Vísir - 04.10.1969, Side 8

Vísir - 04.10.1969, Side 8
8 VÍSIR k Laugardagur 4. október 1969. VISIR Otgefandi: Reykjaprent h.f. Framkvaemdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Ritstjómarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson Auglýsingar: Aðalstræti 8. Símar 15610, 11660 og 15099 Af««eiSsIa: Aðalstræti 8. Simi 11660 Rltstjöna: Laugavegi 178. Simi 11660 (5 línur) AcfcrfftKYvfwW kr. 165.00 á mánuði innanlands 1 lausasölu kr. 10.00 eintakið Prentsmiðja Vísis — Edda h.f. „Alþýðulýðveldin" þjóðviljinn helgaði 20 ára afmæli kínverska alþýðu- lýðveldisins svonefnda mikið rúm. Alþýðulýðveldi þykir heppilegt orð um stjómarfar kommúnista, en er vitaskuld rangnefni. Skyldi nokkrum heilvita ís- lendingi detta í hug, að almenningur í Kína ráði ein- hverju um stjóm ríkisins? Öllum hlýtur að vera ljóst, að þar er einræði og ein grimmasta harðstjórn, sem nú er til í heiminum. Meginþorri þjóðarinnar er vilja- laust verkfæri í höndum þeirrar harðstjórnar og ger- sneyddur allri sjálfstæðri hugsun, eins og skýrt kemur fram í Maó-dýrkuninni. Vitaskuld er til í ríkinu fólk, sem sér hversu fráleit sú manndýrkun er, og fregnir hafa borizt um andspyrnutilraunir gegn harðstjórn- inni. En það er hægra sagt en gert að brjótast undan oki kommúnismans þar sem hann hefur náð undirtök- um, og margir kjósa fremur að halda lífinu en hætta á slíkar aðgerðir. Það er vafalaust rétt, að margs konar framfarir hafa orðið í Kína síðustu tuttugu árin, en svo hefur einnig orðið víðar í heiminum. Kommúnistar guma oft af því, hvað framfarir hafi orðið miklar, þar sem þetr hafa náð völdum. Sannleikurinn er þó sá, að lífskjör í ríkjum kommúnista eru hvergi sam- bærileg við það sem sæmilegt er talið í þróuðum lýð- ræðisþjóðfélögum. Almenningur í ríkjum kommún- ista þekkir ekki, nema þá af afspurn, sumt af því sem talið er sjálfsögð lífsþægindi á Vesturlöndum. Stjórnkerfið leyfir engar kröfur, og ríkisvaldið læt- ur segja fólkinu að lífskjör þess séu betri en í lýðræð- islöndunum. Óupplýstur almenningur, eins og í Kína og Sovétríkjunum, þekkir ekki annað, hefur engan samanburð, og lætur sér nægja það, sem honum er skammtað. Það er og hægt að framkvæma mikið þar sem vinnuaflið kostár sama og ekkert miðað við það sem er hjá frjálsum þjóðum. Harðskeytt einræðis- stjórn getur leyst mörg verkefni, sem reynast erfiðári viðfangs undir lýðræðisstjórnarfari. En slíkar fram- kvæmdir eru því aðeins mögulegar, áð lífskjörum ahnennings sé haldið niðri við lágmark þess, sem þarf til að draga fram lífið. Þannig er það í Kína og hefur lengst af verið í Sovétríkjunum síðan kommúnistar komust þar til valda, þótt það kunni að hafa skánað eitthvað á síðari árum. Eitt er víst, að kommúnistarnir við Þjóðviljann mundu ekki kalla það mannsæmandi lífskjör á ís- landi, sftm þeir lofsyngja hjá Rússum og Kínverjum, og þess verður áreiðanlega langt að bíða, að lífskjör almennings í nokkru kommúnistaríki verði sambæri- ieg við það, sem þau eru hér á íslandi nú, hvað þá heldur þegar velmegun var hér mest, hversu margar lofgreinar, sem Þjóðviljinn á eftir að birta um „sæl- ana“ í „alþýðulýðveldum“ kommúnismans. Kúgun og ófrelsi getur hvergi skapað fársæld og hamingju. íi :) i i (< Muskie sterkasta tromp demókrata — en Nixon væri ósigrandi i dag □ Edmund S. Muskie, öldungadeildarþingmaður frá Maine stendur betur að vígi en nokkur annar hugsanlegur frambjóðandi demókrataflokks ins, yrðu forsetakosningar í Bandaríkjunum um bessar mundir. Hann hefur mjakazt fram úr Hubert Humphrey, s»m var f fmmboði í fyrra, og Edward Kennedy, sem fram til þessa hafði verið sterkan. Eru þetta niðurstöður Gallup-könnunar, sem gerð var fyrir tveimur vikum. Nixon forseti hefur hins veg ar mikla yfirburði yfir þessa hugsanlegu andstæðinga sína í kosningum. Slíkt gerist að vísu oft í Bandarikjunum, að forset inn nýtur mestra vinsælda £ byrj un kjörtímabilsins, en á í harðari baráttu, þegar til kastanna kem ur f næstu kosningum. stilla þannig líklegum frambjóð endum demókrata, hverjum fyr- ir sig gegn Nixon og Wallace fæst nokkur mynd af því, hvem- ig forsetakosningar mundu fara, með þremur flokkum. Fylgistap Kennedys er í öllum ríkjum og meðal allra stétta og aldursflokka. Mest er þó tapiö Forskot Nixons er 49% gegn ' 34% Muskies, 53 á móti 33, ætti Humphrey í hlut, og 53 gegn 31, væri Kennedy í fram- boði gegn honum í forsetakosn- ingum. George C. Wallace, sem var I framboði í fyrra fyrir Óháða flokkinn, sem hann stofnaði þá, mundi fá milli 10 og 11 af hundr aði atkvæða. Þetta er nærri jafn mikið og þau 13,6 prósent, sem hann fékk í fyrra. Heldur hann því fylgi sínu betur en nokkur annar „þriðja flokks" frambjóð- andi hefur gert í Bandaríkjunum Þama hefur Kennedy, öldunga- deildarþingmaður, misst 6 af hundraði fylgis frá fyrri skoö- anakönnun í júlílok si., en sú könnun var gerð þegar eftir að Kennedy hélt í sjónvarpi vamar ræðu sína í Kopechne-málinu. Mary Jo Kopechne lézt 13. júli. Æskufólk snýr baki viö Kennedy. Þegar Kennedy var stillt upp gegn Nixon og Wallace í þessari könnun, fékk Nixon 50 af hundr aði, Kennedy 37 og Wallace 9 af hundraði fylgis. Með þvi að £ þeim hópum, þar sem hann átti áður mestum vinsældum að fagna, meðal unga fólksins, kvenna, svertingja og ómennt- aðs fólks. Rýmunin er 13 af hundraði hjá unga fólkinu. Muskie er einkum vinsæll hjá stúdentum og hann nær einnig betur en aðrir demókratar til óflokksbundinna kjósenda. Hubert Humphrey fékk 43 af hundraði atkvæða £ forsetakosn ingunum f fyrrahaust. Nú mundi hann aðeins hljóta 33 af hundr- aði og þvf vaknar sú spurning, hvort hann sé ekki æ meir að hverfa í skuggann og eigi sér við reisnar von. Enginn einn leiðtogi demókrata. Sannleikurinn er sá, að eng- inn einn maður hefur komið fram sem leiðtogi demókrata- flokksins frá því að repúblikan- inn Richard Nixon var kjörinn forseti. Er þar hver að bauka i sinu homi og ota slnum tota. Þetta er þó ekki óvanalegt £ Bandarikjunum fyrir flokk f stjómarandstöðu. Öldungadeild- arþingmaðurinn Mike Mansfield Muskie öldungadeildarmaður befur mjakazt fram úr Hump- hrey og Kennedy. kemur oftast fram sem talsmaö- ur flokksins, enda leiðtogi hans í öldungadeildinni, þar sem hann hefur meirihluta. Á hinn bóginn flytur Kennedy iðulega ræður, sem athygli vekja, en þá Jafn- framt deilur. Yrði kosinn forseti Bandaríkj- anna f dag skiptust atkvæðin þannig: Nixon 49% Muskie 34% Wallace 11% Óákveönir 6% — eða: Njxon 53% Humphrey 33% Wallace 11% Óákveðnir 3% — og loks: Nixon 53% Kennedy 31% Wallace 10% Óákveðnir 6% ... en hallar undan fæti fyrir Kennedy. vzr: asssssuL'ra,

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.