Ijósasta grein
fyrir þeim viðfangsefnum, sem
bíða þín í dag og láttu þau,
sem þola bið, sitja á hakanum.
Gerðu engar fastar áætianir fyr-
ir kvöldið.
Vogin, 24. sept. til 23. okt.
Þetta getur orðið vel sæmilegur
dagur, þegar hann er allur, þótt
eitthvað gangi öfugt til að byrja
með. Reiddu þig ekki um of á
loforð annarra, eða að þeir
standi við ákvarðanir sínar.
Drekin11, 24. okt. til 22. nóv.
Bréf eða fréttir kunna að berast,
sem valda þér nokkrum áhyggj-
um eöa jafnvel gremju, en varla
til lengdar. Þú færð það mörgu
að sinna, að það gleymist.
Bogmaðurinn, 23. nóv.til21. des.
Minnstu ákvarðana og loforða,
og ræddu við þá, sem hlut eiga
að máli, getir þú ekki efnt það,
sem umrætt var. Vafalítið ger-
ist eitthvað í kvöld, sem kemur
þér á óvart.
Steingeitin, 22. des. til 20. jan.
Gættu þess vel áð koma ekki
ódrengilega fram við vini eða
nákomna ættingja. Athugaðu, að
þeir leggja e. t. v. meiri áherzlu
á þá hluti, sem skipta þig minna
máli.
Vatnsberinn, 21. jan. til 19. febr.
Góður dagur, nema hvað ýmis-
legt gengur kannski seinna, en
þú gerðir ráð fyrir. Athugaðu
vel hvort framkvæmdir sem þú
hefur í hyggju, svara kostnaði.
Fiskamir, 20. febr. til 20. marz.
Farðu gætilega í öllum áætlun-
um, einkum í sambandi við pen-
ingamálin, og leggðu ekki of
mikinn trúnað á gróusögur í
sambandi við einhver áhættu-
viöskipti.
••••»•••••••••••••••••••••■•••••••••
Páfanum mótmælt
af sér þingmennsku. En ekki
gengu mótmælin þrautalaust.
Mót-mótmælendur lögðu til at-
lögu við kröfuspjaldamenn og
kðstuöu einmg eggjum og tómöt-
um. Meðal þeirra var hinn 14 ára
gamli sonur Roberts heitins
Kennedys, Robert yngri. — Ber
er hver að baki, nema sér bróður
eigi.
ana sæla í sumarleyfi sínu í Hy-
annis Port. í sjónvarpsræðunni á
dögunum bað hann fólk að tjá
huga sinn um slysiö og framtíð
hans sem þingmanns. Honum hef-
ur sannarlega orðið aö beiðni
sinni — á marga vegu. Blaðafull-
trúi hans segir, að samúöarkveðj-
ur fólksins streymi að í sífellu, en
fyrir utan sveitasetur fjölskyld-
unnar þ^óta egg og tómatar. Það
er einkum ungt fólk, sem á örð-
ugt með að fyrirgefa þingmannin-
um framkomu hans eftir slysið.
Þaö hefur nú nokkrum sinnum
safnazt saman fyrir framan sveita
setrið með mótmælaspjöld, þar
sem þess er krafizt, að hann segi
Tvíburar mæð-
ur samdægurs
Fyrir skömmu vakti ung stúlka
mikla athygli vegfarenda á Pét-
urstorginu í Róm, er hún tók að
kyrja mótmælasöng gegn banni
páfa við notkun pillunnar marg-
frægu. Stúlkan, Suzanne Harris,
er 22 ára Bandaríkjastúlka og
kaþólsk. Hún orti sjálf mótmæla-
sönginn. Páll páfi gat ekki hlýtt á
söng stúlkunnar, þar eð hann
dvaldist um þær mundir á sveita-
setri sínu Castelgandolfo. Þegar
Suzanne hafði lokið söng sínum,
leiddu tveir lögregluþjónar hana
á brott.
ÞJÓÐLEG í
LEIKFÖNG i
Leikföng frá Mordva-sjálfstjóm
arlýðveldinu í Sovétríkjunum
hafa lengi verið vinsæl. I þorpinu
Meltsani hefur verið reist nýtt
fyrirtæki, sem framleiðir leikföng
og minjagripi í þjóðlegum stfl.
Hér eru sýnishom — i senn
minjagripir og felustaðir fyrir
vínfleyg! (Fréttir frá Sovétríkjun-
um).
Edward Kennedy, öldungadeild-
arþingmaður, á víst ekki sjö dag-
Robert Kennedy yngri.
í Minsk í Rússlandi gerðist sá
óvenjulegi atburður fyrir skömmu
að tvíburasysturnar Galína og Ir-
ina Falévítsj eignuðust sín fyrstu
böm samdægurs. Báðar ólu þær
drengi — með aðeins 3 y2 klst.
millibili. Galína vinnur í mat-
vörubúð, Irina í skógerð. (Fréttir
frá Sovétríkjunum).
Suzanne Harris stundar nám
við kaþólskan háskóla í Banda-
ríkjunum, en hefur nú tekið sér
árs leyfi, til þess að koma mót-
mælum sínum á framfæri. Systir
hennar er nunna. Mótmælasöngur
hennar fjallar um þær þjáningar,
sem bann páfans gegn notkun
pillunnar hefur í för með sér. J
Síðasta vísan hljóðar svo: • ,---. •——■ - ----
— en þegar við hlustum áóp?
barnanna,
bamanna, sem einlægt svelta,
þá veit ég, að flestir spyrja
„ertu viss um, að þetta sé vilji
Guðs?“
l