Vísir - 10.09.1969, Síða 8

Vísir - 10.09.1969, Síða 8
cof / VÍSIR ___■V. • Dtgerandi RevKjaprent H.t Framkvæmdastjon Sveinn R. Eyjólísson RitstjOrt: JOnas Kristjðnsson Aðstortarntstjóri Axel Thorsteinson FréttastjOri: Jón Biri.it Pétursson RitstjOmarfulltrúi Valdimat H Jóhannesson AuglVsingar Aðalstræti 8 Simar 15610 11660 og 15090 Afgreiðsla Aðaistræti S, Slrni 11660 Ritstjóro Laugavegi 178 Slmi 11660 (5 liriur) AskritfarKjald kr 145 00 ‘ mánuði innanlands I lausasftlu kr 10 00 eintakið ^rentsmiðia Visis — Edda h.f Allt á sama stað |£arl Guðjónsson, alþingismaður Alþýðubandalagsins fyrir Suðurland, lýsti yfir því á kjördæmisráðsfundi fyrir skömmu, að hann mundi ekki bjóða sig fram aftur undir merkjum Þjóðviljaklíkunnar sem réði einu og öllu í Alþýðubandalaginu. Karl flutti á fundinum langan reiðilestur um yfir- gang Þjóðviljamanna í Alþýðubandaiaginu Hann sagði, að sú klíka hefði í engu breytt vinnubrögðum sínum, hagaði öllum málum gersamlega að eigin geð- þótta og hikaði ekki við að þverbrjóta lög flokksins og ályktanir, ef henni byði svo við tö horf?. Ýmsir helztu oddvitar flokksins hefðu þverbrotið ályktun flokksins um ekkert samneyti við iiinrásarríki Var- sjárbandalagsins. Öll völd í Alþýðubandalaginu væru raunverulega í höndum ÞjóðviljaKlíkunnar Á fundinum tóku fleiri í sama streng og Kari, þar á meðal annar maður á lista Alþýðuband'.lagsms á Suð- urlandi, Björgvin Salómonsson. Virðast uppreisnar- mennirnir í Alþýðubandalaginu njóta töluveiðs fylgis á Suðurlandi, og.stuðlar afstaða Kans mjög að því, að Alþýðubandalágið klofni um land allt. Til skamms tíma hefur litið svo út sem Þjóðvilja- klíkunni mundi takast að halda töluverðum hluta fylgis Alþýðubandalagsins. Þjóðviljamenn eru þraut- þjálfaðir í þeim leik, sem til þess þarf, og hafa gert nafnskiptatæknina að sérstakri listgrein í hvert sinn, sem þeir hafa lent í alvarlegu mótlæti, hafa þeir náð að halda sínu með því að skipta um nafn 03 dyljast undir fölsku flaggi. Fyrst hétu þeir kommúnistar, síð- an sósíalistar og nú Alþýðubandalagsmenn. Og alltaf hafa fylgismenn látið blekkjast. Það er t'yrst nú, að þeir eru að sjá sannleikann i málinu. Hann er sá, að það eru sömu mennirnk, sem ráða öllu í Alþýðubandalaginu og réðu kommúnistaflokknum á sínum tíma, þegar hann hét sínu rétta nafni. Að vísu er of snemmt að spá, hve víðtæk og langvinn þessi nýja innsýn óánægðra Alþýðubandalagsmanna verð- ur. Hvaða álit, sem menn hafa á Hannibal Valdimars- syni og uppreisnarmönnum hans, hljóta allir lýðræðis- sinnar að óska þess, að gríman nái að falla af íslenzk- um kommúnistum, svo að fylgi þeirra far> niður í eðli- legt mark. Áhrif þeirra hafa of lengi venð of mikil, íslenzku þjóðfélagi til mikils tjóns. í krafti Þjóðvilj- ans ráða þeir lögum og lofum í Alþýðubandalaginu. Á sínum tíma héldu margir þýzkir stjórrimálamenn, að þeir gætu notað Hitler og ráðið sjálfir. Það var mikill misskilningur. Til skamms tíma hafa lýðræð- issinnaðir Alþýðubandalagsmenn haldið, að þeir gætu notað kommúnista til þess að byggja upp vinstri fylk- ingu. Það var jafnmikill misskilningur. Kommúnistar kunna til verks í valdasviptingum cg verða jafnan ofan á. En nú eru þeir þrátt fyrir allt sífellt að verða fleiri, sem sjá, að tilgangslaust er að starfa með kommúnistum. Og nú hefur Karl Guðjónsson bsétzt í bann hóp. V í S IR . Miðvikudagur 10. september 1969. -tljmiMMMW—miniimiiuiLMi . ni.»jiw.j««a Sá sem er fyrstur nær 1 feitustu fritana og verður því oft mikill handagangur í öskjunni. ÚTSÖLURNAR BJARGA ÖLLU í DÝRTÍÐINNI — Viðskipti sem allir hagnast á ^llt í fjöri iöar, titrar. Útsölu- skiltin þjóta upp eins og gor kúlur. Eiginmenn eru trekktir upp, dregnir niður I bæ. Verðmið ar f öllum regnbogans litum standa í búðargluggum, lítillát- ir og feimnislegir eins og þeir hálfskammist sín fyrir töluna sína svona í miðri dýrtíðinni. Vinnulúnar húsmæöur í regn- kápum horfast í augu við bros- andi og spengilegar gínur í skrautlegum baðfötum. Vegfar- endur telja í budduræflinum meðan kaupmaðurinn reynir að bretta niður tærnar á gömlu skónum, sem alltaf hafa gleymzt niðri f kjallara. Það er enginn vafi, það er útsala í Reykjavfk. Dtsölur eru hið mesta menn- ingarfyrirbæri. Þá geta kaupend ur látið eftir sér að eignast fall- egu fötin, sem hafa verið f tlzku allt sumarið. Frottebaðfötin, sól gleraugun með stóru glerin, strandskómir með mjóu böndun um og töskumar með Mallorka myndunum, allt rennur út eins og heitar lummur, Regnhlífar eru aftur á móti, og því miður, ófáanlegar. Það er líka miklu meira gaman að verzla, þegar útsala er. Þá þarf maður ekki að vera eins formlegur og upp- stilltur í verzlununum. Til dæm ir má alveg ganga um allt og handfjalla og þreifa á nörun- un. Meira að'segja er hægt að fara um búðina og benda og spyrja eins og krakkarnir: „Hvað kostar þetta og hitt?“ Kaupmað- urinn, sem síðan kl. 9 um morg uninn hefur rogazt með sama brosið, heldur því enn, svarar og þylur upp tölur og.ber sn-- an við gamla ókristilega v- Verðmiðarnir lítillátu bro-' litabrosi þessu til samþyki gamla, gulnaða verðskráin si. sér við f skúffunni af hryllingi Kaupmaðurinn er yfir sig á- nægöur. Aldrei hefur ískrað jafnoft í útidyrahurðinni í sum ar og einmitt nú. Og þegar hann gengur á bak við, inn á lager- inn, til þess að herða á sendi- sveininum við að bursta rykið, hugsar hann með sér að réttast ; bara að stækka við sig fyr- 'in. Siðan gleymir - hann tví og sendisv^rninum,-^et; . app brosið aftur og skýzt fram fyrir. Þar standa viðskipta vinirnir við hillurnar og býsn- ast yfir, hve bamafötin séu krúttleg og sæt. Milli klukkan fimm og sex eykst ösin um allan helming, allir kaupa eitthvað Lokserkom inn lokunartími. Kaupmaðurinn leggur brosið á hilluna en er þó hinn ánægðasti. Kaupendur eru komnir hver til síns heima með dofna fætur og horfa á hvernig börnin rífa utan af pinkl ;f unum. Allir eru uppgefnir, en hre’ssir i bragði yfir góðum verzi unardegi. Aðeins ef það er útsala, er sjálfsagt að str.nzt og skoða, jafn- vel þó aö hinn sami komi aldrei til með að nota þann varn- ing, sem á boðstólum er.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.