Vísir


Vísir - 04.10.1969, Qupperneq 1

Vísir - 04.10.1969, Qupperneq 1
► Vegur undir vegur yfir B Strákarnir í Kópavogi iðuöu í skinninu í gærdag eftir að fá að aka nýjan tengiveg undir um- ferðarbrýrnar nýju, en í morg un var vegurinn opnaöur fyrir almennri umferð. Tengivegurinn er milli Kársnesbrautar og Ný- býlavegar undir brýmar, sem byggöar hafa verið yfir gatna- mótin. B Eldri ökumennirnir hafa lik- lega ekki síður hlakkaði til aö fá þennan veg því hann greiöir mjög umferð milii bæjarhlut- anna, sem alltaf er töluverð, auk þess sem vesturbærinn kepist f betra samband við hina nýju hraðbraut um Kópavog. , B Umferðarmerki hafa ekkl verið sett upp á þessum stað að sögn forráöamanna byggingar- nefndarinnar vegna anna við aðr ar framkvæmdir en almennar umferðarreglur gilda á þessu svæði. Gangbrautir verða merkt- ar sérstaklega fyrir gangandi veðfarendur, þar til gangstéttar- gerð er lokið. B Deilumálið milli ÁTVR og bandarísku tóbaksframleiðend- anna er nú á því stigi að „allt bendir til þess að pakkarnir verði ekki merktir í Bandaríkj- unum“, eins og Jón Kjartansson Vísir í vikuSokin fyigir biaðinu í dag til áskrifenda forstjóri ÁTVR sagði í viðtali við blaðið í gær. Von er á fulltrúa sambands bandarískra tóbaksframleiðenda til íslands, eftir helgina, til viðræðu við ÁTVR, einnig er von á fulltrúa fyrirtækisins Brown & Williamson til Iandsins, í sömu erindagerðum. Ekki varð af neinu samkomulagi milli ÁTVR og Blanco, fulltrúa R. J. Reynolds fyrirtækisins á fundi þeirra. Lýsti Blanco því yfir, sem áður hafði frétzt, að bandarisku framleiðendunum fyndist of sterkt að oröi kveðið á íslenzka varúðar- miðanum, sem á að fylgja síga- rettupökkum, og yrðu miöarnir ekki settir á pakkana í Bandaríkjunum. ÁTVR skýrði hins vegar frá því, að orðalagi miðanna og íslenzkum lögum yröi ekki breytt. Nýting Loftleiða- hótelsins yfir 100% — Aningarfarþegum fjölgar stöðugt — M'órgum visað frá i sumar vegna þrengsla B Loftleiðamenn verða varla vændir um, að þeir nýti ekki fjárfestlngar sínar nægj anlega vel. í allt sumar hefur nýting hótelsins verið fyrir ofan 100%, nema í septem- ber, þegar nýting hótelsins varð „aðeins“ 94,6%. Mest varö nýting hótelsins I ágúst 105,1% sem er metmánuð ur frá upphafi. í júní ívar nýting in 100,6% og í júlí 102,1% sem næstbezti mánuður frá upp hafi — Skýringin á því, að hægt er að nýta hótel meira en 100% er sú, að sama herbergið er léigt tveimur sama sólarhringinn. Vegna þrengsla í hótelinu varðað vísa mörgum svokölluð- um „áningarfarþegum“ frá yfir háannatímann og uröu þeir því færri, en ella. Engu að síður varð 11,3% aukning á þessum gestum fyrstu níu mánuöi þessa árs mið að við sama tíma í fyrra. Þeir urðu 8747 á móti 7860 í fyrra. Flestir urðu þeir í september, en að sjálfsögðu hefðu þeir orðið fleiri yfir hásumarið, ef föng heföu verið á að hýsa þá. Áningarfarþegar greiða 44 dali fyrir tveggja daga dvöl hér með gistingu, mat og skoðunar- feröum. Fyrir einn dag greiða þeir 19.50 dali. — Langflestir eru hér tvo daga og má því reikna með, að aðeins þessir far- þegar gefi af sér 30—40 milljón- ir króna I erlendum gjaldeyri með dvölinni hér. Ljésavélarstimpill stöBvar Ægi í mánuð — vibgerð á Þór, eftir brunann i fyrravetur, lýkur um áramótin B „Oft veltir lítil þúfa þungu hlassi“, er mál- tæki, sem starfsmenn Land- helgisgæzlunnar hljóta að hugleiða nokkuð þessa dag- ana. Flaggskip stofnunarinn- ar, Ægir, hefur nú í nokkrar vikur verið stopp hér í Reykjavík vegna brotins stimpils í Ijósavél skipsins. — Auðvitað getum við notað skipið, þó að ljósavélin sé ó- virk, sagði Pétur Sigurðsson forstjóri Landhelgisgæzlunn- ar í viðtali við Vísi, en við get um ekki unnið í því úti á sjó án ljósavélarinnar. Við höfum ekki viljað láta vinna nema dagvinnu viö að Iagfæra ljósavélina til að spara fyrir ríkiskassann og höfum því sett Albert í gang i staðinn með megnið af áhöfn Ægis, sagði Pétur Sigurösson. Ljósavélin í Ægi er að vísu ekki alveg ein um framleiðslu rafmagns um borð. Rafall er í sambandi við aðalvél skipsins, en töluvert álag þarf að vera á vélinni til að hún fullnægi raf- orkuþörfinni. Þá er einnig neyð- arljósavél um borð í skipinu eins og skylt er. Þór er enn til viðgerfiar eftir brunann, sem varð urrt' fcorð i seinnipart fyrravetrar. Er ráð- É gert að viðgerðinni verði lokið - um næstu áramót, en miklar skemmdir urðu í skipinu eins og kunnugt er. Enn er ekki víst hversu dýr viðgerðin verður, en miklar skemmdir urðu vegna hita og reyks fyrir utan bruna- skemmdimar sjálfar. Hefur m. a. þurft að taka upp nokkrar stálplötur, sem hafa skemmzt af hitanum og sömuleiðis endur- bæta rafleiðslur og tæki Gamla kjötið rennur út — búizt við minnst 10°/o aukningu i kjötframleibslunni i ár • Við reiknum með að kjöt- framleiðslan verði í það minnsta 10% meiri í ár en í fyrra, sagði Vigfús Tómasson, sölustjóri hjá Sláturfélagi Suðurlands í viðtali við Vísi í gær. — Og sennilega er það þó of lágt reiknað, bætti hann við, þar sem þessi áætlun er gerð meðan bændur höfðu ein hverja von um að ná heyjum Inn. Framleiðslan á kindakjöti nam í fyrra rúmlega 12400 tonnum eða 841603 skrokkum, og þann 1. sept- ember eða í þann mund að slátuj:- tíöin var að hefjast voru 7—800 tonn eftir af kjötinu frá í fyrra, samkvæmt upplýsingum, sem Vísir fékk hjá Framleiðsluráði. — Þetta kjöt var svo til alveg hætt að seljast, sagði Vigfús, sölu- stjóri Sláturfélagsins, en nú hefur mikill skriður komið á söluna, eftir að auglýst var 10 kr. lækkun á gamla kjötinu frá og með 1. októ- ber. — Við höfðum sent mikið af gamla kjötinu í verzlanir í borginni og eins í kaupfélögin á Suðurlandi, 31943 kom upp Dregið var í Landshappdrætti Sjálfstæðisflokksins á miðnætti sl. þriðjudags. Þar sem ekki höfðu borizt skil utan af landi var vinn- ingsnúmerið innsiglað, en innsiglið brotið í. gær. Vinningsnúmerið var 31943 og getur sá heppni vitjað vinningsins á skrifstofu flokksins að Laufásvegi 46. VISIR 59. árg. — Laugardagur 4. október 1969. — 218. tbl. Pakkarnir ekki merktir / USA

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.