Vísir - 10.09.1969, Blaðsíða 7
V ►
r þ*
r r . r r ■ i
r t y r f
f t f 1 r •'
VÍ3ÍS. . Miðvikudagur 10. september 1969.
Egyptar féllu fyrír einn Israelsmaim
150
Búizt v/ð gagnárás Egypta
■ ísraelsmenn segja, að 1 ið í árás ísraelsmanna, en
100—150 Egyptar hafi fall- aðeins einn Gyðingur. ísra-
1 elsmenn misstu eina flug-
vél, sem skotin var niður.
Að minnsta kosti 50 Egypt
ar féllu, þegar flugstöð var
sprengd í loft upp.
Moshe Dayan fylgir hinni hörðu
stefnu sinni sem fyrr og sinnir ekki
kvenlegri viðkvæmni Goldu Meir,
f orsætisráðherra.
Dauðnrefsing upp
fekin í Brasilíu
• Herforingjastjórnin í Brasiliu
breytti í gær stjórnarskrá rík-
isins til þess að unnt yrði að taka
menn af lífl fyrir neðanjarðar- og
byltingarstarfsemi.
Eftir að bandaríska ambassadorn
um, C. Burke Elbrick, var rænt á
dögunum hefur stjórnin einsett sér
að grípa til hvers kyns ráða til að
halda friði í landinu. Þannig hafði
strax á mánudag verið út gefin til-
skipun um að vísa mætti úr landi
sérhverjum, er sekur yrði fundinn
um neðanjarðarstarfsemi. Nú hef-
ur enn verið hert á tökunum.
í Beirut í Líbanon búast menn
við, að Egyptar geri gagnárás og
hefni harma sinna.
Moshe Dayan, hermálaráðherra
ísraels, segir, að árásin hafi verið
gerð til að svara þrjózku Egvpta,
sem ekki vilji viðurkenna staðreynd
ir í málum austur þar. Eigi Egypt-
ar að setjast að samningaborði eöa
hafa verra af.
í hinni óvæntu árás lsraelsmanna
yfir Súezskurð í gær eyðilögöu
skriðdrekar þeirra hvað, sem fyrir
var á 600 kílómetra svæði. Svo
sem fyrri árásir þeirra, kom þessi
Aröbum í opna skjöldu.
Þá hóta ísraelsmenn fleiri árás-
um í framtíðinni, ef Arabar láti
sér ekki segjast.
Lönd Múhameðstrúarmanna hafa
skoraö á Sameinuðu þjóðirnar að
aflétta hernámi Gyöinga í Jerú-
salem. ísrael sakar Araba á móti
um tilraunir til að notfæra sér
styrjöldina í stjórnmálaskyni.
Fréttaritari einn taldi 20 fallna
Araba á einum stað. Hann segir,
að Egyptar hafi ekki veitt viðnám
nema á stöku stað.
Stjárnarsamstarfið veltur
á Vinstri flokknum
Auðvitað eru haustfargjöldin fjórðungi hagstæðari
— en fyrirgreiðslan er jafngóð allan ársins hring —
og svo má fljúga strax —
en greiða hálft fargjald síðar.
Það kostaboð er einnig gefið þeim, sem viija njóta
haustfargjaidanna hagstæðu.
FLUGFAR STRAX — FAR GREITT SÍÐAR
'OFTLEIÐIR
ucear i ■■ ■ ■ ■ 3æiTae«mBai
TALNINGU utankjörstaðaratkvæða
var að Ijúka í norsku kosningun-
um í Noregi í morgun. Þó var ekki
talinn vafi á, að borgaraflokkarnir
héldu sínum nauma tveggja sæta
meirihluta. Forystumenn þeirra
lýstu því í morgun, að stjórnar-
samstarfinu yrði haldið áfram, þrátt
fyrir hina miklu fylgisaukningu
Verkamannafloklesins.
Þó beinist athyglin að Vinstri
. flokknum, sem galt nokkurt afhroð
í kosningunum. Mun hann nokkuö
klofinn t afstöðu sinni og vinstri
armur þessa milliflokks er ekki alls
kostar ánægður með áframhaldandi
stjórnarsetu hans.
Alls fengu borgaraflokkarnir 76
þingsæti en Verkamannaflokkurinn
74. Vann Verkamannaflokkurinn
sex sæti, en borgaraflokkarnir töp-
uðu fjórum. Sósíalíski þjóðarflokk-
urinn þurrkaðist út af þingi, tap-
aði tveimur sætum, og virtust
stuðningsmenn hans snúa aftur til
Verkamannafloklcsins, sem þeir yf-
irgáfu fyrir fjórum árum.
Arftaki Guevara drepinn
Einu sinni var Che Guevara skegg-
Iaus, sem myndin sýnir. Síðar safn-
aði hann skeggi og byltingarmönn-
uni í Bólivíu. Vinur hans og arf-
taki hefur nú einnig látiö lífið i
''cssari baráttu.
• Helzti arftaki kúbanska bylt-
ingarleiðtogans Che Guevara féll í
gær í bardaga við lögreglulið í
La Paz í Bóliviu.
Ráðherra í stjórn Bólivíu, Eufr-
onio Padilla offursti, upplýsti, að
Guido Inti Peredo, foringi uppreisn-
armanna, hafi fallið, er hann sner-
ist til varnar gegn lögreglunni. —
Höfðu yfirvöldin komizt á sporið
og króað hann af.
Guevara hafði farið frá Kúbu til
Suöur-Ameríku á vegum Kastrós
og ætlað að hrinda af stað bylt-
ingu, einkum í Bólivíu. Guevara
var aö lokum, handtekinn og tek-
inn af lífi, en starfrrmi Kastró/ta
hefur veriö haldið til streitu. Starfa
þeir í ýmsum rikiuni Suöur-Am-
eríku. Dráp Peredo er talið áfa'l
fyrir hrevfingu Kastróita.
afsláttur
15. t Dtember til 31. október
82 farast er
flugvélar
Meira en 82 menn létu lífiö
í gærkvöldi, þegar Dc-9 flugvél,
bandarísk, rakst á einkavél. Dc-
9 vélin var á leið frá Boston til
Indíanapolis. Varð áreksturinn
i 800 metra hæð í skýjaþykkni.
I vélinni voru 78 farþegar og
fjögurra manna áhöfn, en ekki
rekast á
hefur spurzt um áhöfn einkavél-
arinnar. Vegna hinna fjölmörgu
flugvéla í Bandaríkjunum, er
þar vaxandi vandamál og reynir
mjög á hæfni flugumsjónar-
manna að ekki hljótist stórslys
af í mörgum tilvikum.
5WW